Morgunblaðið - 31.07.1992, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1992
D 5
I-
sjóða í um 20 mínútur og vatni
bætt útí ef með þarf.
Hrísgrjónin þvegin og soðin í kjöt-
soðinu sem geymt var.
Olía hituð á stórri pönnu og matur-
inn látinn í lögum á pönnuna. Kjöt
látið á botninn og svolitlu safrani
stráð yfir. Þá kemur grænmetið og
safrani stráð yfir og loks hrísgrjón-
in og safran. Hægt er að gera þetta
í þremur lögum eða sex, eftir því
sem hver og einn vill. Lok sett yfir
pönnuna og látið krauma við vægan
hita í 10-15 mínútur, svo kryddið
aðlagist matnum vel. Athugið að
hræra ekki í pönnunni.
Lokið tekið af og stórt fat sett á
hvolf ofan á pönnuna. Matnum
hvolft á fatið.
Sterk tómatsósa
Rétturinn er gjarnan borinn fram
með sterkri tómatsósu og súrmjólk
drukkin með. Um 1 tsk. af salti er
hrært saman við 1 glas af súrmjólk
og hún drukkin þannig. í tómatsós-
unni eru:
4 tómatar
1 pressað hvítlauksrif
1 msk. olía
1 tsk. chili-pipar
1 msk. tómatpuré
1 tsk. salt
Tómatar skornir í bita og steiktir í
olíunni. Pressuðum hvítlauk bætt
útí, síðan chili-pipar, salti og tóm-
atpuré. Látið krauma í 2-3 inín.
Þynnt með vatni ef vill.
Smsmiya (arabískt kaffi-
meðlæti úr sesamf ræjum)
1 kg sesamfræ
1 bolli hunang
1 bolli sykur
bolli muldar pistasíu-hnetur (fóst
t.d. í heilsubúðum)
1 msk. kardimommur (kvarnaðar í
______________duft)______________
Hunang og sykur soðið saman við
vægan hita og hrært vel í. Eftir
1-2 mínútur, þegar efnin hafa sam-
lagast, er sesamfræjum, kard-
imommudufti og pistasíu-hnetum
bætt útí. Hrært vel saman og látið
í smurt skúffukökumót. Þjappað
niður í mótið með olíubornum hönd-
um. Meðan blandan er enn heit, er
hún skorin í tveggja sentímetra
stóra bita og látin kólna þannig í
mótinu. Borðað með tei eða kaffi.
■
Brynja Tomer
í maímánuði og verður oftast lítill
sem enginn skaði af. Hinsvegar tel
ég að maíkuldafastið hafi haft slæm
áhrif á ýmsar plöntur þar sem
mótstaða gegn kulda var minni
vegna hlýindanna um veturinn.
Hefði komið hlýtt sumár eftir kulda-
kastið held ég að skemmdir hefðu
orðið óverulegar. Þess í stað fáum
við langvarandi kalda og vindasama
daga. Sum brum opnuðust ekki,
önnur náðu rétt að opnast, grænn
litur sá dagsins ljós og svo visnuðu
þau. Þau bnim sem næst voru stofni
náðu yfirleitt að springa út.
Þéssir þrír áhrifavaldar tel ég að
geti útskýrt skemmdir á 30 ára
öspunum og þeim yngri. Svarið er
ekki vísindalegt., þetta eru aðeins
getgátur og eflaust margir sem
kunna aðrar skýringar á þessu. Ég
ráðlegg þér að klippa alla dauða
sprota• af öspum þínum, gefa þeim
kaliáburð sem nemur 5 kg á hveija
hundraö fermetra sem stuðlar að
auknu frostþoli trjámia og sjá hvqrt
aspirnar nái ekki að jafna sig með
tímanum.
Árið 1983 gróðursetti ég aspir
við sumarbústað á Þingvöllum, þá
tveggja metra háar. Þær urðu fyrir
verulegum skemmdum eftir gróður-
setningu en í dag eru þær vöxtuleg-
ar og fallegar og hafa ekki orðið
fyrir skaða þetta sumar. Hvers
vegna sumar plöntur verða fyrir
skaða en aðrar ekki við sömu skil-
yrði og innan sömu tegundar liggur
í mismunandi uppruna þeirra og
þar að auki mismunandi kröftugleg-
um>veinstaklingum.
Þá var spurt hvers vegna ekki
*
Núna eiga
brúðarkjólar að
hafa blæ liðinna tíma
GAMALDAGS og rómantískt eru orð sem undanfarin misseri hafa
verið mikið notuð í hvers kyns sölumennsku og nú eru brúðarkjólar
ekki undanskildir að sögn ítalskra tiskuhönnuða.
Menn biðu spenntir um áramótin
síðustu, er Laura Biagiotti gifti sig,
því fólki þótti að vonum forvitnilegt
að sjá hvernig hún yrði klædd við
brúðkaupið. í ljós kom að kjóllinn
var nýr en fylgihlutirnir gamlir, þar
með talinn handsaumaður hálskragi,
sem setti fallegan svip á kjólinn.
Laura Biagiotti reið sem sagt á
vaðið og í ítölskum tískublöðum verð-
ur skríbentum tíðrætt um að nú skuli
brúðarkjólar hafa gamaldags blæ.
Reyndar segir bandarískt máltæki
eitthvað á þá leið að allar brúðir
skuli bera eitthvað nýtt, eitthvað
gamalt, eitthvað blátt og eitthvað
sem þær hafi fengið að láni frá ann-
arri konu. Við vitum af nokkrum ís-
lenskum brúðum, sem þykja væntan-
lega hagsýnar, því þær hafa slegið
þijár flugur í einu höggi og fengið
lánað gamalt, blátt sokkaband til að
uppfylla þrjú af þessum fjórum heil-
ræðum Bandaríkjamanna.
Meðal vinsælla fylgihluta á Ítalíu
.núna má nefna hálskraga, áþekkan
þeim sem Laura Biagiotti notaði,
hanska, hatta, og lítil veski, sem
helst eiga að vera handsaumuð eða
skreytt með litlum perlum. Þá eiga
skórnir helst að vera úr taui, með
satín-áferð, og ekki er verra að smá-
perlur hafl verið saumaðar á skóna.
Hællinn á að vera lágur og fremur
breiður. ■
B.T.
mætti planta öspum upp við hús.
Víða hefur trjám verið plantað fast
að húsum, einkumvið upphaf ttjá-
ræktar á íslandi. Ýmsa ókosti má
finna því samfara og má þar helst
nefna að rótarkerfi trjánna nær
ekki að vaxa í þá átt sem snýr að
húsi og þar af leiðandi er talsverð
hætta á að trén falli um koll frá
húsinu þegar þau stækka.
Þá má benda á að greinar trjáa
eiga til að lemjast við hús á vinda-
sömum dögum nema plöntunni sé
fylgt eftir með klippingum. Auk
þess hefur reynslan sýnt að trén
eru oft þannig staðsett að þau varpa
skugga á glugga með tímanum.
Þau dæmi sem ég hef nefnt hér
á undan eiga við allar tegundir
trjáa. Öspin hefur að auki þann
óskost að rætur hennar eiga þáð
til að troða sér inn í frárennslislagn-
ir í leit að raka og gera þannig
skaða. Það má gera ráð fyrir að
ösp við hús stífli rör'með tímanum.
Verður það að teljast mikill ókostur.
Hinsvegar er því ekki að neita
að tré við hús geta verið umhverf-
inu til prýði og gott dæmi um það
er reyniviðurinn við danska sendir
ráðið við Hverfísgötu og við Raf-
stöðina í Elliðaárdal. Það væri rangt
að telja lesendum trú um að alfarið
ætti ekki að gróðursetja tijágróður
við hús því það yrði sjónarsviptir
ef því yrði með öllu hætt.
IJfeuódir í Fossvogi spyr:
Ég er með birkikvist sem er
hættur að blómstra. Hver er
ástæðan?
Sv^Bteirkikvist skal grisja að
vori áðuren vöxturhefst. Séhinsveg-
ar umfang og hæð minnkuð er ekki
von til að hann blómstri það árið.
Sú aðgerð er framkvæmd að lokinni
blómgun eða í þínu tilfelli þar sem
engin blóm eru núna í júlílok.
I sumum tilfellum getur verið
ástæða til að klippa hann alveg niður
eða 10-15 sentimetra frá jörðu og
láta hann endumýja sig. Það er gert
áður en vöxtur hefst á vorin.
Á það má einnig benda að birki-
kvisturinn lifir ekki endalaust frek-
ar en aðrar plöntur og trúlegt. þyk-
ir mér að hann blómgaðist ríkulega
áður en hann félli. Mig grunar að
vandi þinn sé til kominn vegna
klippinga.
Linda í Reykjavík spyr:
Ég er með gamlan garð og
þegar ég var að stinga. beðin upp
í sumar rakst ég á ótal lauka sem
ekki hafa blómstrad það sem af
er sumri. Á ég að geyma lauk-
ana?
Svar: Það hefði verið fengur í
að fá upplýsingar um tegundir lauk-
anna en ég get þó ráðlagt þér að
taka þá upp þegar blöðin eru visnuð
og gróðursetja þá í vel framræstan
og næringarríkan jarðveg og sjá til
hvað gerist.
Að gera einstaka tegundum skil
hér er of langt mál. Ef þú vilt efla
kunnáttu þína um lauka og stuðla
þannig að markvissri ræktun er
greinagóður kafli um blómlauka í
Skrúðgarðabókinni. Einnig er
ástæða til að benda á Garðyrkjufé-
lag íslands sem er félag áhuga-
manna og ég veit með vissu að þar
kæmir þú ekki að tómum kofunum.
Höggmynd úr marmara eftir Herþrúði. Þessi höggmynd verður á
sýningum í Svíþjóð i sumar og haust.
Á STÓRRI húsgagnasýningu sem haldin var í París fyrir nokkru
vakti athygli að margir sófar voru með mjög stórum skemli fyrir
framan sem kom þá í staðinn fyrir sófaborð. Þetta er eflaust nokk-
uð þægilegt þegar hvíla á lúin bein og kaffibollinn getur hæglega
staðið á hliðarborði. Hver veit nema þetta taki við af leðurhús-
gagna- og glerborðaæðinu sem hefur verið hér undanfarin ár. ■
Er þetta það sem koma skal?
Islensk kona nær
mjög góðum árangri í
listaháskóla í Stokkhólmi
HERÞRÚÐUR Ólafsdóttir útskrifaðist nýlega með masters-próf frá
Konstfack-listaháskólanum i Stokkhólmi og er ein höggmynda hennar
nú á sýningu þar.
Um þessar
mundir dvelur Her-
þrúður í lista-
mannaþorpinu Pi-
etra Santa á ítölsku
rivíerunni, en
þangað fór hún eft-
ir að hafa dvalið í
London í boði af-
steypufyrirtæk-
isins Burleighfield
Arts. Höggmynd Herþrúðar verður
á sýningu hjá Frövifors Bruk AB í
bænum Frövi í Svíþjóð til 16. ágúst,
Herþrúður
en þar sýna nokkrir útskriftarnem-
endur verk sín. Að þeirri sýningu
lokinni fer höggmyndin til Sigtuna
þar sem hún verður sýnd á listahátíð.
Herþrúði hefur verið boðið að
kenna við Konstfack-skólann, en
hefur enn ekki tekið ákvörðun um
hvort hún þekkist boðið. Við útskrift-
ina fékk hún bæði bóka-og peninga-
verðlaun fyrir góðan árangur og á
nemendasýningu skólans seldist eitt
verk eftir hana. ■
B.T.
Drykkur búinn til
úr ávöxtum í barnaafmælið
HVERNIG væri nú að breyta út
af vananum, sleppa gosdrykkjum
í barnaafmælinu og gefa krökk-
unum ferskan ávaxtadrykk með
kökunum eða pizzunni?
Uppskriftin er ættuð frá Noregi og
er svohljóðandi:
1-2 lítrar ferskur appelsínudjús,
kreistur sítrónusafi eftir smekk
3 dl af ferskum jarðarbenum sem
eru skorm í tvennt
1 dl þunnar bananasneiðar
þunnar appelsínu og sítrónusneiðar
bláber ef til eru
Öllu blandað saman og ef vill má
fyt’st meija ávextina í safamauk og
setja síðan út í appelsínusafann. ■