Morgunblaðið - 31.07.1992, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1992
D 11
hjá Toyota því þá var framleiddur
25 milljónasti bíllinn en þar af
voru Corollur 10 milljónir. Þá kom
fram fimmta kynslóðin og nú með
framdrifi. Vélin var einnig ný frá
grunni með yfirliggjandi kambás,
síðar 16 ventla og nú var boðin
fimm gíra handskipting. Með sjöttu
kynslóðinni árið 1987 var enn auk-
ið við vélaframboðið og enn var
Corollan fáanleg í allmörgum út-
gáfum eins og verið hafði frá
fyrstu kynslóð.
Toyota Corolla er nú seld í yfir
130 löndum. Hún er framleidd í
13 löndum í nánast öllum heimsálf-
um og brátt bætast tvö lönd við,
Pakistan og Tyrkland. Allt frá ár-
inu 1969 hefur Toyota Corolla ver-
ið mest seldi bíllinn í Japan og frá
árinu 1988 hefur hann verið mest
seldi einstaki bíllinn í löndum EB
og EFTA. Fimm verðmætustu
markaðslönd Toyota í Evrópu eru
Þýskaland, Belgía, Bretland, Sviss
og Holland.
Og nú er komin fram sjöunda
kynslóðin. Þar kennir enn margra
grasa og verður í næsta bílaþætti
greint frá reynsluakstri sem fram
fór í Hollandi í síðustu viku. Co-
rolla verður fáanleg sem hlaðbakur
(hatchback og liftback), stallbakur
og langbakur. Corollan er orðin
svolítið lengri, 5,5 til 10 cm eftir
gerðum, þremur sentimetrum
breiðari og örlítið hærri. Þá hefur
hjólhafið lengst um 3,5 cm og má
segja að stækkunin komi mest
fram í farþegarými bílsins. Vélin
er endurbætt 1600 rúmsentimetra,
16 ventla og 114 hestöfl með beinni
innsprautun og er því heldur
öflugri en eldri gerðin sem var
með 1300 rúmsentimetra og 75
hestafla vél. Þá er Corollan fáanleg
með sjálfskiptingu eða fimm gíra
handskiptingu. Verðið er á bilinu
1.049 þús. kr. og uppí 1.274 þús-
und kr. ■
Jóhannes Tómasson
Sjöunda og nýjasta kynslóðin
sem kynnt verður um næstu
helgi. Þarna eru mjúku lín-
urnar ráðandi og Coroll-
an hefur einnig
stækkað um
nokkra senti-
metra.
Önnur (að ofan), þriðja (til hægri)
og fjórða (að neðan) kynslóð tóku
hægum breytingum.
Umferðarslys í umdæmi lög-
reglunnar í Hafnarfirði jan.- júní '92
í 236 tilvikum var einungis um eignatjón að ræða
15 Hverjir slasast?
£
vtf'
^ y* .xv
Dreifing umferðarslysa
janúar - júni
Hvenær dags verða sysin?
SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS8S
Hvenær vikunnar
verða slysin?
Heimild: UMFEROARRÁO, somkvæmt skróningu lógreglu
Trissa
VIÐHALD OG
VIDGERÐIR
Vélarblokk
Kveikjutíminn stilltur og skipt um kerti
í SÍÐUSTU grein var fjallað um platínur, og þá var nefnt að sjald-
an þurfi að hreyfa við kveikju og stilla tímann eins og það er kall-
að, þ.e. hvenær neisti á að myndast, en það verður að gerast ör-
skömmu áður en bulla á sprengislagi nær hástöðu. I bíl með raf-
eindakveikju þarf naumast að velta vöngum yfir þessu atriði. í slíkri
kveikju eru engir þeir hlutir sem slitna með sama hætti og platínur
og kveikjutíminn ætti því ekki að breytast nema hreyft sé við henni
og hún jafnvel tekin upp. Hér á eftir skal því þó stuttlega lýst
hvernig hægt er að stilla tímann með einföldum hætti og er þá
miðað við kveikju með platínum í fjögurra strokka vél. Einnig er
fjallað um það sem hafa ber í huga þegar skipt er um kerti, og
að lokum er vikið lauslega að eldsneytiskerfinu.
Það sem þarf til að stilla kveikju-
tímann er prufulampi sem svo kall-
ast (skrúfjárn með peru og þræði),
en hægt er að komast af án hans
ef í nauðir rekur, og lykill til þess
að losa kveikjuna. Því næst þarf
að vita hver tíminn á að vera en
hann er mældur í gráðum. Á öllum
vélum eru tímamerki, oftast eitt
eða fleiri á trissunni á sveifarásnum
og annað á vélinni sjálfri (sjá mynd
A) eða öfugt. Eitt merkið sýnir
hvenær bullan í fyrsta strokki er í
hástöðu (TOP DEAD CENTRE,
skammstafað TDC) en hin telja
gráðurnar áður en þeirri stöðu
er náð, fimm gráður fyrir, tíu
gráður fyrir o.s.frv. en vélin i
snýst réttsælis. í handbók bíls-
ins er gefið upp hversu margar
gráðurnar eiga að vera. Þegar
það er vitað er kveikjulokið tek-
ið af og vélinni snúið þangað til
merki standast á og kveikjuham-
arinn er á fyrsta. Þá er kveikju-
lásnum snúið (svissað á) og prufu-
lampinn tengdur við straumleiðsl-
una fyrir platínurnar og í jörð.
Losað er upp á festiboltanum á
kveikjunni svo að hægt sé að snúa
henni. Ekki er þó sama í hvora átt
henni er snúið. Kveikjuflýtirinn
flýtir kveikjunni eins og nafnið
bendir til og er hægt að taka mið
af honum. Hann togar í kveikju-
botninn. Snúa á kveikjunni í sömu
átt og hann togar (sjá mynd B).
Kveikjunni er snúið en gæta verður
þess að kveikjuásinn hreyfíst ekki
með. Um leið og logar á Ijósinu eru
platínurnar að opnast. Þá er tíminn
nærri lagi og óhætt að festa kveikj-
una en þess skal gætt að hún snú-
ist ekki á meðan. Hægt er lika að
láta augað ráða og snúa kveikjunni
þangað til platínurnar byrja opnast.
Þá skal vikið að kertunum. Þau
endast ekki mikið lengur en
platínur og því er rétt að
skipta um þau á 10 til 15
þús. km fresti. Fá verður
rétt kerti en þáu eru auðvitað
mismunandi. Tvennt ber að hafa
huga áður en skipt er um þau.
Annað er gamalt húsráð: Alls ekki
kippa öllum kertaþráðunum af áður
en hafíst er handa nema þeir séu
merktir. Margur hefur lent í þeim
ógöngum þegar nýju kertin eru
komin í að vita ekki hvar hver þráð-
ur á heima því að alls ekki er sama
hvernig þeir raðast á kertin. Hitt
er að skrúfa þau ekki úr ef vélin
er mjög heit. Þá er ráðlegt að
bregða réttu þykktarmáli á milli
oddanna eins og gefið er upp í
handbók bílsins þó að sjaldan komi
að sök þó að því sé sleppt. En um
leið og skipt er um kerti er rétt
að skoða hetturnar á kertaþráðun-
um, bæði við kertin og kveikjulok-
ið. Ef þær eru orðnar harðar og
sprungnar af langri notkun er lík-
legt að þræðirnir séu að renna sitt
skeið á enda og tími kominn til að
skipta um þá. Ella er viðbúið að
bíllinn neiti að fara í gang þegar
rignir. Hægt er að kaupa þræði í
réttum lengdum víða en gæðin eru
vitaskuld misjöfn. Engihn skyldi
þó horfa í að fjárfesta í góðum
kertaþráðum. Þegar nýir þræðir
eru settir í gildir húsráðið sem vik-
ið var að hér á undan: Takið einn
þráð í einu og setjið nýjan í staðinn
áður en byrjað er á næsta. Þá verð-
ur að leggja þannig að þeir liggi
ekki á pústgrein eða nuddist ein-
hvers staðar við.
Kveikjulok geta sprungið en slík
bilun gerir einkum vart við sig í
rigningatíð. Þegar kveikjan er opn-
uð er því rétt að skoða lokið að
innan og huga að sprungum. Ef
einhvetjar tortyggilegar sprungur
sjást skal hiklaust skipt um það
og eins og áður aðeins einn þráður
tekinn úr í einu.
Á hamrinum og reyndar innan
á lokinu Mka myndast svart hrúður
sem alls ekki má hreinsa burt. Ef
það er gert verður lengra fyrir
neistann að hlaupa og spennan
minnkar.
Að síðustu skal vikið hér að elds-
neytiskerfinu. Sjaldan þarf að eiga
við blöndunga enda eru nánast all-
ar stilliskrúfur á þeim þannig í
flestum bílum að naumast er hægt
að hrófla við þeim nema með sér-
stökum verkfærum og raunar er
ekki ætlast til að það sé gert án
þess að afgasmælir sé notaður.
Hins vegar þarf að skipta um loft-
síu einu sinni og jafnvel tvisvar á
ári, en hún getur verkað eins og
innsog ef hún verður of gömul og
bensíneyðsla aukist að sama skapi.
Lofthreinsari verður þá olíublautur
þó að fleira geti að vísu valdið því.
Þá er rétt að huga að bensínsíu
sem oft er komið fyrir á hvalbakn-
um. Auðvelt er að finna hana með
því að rekja sig eftir bensínleiðsl-
unni. Henni er hent ef hún er sýni-
lega orðin gömul en bensínsíur í
flestar gerðir bíla fást víða og kosta
lítið. ■
Sveinn Þórðarson