Morgunblaðið - 20.08.1992, Side 1
GEWCISIWÁL: Gengislækkun dollars talin hagstæö fyrir þjóöarbúiö /4
SJÓFLUTNINGAR: Komast Samskip upp úr öldudalnum? /5
VIÐSKITn JOVINNULtF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992
BLAÐ
Framleiðsla
Hampiðjan með hagnað
þrátt fyrir 6% samdrátt
HAGNAÐUR af reglulegri starf-
semi Hampiðjunnar og dótturfé-
lags hennar í Portúgal fyrir skatta
varð 15,3 milljónir króna fyrstu
sex mánuði ársins samanborið við
11,8 milljónir á sama tímabili í
fyrra. Hampiðjan seldi fyrr á
þessu ári allar fasteignir sínar við
Stakkholt og hreinn hagnaður
fyrstu sex mánuðina varð þvi 39,1
miiyón að meðtöldum söluhagnaði
og að frádregnum reiknuðum
sköttum.
Rekstrartekjur Hampiðjunnar á
fyrri árshelmingi drógust saman um
6% frá því í fyrra á verðlagi hvors
árs, eða úr 381 milljón í 359 milljón-
ir króna skv. milliuppgjöri. Á fyrri
árshelmingi í fyrra námu rekstrar-
gjöld alls 369 milljónum miðað við
344 milljónir á ár og er samdráttur-
inn þar 7%.
í frétt frá Hampiðjunni segir að
helsta ástæðu samdráttar í rekstr-
artekjum megi rekja til minni sölu á
fiskilínu og köðlum á innanlands-
markaði,. Hins vegar hefði orðið
nokkur aukning útflutnings á netum
og trollum þ.a. í heild hefði sala neta
aukist frá fyrra ári.
Ennfremur segir að í ljósi eigin-
fjárstöðu og veltu fyrirtækisins þyrfti
hagnaður af reglulegri starfsemi að
vera mun meiri en náðist á fyrstu
sex mánuðunum.
Velta félagsins dróst saman um 6%
frá fyrra ári og framleiðslan enn
meira eða 11% enda voru birgðir of
miklar í upphafi árs. Tekist hefur
að draga verulega úr framleiðslu-
kostnaði á árinu með almennum að-
„Við teljum það stóran áfanga að
vera búin að fá græna ljósið á heilsu-
saltið. Þessi tegund af salti er hvergi
annars staðar framleidd í heiminum.
Við erum því búnir að sanna það
fyrir sjálfum okkur og öðrum að það
er hægt að framleiða hér heilsusalt
sem á að geta staðið undir sér,“ seg-
ir Ingólfur.
Saltverksmiðjan hefur verið lokuð
haldsaðgerðum, en þó sérstaklega
með stofnun gamverksmiðju Hamp-
iðjunnar í Portúgal.
Eignir félagsins skv. milliuppgjör-
inu námu 1.539 milljónum sam-
anborið við 1.510 í lok júní 1991.
Skuldir lækkuðu úr 843 milljónum í
793 milljónir á þessu tímabili og eig-
ið fé félagsins jókst úr 613 milljónum
í 632 milljónir króna. í lok júní sl.
nam tekjuskattsskuldbinding Hamp-
iðjunnar 114 milljónum en var 55
milljónir í júnflok 1991.
Um síðustu mánaðarmót hófst
bygging 3. áfanga við Bíldshöfða,
um 3.900 fm húsnæðis. Reiknað er
með að starfsemin við Hlemm flytjist
að Bíldshöfða um áramótin næstu.
að undanfömu vegna sumarfría en
í þessari viku er verið að setja hana
í gang aftur. Heilsusaltsframleiðslan
mun því fara aftur í gang fljótlega
og afgreiðslusamningur til Akzo hef-
ur verið gerður til nokkurra mánaða.
Ekki fæst uppgefið hversu mikið
magn af heilsusalti íslenska saltfé-
lagið hyggst framleiða en verð á því
er margfalt hærra en venjulegt salt.
HUJUU.II.I.III J
Sala heilsusalts und-
irbúin íHollandi
FYRSTA sendingin af framleiðslu íslenska saltfélagsins hf. af heilsu-
salti er komin til hollenska fyrirtækisins Akzo, sem saltverksmiðjan
er með langtímasamning við um sölu og dreifingu á heilsusaltinu. Að
sögn Ingólfs Kristjánssonar verksmiðjustjóra eru viðbrögð hinna hol-
lensku aðila mjög jákvæð og mun heilsusattið standast allar þær gæð-
akröfur sem gerðar eru. Akzo mun því fara að undirbúa markaðssetn-
ingu heilsusaltsins og kynna það fyrir sínum viðskiptavinum.
Samanbuður á
mapbreytingar á milli ára
1992 1993
1992 1993
Einkaneysla -3,8 -1,8 -4,5 -2,0
Samneysla 0,5 0,0 1,5 2,0
Fjárfesting -9,7 -10,4 -12,0 -8,0
Neysla og fjárfesting alls -4,2 -3,3 -4,8 -2,3
Birgðabreytingar* -0,3 0,0 -0,2 0,8
Þjóðarútgjöld -4,5 -3,3 -5,0 -1,4
Útflutningur vöru og þjónustu 1,3 -1,0 -1,2 0,5
Innflutningur vöru og þjónustu -3,3 -6,3 -7,9 -5,5
Landsframleiðsla -3,0 -1,5 -2,7 0,6
Þjóðartekjur -3,9 -2,3 -4,7 -0,1
Viðskiptakjör -4,2 -0,5 -4,4 -2,1
Viðskiptajöfnuður (milljarðar) -15,0 -9,8 -15,7 -11,0
hlutfall af landsframleiðslu (%) -3,9 -2,6 -4,1 -2,8
Verðbólga {%) 4,4 1,9 4,2 2,5
Atvinnuleysi ** 2,9 3,6 2,8 3,8
*Vöxtur eða samdráttur I birgöabreytingu sem hlutfail af landsfrarrteiðslu fyrra árs
*' Meðaifjöki skráðra atvinnulausra sem hlutfal! af vinnuframboói
FÉLAG íslenskra iðnrekenda sendi nýverið frá sér þjóðhags-
spá og má sjá helstu niðurstöður hennar hér að ofan. Til
samanburðar má einnig sjá niðurstöður í þjóðhagsspá
Þjóðhagsstofnunar sem lögð hefur verið tii grundvallar viö
gerð fjárlagafrumvarpsins. Athyglisvert er að nokkur munur
er á spám þessara tveggja aðila og vekur þar sérstaka
athygli að iðrekendur gera ráð fyrir að 0,6% aukningu á
landsframleiðslu á næsta ári en Þjóðhagsstofnun spáir 1,5%
samdrætti. Iðnrekendur eru allbjartsýnir fyrir næsta ár og
gera ráð fyrir að útflutningur vaxi þrátt fyrir aflasamdrátt og
að verð sjávarafurða muni hækka á seinni helmingi næsta
árs. Ennfremur er búist við vexti í útflutningi iðnvarnings,
einkum vegna útflutnings áls og kisiljárns. Aftur á móti gera
báðir aðilar ráð fyrir miklum samdrætti í innflutningí og eru
jafnframt nokkuð samstíga í spá um aukið atvinnuleysi en
mjög litla veröbólgu á næsta ári.
íslandsbréf 7,1%
- án bindingar
Þú þarft ekki að festa fé þitt í langan tíma til að njóta
góðrar ávöxtunar.
íslandsbréf, góður kostur íyrir þig.
Ráðgjafar Landsbréfa og umboðsmenn í Landsbanka íslands
um allt land.
5J5
Raunávöxtun sl. 3 mánuði á ársgrundvelli.
LANDSBRÉF H.F.
Landsbankinn stendur með okkur
Sudurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, slmi 91-679200, fax 91-678598
Löggilt verdbréfafyrlrtæki. AdiII að Verðbréfaþingi Islands.