Morgunblaðið - 20.08.1992, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATV1NN1ILÍF FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992
Fyrirtæki
Hagnaður Tollvöru-
geymslunnar 2,2 milljónir
HAGNAÐUR Tollvörugeymslunnar hf. fyrstu sex mánuði ársins
nam 2,2 milljónum króna fyrir skatta skv. milliuppgjöri. Áætlun
gerði ráð fyrir tæplega fjögurra milljón króna hagnaði, en fjár-
magnsgjöld á þessu tímabili urðu meiri en áætlað var. í fyrra
varð hagnaður af rekstri Tollvörugeymslunnar 4,7 milljónir fyrir
skatta og skv. áætlun er gert ráð fyrir að hann verði 16 milljónir
fyrir allt árið 1992.
Rekstrartekjur Tollvörugeymsl-
unnar á fyrri árshelmingi jukust
um 22% miðað við sama tíma í
fyrra eða úr 50 milljónum í 61,2
milljónir. Rekstrarkostnaður sama
tímatíils jókst úr 46,4 milljónum í
54,2 milljónir sem samsvarar um
17% aukningu. Rekstrarhagnaður
tímabilsins var því um 7 milljónir
króna samanborið við 3,6 milljónir
á sama tíma í fyrra.
Fyrstu sex mánuði ársins námu
fjármagnsgjöld Tollvörugeymsl-
unnar 4,5 milljónum samanborið
við fjármunatekjur upp á eina
milljón á sama tímabili í fyrra.
Munurinn skýrist að mestu af
auknum framkvæmdum í tengsl-
um við nýja starfsþætti s.s. komu
flugfraktar Flugleiða, opnun frí-
svæðis, endurskipulagningu og
endumýjun á vöruhúsum Tollvöru-
geymslunnar ásamt annarri lag-
færingu. Þá námu óregluleg gjöld
félagsins um 370 þúsundum.
Eignir Tollvörugeymslunnar
námu 380 milljónum í lok júní sl.,
en um síðustu áramót voru eign-
imar 325 milljónir skv. efnahags-
reikningi. Þá voru skuldir félgasins
125 milljónir samanborið við 186
milljónir skv. sex mánaða uppgjöri
þessa árs. Eigið fé dróst saman
um 5 milljónir á tímabilinu, úr 199
milljónum í 194 milljónir.
Jarðboramr
Ákvörðun um álver ætti að
hækka gengið á hlutabréfunum
TALSMENN Kaupþings, sem annast hlutabréfasöluna í Jarðborun-
um, segjast hafa orðið varir við áhuga hjá almenningi og stórum
fjárfestum á hlutabréfum í Jarðborunum undanfarna daga, en
bréfin verða sett á almennan markað í dag. Stefán Halldórsson
hjá Kaupþingi segir mikilvægt að stórir fjárfestar taki þátt í útboð-
inu þar sem söluverðmæti bréfanna í Jarðborunum sé það mikið.
Bréfin verða til sölu hjá Kaupþingi, öðrum verðbréfafyrirtækjum,
afgreiðslum Búnaðarbankans og sparisjóðum. Eins og áður hefur
komið fram í Morgunblaðinu verður gengi bréfanna 1,87 og nafn-
virði þeirra alls 141,6 miHjónir króna.
„Verkefni Jarðborana hafa ver-
ið með minna móti hin síðustu ár
miðað við það sem áður var. Þess
er að vænta að verkefnin aukist á
komandi árum.
Verðlagning hlutabréfanna hef-
ur tekið mið af þessu og í því sam-
bandi má benda á að innra virði
hlutabréfanna var 2,27 um sl. ára-
mót, en nú eru þau selt á 1,87.
Mér finnst mjög líklegt að hluta-
bréfín hækki í tengslum við samn-
inga um sölu á orku til stóriðju
þar sem með þeim þarf að fram-
kvæma jarðboranir til orkuöflunar
fyrir raforku og einnig að setja
af stað rannsóknarboranir vegna
nýrra virkjana. Ákvörðun um álver
myndi því strax leiða til aukinna
verkefna hjá Jarðborunum og þar
með aukinnar veltu og hagnaðar,
sem hafa áhrif á gengi hlutabréf-
anna,“ segir Stefán.
Jarðboranir hafa skilað hagnaði
öll árin frá stofnun fyrirtækisins
fyrir utan árið 1988. A síðasta ári
varð hagnaður 15,8 milljónir króna
af 197,5 milljóna veltu og á þessu
ári er talið að veltan verði á bilinu
180-200 milljónir króna og
hagnaður 15-25 milljónir. Félagið
er sagt búa við mjög sterkan fjár-
hag, eigið fé er um 87% af heildar-
eignum.
Að sögn forsvarsmanna hluta-
bréfasölunnar er markaðsstaða
hlutafélagins mjög sterk og mun
það vera vel í stakk búið til að
mæta samkeppni erlendra bor-
fyrirtækja, ef þau leita inn á þenn-
an markað. Einnig er talið að Jarð-
boranir eigi raunhæfa möguleika
á að afla sér verkefna erlendis
vegna sérþekkingar sinnar á jarð-
borunum. Jarðboranir hf. tóku
til starfa í byijun árs 1986 og
tóku yfír rekstur tveggja borfyrir-
tækja sem áður voru í eigu ríkis-
ins og borgarinna. Félagið rekur
12 bora til háhita-j lághita- og
rannsóknarborana. Á sl. ári störf-
uðu að jafnaði 32 menn hjá félag-
inu, en að auki voru lausráðnir
starfsmenn við einsök borverkefni.
Framkvæmdastjóri Jarðborana er
Bent S. Einarsson viðskiptafræð-
ingur.
mest seldu fólks-
bílategundirnar
í jan.- maí 1992
Fjöldi %
1. TOYOTA 929 20,4
2. NISSAN 563 12,3
3. MITSUBISHI 551 12,1
4. DAIHATSU 548 12,0
5. AE-LADA 255 5,6
6. SUBARU 241 5,3
7. MAZDA 190 4,2
8. VOLKSWAGEN 164 3,6
9. SUZUKI 148 3,2
10. RENAULT 141 3,1
Aðrir 829 18,2
4.559
Bifreiða-
innflutningur
jan.- júlí
1992
----FÓLKSBÍLAR
HÓP- VÖRU- og
SENDIBÍLAR
Notaðir bílar
697
315
ALLS voru 712 nýir fólksbílar fluttir inn í júli sl. og hafa þá samtals verið fluttir inn
4559 nýir fólksbílar á þessu ári. Árið 1991 höfðu samtals verið fluttir inn 6102
nýir fólksbílar á sama tíma og er því um 25,3% samdrátt að ræða. Að sögn
Jónasar Þórs Steinarssonar hjá Bílgreinasambandinu var innflutningurinn í júlí líkt
og búist hafði verið við og samdrátturinn svipaður og verið hefur þar sem af er
ársins. í júli mánuði var mest flutt inn af Toyota eða 122 fólksbílar, af Nissan voru
fluttir inn 112 og af Mitsubishi 69 fólksbílar. Það sem af er árinu hefur mest verið
flutt inn af Toyota, alls 929 og næst mest af Nissan alls 563, þar á eftir koma
Mitsubishi og Daihatsu.
JARÐBORANIR — Myndin er tekin við rannsóknarboranir
sem Jarðboranir voru að framkvæma í Öskjuhlíð í sl. viku, þar sem
verið var að kanna jarðhitasvæði.
Samkeppni
8.4%
Ars;i\öxiun iimlnim vonAbúlgu
SKULDABREF
GLITNIS
2-4 ára verðtryggð skuldabréf
með fastri ávöxtun til
gjalddaga.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30.
Tvær íslenskar aug-
lýsingar tilnefnd-
ar til verðlauna
TVÆR íslenskar auglýsingar
voru nýlega tilnefndar til verð-
launa í samkeppni norrænna
sjónvarpsauglýsinga sem ber
nafnið Gullni svanurinn. Um er
að ræða auglýsingamyndirnar
Ugla sat'á kvisti sem ÁUK hf.,
IÐNLANASJOÐUR
fyrir íslenskt atvinnulíf
ÁRMÚLA13A 155 REYKJAVÍK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950
Auglýsingastofa Kristínar,
gerði fyrir Sjóvá-Almennar og
Trambolín sem auglýsingastof-
an Gott fólk gerði fyrir Ríkis-
sjóð.
Alls bárust 380 sjónvarpsaug-
lýsingar til keppninnar. Auglýs-
ingamyndirnar voru frá öllum
Norðurlöndunum, þar af 9 frá ís-
landi. Af þessum 380 myndum
voru 70 tilnefndar til verðlauna.
Úr þeim velur dómnefnd síðan
ótilgreindan fjölda auglýsinga sem
verðugar þykja bronsverðlauna og
er sami háttur hafður á með silfur-
verðlaunin. Ein auglýsing fær síð-
an gullverðlaun.
Einnig fá sex auglýsingar sér-
stök verðlaun fyrir tæknileg at-
riði, tökur, klippingar, lýsingu,
hljóðsetningu, leik, leikstjórn og
sérstakar tæknibrellur. Að lokum
verður valin ein auglýsing sem
stendur uppi sem sigurvegari og
hlýur Grand Prix verðlaunin.