Morgunblaðið - 20.08.1992, Side 7

Morgunblaðið - 20.08.1992, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992 B 7 Stjórnun Eyðublaðasafn fyrir rekstur fyrirtækja ÚTGÁFUFYRIRTÆKIÐ Um- gjörð hf. sem hóf starfsemi í byijun þessa árs hefur gefið út á íslensku safn eyðublaða fyrir stjórnun og rekstur. Eyðublöðin voru þróuð og hönnuð í Þýska- landi undir heitinu „Know how collection" en á íslandi eru þau nefnd „Know how“ eyðublaða- safnið. Markmiðið með gerð eyðublað- anna er að búa til tæki sem sparar vinnu við undirbúning, fram- kvæmd og eftirlit með rekstri, að því er segir í frétt frá Umgjörð hf. Um er að ræða grunnsett sem samanstendur af 50 gátlistum og eyðublöðum fyrir áætlanagerð og skipulagningu. Einnig verða innan skamms fáanleg 4 viðbótarsett sem hvert um sig er u.þ.b. 15 eyðu- blöð. Þau ná til tímastjórnunar, starfsmannamála, fjármála og skipulagningar. Þá er hægt að sér- panta eyðublöð hjá Umgjörð hf. eða láta fyrirtækið hanna ný eða endurbæta þau gömlu. Hvert eyðu- blað er prentað á pappaspjald. Öðru megin á spjaldinu er sjálft eyðublaðið, tilbúið til ljósritunar. Hinum megin á spjaldinu er smækkuð mynd af eyðublaðinu, útfyllt með rauðu letri. Ennfremur er þar að finna stuttan skýringar- texta um tilgang viðkomandi eyðu- blaðs og aðferðir við útfyllingu. Safnið er einnig fáanlegt á diskl- ingum og er unnt að færa upplýs- ingar inn á eyðublöðin með Page maker forritinu. Síðan má geyma upplýsingar í minni, endurbæta og breyta þeim eftir þörfum. Bent er á að eyðublaðasafnið nýtist á öllum sviðum rekstursins, t.d. við gerð fjárhagsáætlana, við markaðs- og auglýsingastjómun, starfsmanna- stjórnun, við undirbúning og eftir- lit söluferða og söluherferða og undirbúning funda. Nánari upplýs- ingar era veittar hjá Umgjörð hf. í s. 11331. Ráðstefna Réttsetaer mikilvæg PENNINN sf. mun á morgun, föstudaginn 21. ágúst, halda ráð- stefnu um mikilvægi réttrar setu við vinnu á skrifstofum. Peter H. Geissler, heldur fyrirlestur um efnið, en hann starfar í Þýskalandi sem óháður fyrir- tækjaráðgjafi og hefur um ára- bil kynnt vinnuvernd eftir þvi sem segir í fréttatilkynningu frá Pennanum. í fréttatilkynningunni segir enn- fremur að röng seta sé heilsuspil- landi og skrifstofur og vinnustaðir sem ekki uppfylli kröfur um rétta vinnuaðstöðu séu oft ástæða fyrir skertri starfsorku fólks. Það sé skylda hvers þess er hefur umsjón með vinnuaðstöðu starfsfólks að fylgjast með þróun í heilsuvemd. Ráðstefnan fer fram á Hótel Esju frá kl. 10.00 til 16.00. Þar verður m.a. fjallað um vinnustell- ingar og líkamsbyggingu, rann- sóknir á skaða sem röng seta getur valdið og möguleika á vinnuvernd. Að lokun geta menn skipst á skoð- unum um þessi málefni og prófað stóla frá Pennanum. Ber er hver að Baki... Dauphin BL 1300 er traustur bakvörður sem styður þig dyggi- lega í dagsins önn. Hann er með allar nauðsynlegar stillingar, hjólin renna léttilega en hemla þegar staðið er upp. Dauphin BL 1300 er líka fáanlegur með örmum. Verð kr. 21.900. DOUpHIN Allt í einni ferð. CHEEO- Hallarmúla 2, sími 813211, fax 689315. Útbob ríkisbréfa (RBR. 4. fl.1992) Fjármálaráðherra, f.h. rikissjóðs, hefur ákveðiö að bjóða út ríkisbréf í samræmi viö heimildarákvæöi lánsfjárlaga fyrir árið 1992 og meö hliðsjón af ákvæðum laga nr. 79/1983 svo og laga nr. 43/1990, 1. gr., um Lánasýslu ríkisins. í boði verða ríkisbréf 4. fl. 1992 með útgáfudegi 28. ágúst 1992 og gjalddaga 26. febrúar 1993. Lág- marksfjárhæð útboðsins er 300 milljónir króna. Heildarfjárhæð útboðsins er áætluð um 500 milljónir króna samkvæmt nánari ákvörðun fjármálaráðherra um töku tilboða. Ríkisbréfin verða gefin út í þremur verðgildum; 2.000.000, 10.000.000 og 50.000.000 krónur að nafnvirði og verða þau innleyst hjá Lánasýslu ríkis- ins eða Seðlabanka íslands á gjalddaga. Ríkisbréf eru án nafnvaxta og verðtryggingar. 4. Öllum er heimilt að gera bindandi tilboð í ríkisbréf samkvæmt eftirfarandi reglum: a) Löggiltum veröbréfafyrirtækjum, löggiltum verö- bréfamiölurum, bönkum og sparisjóöum er einum heimilt aö gera bindandi tilboð í ríkisbréf samkvæmt tilteknu tilboðsverði. b) Öllum öörum er heimilt að gcra bindandi tilboð í vegið meðalverð samþykktra tilboða (meðalávöxtun vegin með fjárhæð). Tilboð samkvæmt þessum lið eru háð því að samþykkt tilþoð samkvæmt a-lið þessarar greinar verði að minnsta kosti samtals 200 milljónir króna. 5. Gera skal þindandi tilþoð í nafnverð ríkisbréfa, sbr. lið 3, eða heilt margfeldi verðgilda. 6. Tilboð má senda á sérstökum eyöublöðum sem fást hjá Lánasýslu rfkisins. Tilboðin skulu berast Lána- sýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir kl. 14.00 miðvikudaginn 26. ágúst 1992 og séu í lokuð- um ómerktum umslögum, að öðru leyti en því að þau séu sérstaklega merkt oröinu „Tilboö í ríkisbréf“. 7. Heimilt er að símsenda tilboð í staðfestu símskeyti, og skulu þau berast fyrir sama tíma og getið er í 6. lið hér að framan. Ennfremur má senda tilboð með myndsendi í númer 91-626068 milli kl. 13 og 14 á tilboðsdegi ef það er staðfest með símtali á sama tíma við forstjóra Lánasýslu ríkisins eöa fulltrúa hans. 8. Ríkissjóður áskilur sér rétt til þess að taka eða hafna tilboðum í heild eða að hluta. Breyting eða afturköllun tilboðs skal hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14.00 hinn 26. ágúst 1992. 9. Tilboðsgjöfum verða kynntar niðurstöður útboösins með símtali eða sfmsendu bréfi eins fljótt og hægt er eftir að þær liggja fyrir, þó eigi síðar en daginn eftir að tilboðsfrestur rennur út. 10. Niðurstöður útboðsins verða kynntar tölulega eins fljótt og hægt er, án vísunar til nafna tilboðsgjafa, með fréttatilkynningu til fjölmiöla. 11. Greiðsla fyrir ríkisbréf, skv. tilboðum sem tekin verða, þarf að berast Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 16.00 á útgáfudegi, þann 28. ágúst 1992, og verða bréfin afhent eða póstsend fyrir kl. 17.00 sama dag nema þess sé óskað sérstaklega aö Lánasýsla rík- isins geymi ríkisbréfin. Berist greiðsla ekki á réttum tíma áskilur ríkissjóður sér rétt til að krefja tilboðs- gjafa um hæstu lögleyfðu dráttarvexti fyrir þann tíma sem greiösla dregst. 12. Ríkisbréf þessi eru stimpilfrjáls. Um skattskyldu eða skattfrelsi ríkisbréfa, svo og forvexti af þeim, fer eftir ákvæðum laga um tekju- og eignaskatt eins og þau eru á hverjum tíma, sbr. nú 8. gr., 1. tl. B-liðar 30. gr., 74. og 78. gr. laga nr. 75/1981, með síðari breytingum, sbr. og lög nr. 7/1974 og lög nr. 79/1983. Ríkisbréf eru framtalsskyld. 13. Flokkur þessi verðúr skráður á Verðbréfaþingi ís- lands og verður Seðlabanki íslands viðskiptavaki flokksins. 14. Útboðsskilmálar og tilboðseyðublöð liggja frammi hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík. Reykjavík 19. ágúst 1992 LANASYSLA RIKISINS Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91-626040

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.