Morgunblaðið - 20.08.1992, Síða 8

Morgunblaðið - 20.08.1992, Síða 8
V^terkurog k-J hagkvæmur JHtfgmiHiifetfr XJöfðar til JLX fólks í öllum auglýsingamiðill! VEDSKIFTIAIVINNULIF starfsgreinum! Hugbúnaður Nýr Gluggapúki kominn á markað Verslun Elstajámvöruverslun lands- ins skiptír um eigendur Morgunblaðið/ GLUGGAPÚKINN — Komin er á markað ný útgáfa af Windows ritvilluvamarforritinu Gluggapúki sem skrifað er af eigendum Tölvupúka sf. Þeir eru Steinþór Bjamason, sem er til hægri á mynd- inni, og Friðrik Skúlason. ELSTA járnvöruverslun landsins, Zimsen, hefur skipt um eigendur en hún var stofnuð árið 1894. Hinir nýju eigendur eru bræðumir Snorri, Haukur og Steingrimur Þorvaldssynir og keyptu þeir verslunina af Einari Elíassyni sem hafði átt hana síðan árið 1974. Bræðumir hyggj- ast ekki breyta starfseminni í grundvallaratriðum. Þeir ætla hins veg- ar að auka vöraúrval og innflutning og fara að selja til annarra endur- söluaðila. Hins vegar segja þeir að sú persónulega þjónusta sem veitt hafi verið í versluninni, sem hafi verið einkennandi fyrir hana, komi til með að sitja áfram í fyrirrúmi. Tveir bræðranna, Snorri og Hauk- ur, koma til með að vera í fullu starfi við verslunina, Haukur sem fram- kvæmdastjóri en Snorri sér um bók- haldið. Þeir hafa báðir nokkra reynslu af svipuðum rekstri. Haukur hefur starfað sl. 6 ár í tengdum rekstri, þ.á.m. var hann sölustjóri hjá heildverslun Marinós Péturssonar en Snorri starfaði hjá bílavarahluta- verslun sl. ár. Hjá Zimsen eru, auk Snorra og Hauks, sjö fastir starfsmenn en verslunin er starfrækt á tveimur stöðum, Hafnarstræti 21 og Ármúla 42, en útibúið í Ármúla hefur verið starfandi frá árinu 1980. Hinir nýju eigendur hyggjast áfram reka þessar tvær verslanir og halda sama starfs- mannaíjölda. Verslanirnar eru báðar reknar í leiguhúsnæði. Hafnarstræti 21 er í eigu Reykavíkurborgar en það er eitt af elstu verslunarhúsum á landinu. Húsið er friðað enda er það talið byggt um árið 1839. Haukur segir að þeir bræður hafí ákveðið að kaupa Zimsen í stað þess að stofna nýtt fyrirtæki og byija alveg frá grunni líkt og þeir hafi í fyrstu íhugað. „Okkur þótti árenni- legra að taka við eldra fyrirtæki, sem er þekkt, líkt og Zimsen, fyrir góða vöru og þjónustu. Það er of lítið um það að yngri menn taki við af þeim eldri og reyndari. Hins vegar er allt- af verið að stofna ný fyrirtæki og bæta nýjum nöfnum í firmaskrána." Snorri og Haukur segja að þeim lítist vel á reksturinn. Þrátt fyrir að þeir hafi starfað stutt í versluninni, einungis frá 1. júní sl. hafi þeim verið mjög vel tekið, jafnvel betur en þeir hafí búist við. „Samkeppnin er mikil en hún er alltaf af hinu góða. Við verðum þó ekki varir við mikla samkeppni í smásöluverslun- inni þar sem Zimsen er með sína föstu kúnna sem hafa lengi verið í viðskiptum við verslunina. Auk þess finnum við minna fyrir samdrætti í byggingariðnaðinum þar sem við leggjum meiri áherslu á viðhaldsvör- ur en margir aðrir. Hins vegar er meiri samkeppni í heildsölunni. Við lítum þó bjartsýnir fram á við, aðalat- riðið er að aðlaga reksturinn að þjóðfélaginu," segir Snorri. Að sögn Steinþórs er Gluggapúk- inn frábrugðinn öðrum ritvillu- vamarforritum að því leyti að hann notar íslenska beygingar- fræði við yfirlestur í stað þess að byggja á orðasafni og þekkir þann- ig mismunandi beygingar orða, nýyrði og samsett orð. „Forritið byggir á því að horft er á eitt orð í einu og beygingar- fræðin notuð til að yfirfara það. Nýjungin í Gluggapúka II er hins vegar fólgin í því að þessi nýja útgáfa forritsins getur annars veg- ar fylgst með innslætti og varað notandann við ef slegið er inn ranglega stafsett orð. Hins vegar getur Gluggapúkinn nú lesið yfir innsleginn texta, yfirfarið hann og látið vita ef villur fínnast. Not- andi getur lagfært ranglega staf- sett orð sjálfur eða beðið Glugga- púkann um tillögur að réttu orði,“ sagði Steinþór. Hann sagði enn- fremur að hægt væri að kenna Gluggapúkanum ný orð ef þörf væri. Gluggapúkinn er sem fyrr segir Windows forrit sem ætlað er til notkunar með ritvinnsluforritun- um Word fyrir Windows, Word Perfect og Just Write. ZIMSEN — Hinir nýju eigendur Zimsen em bræðumir Snorri, Haukur og Steingrímur Þorvaldssynir. Á myndinni era Snorri og Hauk- ur en þeir era báðir í fullu starfi við verslunina. NÝ útgáfa af Windows forritinu Gluggapúki er komin á markað. Nýja útgáfan, Gluggapúki II, inniheldur bæði yfirlestur og orðskiptingar sem er breyting frá eldri útgáfunni. Gluggapúkinn er skrifaður af eigendum Tölvupúka sf., Steinþóri Bjamasyni og Friðriki Skúlasyni. Tímamót í vioskiptalífinu í dag eru þau tímamót í viðskipta- lífinu þar sem nú eru í fyrsta sinn sett á almennan markað hlutabréf í opinberu fyrirtæki. Nú getur hver sem áhuga hefur keypt hlut í Jarð- borunum hf., þó ekki meira en 5% og ekki fyrir minna en 30 þúsund krónur að nafnvirði. Hlutafjárútboð þetta verður prófraun á fram- kvæmd áframhaldandi einkavæð- ingar á stærri fyrirtækjum, svo sem ríkisbönkunum, og því verður spennandi að fylgjast með hvernig fjárfestar, smáir og stórir, koma til með að taka hlutabréfunum í Jarðborunum. Sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að beita sér fyrir því að hluti af söluandvirði ríkisfyrirtækja sem verða einkavædd renni til rann- sóknar- og þróunarverkefna í þágu atvinnulífsins og til sköpunar nýrra atvinnutækifæra ætti að virka hvetjandi fyrir fjárfesta. Ákvörðun- in ætti ekki síst að örva hlutafjár- kaup lífeyrissjóðanna þar sem tengsl þeirra og ábyrgð gagnvart viðskipta- og atvinnulífinu eru mik- il. Þrátt fyrir að þetta sé f fyrsta sinn sem hlutabréf í ríkisfyrirtæki eru sett á almennan markað hefur ýmislegt verið að gerast í tengslum við einkavæðingu hjá ríkinu, sér- staklega eftir að framkvæmda- nefnd um einkavæðingu var sett á laggirnar. Skipaútgerð ríkisins hef- ur verið lögð niður og eignirnar ýmist seldar eða leigðar út. Fram- leiðsludeild ÁTVR hefur einnig ver- ið lögð niður ásamt útgáfustarf- semi Menningarsjóðs. Prentsmiðj- an Gutenberg hefur verið seld ásamt hlutabréfum ríkissjóðs í Ferðaskrifstofu íslands. Þá hafa hlutabréf ríkissjóðs í Þróunarfélagi íslands verið auglýst til sölu. Ýmislegt fleira er á döfinni og má þar nefna að fyrirhugað er að breyta Lyfjaverslun ríkisins í hluta- félag og selja eignarhlut ríkisins í (slenskri endurtryggingu. Þá er útboð á rekstri Fríhafnarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í undir- búningi. Auk þess er fyrirhuguð endurskipulagning á bönkum og sjóðum í eigu ríkisins, Pósti ög síma og Rafmagnsveitum ríkisins. í viðtali við norska dagblaðið Dagens Næringsliv fyrir stuttu minnist Jónas Haralz, fyrrverandi bankastjóri Alþjóðabankans, á skýrslu frá Alþjóðabankanum og Bostonháskóla. í skýrslunni er m.a. rætt um hvernig einkavæðing hefur áhrif á almenna velmegun og hvort jafn ólíkir aðilar á borð við ríki, fjárfesta, launafólk og neyt- endur hagnist eða tapi á einka- væðingu. í rannsókninni voru m.a. tekin dæmi frá Bretlandi, Mexíco, Chile og Malasíu. Jónas segir að með einni undantekingu hafi allir aðilar hagnast á einkavæðingu. Meginástæðan fyrir þessu séu aukin afköst og í Ijós hafi komið að það skiptir máli hverjir eiga fyr- irtækin. Þrátt fyrir að einkavæðing eigi sér ekki langa sögu hérlendis hefur það sýnt sig að eignarhald skiptir einnig máli hér á landi, að einkafyr- irtæki eru almennt betur rekin en ríkisfyrirtæki. Oft á tíðum er verið að reka ríkisfyrirtæki sem allt eins er hægt að selja einkaaðilum eða leggja niður. Nærtækt er að taka dæmi af Skipaútgerð ríkisins. Það að Skipaútgerðin var lögð niður leiddi til þess að samkeppni komst á í strandflutningum á milli Eim- skips og Samskipa. Sú samkeppni getur varla verið nema af hinu góða fyrir neytendur. Ekki er síður mikilvægt að með því að leggja niður Skipaútgerðina hætti ríkið að leggja fjármuni í fyrirtæki sem stóð ekki undir eigin rekstri, en á sl. ári var tap útgerðarinnar 94 milljónir umfram ríkisframlagið. Alls þurfti ríkissjóður að greiða tæplega 300 milljónir króna með rekstri Skipaútgerðarinnar. Því má segja að það að ríkisstjórnin tók af skarið og lagði niður fyrirtækið komi í veg fyrir að skattborgararn- ir þurfi að greiða tæplega 1 milljón króna á dag með rekstri sem einkaaðilar geta sinnt. Þó að Skipaútgerðin hafi hér verið tekin sem dæmi eru það ekki einungis fyrirtæki í taprekstri sem ríkið á að einkavæða. Fyrir- tæki í einkaeign ættu alltaf að geta gert betur en ríkisfyrirtæki þar sem þau geta ekki endalaust sótt fjármagn til ríkisins þegar iila árar líkt og sum ríkisfyrirtæki hafa fengið að gera. Einkarekin fyrir- tæki þurfa að iúta lögmálum mark- aðarins og gera betur en keppi- nautanir til að laða til sín viðskipta- vini. Hlutafélög í einkaeign þurfa að sýna árangur og arðsemi til að þóknast eigendum sínum og jafn- vel laða til sín nýja fjárfesta. Fyrir utan þessi rök er mikilvægt að eðlilegra er að fjárfestar hafi áhuga á að kaupa hlutabréf í ríkisfyrir- tækjum sem sýnt hafa hagnað. Einmitt nú er nauðsynlegt fyrir rík- issjóð að afla fjár með velheppn- aðri sölu ríkisfyrirtækja svo að unnt verði að ná jafnvægi í ríkisfjár- málunum. Óhætt er að taka undir með Jónasi Haralz og segja að allir hagnist á einkavæðingu; ríki, fjár- festar, launafólk og neytendur. Þá má ekki gleyma því að vonandi kemur einkavæðingin til með að hleypa krafti í máttfarinn hluta- bréfamarkað. Auk þess koma væntanleg framlög til atvinnulífs- ins vonandi til með að stuðla að frumkvæði og framkvæmd, sem sannarlega veitir ekki af. ÁHB

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.