Morgunblaðið - 26.08.1992, Side 1

Morgunblaðið - 26.08.1992, Side 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST1992 EF! kí Sýningar 3 Marel á Norfish- ing í Þrándheimi Aflabrögð 4 Aflayfirlit og staðsetning fiski- skipanna Markaðsmál 0 Verður reyktur háfur búbót fyrir íslenskan sjávar- útveg? Greinar 7 Júlíus Þórðarson á Akranesi DORGAÐ VIÐ ARNARSTAPA Morgwiblaðið/HG SYSTKININ Kristin og Heiðar voru á döguiium í heimsókn hjá ömmu sinni á Arnarstapa. Eins og lög gera ráð fyrir, brugðu þau sér reglu- lega niður að höfn til að sækja björg í bú. Kristín lét reyndar lítið yfir aflabrögðum, sagði þau treg og það væri helzt að marhnúturinn biti á. Kristín notaði rækju á öngulinn, en veiðarfæri Heiðars var ein- faldara í sniðum og fyrir vikið ekki eins fiskið. Kennslubók um íslenzkan sjávarútveg tekin í notkun I NÁMSGANGASTOFNUN Fyrsta bókin sinnar EíaSSÍ'GSE tegundar fvrir grunnskóla í)»™n«vepr, þ»ð ° J ° mun vera fyrsta kennslu- bókin um sjávarútveg fyrir grunnskóla, sem unnin hefur verið. Bókin verð- ur tekin til kennslu í vetur, en henni fylgir sérstök verkefnabók og mynd- band. Höfundur bókarinnar er Óttar Ólafsson, landfræðingur, og er hún unnin að frumkvæði hans og Samstarfsnefndar atvinnurekenda í sjávarút- vegi. Óttar segir það hafa verið löngu tímbært að vinna námsefni af þessu tagi og þyrfti að gera svo um aðra helztu atvinnuvegi okkar. „Það er mikil vanþekking og skilningsleysi ríkjandi meðal fólks á þessum málefn- um. Vonandi bætir bókin úr því,“ segir Óttar. Arný Elíasdóttir hjá Námsgagna- stofnun er ritstjóri bókarinnar. Hún segir þetta líklega fyrstu kennslubók- ina um sjávarútveg, fram hafí komið hérlendis. Áður hafí verið til ýmislegt efni, meðal annars hefti um sjávarþorp fyrir 9. bekk grunnskóla. Þá hefur Námsgagnastofnun gefíð 10 bæklinga um lífríki sjávar í samvinnu við Haf- rannsóknastofnun, en áætlað er þeir verði 40 alls. Bókin sjálf er nú að fara í prentun og síðar í haust verður endan- lega gengið frá útgáfu vinnubóka, sem Páll Ólafsson, kennari, hefur samið. Ýmsir aðilar, bæði í skólakerfinu og innan sjávarútvegsins hafa lesið hand- rit bókarinnar yfir og komið með ábendingar um efni hennar. Hún er um 40 síður að stærð i brotinu A4 og í henni er mikið af myndum og kort- um. Þá fylgir bókinni myndband, sem byggt er á henni og verkefni eru með þeim hætti, að ýmist þarf að vinna beint úr texta bókarinnar, eða leita út fyrir hana með sjálfstæðum vinnu- brögðum. Þá verður reynt að sníða verkefni að aðstæðum á hveijum stað. „Með þessu er reynt að búa börn og unglinga undir þjóðfélagið þannig, að þeir geti gert sér grein fyrir því, hve auðlindir hafsins eru okkur mikilvægar og geti rætt um málefni sjávarútvegs- ins án fordóma,“ segir Árný. „Þetta er löngu tímabært verk og hefði reyndar mátt líta dagsins ljós fyrr. Það hefur sáralítið námsefni um sjávarútveg verið til og reyndar mætti þetta vera viðameira miðað við vægi sjávarútvegsins í þjóðarbúskapnum. Svo þarf að halda áfram á þessari braut og gefa út námsefni um aðrar helztu atvinnugreinar okkar,“ segir Óttar Ólafsson. BLAÐ Fréttir Markaðir Vill stöðva hvalveiðar ■ WOLFGANG von Geld- ern, fyrrum sjávarútvegs- málaráðherra Þýskalands og núverandi formaður umhverfisnefndar þýska Sambandsþingsins, ritar mjög harðorða grein um hvalveiðar í ágústhefti Fisch -Magazin. Vill hann stöðva alla „slátrun" og „morð“ á hvölum þegar í stað, hvort sem er i hagnað- ar- eða vísindaskyni. Telur hann EB-aðild ekki koma til greina fyrir Norðmenn eða íslendinga meðan þeir stunda hvalveiðar./2 ----------- Gríski flotinn úr sér genginn ■ GRÍSKI úthafsflotinn, sem telur um 50 skip, er orðinn úr sér genginn og verður vart gerður út leng- ur án tafarlausrar viðgerð- ar og endurnýjunar. Þessi skip stunda aðallega veiðar á Persaflóa, við Vestur-Mr- íku og Falklandseyjar. Árið 1977 skilaði úthafsfloti Grikkja 26.500 tonnum af fiski á land, en nú hefur afli þeirra fallið niður í 10.480 tonn af fiski og 3.500 tonn af rækju á ári./5 ----------- Norðmenn bjartsýnir I NORÐMENN te\ja mögulegt að veiða um 600.000 tonn af þorski, eina til eina og hálfa milljón af síld og hálfa milljón af loðnu árlega undir aldamót- in, verði viðkoma fiskistofn- anna góð á næstu árum. Fiskifræðingar hafa í aukn- um mæli rýnt í framtiðina. Lfcif Hamre, fiskifræðingur á norsku Hafrannsókna- stofnunarinnar, segir að eigi þetta að ganga eftir, verði vöxtur helztu fiski- stofna verða jafnmikill næstu árin og verið hefur undanfarin ár og ekki megi veiða of mikið fyrr, en hin- ir sterku árgangar verða komnir inn í veiðina. Þá mun norsk-íslenzka síldin hefja göngur sínar á ný eins og á síldarárunum miklu./8 Fiskneyzla þýzkra eykst ■ FISKNEYZLA Vestur- Þjóðverja hefur aukizt ár frá ári, en með sameiningu þýzku ríkjanna varð heild- arneyzla á fiski á mann á ári heldur minni, en var í vesturríkinu fyrir samein- ingu. Árið 1989 nam fisk- neyzla á mann 13,5 kilóum á ári, 14,5 árið 1990 og sé því haldið aðskildu árið 1991, nam neyzlan þá 15,1 kílói. Ríkin hafa hins vegar sameinazt og miðað við það, varð fiskneyzlan í fyrra 14,2 kíló á mann. Eftirspurn eft- ir fiski í austurhlutanum er mikil, en dreifikerfið ræður illa við að svara henni. Fiskneysla á mann í Þýskalandi 1989-1991 (tölur frá 89 og 90 eru aöeins fyrir V-Þýskland, kg/mann) 13,5 1989 1990 1991 Meira af fiski er flutt inn Fiskneysla í Þýskalandi 1989-1991 tölur frá 89 og 90 eru aðeins fyrir V-Þýskland, þús. tonn) 1.074 1.023 836 1989 1990 199 1 HEILDARNEYZLA fisk- metis í sameinuðu Þýzka- landi var í fyrra 1,1 milljón tonna, en var árið áður í Vestur-Þýzkalandi rúm ein milljón tonna. 1989 var heildarneyzlan rúm 800.000 tonn. Innflutningur fer stöðugt vaxandi, en það ger- ir útflutningur líka. Land- anir eigin fiskiskipa nema að jafnaði nálægt þriðjungi fiskneyzlunnar, þegar út- flutningur er frátalinn./6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.