Morgunblaðið - 27.08.1992, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.08.1992, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1992 C 3 Fjölmargir hafa styrkt þátttöku Islendinga Án þeirra hefðum við ekki komist á Ólympíuleikana í eðlisfræði Undirbúningur að Landskeppni í eðlisfræði hefst í nóvember á hverju ári er framkvæmdanefnd býður öllum framhaldsskólum landsins að taka þátt í for- keppni í eðlisfræði. Menntamálaráðuneytið hefur góð- fúslega leyft að keppnin væri haldin í skólatima og eru verkefnin send í tíma fyrir keppnisdaginn í febr- úar. Efstu 10 - 15 nemendum úr forkeppninni er boð- ið til úrslitakeppni í Háskóla íslands í mars og keppa þeir eina helgi í fræðilegri og verklegri eðlisfræði. Allan kostnað við Landskeppnina, prentun, dreifingu og verðlaun, greiðir Morgunblaðið, en samningu verk- efnanna og yfirferð lausna vinna kennarar við eðlis- fræðiskor Háskólans í sjálfboðavinnu. Fimm hinum efstu í úrslita- keppninni sem jafnframt uppfylla aldursskilyrði Ólympíuleikanna er boðið að fara til keppninnar erlendis og hefst þjálfun þeirra að loknum skóla í maí. í ár var þjálfunin umfangs- meiri en áður og stóð verkleg og fræðileg þjálfun yfir frá morgni til kvölds í 4 vikur auk þess sem síðustu helgina fyrir þátttöku var farið í þjálfunarbúðir. Til að kosta þennan undirbúning og bæta keppendunum tekjutapið af sum- arvinnunni styrktu Fjárfestingar- félagið, íslandsbankinn, Mennta- skólinn á Akureyri og Seðlabank- inn keppendur til þjálfunarinnar en kennarar við Háskólann sinntu þjálfuninni í sjálfboðavinnu. CASIO-umboðið á íslandi gaf keppendunum fjórum reiknivélar sem uppfylla skilyrði Ólympíuleik- anna en Atson, Sólarfílma og Glit gáfu minjagripi sem íslensku liðs- mennirnir gáfu keppendum og far- arstjórum annarra landa á Ölym- píuleikunum. Menntamálaráðu- neytið greiddi fargjöld til leikanna en gestgjafarnir í Finnlandi sáu um uppihald og ferðir innan Finn- lands. “Þátttaka íslendinga í Ólympíu- leikunum í eðlisfræði útheimtir mikla vinnu sem að langmestu leyti er unnin af sjálfboðaliðum íslensku þátttakendurnir á 23. Ólympiuleikunum i edlisf rœói frá vinstri far- arstjórarnir Vióar Ágústs- son og Ingibjörg Haralds- dóttir, Halldór Olafsson frá MR, Davió Þ. Braga- son og Reimar Pétursson frá MA og Siguróur F Mar- inósson frá MR vió is- lenska fánann aó loldnni verólaunaafhendingu. en útlagður kostnaður er einnig umtalsverður. Þeim aðilum sem styrkt hafa keppnisþátttökuna færir keppnisliðið bestu þakkir fyrir stuðninginn sem verið hefur ómetanleg hvatning fyrir kepp- endur og aðstandendur keppninn- ar“ segir Viðar Ágústsson, aðal- fararstjóri íslenska liðsins á Ólympíuleikunum í eðlisfræði og framkvæmdastjóri Landskeppni í eðlisfræði. Salih Adem, 14 óra tyrkneskur piltur, var yngsti keppandinn ó 23. Ólympiuleik- unum i eólis- fraeói. Hann nóói samt bronsveró- launum meó 28,5 stigum. Yngsti keppandinn á Olympíuleikunum er 1 4 ára Tyrki Salih Adem kláraði grunnskólann og fékk brons YNGSTI keppandinn á 23. Ólympíuleikunum í eðlisfræði er Salih Adem, fæddur 7. nóvember 1977, og kláraði hann grunnskólann í vor. í vetur var hann einn af 200 keppendum sem þátt tóku í lands- keppni í eðlisfræði í Tyrklandi og komst í 30 ungmenna undanúrsli- takeppni. Eftir tveggja vikna þjálfun var hann einn 12 ungmenna sem nutu þjálfunar í aðrar tvær vikur og að loknum þeim var hann valinn í fimm manna keppnislið Tyrkja þar sem hann fékk þjálfun í einn mánuð í viðbót fyrir 23. Ólympíuleikana í eðlisfræði. / g byijaði að læra eðlisfræði og stærðfræði með diffrun og tegrun í fyrrasumar í grunnskólanum heima,“ seg- ir Salih Adem á ágætri ensku. „Eg hef mjög gaman af því og les dálít- ið af eðlisfræðibókum og tímaritum í frístundum. í haust byija ég svo í framhalds- skóla og eftir þijú ár ætla ég í eðlisfræði í háskóla. Það tekur mig fjögur ár og seinna ætla ég að verða prófessor og vísindamaður," bætir hann við með meiri einbeitni en 14 ára unglingar venjulega hafa. Salih Adem kemur úr ósköp venjulegri fjölskyldu í Tyrklandi. Pabbi hans er hagfræðingur og móðir hans, sem er heimavinnandi, hefur stúdentspróf. Eldri systir hans er líka stúdent en hún er heimavinnandi með tvö lítil börn. Salih leikur stundum fótbolta og svo fer hann öðru hveiju í sund með fjölskyldunni. Hann á ekki tölvu en langar til að læra á slíkt verkfæri. Salim Adem er nú í fyrsta skipti á ævinni á erlendri grund og finnst það mjög gaman. Aldursins vegna á hann möguleika á því að sækja þrenna ólympíuleika áður en hann byijar í háskóla og hann er ákveð- inn í því að komast til Bandaríkj- anna á 24. Ólympíuleikana í eðlis- fræði á næsta ári. Það bendir líka allt til þess að hann komist þangað því þrátt fyrir ungan aldur varð hann næstefstur í tyrkneska keppn- isliðinu með 28,5 stig og hlaut bronsverðlaun. „Hann heldur áfram upp í gullverðlaun," segir tyrkneski fararstjórinn sigurviss. 24. Ólympíuleikarnirí eðlisfræði verða í Bandaríkjunum 1 993 Keppnislið ffrá 40 þjóðum væntanleg „FYRIR hönd Félags eðlisfræðikennara býð ég ykkur öllum að koma til Williamsburg í Bandaríkjunum á næsta ári til að sækja 24. Ólympíuleikana í eðlisfræði. Við þátttakendur höfum í þessari viku orðið aðnjótandi framúrskarandi gestrisni Finna og þeir hafa boðið okkur upp á áhugaverð og frumleg eðlis- fræðiverkefni. Á næsta ári munum við bandarísku skipuleggj- endur Ólympíuleikanna einskis láta ófreistað til að gera ykkur dvölina í Williamsburg ánægjulega og eftirminnilega." að var Arthur Eisenkraft, sem venjulega er aðalf- ararstjóri bandaríska keppnisliðsins á Ólympíu- leikunum, sem þetta mælti við lokaathöfn leikanna í Finnlandi. í þetta skiptið var hann reyndar aðeins einn af þremur áheymar- fulltrúum Bandaríkjanna á leik- unum en hann lagði kapp á að væntanlegt starfslið Ólympíu- leikanna kynntist framkvæmd þeirra í Finnlandi. Hann verður aðalframkvæmdastjóri þessarar árlegu keppni framhaldsskóla nemenda hvaðanæva úr heimin- um. Keppnin mun fara fram í Menntaskóla Williams og Mary, sem á næsta ári heldur hátíðlegt 300 ára afmæli sitt. í nágrenni skólans er nýlendubærinn Will- iamsburg þar sem landnemar settust að árið 1633, gæddur lífí með endurgerð gamalla húsa og starfsmönnum klæddum 18. ald- ar fötum. „Hvorki keppendum né farar- stjórum á eftir að leiðast í frítíma sínum á 24. Ólympíuleikunum í eðlisfræði. Fyrir utan að geta gengið eftir lifandi götumynd frá 18. öld mun þátttakendum verða boðið að skoða vindgöng þar sem NASA prófar eldflaugahreyfla. Við munum fara í CEBAF til að sjá rafeindahraðalinn og fara í sjóinn á ströndum Virginíu-rík- is,“ segir Arthur sem greinilega ætlar að standa fyrir glæsilegum Ólympíuleikum á næsta ári. Hann bættir glettnislega við: „Hvað segir þú um að koma í tívolíið í Busch Gardens og rann- saka eðlisfræðina í rússíbanan- um?“ Arthur gerir ráð fyrir keppn- isliðum frá 40 þátttökuþjóðum og hann vonar að meðal þeirra verði einhverjar nýjar frá Suður- Ameríku. Þetta mun kosta um milljón dollara að meðtöldum kostnaði við þátttöku Banda- ríkjamanna sjálfra. Mest af fénu kemur frá menntamálaráðuneyti Virginíu-ríkis en Arthur hyggst einnig sækja styrki til fyrirtækja og Vísindasjóðs Bandaríkjanna. Keppendur verða hýstir í heima- vistum Menntaskóla Williams og Mary en fararstjórar og áheyrnarfulltrúar fá herbergi á hóteli í nágrenninu. Leikarnir munu standa yfir frá 10. til 18. júlí. „Það verður mikið um að vera allt til síðasta dags þegar við skoðum Loft- og geimferða- safnið í Washington, veitum verðlaun og sláum upp balli,“ sagði Arthur Eisenkraft að lok- um. í raaáustálnum viá lokaathöfnina; Arthur Eisenkraft, aáalframkvæmdastjóri 24. Ólympiuleikanna i eálisfrœái, býáur öllum núverandi keppnísþjóáum aá koma til Williamsburg á neesta ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.