Morgunblaðið - 18.09.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.09.1992, Blaðsíða 1
FOSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992 Slitlag ffrá Reykjavík til Húsavíkur 1994 Gestir af 113 Hððemum komid sl. 8 mánuði FYRSTU átta mánuði ársins hafa útlendingar af 113 þjóðernum komið til íslands til lengri eða skemmri dvalar. Taldir eru í einni tölu þeir sem bera sovésk vegabréf. Nokkrir voru ríkis- fangslausir. Flestir gestir eru frá Þýskalandi. Þegar rennt er yfir skýrslur Útlendingaeftirlitsins sést að gestir frá hinum fjarlægustu stöðum hafa lagt leið sína hingað en ekki eru hóparnir stórir og frá allmörgum löndum eru aðeins einn til tíu skráður þessa fyrstu átta mánuði ársins. Og þar eru m.a Nepal, Swaziland, Uruguay, Zimbabwe, Lichtenstein, Mauri- tíus, Costa Rica, Rúmenía, Ba- hamaeyjar, Namibía, Singapore, Salvador, Saudi Arabía, Tansan- ía, Angóla Belize, Guyana, Gu- inea, San Marino og Panama. Frá allmörgum til viðbótar komu innan við fimmtíu. Nýtt lyf við mígreni kemur fljótlega á markað BUNDIÐ slitlag verður komið á leiðina milli Reykjavíkur norður um og til Húsavíkur haustið 1994. Ákvörðun ríkistjórnarinnar um að verja 1,8 milljarði króna til atvinnuskapandi framkvæmda á sviði vegagerðar gerir að verkum að slitlag kemst á veginn að fullu tveimur árum fyrr en ráðgert hafði verið með framkvæmd- um í Norðurárdal, Holtavörðuheiði, Blönduhlið og Öxnadal. Féð verður einnig meðal annars notað til að hraða gerð brúar yfir Kúðafljót, sem hafist verður handa við á næsta ári og ljúka á 1994. Jafnframt verður áin Skálm brúuð. Með þessum framkyæmd- um færist hringvegurinn niður fyrir Skaftártungur og þar með tilheyra brýrnar yfir Eldvatn hjá ekki lengur hringveginum. Þetta kom fram í samtali Morg- unblaðsins við Jón Birgi Jónsson aðstoðarvegamálastjóra og jafn- framt að meðal annars verði þessi fjárveiting ríkisstjómarinnar not- uð til að standa straum af fram- kvæmdum við lagningu nýs vegar frá Sandskeiði upp í Bláfjöll. Einn- ig verður hafist handa við teng- ingu á Suðurlandsvegi við Rauða- vatn Vesturlandsveg og byijað verður að tvöfalda akbrautina á Vesturlandsvegi frá Höfðabakka og að Grafarholti, en auk þess stendur yfir undirbúningur að gerð brúar yfír Elliðár sem tengi Breið- holtsbraut við Suðurlandsveg og hefjast útboð þar eftir um það bil 2 vikur. Ýmsar framkvæmdir aðr- ar undir liðnum þjóðvegir í þétt- býli eru fyrirhugaðar en verða ákveðnar í samráði við sveitarfé- lög. Þá verður lagt slitlag á Laugar- dalsveg í Biskupstungum á það Asum, yfir Tungufljót og Hólmsá sem á vantar milli Geysis og Laug- arvatns og einnig unnið við Þing- vallaveg í Grímsnesi upp að virkj- unum. Á norðanverðu Snæfellsnesi verður unnið við veg um Búlands- höfða og um Mjósund í Hrauns- firði en þær framkvæmdir miða að því að efla annars vegar Ólafs- vík, Hellissand og Rif og hins veg- ar Stykkishólm og Grundarfjörð sem eitt atvinnusvæði. Sama er uppi á teningnum við uppbyggingu vegarins yfir Hálfdan milli Tálkna- fjarðar og Bíldudals, í þær er ráð- ist til að efla Patreksfjörð og fyrr- nefnda staði tvo sem eitt atvinnu- svæði. Hafist verður handa við brúar- framkvæmdir á Hrútafjarðará og slitlag lagt á veginn milli Dalvíkur og Ölafsfjarðar. Á Austurlandi verður gerð brú á Jökulsá á Dal og malbikað verður í Berufirði, Suðursveit og víðar. ■ NÝTT LYF við mígreni verður sert á almennan markað hér á landi um næstu mánaðamót. Lyfið hefur verið gefið í undanþágu- tilfellum í um það bil ár og hefur gefið góða raun, að sögn Sigurð- ar Thorlacius heila-og taugasérfræðings. Imigran heitir hið nýja lyf og er bæði til í sprautu-og töflu- formi. Virknin hefst 10-15 mínút- um eftir gjöf undir húð og um 30 mínútum eftir inntöku, sem er mun fyrr en þekkst hefur með áþekk lyf. í umsögn heilbrigðisráðuneytis segir að allt að 50% sjúklinga fínni einhveijar aukaverkanir, sem ýmsar hverfi eftir 30-60 mínútur. Meðal algengra óþæginda séu þreyta, sljóleiki, máttleysi, tíma- bundin blóðþrýstingshækkun, húðroði, ógleði og uppköst. Lyfíð brotnar að rniídu leyti nið- ur í óvirk umbrotsefni í lifur og skilst út í nýru. Imigran er ekki ætlað börnum og er ekki ráðlagt sjúklingum eldri en 65 ára. Ekki er vitað hvort lyfið geti skaðað fóstur, en í umsögn heilbrigðis- ráðuneytisins segir að dýratilraun- ir bendi ekki til að svo sé. Ekki er vitað hvort lyfíð skilst út í móðurmjólk. Nokkuð algengur sjúkdómur Engar faraldfræðilegar rann- sóknir hafa verið gerðar á tíðni mígrenis hér á landi, en skv. dönskum rannsóknum hafa 16% fólks á aldrinum 24-65 ára fengið mígreniköst. Konur eru þar í meirihluta og 9% sjúkiinga fá kast oftar en 1 sinni í mánuði. Mígreni hefur í mörgum tilfellum veruleg áhrif á daglegt líf fólks, því ekki er óalgengt að fólk sé frá vinnu vegna mígrenis. Algengast mun vera að köstin vari í 12 til 24 klukkustundir. Helstu einkenni eru ákafur höfuð- verkur sem kemur í köstum, oft- ast öðru megin í höfði, samfara ógleði. „Þó orsakir mígrenis séu ekki fyllilega ljósar, þykir víst að um sé að ræða samband tauga-og æðakerfis, og er víkkun æða af mörgum talin orsök verkjanna. Imigran veldur einmitt samdrætti í æðum í höfði. Hið nýja lyf kem- ur ekki í veg fyrir köst, heldur er það notað í upphafi kasts og hefur það ekki aðeins reynst slá á verk- inn heldur einnig önnur einkenni, svo sem ógleði og ljósfælni," segir Sigurður Thorlacius. Lyf þetta er dýrara en eldri mígrenislyf, og kemur hver tafla til með að kosta sjúkling rúmlega 400 kr. Tryggingastofnun greiðir hins vegar þrisvar sinnum meira með lyfinu. ■ Fjármál íjölskyldunnar 4-5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.