Morgunblaðið - 26.09.1992, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992
B 7
DÖNSK TRÍÓ-
/ * ••
TONLISTIONDVEGI
Morgunblaðið/Bjami
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, John Damgaard píanóleikari og
Ulrikke Höst-Madsen sellóleikari leika í Hafnarborg á sunnudags-
FYRSTU tónleikar á nýju starfs-
ári Tríós Reykjavíkur verða í
Hafnarborg næstkomandi sunnu-
dagskvöld. Gestir tríósins á þess-
um tónleikum er danska tríóið
Tre Musici sem getið hefur sér
gott orð á undanförnum árum
fyrir vandaðan flutning. Tre
Musici hefur komið fram víða á
Norðurlöndunum og þetta er í
annað sinn sem það sækir ísland
heim.
Tre Musici er skipað fiðluleikar-
anum Elisabeth Zeuthen-
Schneider, sellóleikaranum
Ulrikke Höst-Madsen og
píanóleikaranum John Damgaard.
Svo óheppilega vildi til að fíðleikarinn
veiktist rétt fyrir förina til íslands
og því hleypur Tríó Reykjavíkur und-
ir bagga og Guðný Guðmundsdóttir
mun leika í stað Elisabeth Zeuthen-
Schneider á tónleikunum.
„Gunnar og Halldór „lánuðu" mig
góðfúslega," segir Guðný. „Þeir setja
auðvitað það skilyrði að Elisabeth
komi hingað að ári og leiki með þeim
í staðinn!" Aðspurð hvort ekki sé
erfitt að hlaupa í skarðið með svo
stuttum fyrirvara svarar Guðný að
hún sé vön að spila í tríói; þau John
Damgaard þekkist vel frá því á
námsárum og hvað það áhræri að
læra tvö ný verk á nokkrum dögum
þá sé hún í æfíngu úr Sinfóníuhljóm-
sveitinni að takast sífellt á við ný
verk. Tríóið Tre Musici var stofnað
1988 og er því jafngamalt Tríói
Reykjavíkur og hefur lagt sig eftir
að leika danska tríótónlist, sérstak-
lega tvö síðustu árin eftir að þau
uppgötvuðu óþekkt tríóverk eftir
fimm dönsk tónskáld á ríkisbóka-
safninu í Kaupmannahöfn. Að sögn
Johns Damgaards munu þau leika
þessi verk inn á geisladisk í haust
en á efnisskránni á sunnudagskvöld
eru einmitt tvö dönsk verk, annað
vel þekkt, hitt lítt spilað.
Frumflutningur danskra verka
Fyrst á efnisskránni er eitt þekkt-
asta og vinsælasta danska tríóið; tríó
í f-moll op. 53 eftir P.E. Lange
kvöld.
Tre Musici frá
Danmörku
leikur í
Hafnarborg
Muller. „Þetta verk er samið 1898
og er afskaplega fallegt og háróman-
tískt,“ segir John Damgaard. „Hitt
danska verkið er Bamatríó í G-dúr
op. 31 eftir F. Henriques. Þetta verk
hefur lítið verið spilað og ég læt mér
detta í hug að ástæðan sé titillinn;
hljóðfæraleikarar hafí litið framhjá
því og talið það of einfalt, fyrir böm.
En titillinn er .villandi og þetta er
afskaplega fallegt og vel samið verk;
mjög ólíkt hinu þó það sé samið að-
eins sex árum síðar en hitt verkið."
Guðný segist leyfa sér að fullyrða
að um frumflutning á íslandi væri
að ræða á báðum verkunum. „Þó er
hugsanlegt að tríó Lange Múllers
hafi verið flutt hérlendis en það er
þá orðið langt síðan.“
Síðasta verkið á efnisskránni á
sunnudag er ekki síður rómantískt,
tríó í B-dúr op. 99 eftir F. Schubert
og ættu þá vandlátustu fagurkerar
að hafa fengið skammtinn sinn vel
útilátinn. Þetta er þriðji veturinn sem
Tríó Reykjavíkur skipuleggur röð
femra tónleika á starfsárinu í sam-
vinnu við Hafnarborg, mennmgar-
o g listastofnun Hafnarfjarðar. Á tón-
leikum 25. október verður gestur
tríósins bandaríski píanóleikarinn
Brady Milligan og á efnisskránni em
verk eftir Brahms og Schubert.
Þriðju tónleikamir verða þann 14.
mars og þá verður frumflutt tríó
eftir Atla Heimi Sveinsson, tileinkað
Thor Vilhjálmssyni. Einnig verða
leikin tríó eftir Beethoven og Mend-
elsohn. Á fjórðu og síðustu tónleik-
unum sem haldnir verða á annan í
hvítasunnu þann 31. maí, fær Tríó
Reykjavíkur góða gesti með sér. Það-
eru þau Sigurður Yngvi Snorrason
klarinettuleikari, Anna Guný Guð-
mundsdóttir píanóleikari, Pálína
Ámadóttir fiðluleikari og Guðmund-
ur Kristmundsson lágfiðluleikari. Þá
verða leikin verk eftir Prokofieff,
Bartok og Beethoven. Tre Musici
leikur í Hafnarborg núna á sunnu-
dagskvöld kl. 20. HS
stærri og nomir og álfar búa. Það
sem hún fann ekki i veruleikanum
bjó hún til. „Ég elska sífellt ykkur
draumaheimar/ég unni þeim við
fyrstu hugarskil“, orti hún í Syngi
syngi svanir mínir. Skáld sem Iýsir
þessu yfir fer varla að rýna í
mannlífið eftir þeim raunsæis
stígum sem dr. Valtýr
Guðmundsson virtist vilja leggja
fyrir hana.
Það er stundum erfitt að gera
sér grein fyrir hvenær Hulda yrkir
um raunverulegar upplifanir eða
sæki í heim ævintýranna. En hún
getur verið sérdeilis mögnuð í
ástarkvæðunum og eitt veit ég;
engin venjuleg kona yrkir svona:
Þú skalt deyja í geislunum
af gleði minni.
Nú dansa ég, nú dansa ég
í síðasta sinni.
Tryllingurinn er alger,
ástaijátningin mikilfengleg eftir
því:
Þú átt vængi - mátt nafn mitt nefna í
hljómum.
Ég skal nefna þig aftur - í stjömum og
blómum.
Það er eðlilegt að skáld sem lifír
að hluta til í öðrum heimi leiti í
þjóðkvæðastíi þar sem tröliin eru
jafn sjálfsögð og blómin og
heimurinn jafn fiölbreytilegur og
ímyndunaraflið ræður við. Hulda
var ekki ein um að yrkja vel um
dularheima í byijun aldarinnar.
Vinur hennar, Jóhann Gunnar
Sigurðsson, orti líka um tröllin sem
búa í fjöllum. En ólíkt hafast þau
að; tröllin hans Jóhanns spá dauða
og myrkri meðan heimur Huldu er
kannski sorglegur, en alltaf fagur
í sorg sinni. Eins og í riddarasög-
unum. í kvæðinu Hemingur er
meira að segja fannhvítur fákur
sem fleygist eins og stormurinn hjá
meðan hún situr alein með sorgum.
En það er óneitanlega meiri
skáldskapur í fákum Huldu en
fákum riddarasagnanna:
Nú sé ég hvað seiður megnar -
og syrgi þau, öriög þín,
er dísir djúpsins þig sveipa
í draumanna silfur og lín.
Já, nornir geta grátið
og glúpnað við harmleik sinn.
- Heyrir þú orð mín og andvörp
yfir þér, Hemingur minn?
„ég týnist varla“
Ástin er ekki bara til í draumum,
hún er líka til í veruleikanum. Þegar
Hulda snýr aftur til veruleikans
yrkir hún ofurviðkvæmislega um
börnin sín: „Hvert ætla þessir
vængir/ þá vex þeim kraftur?“ Og
ég get ekki gengið framhjá þessari
fáorðu en miklu ástaijátningu til
mannsins hennar: „Hvar sem ég
fer/ og flýg um lönd/ ég finn þína
vörmu/ sterku hönd/ Og allar leiðir/
að einni falla/ sem elfur í hafið/ -
ég týnist varla.“
Hulda er yfírleitt hófstillt þegar
hún yrkir um náttúruna, en ef
maður vill komast í átök norðan-
stormsins, öskra í náttúrunni og
sundla við hengiflúgið — þá er
Hulda ekki skáldið. Þá ættu menn
að lesa Bjarna Thorarensen eða
Grím Thomsen. Hulda dregst að
hinu smágerða og hættulausa;
náttúran er skjól, ekki ógnun. Þegar
hún hugsar til æskuslóðanna kvikna
minningar, en þær hrynja ekki úr
klettum heldur:
Við minnstu steina grær minning smá,
sem mun ei leynast né falla í dá
Stundum finnst manni nóg um
alla mildu tónana og í Við vatnið
er eins og Hulda sé sjálf orðin þreytt
á vatninu sem „brosir, bjart og
kyrrt", rís upp í lok kvæðisins og
segir:
En sitji ég þar um aftan ein
ég ávallt hugsa nú:
Hve fagurt, voldugt, straumdjúpt, stórt
í stormi mundir þú.
Hulda deyr 10. apríl 1946. Að
baki voru sextíu og fimm ár og
mörg orð. í síðustu kvæðabókinni,
sem kom út fimm árum eftir lát
hennar, er að finna kvæði til
Jóhanns Siguijónssonar. Auðvitað
hlaut hún að yrkja til Jóhanns; þau
voru næstum því jafnaldrar, bæði
fædd og uppalin við sömu á í
S-Þingeyjarsýslu og standa hlið við
hlið í Bláu skólaljóðunum. Og bæði
voru þau rík af draumum. En varla
er hægt að hugsa sér ólíkari skáld,
ólíkari ævi. Meðan Jóhann lifði,
orti og dó undir erlendum himni
með útsýni yfir heiminn og var
orðaður við Nóbelsverðlaunin sat
Hulda heima innan um íslensk fjöll,
ól upp böm og orð. í síðsta erindi
kvæðisins dregur hún upp ógleyma-
nlega mynd af ólíkum skáldum, sem
bæði ortu sín fyrstu Ijóð við Laxá.
Hún innst í dal, hann yzt:
í háum sal við hörpuglaum og söng.
í heimsins eftiriæti og vina þröng,
þig mændu smáblóm æskudalsins á
og augu þeirra voru daggarblá.
Eftir Jón Stefánsson
MENNINQ/ LISTIR
INÆSTU VIKU
MYMM.IST I SF.PTFMHl.l
Listasafn íslands:
Frá 5. september til 11. október
stendur yfír sýning á breskum
bókverkum er nefnist Blöðum
flett, og eru verkin frá síðasta
áratug. Einnig er sýning á verk-
um í eigu safnsins. Á neðri hæð
eru verk eftir frumheija ís-
lenskrar málaralistar og á efri
hæð eru nýrri verk auk nokk-
urra erlendra verka. Listasafn
íslands er opið alla daga nema
mánudaga kl. 12-19.
Kjarvalsstaðir:
FIGÚRA - FÍGÚRA: Sýning í
Yestursal á verkum eftir Jón
Óskar, Huldu Hákon, Brynhildi
Þorgeirsdóttur, Helga Þorgils,
Kjartan Ólafsson og Svölu Sig-
urleifsdóttur. Sýningin stendur
til 25. okt. og er opin daglega
frá kl. 10-18.
Alfreð Flóki: 60 teikningar.
Ásmundur Sveinsson: Abstrakt
höggmyndir.
Norræna húsið:
Álandsdagar 24.-27. septem-
ber. Laugardaginn 26. sept. kl.
14: Áland í í fortíð og nútíð.
Fyrirlestur með litskyggnum.
Kl. 15: Fyrirlestur. Aland -
framtíð eyjasamfélags í Evr-
ópu. Kl. 20.30: Tónleikar. Carl
Nielsen kvartettinn leikur
álenska kammertónlist.
Sunnud. 27. sept. kl. 16: Álensk
þjóðlög leikin á fíðlu og sungin.
Kl. 17: Ulla Lena Lundberg
segir frá ritstörfum sínum og
kynnir álenskar bókmenntir.
Sýningar í tengslum við
Álandsdaganaj Málverk af
skipakosti Álendinga. Frí-
merkjasýning í bókasafni og
bækur eftir álenska rithöfunda.
3.-25. okt.: Grafíkverk eftir
álenska listamenn.
Sýning á olíumálverkum og
litkrítarmyndum Hrings Jó-
hannessonar í aðalsal stendur
til 27. september. Sýning í and-
dyri hússins á grafíkmyndum
Norðmannsins Ludvig Eikaas.
Opið frá kl. 2-7 alla daga.
Listasafn ASÍ:
Tolli sýnir málverk til 4. októ-
ber. Ópið alla daga frá kl.
14-19.
Menningarmiðstöðin Gerðu-
bergi:
Myndlistarsýning einhverfra:
Anna Borg Walthersdóttir, Ás-
laug Gunnlaugsdóttir og Pétur
Öm Leifsson sýna verk sín.
Vistrýnin list: Bernd Löbach-
Hinweiser umhverfislistamaður
sýnir verk sín.
Gerðuberg er opið fimmtud. kl.
10-22, föstud. kl. 10-19 og
laugard. kl. 13-16. Lokað á
sunnud.
Hafnarborg:
Norski málarinn Káre Tveter
sýnir olíumálverk og vatnslita-
myndir frá 7. sept. til 5. októ-
ber. Opið frá kl. 12-18 alla
daga nema þriðjudaga.
Straumar, Lárus Karl Ingason
sýnir portrettmyndir af hafnf-
irskum listamönnum.
Nýlistasafnið:
Samsýning sjö ungra norskra
og sænskra myndhöggvara
undir nafninu „Prosjekt Tome“.
Stendur til 20. september.
Ragna Róbertsdóttir opnar sýn-
ingu í dag kl. 16. Verk úr grá-
grýti, hrauni, gúmmíi, auk
teikninga á vegg. Sýningin
stendur til 11. okt.
Listamiðstöðin Straumur:
Maj Siri Österling heldur sýn-
ingu í gestavinnustofu eftir að
hafa dvalið þar sem gestalista-
maður um hríð.
Ásmundarsafn:
Bókmenntirnar í list Ásmundar
Sveinssonar.
Gallerí einn einn/ Skóla-
vörðustíg 4a:
Inga Þórey Jóhannsdóttir opnar
málverkasýningu í dag kl. 14.
Sýningin stendur til 8. okt.
G-15, Skólavörðustíg 15:
Kristín ísleifsdóttir sýnir öskjur
og skrín frá 12. september.
Listhús Laugardal:
Sýning á verkum Leifs Breið-
fjörðs og Jóns Reykdals.
Gallerí Úmbra v/ Amtmanns-
stíg:
Ölöf Sigurðardóttir sýnir mál-
verk til 30. september.
Hulduhólar, Mosfellssveit:
Keramikverkstæði Steinunnar
Marteinsdóttur er opið er frá
kl. 14-19 alla daga nema
fimmtudaga og föstudaga, þá
er opið frá kl. 17-22.
Vinnustofur Álafossi:
Vinnustofur listamanna í verk-
smiðjuhúsinu Álafossi eru opn-
ar aimenningi á laugardögum
og aðra daga eftir samkomu-
lagi.
Listasalurinn Nýhöfn,
Hafnarstræti:
Guðbjörg Lind Jónsdóttir sýnir
olíumálverk til 7. október.
Listmunahúsið, Hafnarhús-
inu:
Sýning á glerlistaverkum eftir
Sigríði Ásgeirsdóttur til 20.
september.
Mokka kaffi:
Magdalena Margrét Kjartans-
dóttir sýnir grafíkverk til loka
september.
Snegla - Listhús, Grettisgötu
7:
Sýning á myndverkum og list-
munum 15 listamanna. Opið
virka daga kl. 12-18 og laugar-
daga kl. 10-14.
Stöðlakot/ Bókhlöðustíg 6:
Sýning á teikningum eftir
Hring Jóhannesson listmálara.
Stendur til 27. september og
er haldin í tengslum við sýningu
Hrings í Norræna húsinu.
Ónnur hæð, Laugavegi 37:
Sýning á verkum eftir Donald
Judd. Opið miðvikudaga kl.
14-18 eða eftir samkomulagi.
Frímúrarasalurinn/ Njarð-
vík:
Halia Haraldsdóttir sýnir gler-
verk, olíuverk og vatnslita-
myndir.
LEIKUS'I
Þjóðleikhúsið:
Hafið eftir Ólaf Hauk Símonar-
son.
Rita gengur menntaveginn.
Frumsýning á Litla sviði 2. okt.
Borgarleikhúsið:
Dunganon eftir Bjöm Th.
Bjömsson.
Til umsjónarmanna lista-
stofnana og sýuingarsala:
Upplýsingar um listviðburði,
sem óskað er eftir að birtar
verði í þessum dálki, verða að
hafa borist bréflega fyrir kl.
16 á miðvikudögum, merkt:
Morgunblaðið, menning/ listir,
Hverfísgötu 4, 101 Rvík. Mynd-
sendir 91-691294.