Morgunblaðið - 03.10.1992, Síða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTOBER 1992
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT
ÍSLANDS
FJOLBREYTT
STARFSÁR
STARFSÁR Sinfóníuhljómsveitar íslands er
hafið. Efnisskrá vetrarins er að venju fjöl-
breytt og sem fyrr er áskriftartónleikum
skipt upp í tónleikaraðir. Að sögn forsvars-
manna Sinfóníuhljómsveitarinnar hefur það
gefist vel; áskrifendum fjölgaði til muna á
síðastliðnu ári og þá sérstaklega í grænu
tónleikaröðinni, þar sem boðið er upp á létt-
ustu og aðgengilegustu tónlistina. Á síðasta
starfsári lék hljómsveitin fyrir um 35 þús-
und manns á 70 tónleikum víða í borginni
og úti á landi og hefur starfsemin aldrei
verið umfangsmeiri.
eftir Josef Haydn, „Sellókonsert"
eftir Witold Lutoslavskíj og „Sin-
fónía nr. 3“ eftir Johannes Brahms.
Síðustu rauðu tónleikarnir verða
6. maí. Hljómsveitarstjórinn verður
Eistlendingurinn Paavo Járvi, sem
gegnir stöðu listræns stjómanda
Kammerhljómsveitarinnar í Tor-
onto. Einieikarinn verður norski
píanóleikarinn Leif Ove Andsnes. A
efnisskránni eru „Píanókonsert nr.
3“ eftir Sergei Rachmaninoff og
„Sinfónía nr. 5“ eftir Pjotr
Tsjajkovskíj.
Græn tónleikaröð
í grænni tónelikaröð verður boð-
ið upp á fema tónleika. Meira verð-
ur um söng í henni en áður, m.a.
boðið upp á Sálumessu Verdis.
Fyrstu tónleikamir verða dæmi-
gerðir hljómsveitartónleikar, þann
12. nóvember. Hljómsveitarstjóri
verður Guðmundur Óli Gunnarsson
og einleikari Auður Hafsteinsdóttir,
fiðluleikari. Á efnisskránni eru „Vil-
hjálmur Tell, forleikur" eftir Gio-
acchino Rossini, „Fiðlukonsert í
g-moll“ eftir Max Bmch og „Sinfón-
ía nr. 5“ eftir L. van Beethoven.
Hinir árlegu Vínartónleikar
verða 14. janúar og einsöngvar
verður austurríska söngkonan, Mil-
31. október. Þeir tónleikar verða í
tengslum við M-hátíð á Suðurlandi
og íslenskan tónlistardag. Hljóm-
sveitarstjóri verður Ed Welch og
verkin sem flutt verða, eru: „Fanf-
are“ eftir Sigvalda Kaldalóns í út-
setningu Ed Welch, „Nocturne" eft-
ir Gunnar Þórðarson, „Suðumesjas-
víta“ eftir ýmsa höfunda í útseningu
Ed Welch, nýtt jassverk eftir Þóri
Baldursson, útdráttur úr „Lifun“
sem hljómsveitin Trúbrot gaf út á
hljómplötu árið 1971 og „Island er
land þitt“ eftir Magnús Þ. Sig-
mundsson.
17. desember verða jólatónleikar
í Langholtskirkju. Hljómsveitar-
stjóri verður Hákon Leifsson og
einsöngvari Tómas Tómasson, auk
þess sem blandaður kór og barna-
kór taka þátt í flutningnum. Á efn-
isskránni em „Hnotubijóturinn —
svíta“ eftir Pjotr Tsjajkovskíj og
„Jólakantata" eftir Arthur Honeg-
ger.
Tónleikar Myrkra músíkdaga
verða 28. janúar. Yfir þeim tónleik-
um verður jassyfírbragð og hljóm-
sveitarstjóri verður Gunther Schull-
er. Einleikari verður skoski tenór-
saxófónleikarinn Tommy Smith,
sem hefur unnið til fjölda verðlauna
fyrir hljóðfæraleik sinn, þau fýrstu
Undanfarin fjögur ár hefur
Petri Sakari verið aðal-
hljómsveitarstjóri Sinfóníu-
hljómsveitar íslands. Á þeim tíma
hefur hljómsveitin fært starfsemi
sína töluvert út; kynnt starfsemi
sína í skólum, leikið á erlendum
tónlistarhátíðum og leikið inn á
þrjá geisladiska, sem hafa verið
gefnir út samkvæmt samningi við
breska útgáfufélagið Chandos.
Petri Sakari verður enn aðalstjóm-
andi hljómsveitarinnar í ár, en þetta
mun vera siðasta árið sem hann
starfar sem slíkur.
íslenskir tónlistarmenn
I vetur verða frumflutt fjögur
ný íslensk tónverk, eftir þá Áma
Egilsson, Hauk Tómasson, Jón Ás-
geirsson og Pál Pampichler Pálsson.
Á undanfömum ámm hefur það
færst í aukana að íslenskir tónlist-
armenn komi fram með hljómsveit-
inni og það er eftirtektarvert að í
vetur koma níu manns fram í fyrsta
sinn á tónleikum hennar. Það em
Auður Hafsteinsdóttir, fiðluleikari,
Krystyna Cortes, píanóleikari, Há-
kon Leifson, hljómsveitarstjóri,
söngvaramir Ólafur Á. Bjamason,
Guðjón Óskarsson og Tómas Tóm-
asson. Einnig munu útskriftamem-
endur úr Tónlistarskólanum í
Reykjavík, þau Anna Snæbjöms-
dóttir og Ingunn H. Hauksdóttir,
píanóleikarar, og Rúnar Óskarsson,
klarinettuleikari, þreyta sín einleik-
arapróf með hljómsveitinni.
Tónleikaraðimar í vetur, skiptast
í gula, rauða, græna og bláa, sem
fyrr og mun áherslan vera mismun-
andi í hveijum lit:
Gul tónleikaröð
Gulu tónleikaröðinni er einkum
ætlað að höfða til þeirra sem mest-
an áhuga hafa á stærri hljómsveit-
arverkum. Fyrstu tónleikarnir vom
1. október, þar sem lágfiðluleikar-
inn Ingvar Jónasson lék „Könnun"
eftir Atla Heimi Sveinsson. Auk
þess var leikin Sinfónía nr. 6 eftir
Beethoven og Kristján konungur II.
eftir Síbelius.
Næstu gulu tónleikamir verða
5. nóvember. Þeim tónleikum
stjómar finnski hljómsveitarstjór-
inn Hannu Koivula og einleikari á
píanó verður Krystyna Cortes. Á
efnisskránni em þijú verk:
„Reflections" eftir Áma Egilsson,
„Píanókonsert op. 54“ eftir Robert
Schumann og „sinfónía nr. 9“ eftir
Dmitri Sjostakovitsj.
Þann 5. desember leikur Sin-
fóníuhljómsveitin „Sinfóníu, nr. 5“
eftir Gustav Mahler, undir stjóm
Petris Sakaris.
Á tónieikunum 7. janúar, stjómar
pólski hljómsveitarstjórinn, Jerzy
Maksymiuk hljómsveitinni og ein-
leikari verður Szymon Kuran, fiðlu-
leikari, sem einnig er frá Póllandi,
en hefur leikið með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands í mörg ár, auk þess
sem hann hefur verið annar kon-
sertmeistari hennar síðan 1984. Á
efnisskránni em „Printemps" eftir
Claude Debussy, „Fiðlukonsert"
eftir Andrzej Panufnik, „In a
Summer Garden" eftir Frederick
Delius og „The Confession of Isobel
Gowdie“ eftir J. MacMillan.
Sigrún Eðvaldsdóttir, fíðluieik-
ari, verður einleikari á tónleikumn-
um 4. febrúar og hljómsveitarstjóri
Petri Sakari. Þá verða leikin verk
eftir tvö íslensk tónskáld: „Hátíða-
forleikur" eftir Pál Isólfsson og
„Tvær rómönskur" eftir Áma
Bjömssoiv. Auk þess verða leikin
„Stúdía í valsformi" eftir Eugéne
Ysáye og „Sinfónía nr. 4“ eftir Pjotr
Tsjajkovskíj.
Á tónleikunum 4. mars verður
leikinn „Homkonsert" eftir Jón
Ásgeirsson, og einleikari verður
Joseph Ognibene, en hann hefur
verið 1. homleikari hljómsveitarinn-
ar frá 1981. Hljómsveitarstjóri
verður Takua Yuasa, sem er jap-
anskur. Önnur verk á tónleikunum
verða: „Haydn—tilbrigði" eftir Jo-
hannes Brahms og „Sinfónía nr.
6“ eftir Dmitri Sjostakovitsj.
í lok mánaðarins, nánar tiltekið
25. mars, stjómar Avi Ostrowskíj
Sinfóníuhljómsveit Islands, en hann
er aðalstjómandi Norsku útvarps-
hljómsveitarinnar í Ósló. Einleikari
á tónleikunum verður slagverksleik-
arinn Maarten M. van der Valk. Á
efnisskránni er „Langnætti" eftir
Jón Nordal, „Konsert f. slagverk
og hljómsveit" eftir André Jolivet
og „Sinfónía nr. 4 í e-moll“ eftir
Johannes Brahms.
Seinustu tónleikarnir í gulu
áskriftarröðinni eru svo 3. júní.
Hljómsveitarstjóri verður Petri Sak-
ari og einleikari fiðluleikarinn
Vasko Vassilev. Vasko er rúmlega
tvítugur, fæddur í Búlgaríu og yfír
hann hafa verið notaðar lýsingar
eins og „Ofur-Paganini“ og „Töfra-
fíðluleikari". Á efnisskránni eru
„Ruslan og Ludmilla, forleikur" eft-
ir Mikhail Glinka „Fiðlukonsert,"
eftir Jean Sibelius og „Sinfónía nr.
1“ eftir Pjotr Tsjajkovskíj, auk þess
sem flutt verður íslenskt verk.
Rauð tónleikaröð
Á rauðum tónleikum verða flutt
mörg úrvalsverk tónbókmenntanna
fyrir hljómsveit og í vetur verða auk
þess flutt einleiksverk sem samin
era á þessari öld og munu sum
þeirra verka heyrast hér á landi í
fyrsta sinn.
Fyrstu rauðu tónleikamir verða
15. október og má segja að kvöldið
sé nánast algerlega ungverskt.
Frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Islands í Háskólabíói
Hljómsveitarstjóri verður Tamas
Vetö og einleikarinn er Gyorgy
Pauk, en þeir era báðir Ungveijar.
Á efnisskránni verða „Marosszekar
Tanze" eftir Zoltan Kodály og
„Fiðlukonsert nr. 2“ eftir Béla Bart-
ok. í iokin verður síðan leikin „Sin-
fónía nr. 3“ eftir þýska tónskáldið
Robert Schumann.
Á tónleikunum 19. nóvember
verða leikin þijú verk: „Hugleiðing
um L“ eftir Pál P. Pálsson, „Selló-
konsert nr. 1“ eftir Dmitri Sjostako-
vits og „Petruska" eftir Igor Stra-
vinskíj. Einleikari verður sænski
sellóleikarinn, Frans Helmerson og
stjórnandi Petri Sakari.
Næstu rauðu tónleikar verða 21.
janúar. Hljómsveitarstjóri verður
Petri Sakari og einleikari brasilíski
píanóleikarinn Cristina Ortiz. Á efn-
isskránni verða „Forleikur og Sorg-
arlag úr Galdra-Lofti“ eftir Jón
Leifs, „Konsert fyrir píanó í G-dúr“
og „Daphnis og Cloe svíta nr. 2“
eftir Maurice Ravel.
Febrúartónleikamir verða 18.
þess mánaðar. Á efnisskránni verða
tvö verk: „Konsert fyrir lágfiðlu“
eftir Alfred Schnitke og „Sinfónía
nr. 3“ eftir Felix Mendelssohn. Ein-
leikari verður Rivka Golani, lágf-
iðluleikari frá ísrael, og hljómsveit-
arstjóri Edward Serov, sem er
fæddur í Moskvu og hefur verið
aðalstjómandi Sinfóníuhljómsveit-
arinnar í Óðinsvéum síðastliðin tvö
ár.
Á tónleikunum 18. mars verður
Wojciech Michniewski stjómandi
hljómsveitarinnar og einleikari
Wendy Wamer, sellóleikari. Á efn-
isskránni verða „Sinfónía nr. 4“
ena Rudiferia. Hljómsveitarstjóri
verður Páll P. Pálsson og efnisskrá-
in er fjölþætt: „Spiel mir das Lied
von Gluck“ eftir Nico Dostal, „Lock-
ende Flamme“ eftir Eduard
Kunnecke, nokkur verk eftir Johann
Strauss: Fruhlingsstimmen Walzer,
Scwipslied, Drauss’n in Sievering,
Wiener Bombon-valsar og Perpetu-
um mobile. Þá verða flutt „Die
Schöne Galathee" og „Romance der
Galathee" eftir Franz von Suppé,
„Im Prater bluh’n Wieder die Ba-
ume“ eftir Robert Stolz, „Orfeus í
undirheimum, forleikur" eftir
Jacques Offenbach, „Donna Diana,
forleikur" eftir Emil N. von Reznic-
ek og „Die Schwátzerin" eftir Josef
Strauss.
Á tónleikunum 25. febrúar mæt-
ir hljómsveitarstjórinn Edward
Serov aftur til leiks og á þeim tón-
leikum verður flutt rússnesk tón-
list. Einsöngvari verður danski stór-
söngvarinn Aage Haugland.
Lokatónleikarnir í þessari tón-
leikaröð verða 1. apríl. Þá verður
sálumessa Verdis flutt. Einsöngvar-
arnir verða allir íslenskir; Ólöf Kol-
brún Harðardóttir, Elsa Waage,
Ólafur Á. Bjamason og Guðjón
Grétar Óskarsson, auk þess sem
Kór íslensku óperunnar tekur þátt
í flutningnum. Hljómsveitarstjóri
verður ísraelsmaðurinn Yoav Taimi.
Blá tónleikaröð
í blárri tónieikaröð era aukatón-
leikar Sinfóníuhljómsveitarinnar og
í vetur verða þar femir tónleikar.
Þar kennir margra grasa, allt frá
dægurtónlist til Myrkra músíkdaga.
Fyrstu bláu tónleikarnir verða
aðeins 16 ára gamall á djasshátíð-
inni í Edinborg. Verkin sem leikin
verða á tónleikunum eru: „An Rath-
ad Ur“ og „Konsert f. tenór saxó-
fón og hljómsveit" eftir William
Sweeney, „Sinfónía fyrir Róbert"
eftir Sally Beamish og „Afsprengi“
eftir Hauk Tómasson.
Síðustu bláu tónleikamir verða
27. maí. Þá verða flutt verkin
„Ljáðu mér vængi,“ eftir Pál P.
Pálsson og „Píanókonsert,” eftir
Jóhannes Brahms. Einleikari á tón-
leikunum verður píanóleikarinn
Markus Schirmer, einsöngvari
Rannveig Bragadóttir og hljóm-
sveitarstjóri verður Páll P. Pálsson.
Aðrir tónleikar
Sinfóníuhljómsveitin heldur
fjölda tónleika á ári hveiju, auk
áskriftartónleika. Má þar nefna
ferðir út á land, listahátíðartón-
leika, skólatónleika, vinnustaða-
heimsóknir og heimsóknir á sjúkra-
hús og vistheimili fyrir aldraða.
Þessi háttur mun hafður á í vetur
og hefur hljómsveitin leikið víða í
september. Auk þess hefur hún
hlotið athygli víða erlendis fyrir
vandaðan flutning tónlistar, meðal
annars með útgáfu á hljómdiskum
í samvinnu við breska útgáfufyrir-
tækið Chandos. Hljómsveitinni hef-
ur í framhaidi af þeim hljóðritunum
boðist að leika víða erlendis, þar á
meðal á Englandi. í júní er því
stefnt á að fara til Bretlandseyja
og leika, meðal annars, í Glasgow,
Aberdeen, Inverness, Edinborg,
Henley, Bournemouth, Notting-
ham, Dublin og Lundúnaborg.
Samantekt/ssv