Morgunblaðið - 11.10.1992, Side 28

Morgunblaðið - 11.10.1992, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1992 1 AUSTURSTRÖND3,170SELTJARNARNES OPIÐ SUNNUDAG KL. 13-15, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 10-18. 2ja herb. Fossvogur: Falleg og rúmg. 62 fm íb. í góöu steinh. Sórgarð- ur. Verð 5,6 millj. Leifsgata: Falleg, snyrtil. 41 fm einstaklíb. á 1. hæð í góðu steinh. Góðar innr. Parket. Laus strax. V. 3,4 m. Drápuhlíð - góð lán: 2ja-3ja herb. falleg og mikið endurn. 78 fm kj.íb. í góðu steinh. Áhv. byggingarsj. 3,6 millj. Verð 6,5 millj. Safamýri - góð lán: Góð 50 fm ’kjíb. í fjölb. Sérinng. Fráb. staðsetn. ÁHv. byggsj. 3,4 millj. Verð 5,2 millj. 3ja herb. Austurströnd: Gullfalleg 3ja herb. íb. í lyftuh. Stórar svalir. Upp- hitað bílskýli. Þvottah. á hæðinni. Áhv. byggingarsj. 2,1 millj. Grafarvogur - góð lán: Falleg nýl. 3ja herb. íb. á 1. hæð í tvíb. ásamt bílsk. alls um 100 fm. Laus strax. Áhv. byggsj. 4,8 millj. Verð 8,9 millj. Grettisgata: Falleg og snyrtil. 75 fm risíb. í steinh. Endurn. eldhús. Áhv. byggsj. 2,5 millj. Laus strax. Verð 6,0 millj. Kleppsvegur: 3ja-4ra herb. 89 fm íb. á 1. hæö. íb. er öll nýtek- in í gegn, þ.m.t. ný eldhinnr. og nýir skápar. 3 svefnherb. Suöursv. V. 6,8 m. Þingholtin: Falleg og mikið endurn. 3ja herb. íb. í góðu steinh. Laus fljótl. Verö 6,8 millj. 4ra—6 herb. Irabakki - góð lán: Falleg 4ra herb. íb. á 3. hæð. Endurn. eldh. Suðursv. Snyrtil. sameign. Áhv. 2,6 millj. Verð 6,8 millj. Fffusel a Glæsil. 140 <m ib. á 1. hasð þ.a. 28 fm ibúðar- herb. með snyrtingu á jarðhæð Sért. vandaðar. innr. Ssmeign I mjög góðu standl. Parket á gótf- um. Suðursv. Laus fijóti. Verð 9,6 millj. Stærri eignir Þingholtin: Stórglæsil. 192 t fm íb. á tveimur hæðum í góðu steinh. í hjarta borgarinnar. Vandaöar innr. og gólfefni. Þrennar svalir. Sauna. Þvottah. í íb. Mikil geymslurými f kj. Sórbflast. Laus strax. Áhv. 7 millj. langtl. Seltjarnarnes: Glæsil. 205 fm raðh. ó tveimur hæðum m. innb. bflsk. Sólstofa. Suðursv. Heitur pottur í garði. Vönduð eign. Verð 14,9 millj. Arnarnes: Glæsil. ca 300 fm einb- hús á tveimur hæðum meö innb. tvöf. bflsk. Vel staðsett hús með fráb. út- sýni. Verð 18,5 millj. Fornaströnd: Sórl. vand- aö og skemmtil. 226 fm einbhús á einni hæð með tvöf. bílsk. Ný 25 fm garð- stofa. Garður teiknaður af Stanislas Bohic, með nuddpotti, útisturtu og stórri verönd. Húsið er í góðu ástandi. Laust fljótl. RUNÓLFUR GUNNLAUGSSON, rekstrarhagfr. KRISTJÁN V. KRISTJÁNSSON, viðskiptafr. Afmæliskveðja Ingólfur Gíslason Einn af góðvinum mínum af eldri kynslóðinni er níutíu ára um þessar mundir og því vel við hæfí að minhast gamalla kynna og senda honum_ kveðju á þessum tímamótum. Án þess að ég ætli að lýsa æviferli Ingólfs Kristjáns- sonar, er rétt að glöggva sig á uppruna hans, en hann er fæddur að Skerðingsstöðum í Reykhóla- sveit 12. október 1902. Foreldar hans voru af breiðfírskum ættum. í nýlegu viðtali i Eiðfaxa lýsir Ing- ólfur á einkar viðfeldinn og ljúfan hátt æskuheimili sínu og uppvexti. Hann var einn af 12 systkinum, sem öll þurftu að fara að vinna þegar þau höfðu aldur og þroska til. Hann lýsir föður sínum svo, að hann hafí stjómað þeim systkinun- um svo til vinnu, að eiginlega var ekki um neina stjóm að ræða, heldur vom þau hvert og eitt sett til þeirra verka, sem þau höfðu helst áhuga á. Eftir að hafa alist upp þama við Breiðafjörðinn til nítján ára aldurs, lá leið Ingólfs í Bændaskól- ann á Hólum. Þar var hann við nám í tvo vetur, en vann auk þess á búinu þijú sumur fýrir og eftir nám. Upp úr því heldur Ingólfur til náms við íþróttaskólann í Oller- up á Fjóni, og að því námi loknu réðst hann sem íþróttakennari að lýðskólanum á Eiðum, þar sem hann starfaði í átta ár. Upp úr því hefst svo hið eigin- lega ævistarf Ingólfs, er hann árið 1935 gerðist tollvörður á Aust- fjörðum með búsetu á Reyðarfírði. Umdæmi hans var stórt, eða allt Austurland frá Norðfírði til Homa- fjarðar. Ég man frá gamalli tíð er hann var að lýsa ferðalögum sínum við þessi skyldustörf, en það vora engar skyndiferðir þar sem komið væri heim að kvöldi. Oftast ferðað- ist hann með skipunum, sem hann var að líta eftir, en einnig átti hann það til að taka með sér um borð hest sinn til þess að nota á heimleiðinni. Einnig er mér í minni frásögn hans af því þegar hann gekk fýrir ráðherra til þess að fá heimild til þess að kaupa skíði, sem fram iitr FASTEIGNA OC FIRMASALA AUSTUHSTRÆTI 1« Sími 622424 Tískuverslun — Borgarkringlan Blómstrandi, sérstök verslun til sölu. Ágæt vaxandi velta. Eigin innflutningur að miklu leyti. Leíguhúsnæði. Gott fyrirtæki Af sérstökum éstæðum er til sölu mjög góður söluturn f eigin húsnæði f stórrl verslunarmiðstöð á Reykjavíkursvæö- inu. Góö og vaxandi velta. Góðir mögu- leikar til aukinna umsvifa. Bein sala eða skipti á fbúðarhúsnæði koma til geina. Frekarl uppl. j skrifstofu. Lögmaöur Sigurbjörn Magnússon hdl. FÉLAG IHaSTEIGNASALA Fyrirtækjasalan Braut Óskum eftir ýmiss konar fyrirtækjum á söluskrá. Fljót og góð þjónusta. Fyrirtækjasalan Braut, s(ml 626643, heimasíml 36862. Lausar 2ja og 4ra herb. íbúðir Gamli bærinn: 2ja herb. íbúð á 1. hæð í góðu stein- húsi. Nýtt rafmagn. Parket. Verð4,9 millj. Góð grkjör. Krummahólar - lyfta: 4ra herb. mjög góð íbúð á 7. hæð. Fallegt útsýni. Góðar innr. Parket. Yfirbyggðar svalir (sólstofa). Húsið nýklætt. Bílskúrsplata. Ahv. ca 1,4 millj. veðdeild. Verð 7,4 millj. Uppl. í síma 623934. hann ætlaði svo að nota við eftirlit- ið þegar svo bar undir, og þá allt- af yfír fjallvegi að fara fjarða á milli. En heimild til skíðakaupanna fékk hann, íjárveitingavaldi þess tíma til hróss. Svo er það árið 1943 að hann tekur við yfírtollvarðarstarfí á Siglufirði og hafði það með hönd- um uns hann lætur af opinberum störfum fyrir aldurs sakir árið 1972. Það var á þessum áram, sem ég kynntist Ingólfi best, en hjá honum starfaði ég við sumara- fleysingar í tollinum í fjögur sumur á námsáranum. Þá var þar mikið um skipakomur og fjörðurinn full- ur af erlendum skipum nærfellt um hverja helgi allt sumarið. Það voru því mikil umsvif við tollgæslu- störf, enda átta starfandi tollverðir þar yfír sumartímann þegar mest var. Ingólfur var einstakur reglu- maður í öllu sínu starfí. Hann hélt vel utan um það sem gera þurfti og stjómaði liði sínu af lipurð. Hann var umburðarlyndur maður, góðgjam og glaðvær í öllu háttemi og átti sér að ég held ekki óvildar- menn, þrátt fyrir vanþakklátt starf í margra augum. Ékki man ég eftir honum á hesti á þessum árum, en á hjólhesti var hann alla daga og vatt sér lipurlega um götur og bryggjur á því farartæki. Eftir að Ingólfur flutti suður, að aðalstarfí sínu loknu árið 1972, átti ég enn þess kost að vinna með honum um tíma eftir að hann var dómkvaddur til að meta tollvörur til verðs, sem setja þurfti á upp- boð. Þar naut sín vel glöggskyggni hans og réttsýni í annarra garð. Ingóifur kvæntist Guðrúnu Jónsdóttur frá Marbæli í Óslands- hlíð, sem nú er látin, og eignuðust þau tvö böm, dreng og stúlku. Son sinn, Agnar, misstu þau af slysför- um, er hann var rúmlega þrítugur, en hann var þá loftskeytamaður á millilandaskipum. Ingólfur býr nú í eigin íbúð í sama húsi og dóttir hans, Anna Jóna, og maður hennar Jón Sveinsson, fyrrv. skipstjóri. Þá ólu þau Ingólfur og Guðrún upp fósturdótturina Sólveigu Ólafs- dóttur, sem gift er Jónatan Þór- mundssyni prófessor. Það mætti halda að nú hefði Ingólfur slegið sér til rólegheita og baki sig nú við elda í hlýjunni heima. Það er þó öðru nær. Hann er enn virkur í erli dagsins og hefur ekki valið sér auðveldasta tómstundagamanið, því nú temur hann ótemjur og tekur þátt í sýn- ingum hrossa á hestamótum. Á vetuma fer hann alla daga í hest- húsið sitt og er þar lungann úr deginum við hirðingu og tamning- ar. Og þegar maður hittir hann við þessa iðju, er nær óhugsandi að ætla að þar fari svo aldraður maður. Af þessari stuttu mannlýsingu verður ráðið, að sú ágæta mennt- un, sem Ingólfur hlaut í æsku, hefur nýst honum vel. Einkum er athyglisvert hve dagleg hreyfíng og líkamsrækt hefur sjáanlega skilað honum bæði andlega og lík- amlega hraustum allt tii þessa dags. Ég vona að svo megi verða um ókomna tíð. Um leið og ég óska Ingólfi allra heilla á þessum tímamótum eru honum færðar þakkir fyrir einstaklega ánægjuleg kynni. Björn Hermannsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fröken Júlía. Jórunn Sigurðardóttir, Edda Amyótsdóttir og Valgeir Skagfjörð í hlutverkum sínum. Alþýðuleikhúsið Fröken Júlía frumsýnd í Tjamarbæ FYRSTA frumsýning þessa sunnudagskvöld. Verkið er leikárs hjá Alþýðuleikhúsinu Fröken Júlía, eitt af sígildum verður I Tjarnarbíói í kvöld, verkum leikbókmenntanna, eft- Artúnsholt - endaraðhús Til sölu fullfrágengið raðhús ca 270 fm. Frágengin lóð. Upphitaðar gangstéttir og bílaplan. Bílskúr innréttaður sem íbúð. Laust fljótlega. Upplýsingar í síma 672496. ir höfuðskáldið Ágúst Strind- berg. Leikendur eru Edda Arn- ljótsdóttir, Valgeir Skagfjörð og Jórunn Sigurðardóttir. Leik- sljóri er Sigrún Valbergsdóttir, leikmynd og búninga gerir Gerla, Ami Baldvinsson hannar lýsingu og Wibna Young leikur á fiðlu og hefur umsjón með tónlist. Sumarbústaðaland til sölu Af sérstökum ástæðum er til sölu 1/15 hluti í jörðinni Sturlureykir I í Reykholtsdal. Jörðin er 200 hektarar og á henni er eigin hitaveita og 200, fm gott íbúðarhús með 8 svefnherb. Skipulagt hefur verið svæði fyrir 15 bústaði og eru 7 þeirra komnir upp. Vegur, heitt og kalt vatn, ásamt rafmagni er komið inn á lóð. Mjög fallegur staður. Upplýsingar í síma 670104. „Fröken Júlía er alveg óð,“ dæsir þjónninn Jean við eldabusk- una Kristínu þegar frökenin hefur gengið fram af honum í Jóns- messunæturdansi vinnufólksins í hlöðunni. Húsmóðirin sleppir fram af sér beislinu, stígur ofan af stalli sínum um stund, vill blanda geði við vinnufólkið og uppsker vand- lætingu þess í staðinn. Fröken Júlía kemur andstutt til baka, daðrar við Jean, leikurinn snýst úr gamni í alvöru og spumingin verður sífellt áleitnari hvort þeirra muni hafa betur, þjónninn eða húsmóðirin. Framundan er önnur frumsýn- ing hjá Alþýðuleikhúsinu á næstu vikum á verki eftir eitt fremsta nútímaleikskáld Svía, Lars Norén. Þýðandi og leikstjóri þeirrar sýn- ingar er Hlín Agnarsdóttir og leik- endur eru Ámi Pétur Guðjónsson, Valdemar Öm Flygenring, Stein- unn Ólafsdóttir og Rósa Guðný Þórsdóttir. Fyrirhuguð frumsýn- ing er í fyrri hluta nóvember. <

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.