Morgunblaðið - 11.10.1992, Síða 30

Morgunblaðið - 11.10.1992, Síða 30
JMtingtiiiMafrÍfr ATVINNU/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR AUGLYSINGAR Sölumaður óskast Fyrirtæki vort selur heilsuvörur og -tæki í Skandinavíu. Við leitum að fyrirtæki/einstakl- ingi til að selja vörur okkar á íslandi. Þeir, sem hafa áhuga, sendi fyrirspurnir með símbréfi til: 90 47 3770055. Framkváemdastjóri Fiskvinnslufyrirtæki á Eyjafjarðarsvæðinu óskar að ráða framkvæmdastjóra til starfa nú þegar. Leitað er að kröftugum manni með mennt- un og reynslu sem hæfir til stjórnunar á þessu sviði. Húsnæði er fyrir hendi. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu sendist undirrituðum fyrir 18. október nk. Endurskoðun hf. Löggiltir endurskoöendur Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík, sími 686533. Markaðsstjóri - aukavinna Kolaportið óskar eftir að ráða „markaðs- stjóra" í aukastarf. Vinnutími aðra hvora helgi, laugardag kl. 7.00-18.00 og sunnudag kl. 9.00-18.00. Æskilegt er að viðkomandi geti einnig setið fundi á miðvikudögum kl. 8.30-10.00. Viðkomandi verður þjálfaður til að annast stjórn markaðstorgs Kolaportsins og felst starfið í að annast móttöku seljenda, annast innheimtu, leysa úr vandamálum, sem upp kunna að koma á markaðsdögum, og hafa yfirumsjón með fjölmennu starfsliði Kola- portsins í samvinnu við verkstjóra. Við leitum að starfsmanni, sem er a.m.k. 25 ára gamall, hefur ánægju af að vinna sjálf- stætt og hefur mikla ábyrgðartilfinningu, er reglusamur og heiðarlegur og hefur ánægju af og hæfileika til að umgangast fólk. Viðkomandi verður að hafa þægilega fram- komu en jafnframt að vera duglegur og ákveðinn í starfi. Áhugasamir aðilar eru beðnir að senda umsóknir, með ítarlegum upplýsingum, til skrifstofu Kolaportsins, Garðastræti 6, 101 Reykjavík, fyrir 20. október. Fyrirspurnum um starfið verður ekki svarað í síma. Öllum umsóknum verður svarað. KOLAPORTIÐ MARKAÐSTORG Rafeindavirki/ tæknimaður Öflug fjármálastofnun leitar að tæknimanni til að annast uppsetningar á PC-vélum, prenturum, skjám o.fl., auk aðstoðar við notendur. Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu á PC-vélum, stýrikerfum, Windows, prenturum o.fl. Forritunarkunnátta ekki nauðsynleg. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 17. október merktar: „Tæknimaður - 2222“. RSK Ríkisskattstjóri auglýsir laus til umsóknar eftirtalin störf: Yfirkerfisfræðingur í tekjuskattsdeild Um er að ræða nýtt starf þar sem einkum reynir á stjórnunar- og skipulagshæfileika til þess að draga úr kostnaði við kerfisgerð og leita leiða til að ná niður kostnaði við rekstur og umsjón tölvukerfa. Umsækjendur þurfa að hafa lokið háskóla- prófi í verkfræði, tölvunarfræði eða lokið prófi frá tækniskóla, sérhæfðum tölvuskólum eða hafa öðlast víðtæka reynslu í hönnun og framleiðslu tölvukerfa. Einnig þurfa um- sækjendur að hafa góða hæfileika til að setja fram texta í rituðu máli, hafa lagni í mannlég- um samskiptum, vera kunnugir algengustu forritunarmálum og þekkja til Unix stýrikerfa. Kerfisfræðingur í tekjuskattsdeild Um er að ræða nýtt starf þar sem einkum reynir á hugmyndaauðgi í því skyni að lækka kostnað sem RSK þarf að greiða fyrir að- keypta tölvuþjónustu. Umsækjendur þurfa að hafa góða hæfileika til að greina aðalatriði frá aukaatriðum, geta nýtt sér staðlaðar aðferðir til framleiðslu hugbúnaðargerðar og vera liprir í mannleg- um samskiptum. Æskilegt er að umsækjend- ur séu kunnugir stórtölvuumhverfi, þekki Unix stýrikerfi og séu kunnugir algengustu forritunarmálum. Umsóknir um ofanrituð störf, þar sem til- greind er menntun, aldur, fyrri störf og ann- að, sem máli þykir skipta, þurfa að berast embætti ríkisskattstjóra, Laugavegi 166,150 Reykjavík, eigi síðar en 14. október nk., merktar starfsmannastjóra. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Hmmm LANDSPÍTALINN Reyklaus vinnustaður GEÐDEILD LANDSPÍTALANS AÐSTOÐARDEILDARSTJÓRI DEILD15 Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri óskast á deild 15 á Kleppi sem fyrst. Vaktavinna. Húsnæði í boði. Upplýsingar gefur Guðrún Guðnadóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 602600. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD Hjúkrunarfræðingar óskast á legudeild fyrir unglinga. Mjög fjölbreytt og gefandi starf. Einnig eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga á öðrum deildum. Upplýsingar gefa Anna Ásmundsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, ísíma 602500. RIKISSPITALAR Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi um land allt. Sem háskólasjúkrahús baitir stofnunin sér fyrir markvissri meðferð sjúkra, fræöslu heilbrigðisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf- semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og með, OQ leggjum megináherslu á þekkingu, kærleik og virðingu fyrir einstaklingn- um. Starfsemi Ríkisspítala er helguö þjónustu við almenning og við höfum ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi. Verslunarstjóri Sjónvarps- og hljómtækjaverslun Fyrirtækið er innflutnings- og smásölufyrir- tæki í Reykjavík. Starfssvið verslunarstjóra felst í umsjón með daglegum rekstri, innkaupum, starfs- mannahaldi, sölu- og ráðgjöf til viðskiptavina auk annarra þeirra starfa er falla í verksvið verslunarstjórnunar. Áhersla er lögð á rafeinda- og/eða tækni- menntun ásamt reynslu af sambærilegum störfum. Leitað er að kröftugum og drífandi aðila með haldgóða þekkingu á ofangreindri vöru. Umsóknarfrestur er til og með 16. október nk. Ráðning verður skv. nánara samkomu- lagi þ.e. beðið verður eftir hæfum starfs- manni. Unnið verður með umsóknir í fyllsta trúnaði. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Guðný Harðardóttir Skipholti 50c, 2. hœð, 105 Reykjavik Simi 91-628488

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.