Morgunblaðið - 11.10.1992, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1992
I / I) ! !
nyíjj1
KNATT3PYRNA
Sigurður Grétarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins og Grasshoppers í Sviss:
Gerir Beenhakker kraflaverk?
Verðumað
„stela“ stigi
í Moskvu...
- íyrst við töpuðum hér heima íyrir Grikkjum
„ÞAÐ er erfitt að spá um leikinn.
Við förum bara til Moskvu til að
gera okkar besta," sagði Sigurður
Grétarsson landsliðsfyrirliði þegar
Morgunblaðið ræddi við hann um
leikinn sem framundan er, í Mosvku
á miðvikudaginn kemur.
Við höfum haft ágæt tök á Rússum
og vorum eina liðið sem stal stigi
af heim í Moskvu í 26 ár. Það ætti að
vera möguleiki á því nú alveg eins og
þá,“ segir fyrirliðinn og riflar upp 1:1 jafn-
teflið við lið Sovétríkjanna sálugu á Lenín-
leikvanginum 31. maí 1989 í undankeppni
síðustu heimsmeistarakeppni.
Sigurður var, eins og fleiri, mjög ósátt-
ur við tapið gegn Grikkjum á Laugardals-
velli á miðvikudaginn. „En það þýðir ekk-
ert að vera að svekkja sig á Grikkjaleikn-
um, þó vissulega hafi verið sárt að ná
ekki að minnsta kosti einu stigi. Við verð-
um bara að reyna að stela stigi eða stigum
í Moskvu í staðinn."
Qrikkimir lögðu ríka áherslu á vamar-
leikinn á Laugardalsvelli, en íslendingar
em satt að segja ekki vanir að mæta
þannig andstæðingum. Það hefur oftar
verið hlutverk íslenska landsliðsins að
byggja á sterkri vöm og treysta á skyndi-
sóknir. „Við lendum oft í vandræðum ef
við eigum að stjóma leikjum — þegar
andstæðingurinn bakkar og vili að við
sækjum. Það er því kannski betra fyrir
okkur að leika á útivöllum, gegn liðum
sem ætla sér að sigra okkur. Þá getum
við bakkað og skotist fram þegar við náum
boltanum. Til dæmis í Moskvu því það er
ömggt mál að Rússarnir verða ekki með
ijóra menn fasta í vöminni eins og Grikk-
ir. Við gátum þetta fyrir nokkram ámm
þegar við gerðum jafnteflið í Moskvu —
spilað skynsaman vamarleik, eins og í
fyrri hálfleiknum gegn Grikkjum — og
því skyldi það ekki takast aftur nú?“
Knattspymuáhugamenn hér á landi
vom greinilega mjög bjartsýnir fyrir leik-
inn gegn Grikkjum, og vom famir að
gæla við það að komast í úrslitakeppni
HM í Bandaríkjunum. Er það raunhæft
að þínu mati að liðið komist þangað?
„Ég held það sé allt í lagi að halda í
vonina meðan möguleikamir em fyrir
hendi og svo má „diskútera" hvort það
sé raunhæft eða ekki. Það yrði auðvitað
mjög spennandi ef við kæmumst þangað,
en líka mjög gott að komast upp um styrk-
leikaflokk. En ef við hefðum unnið Grikk-
land hefði dæmið auðvitað litið vel út —
bæði með Ameríku og styrkleikaflokkinn
— en fyrst sá leikur tapaðist væri mjög
mikilvægt ef við næðum einu stigi í
Moskvu."
í 5. riðli em, auk íslands, Rússland,
Grikklaiid, Lúxemborg og Ungveijaland.
Sigurður telur riðilinn mjög jafnan, og þó
Grikkimir hafi unnið tvo fyrstu leiki sína
telur hann lið þeirra ekki það sterkt að
það hafl burði til að stinga af. „Rússamir
em til dæmis algerlega óskrifað blað, em
með nýtt lið og það á alveg eftir að koma
í ljós hvað þeir geta.“ Tvö lið fara áfram
í riðlinum, og „ég held þetta sé það jafnt
að liðið í öðm sæti gæti jafnvel komist
áfram með 50% árangur."
Morgunblaðið/Kristinn
Landsllðsfyrlrlíðlnn Sigurður í baráttu við einn gríska varnarmanninn á Laugardalsvelli á mið-
vikudaginn. „Þýðir ekkert að vera að svekkja sig á Grikkjaleiknum, þó vissulega hafi verið sárt að ná
ekki að minnsta kosti einu stigi,“ segir hann.
Sigurður Grétarsson í leik með Grasshoppers í Sviss. Hann var nýlega
gerður að fyrirfiða liðsins, og hefur stundum leikið aftar á vellinum en hann
var áður vanur.
GRASSHOPPERS, sem Sigurð-
ur Grétarsson fyrirliði íslenska
landsliðsins leikur með, byrjaði
keppnistímabilið ekki vel en
virðist nú heldur að rétta úr
kútnum. Það er komið upp í
fimmta sæti svissnesku deild-
arkeppninnar og í aðra umferð
Evrópukeppninnar. Þjálfarinn
var rekinn um daginn, eftir
slakt gengi, og Hollendingurinn
frægi Leo Beenhakker ráðinn í
staðinn.
Eftir tap á heimavelli í fyrri leikn-
um gegn Sporting frá Lissa-
bon í Evrópukeppninni var útlitið
m^mekki bjart, en Grass-
Anna hopper komst engu
Bjamadóttir að síður áfram með
skrifar því að vinna seinni
leikinn í Portúgal.
„Við klúðraðum fyrri leiknum,"
sagði Sigurður, sem verið hefur
fyrirliði Grasshoppers í síðustu
leikjum — nema síðastlinn miðviku-
dag auðvitað, þar sem hann var að
leika með landsliðinu á sama tíma.
„Við skoruðum fyrsta mark leiksins
en fengum svo klaufaleg mörk á
okkur á síðustu mínútu fyrri og
seinni hálfleiks." Sigurður lék ekki
í Portúgal og var ekki bjartsýnn
fyrir þann leik, en sagði gleðina
mikla í herbúðum félagsins eftir að
liðið komst áfram, og ekki minnk-
aði hún eftir að liðið dróst gegn
AS Roma frá Ítalíu. „Menn voru
auðvitað mjög ánægðir með að
komast áfram og það er ömggt að
uppseit verður á heimaleikinn. Ég
held völlurinn taki rúmlega 38.000
manns og það að leika gegn Roma
ætti að gefa félaginu andvirði 60
milljóna króna í aðgangseyri og
sjónvarps- og auglýsingatekjur.“
Grasshopper hefur ekki gengið
vel í Evrópukeppninni síðustu ár.
„Við duttum út eftir leiki gegn
Sampdoria og Rauðu Stjömunni frá
Belgrad í fyrra og hittifyrra. Þessi
lið em sterkari en við og unnu
bæði Evrópukeppnina það ár,“
sagði Sigurður. Fyrirfram taldi
hann Grasshoppers í svipuðum
gæðaflokki og Sporting og hann
telur AS Roma ekki ósigrandi. „Ég
held Roma sé ekki mikið sterkara
en Sporting. Það þarf tvo góða leiki
til að slá út, og menn verða að
hafa trú á því að það sé hægt.
Annars gengur þetta aldrei."
Grasshoppers, sem hefur orðið
meistari 27 sinnum, fór illa af stað
í deildarkeppninni. Það hafði ekki
unnið neinn leik eftir sjö leiki og
þá var skipt um þjálfara. Leo Been-
hakker, sem hefur náð frábæmm
árangri með hollenska landsliðið,
Ajax Amsterdam, Real Zaragosa
og Real Madrid, var ráðinn til að
bjarga málunum og Oldrich Schwab
var rekinn. Hann var aðstoðarþjálf-
ari Ottmars Hitzfelds sem fékk Sig-
urð í liðið. Hitzfeld varð þjálfari hjá
Dortmund í fyrra og Schwab var
skipaður aðalþjálfari. Aðstoðar-
þjálfari hafði aldrei fyrr tekið við
liðinu. Fyrri þjálfarar vom búnir
að sýna hvað í þeim bjó áður en
þeir vom ráðnir til Grasshoppers.
En Schwab var ódýr lausn og
Grasshoppers á við fjárhagserfið-
leika að etja eins og önnur sviss-
nesk fótboltafélög.
Beenhakker var hættur að þjálfa
Real Madrid en var með samning
við félagið til tveggja ára og var
kallaður „tæknilegur ráðgjafi".
Hann heldur líklega hluta af
spænsku laununum en talið er að
hann hafi jafnvel 50.000 franka,
2,1 milljón ISK, í mánaðarlaun hjá
Grasshoppers. „Það er alltaf hægt
að finna ríka stuðningsmenn sem
era tilbúnir að leggja fé í hluti eins
og ráðningu Beenhakkers,“ sagði
Sigurður. „Þeir geta sagt seinna
að þeir hafi fengið hann til Zúrich."
Grasshoppers fór fram á við leik-
menn sína fyrir tæpum tveimur
áram að þeir tækju 20% launalækk-
un. Sigurður var sá eini sem féllst
ekki á það og hefur ekki verið í
uppáhaldi hjá stjómendum félags-
ins síðan. 40% tekna félagsins em
af aðgöngumiðasölu og auglýsing-
um. Leikir liðsins á heimavelli í
Zúrich em yflrleitt illa sóttir, það
er gott ef 4.000 mæta. Útileikir em
hins vegar vel sóttir. „Stuðnings-
menn annarra liða vilja alls ekki
missa af leik þar sem þeirra lið
gæti sigrað Grasshoppers," sagði
Sigurður. Heimaleikir í Evrópu-
keppni em einnig vel sóttir. Það
vora til dæmis 15.000 áhorfendur
á leiknum gegn Sporting Lissabon.
„12.000 þeirra vora Portúgalir og
það var eins og að leika útileik,“
sagði Sigurður. „Það sama átti sér
stað þegar við spiluðum gegn
Rauðu Stjömunni frá Belgrad. Þá
vom 17.000 Júgóslavar á vellinum
og 7.000 Svissarar."
Liðið stóð sig ekki sérstaklega
vel fyrst eftir að Beenhakker tók
við. Það vann reyndar fyrstu tvo
leikina en gerði síðan tvö jafntefli
og tapaði gegn Sporting Lissabon.
En síðan fylgdi sigur á Sporting í
Lissabon í kjölfarið og liðið sigraði
Aarau á útivelli í deildinni á mið-
vikudaginn og er því komið í fimmta
sæti. „Beenhakker breytti leikkerf-
inu og nú spilum við 3-3-3-1 í stað
4-4-2 áður,“ sagði Sigurður sem
hefur leikið á miðjunni vinstra meg-
in eða verið vinstri bakvörður.
„Æfíngamar hafa einnig breyst.
Það er meiri hraði og snerpa í þeim
hjá honum en var hjá Schwab."
Aginn í liðinu hefur aukist síðan
Beenhakker tók við og það reynir
enginn að segja honum hverja hann
eigi að velja í liðið.
Sigurður varð þrítugur í vor.
Samningur hans við Grasshoppers
rennur út í sumar. Servette vildi fá
hann til sín síðastliðinn vetur. Góð-
ur þriggja ára samningur hafði
náðst milli félaganna og Sigurðar
en Schwab vildi þá ekki missa hann
og kom í veg fyrir að hann flytti
til Genfar. „Það hefði komið sér vel
fyrir mig að fara til Servette," sagði
Sigurður. „En nú er bara að standa
sig og sjá hvað býðst í vor.“
«
«
«
_