Morgunblaðið - 11.10.1992, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJONVARP SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1992
4^
Helgi Pétursson stjórnandi þáttarins
ræðir við Gunnar Þórðarson.
Einn þáttur-
inn fjallar
um blóma-
timabilið og
skapar
stemmningu
’68-kynsIóð-
arinnar.
Sjónvarpið
Manstu gamla daga?
ÞÆTTIRNIR Manstu gamla daga? hafa aftur verið teknir á dag-
skrá Sjónvarpsins og verða sendir út á laugardögum f vetur.
Umsjónarmaður er sem fyrr Helgi Pétursson. Upptökum stjórnar
Tage Ammendrup, en Jónatan Garðarsson er sérstakur faglegur
ráðunautur varðandi tónlistina. Helgi Pétursson var spurður að
því hvort verið væri að höfða til fólks á ákveðnu aldursskeiði, eins
og nafn þáttarins gefi tilefni til. „Nei, þættirnir eiga að geta höfð-
að til allrar fjölskyldunnar, því þeir eru byggðir upp á léttu ís-
lensku efni,“ svaraði Helgi. „Þeir bera sömu yfirskrift og í fyrra,
en nú hefur hver þeirra undirtitil. Hver þáttur er byggður upp á
ákveðnu þema og það verður komið víða við.“
í næsta þætti verða teknir fyrir
kvartettar og þar koma m.a. fram
bræðumir Steinþór og Þorgeir
Gestssynir úr MA-kvartettinum.
Þá fjaliar einn þátturinn um söng-
lög. „Þessa þjóðemissinnuðu róm-
antík sem er við lýði hér á landi,“
eins og Helgi orðaði það. „í þeim
þætti fáum við i heimsókn þekkta
söngvara eins og Signýju Sæ-
mundsdóttur, Elsu Waage og
Sverri Guðjónsson, en Jónas Ingi-
mundarson leikur undir á píanó.“
Þá fá áhorfendur einnig að fylgj-
ast með annars konar stemmningu
eins og hippatímabilinu og lögum
frá síldarámnum. „í þættinum um
Þættirnir byggja á ís-
lenskum lögum og
reynt er að skapa
ákveðna stemmningu
í hverjum þætti
síldarárin kemur Þorsteinn Gísla-
son í heimsókn og segir frá ýmsum
fróðleik, meðal annars minjasafni
tengdu síldárárunum.
Blómatímabilið sýnir aftur á
móti stemmninguna á árunum í
kringum '68-70. Við erum búnir
að taka þann þátt upp - notuðum
tækifærið nú þegar margar af
þessum gömlu hljómsveitum eru
að koma fram eins og Hljómar,
Shady Owens, Pops og fleiri."
Þættimir verða á dagskrá að
minnsta kosti fram að áramótum
og segir Helgi að af nógu sé að
taka í þeim efnum. „Létt tónlist
ijallar um allt milli himins og jarð-
ar - nema stöku atvinnugreinar
hafa orðið útundan. Þannig er til
nóg af lögum um strætó í einn
þátt, vögguvísur í annan og skó í
þann þriðja. Jafnvel væri hægt að
gera skemmtilegan þátt þar sem
sönglögin snúast eingöngu um
fjármál," sagði Helgi Pétursson og
bætti við að sér hafi þótt einstak-
lega skemmtilegt í sambandi við
þá þætti sem búið væri að taka
upp, að finna ánægju fólksins, sem
væri leitt saman til að syngja. Oft
væri um að ræða fólk sem hefði
sungið saman á árum áður eða að
ungt fólk væri að syngja gamla
texta og hefði gaman af.
%
ARA
AFMÆUS
TILBOÐ
Inl
%
AFSLATTUR
Í tilefni 25 ára afmælis
verslunarinnar bjóðum við gluggatjaldaefni
eldhúsgluggatjöld, dúka, rúmteppi og
rúmteppaefni á afmælisverði.
Aðeins í nokkra daqa.
Lítið inn og gerið góð Kaup.
|n|
Skipholti 17 a
GG a
13.05 Kristján Jóhannsson.
16.00 Siódegi á Suðurnesjum. Ragnar öm Péturs-
son. Fréttayfiriit og íþróttafréttir frá kl. 16.30.
18.00 Svanhildur Eiríksdóttir.
19.00 Rúnar Róbertsson.
21.00 Skólamál. Helga Sigrún Harðardóttir.
23.00 Þungarokk. Eðvald Heimisson.
1.00 Næturtónar.
FM957
FM 95,7
7.00 i bitið. Sverrir Hreiðarsson.
9.05 Jóhann Jóhannsson.
12.10 Valdís Gunnarsdóttir. Fæðingardagbókin
15.00 ívar Guðmundsson og Steinar Viktorsson.
Umferðarútvarp i samvinnu við umterðarráð og
lögreglu kl. 12.10.
18.05 Gullsafnið. Ragnar Bjamason.
19.00 Halldór Backman. Óskalög
22.00 Ragnar Már Vilhjálmsson.
1.05 Haraldur Jóhannsson.
5.00 Ókynnt tónlist.
Fréttir á heila tímanum frá kl. 8-18.
HUÓÐBYLGJAN
Akureyri
FM 101,8
17.00-19.00 Pálmi Guðmundsson. Fréttir frá frétla-
stofu Bylgjunnar/Stöð 2 kl. 18.00.
SÓLIN
FM 100,6
8.30 Kristinn spilar tónlist.
10.00 BirgirTryggvason.
13.00 Gunnar Gunnarsson.
16.00 Steinn Kári Ragnarsson.
19.00 Helgi Már. Óskalög.
21.00 Vignir.
11.00 Stefán Amgrimsson.
STJARNAN
FM 102,2
7.00 Morgunútvarp.
9.05 Óli Haukur. ðskalagasíminn opinn kl. 11.
Bamasagan „Leyndarmál hamingjulandsins", eftir
Edward Scaman kl. 10.
13.00 Ásgeir Póll. Barnasagan endurtekin kl. 17.15,
17.30 Lilið og tilveran. Umsjón: Erlingur Níelsson.
18.00 Kvölddagskrá í umsjón Rikka E.
19.05 Ævintýraterð í Ódyssey.
20.00 Prédikun B.R. Hicks.
20.45 Prédikun Richard Perinchiet.
22.00 Fræðsluþáttur. Umsjón: Dr. James Dobson.
24.00 Dagskrárlok.
Bænastund kl. 7.15, 9.30, 13.30, 23.50. Fréttir
kl. 7, 8, 9, 12,17,19.30.
Paö er allt að seljast upp!
Þú getur ennþá komist með í ódýra ferð til einnar vinsælustu verslunar- og
menningarborgar Evrópu.
Fyrsta flokks gisting - spennandi skoðunarferðir - ævintýralegir
verslunarmöguleikar.
Vöruverð er svo ótrúlega lágt að
J*yaaöu
Þér
*aífl
2l.
°któbe
Trte“pp«"aus-
'■ n°vember örfá '
snó^zs::^
8■ ^ember Z blðL
,s^ZT‘!l,bi6'
18 "ÖWTO* '
2S^en,ber^SX«^rö.
Verð
Kr. 22.900
fyrir 4ra daga ferð
24.900
fyrir 5 daga ferð
32.400
fyrir 8 daga ferð.
*
jafnvel Skotarnir flykkjast þangað til
að versla
Stærsta
verslunarmiðstöð
Evrópu
— og meira tilS
* Ekki innfalið:
Flugvallaskattar I Keflavlk
og Newcastle kr. 2.800 og
forfallagjald kr. 1.200.
65 22 66
Ferðaskrifstofan Alls, sími 652266, fax. 651 160