Morgunblaðið - 20.10.1992, Page 3
B 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1992
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Fátt um flna drættti
ÞAÐ var fátt um fína drætti í
þriðja leik íslands og Egypta-
lands í Kaplakrika í gærkvöldi.
íslendingar sigruðu með einu
marki, 24:23 og gerði Magnús
Sigurðsson sigurmarkið beint
úr aukakasti eftir að leiktíma
var lokið.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar
Islenska liðið byrjaði þokkalega
og hafði undirtökin í fyrri hálf-
leik og í upphafí þess síðari komust
strákamir sjö mörk-
um yfír, 19:12, en
þá hrökk flest í bak-
lás. Leikmenn náðu
ekki að halda for-
skotinu og jöfnuðu Egyptar tvíveg-
is á lokamínútunum. Um leið og
leiktíminn rann út fengu íslending-
ar aukakast á hægri vængnum og
úr því skoraði Magnús Sigurðsson
sigurmarkið.
Fyrri hálfleikur var skömminni
skárri en sá síðari. Leikin var 3-2-1
vöm og gekk það svona bærilega
lengst af og sóknin var allt í lagi.
Eftir að Egyptar færðu sig framar
á völlinn í síðari hálfleiknum fór
hins vegar að ganga verr. Menn
vom ragir við að missa boltann og
leikurinn riðlaðist, enda gerðu
strákamir aðeins níu mörk í síðari
hálfieik.
Vonandi læra strákamir eitthvað
af þessum leikjum. Þegar á hólminn
er komið má ekki tapa niður sjö
marka forskoti á móti liði sem
þessu. Egyptar leika allt annan
handknattleik en við eigum að venj-
ast og við gætum lent á móti slíkum
liðum á HM í mars. Þá verða menn
vonandi reynslunni ríkari, til þess
var leikurinn gerðu.
Guðjón Ámason og Ólafur Stef-
ánsson vora bestu menn íslands að
þessu sinni og Birgir stóð fyrir sínu.
Aðrir eiga að geta leikið betur og
það er ekki skemmtilegt að sjá leik-
menn skora hvað eftir annað með
skoum af tíu metra færi eins og
tvær af aðalskyttum Egypta gerðu
nokkram sinnum.
4m nfi «1 m
mm
FOLK
Frá Bob
Hennessy
i Englandi
■ IAN Rush, markakóngurinn
mikli hjá Liverpool, náði að skora
gegn Manchester United um helg-
ina, og svo merkilega vill til að það
er í fyrsta skipti sem
hann skorar gegn
United í Sjölmörgum
viðureignum.
■ RUSH sló um
helgina met sem væntanlega mun
standa um aldur og ævi: þetta var
287. mark hans fyrir Liverpool en
enginn hefur gert eins mörg mörk
fyrir félagið. Roger Hunt gerði 286
mörk á sínum tíma og hafði það
met staðið í 23 ár.
■ ALAN Smith gerði sigurmark
Arsenal gegn Nottingham Forest
um helgina. Þetta var 200. mark
hans á ferlinum, 400. leikurinn og
sá 200. með Arsenal.
■ ALEX Ferguson stjóri Man-
chester United sektaði miðju-
manninn Neil Webb um vikulaun
á dögunum; um andvirði 3.000
punda — tæplega 300 þúsund ÍSK
— fyrir að drekka tvö léttvínsglös
með máltíð 24 tímum fyrir leik liðs-
ins gegn Southampton í ágúst sl.
Heldur stirt hefur verið milli þeirra
tveggja upp á síðkastið, og þurfa
þeir sennilega ekki að ræðast mikið
við framar því líkur eru á að Webb
sá á leiðinni burt, annað hvort aftur
til Nottingham Forest eða til
Sheffield Wednesday.
Valdimar Grímsson ( baráttu vlA elnn egypsku leikmannanna um helgina.
Morgunblaðið/Bj ami
GOLF
Kytfingur í árs bann
Birgir Viðar Halldórsson úr
Golfklúbbi Reykjavíkur hefur
verið dæmdur í eins árs keppn-
isbann í gplfi af dómsstóli Golfsam-
bands íslands. Birgir Viðar er
dæmdur fyrir að svindla á golf-
móti I Stykkishólmi 13. júní í sum-
ar. Verðlaun voru veitt fyrir að
vera næstur holu á 9./18. braut
og var Birgir Viðar dæmdur fyrir
að færa bolta sinn nær holu eftir
upphafshöggið á holunni. Þetta er
( fyrsta sinn sem kylfingur er
dæmdur í bann fyrir að svindla í
keppni hér á landi.
Rannsókn málsins var viðamikil
og fóru meðlimir dómstólsins með-
al annars á staðinn til að kynna
sér aðstæður. Birgir Viðar segist
í skriflegri vörn ekki vita hvort
mistök hafi verið gerð í mælingu
á umræddri holu eða hvort hann
hafi hugsanlega fært boltamerkið
óviljandi. „Ég hafði ekki rangt við
í þessum leik frekar en öðram,"
segir hann.
I niðurstöðu dómsins segin
„Samkvæmt framanrituðu ber að
dæma kærðan, Birgi Viðar Hall-
dórsson, til þess að þola missi rétt-
ar til þátttöku f golfmótum og
missi áhugamannaréttinda í golf-
leik tímabundið. Með hliðsjón að
því að kærður hefur nú þegar gold-
ið fyrir gerðir sínar og afleiðingar
þeirra þann tíma sem liðinn er frá
því að brot var framið þá þykir
mega ákveða að tímamörk rétt-
indasviptingar samkvæmt framan-
sögðu skuli vera til 15. október
1993.“
Dómstólnum þykir því að Birgir
Viðar hafi tekið út refsingur í sum-
ar þó svo hann hafi ekki verið
dæmdur fyrr en nú og því er hann
dæmdur í kappnisbann fram til 15.
október á næsta ári.
IÞROTTASAMBAND ISLANDS
Ég er volgur
- segir Magnús Oddsson, formaður ÍA, um
hugsanlegt framboð í embætti varaforseta ÍSÍ
MAGNÚS Oddsson, formaður íþróttabandalags Akraness, er að
velta því fyrir sér að gefa kost á sér til f ramboðs í embætti
varaforseta ÍSÍ á ársþingi sambandsins um næstu helgi. Áður
hafa þrír aðilar tilkynnt um framboð i' sama embætti. Þeir eru
Guðmundur Kr. Jónsson, Katrín Gunnarsdóttir og Lovísa Einars-
dóttir.
|agnús sagði í samtali við
Morgunblaðiði i gær að hann
væri ekki búinn að gera það endan-
lega upp við sig hvort hann gæfi
kost á sér. „Ég er volgur. Það eru
margir sem hafa talað við mig og
óskað eftir að ég færi fram. Ef ég
fer fram verð ég að hætta sem for-
maður íþróttabandalags Akraness.
Það er í lögum ÍSÍ að sá sem gegn-
ir þessu embætti getur hvorki verið
formaður í héraðssambandi eða sér-
sambandi. Ég var einmitt að koma
af fundi með stjórn ÍA þar sem þessi
Magnús Oddsson
mál vora rædd. Ég verð í Reykjavík
á morgun [í dag] og ræði við nokkra
aðila þar og reyni síðan að gera
þetta upp við mig að þeim viðræðum
loknum," sagði Magnús í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Hann
verið formaður íþróttabandalags
Akraness í 8 ár.
Pálmi ekki í framboð
Séra Pálmi Matthíasson hefur
ákveðið að gefa ekki kost á
sér til framboðs í embætti varafor-
seta ÍSÍ. Eins og Morgunblaðið
skýrði frá fyrir helgi var Pálmi
að íhuga að gefa kost á sér. „Ég
er búinn að íhuga þetta mjög og
komst að þeirri niðurstöðu að gefa
ekki kost á mér. En ég mun halda
áfram að sinna þeim störfum sem
ég er í, bæði inrian íþróttahreyf-
ingarinnar og annarsstaðar. Ég
er hins vegar mjög þakklátur fyr-
ir þann stuðning sem margir hafa
sýnt mér varðandi þetta embætti.
Eg hef mjög mikið að gera í mínu
starfí og sé ekki alveg hvemig
þetta allt myndi ganga upp,“ sagði
Pálmi, sem er sóknarprestur í
Bústaðahverfí í Reykjavík.
^ —*-----------------
UfOOK
FOLK
■ MAGNÚS Sigurðsson, örv-
henta skyttan úr Stjömunni, lék
að nýju með landsliðinu um helgina
eftir tveggja ára hlé.
■ MAGNÚS var með landsliðinu á
Friðarleikunum í Seattle 1990, og
tók síðan þátt í landsleikjum gegn
Tékkum hér á landi fljótlega eftir
það, en hefur síðan ekki verið valinn
í liðið þar til nú.
■ EGYPTAR tefldu aðeins fram
ellefu leikmönnum í fyrsta lands-
leiknum. Ástæðan fyrir því var að
allir leikmenn liðsins komust ekki
til íslands í tæka tíð.
■ ÞÁ urðu Egyptar að leika í
lánsbúningum, þar sem leikmennim-
ir sem komu ekki til landsins voru
með búningatöskur þeirra. Egyptar
léku í ónúmeraðum peysum í fyrsta
leiknum.
■ FJÓRIR nýliðar léku með
landsliðinu í fyrsta leiknum: Vals-
mennirnir Ólafur Stefánsson og
Dagur Sigurðsson, FH-ingurinn
Hálfdán Þórðarson og Selfyssing-
urinn Siguijón Bjarnason. Fimmti
nýliðinn sem tók þátt í leikjunum
um helgina var Ingvar Ragnarsson,
markvörður úr Stjörnunni, sem stóð
í markinu allan seinni hálfleikinn í
frkvöldi.
EGYPTAR taka sér frí í dag
og fara m.a. í Bláa Lónið. Annað
kvöld leika þeir við U-21 árs lands-
liðið á Akranesi og á fimmtudags-
kvöld leika þeir gegn ÍBV í Eyjum.
Fyrirhugað er að leika æfingaleik
Sng Val á föstudag.
ARNA Steinsen hefur verið ráð-
in þjálfari liðs KR í kvennaknatt-
spymu fyrir næsta sumar, en liðið
leikur í 1. deild. Hún er ekki ókunn
S herbúðum liðsins — lék með því S
árabil og þjálfaði það jafnframt sum-
arið 1991. Reiknað er með að Arna
taki fram skóna á ný og leiki með
KR næsta sumar.
■ ÞORLÁKUR Árnason, sem
hefur verið iðinn við að skora fyrir
Leiftur frá Ólafsfirði undanfarin ár,
ætlar að leika áfram með 2. deildarl-
iðinu. í mótslok í haust var hann á
þvf að breyta til næsta sumar, en
hefur nú afráðið að verða um kyrrt.
■ DARREN Hall varð um helinga
fyrsti Englendingurinn í meira en
50 ár til að sigra í einliðaleik karla
á opna danska meistaramótinu i
badminton. Hann vann Poul-Erik
Hoyer-Larsen frá Danmörku í úr-
slitum 15:11 og 18:13. Hall hafði
aðeins einu sinni áður unnið Hoyer-
Larsen i keppni. Susi Susanti,
Ólympíumeistari frá Indonesíu sigr-
aði í einliðaleik kvenna, vann Lim
Xiao Qing 11:3 og 11:3 í úrslitum.
■ HEIMSMEIS TA RAMÓTIÐ í
körfuknattleik 1994 fer fram í Tor-
onto í Kanada. Keppnin átti upphaf-
lega að fara fram í Belgrad í Júgó-
slavíu, en vegna ástandsins þar
ákvað Alþjóða körfuknattleikssam-
bandið, FIBA, að flyta keppnina til
Kanada.
■ ÁSTRALÍA varð heimsmeistari
landsliða kvenna í skvassi. Ástralía
vann Nýja-Sjáland ( úrslitum 2:1,
en mótið fór fram í Vancouver.
Heimsmeistarinn Susan Devoy
vann eina leik Ný-Sjálendinga er
hún sigraði Michelleu Martin 9:5,
9:1 og 9:0. í hinum leikjunum unnu
áströslsku stúlkumar Liz Irving og
Robyn Lambourne. Þetta var fyrsti
heimsmeistaratitill Ástrala í skvassi
frá því 1983. England, sem var
meistari í fyrra, hafnaði í þriðja
sæti eftir 3:0 sigur á Hollandi.
FELAGSLIF
Aðalfundir
Aðalfundur frjálsíþróttadeildar
Glímufélagsins Ármanns verður hald-
inn fimmtudaginn 29. oktober kl.
20:30 í Ármannsheimilinu við Sigtún.
Aðalfundur blakdeildar HK verður
haldinn laugardaginn 24. október kl.
13:30 í Félagsmiðstök HK í íþrótta-
húsinu Digranesi.