Morgunblaðið - 20.10.1992, Síða 4
■ ARNAR Ægisson, varnarmað-
ur úr FH er fyrirliði liðsins en hann
hefur leikið flesta landsleikina í
hópnum, tíu talsins. Þórhallur Hin-
riksson úr KA kemur næstur með
sjö leiki en flestir aðrir hafa ieikið
fimm leiki, fjóra í Norðurlandamót-
inu í sumar og leikinn gegn Dönum.
■ Miðjuleikmaðurinn, Valur
Gíslason úr Austra hefur átt við
meiðsli að stríða að undanförnu,
hann er tognaður á læri en þjálfarar
íslenska liðsins vonast til að hann
verði búinn að ná sér fyrir leikinn
á morgun.
■ BJÖRGVIN Magnússon sem
leikur með Werder Bremen kemur
til móts við íslenska hópinn í dag.
Björgvin býr í Bremenhaven í
Þýskalandi en þaðan er aðeins um
þriggja klst. akstur til Hadeslev.
■ DANIR eru Norðurlandameist-
arar frá því í vor. Þeir sigruðu Eng-
land 4:1 í úrslitaleik. íslenska liðið
varð í þriðja sæti eftir æsispennandi
leik gegn Finnum. íslenska liðið
varð þrívegis undir í þeim leik en
náði að jafna og tryggja sér sigur-
inn í vítaspyrnukeppni.
■ NÖKKVI Gunnarsson, sókn-
armaður úr KR hefur verið á skots-
kónum með íslenska liðinu. Hann
hefur skorað 32 mörk af þeim 69
mörkum sem liðið hefur skorað í
sumar. Liðið hefur Ieikið 26 leiki.
■ KRISTINN Björnsson, annar
þjálfari drengjaliðsins stýrir liðinu í
síðasta skipti gegn Dönum. Hann
tók við meistaraflokki Vals fyrir
skömmu og lýsti því þá yfir að hann
væri hættur þjálfun hjá drengjalið-
inu.
■ EF ÍSLENSKA liðið kemst
áfram í keppninni mætir liðið líklega
Sviss, Austurríki og Póllandi í riðli
sínum í 16-liða lokakeppni EM
næsta vor.
SPANN
Coruna lagði
Barcelona
Barcelona, sem hafði ekki tapað
leik á tímabilinu, var engin
hindrun fyrir spútniklið Deportivo
Couma er liðin mættust á heima-
velli þess síðamefnda í spænsku
deildinni um helgina. Meistarar
Barcelona urðu að sætta sig við 1:0
tap og fékk hollenski þjálfarinn
Johan Cruyff áminningu í leiknum
eins og reyndar sjö leikmenn lið-
anna, þrír frá Deportivo og fjórir
frá Barcelona. Brasilíumaðurinn
Bebeto gerði sigurmarkið á 63.
mínútu leiksins. Deportivo, sem
hafnaði í 17. sæti deildarinnar í
fyrra, heldur því enn efsta sætinu
og hefur nú unnið bæði stórveldin,
Barcelona og Real Madrid, í tveim-
ur síðustu umferðunum.
Leikmenn Atletico Madrid voru
lengst af einum færri gegn Gijon
þar sem Manolo Sanchez fékk aðra
áminningu sína á 23. mínútu og
var þar með rekinn útaf. Mexíkan-
inn Luis Garcia náði þó forystunni
fyrir Atletico á síðustu mínútu fyrri
hálfleiks með því að stýra knettin-
um inn með hendi eins og Mara-
dona gerði á sínum tíma og frægt
varð. Abelardo jafnaði fýrir Gijon
fimm min. fyrir leikslok.
Rafael Martin Vazquez, sem ný-
lega hefur gengið til liðs við Real
Madrid frá Marseille, sýndi
skemmtilga takta og skoraði fyrsta
markið í 3:0 sigri gegn Logones.
Þetta var fyrsti útisigur Real
Madrid í 17 síðustu leikjum.
Diego Maradona virkaði þreyttur
og var alls ekki sannfærandi er
Sevilla gerði jafntefli 1:1 á útivelli
gegn Espanol. Maradona var ný-
kominn úr ferð með Sevilla til Arg-
entínu þar sem liðið spilaði tvo
æfingaleiki við gamla liðið hans
Maradona, Boca Juniors.
lean-Pierre Papln lék mjög vel með AC Milan og skoraði glæsilegt mark.
Nantes lagði Marseille
antes sigraði meistara Mar-
seille 1:0 í frönsku deildinni
á sunnudag og komst í fyrsta skipti
í vetur á toppinn í frönsku knatt-
spyrnunni. Liðið hefur einu stigi
meira en Parísarliðið PSG, sem
hefur setið í toppsætinu mest allt
| tímabilið. Það var Chad-leikmaður-
inn Jafet N’Doram sem gerði sigur-
mark Nantes í fyrri hálfleik.
Kamerúnmaðurinn Francois
Oman-Biyik kom Lens yfir gegn
PSG í síðari hálfleik en aðeins þrem-
ur mínútum síðar jafnaði Fracois
Calderaro, og jafntefli urðu úrslit
leiksins. Parísarliðið, sem er eina
liðið í deildinni sem ekki hefur tap-
að leik, er þremur stigum á undan
Marseille og Mónakó.
Etienne Mendy gerði tvö mörk
fyrir St Etienne i 2:1 sigri gegn
Bordeaux, en þessi lið voru sigursæl
í frönsku knattspyrnunni milli 1970
og 1980.
FRAKKLAND
Gróft brot Boli á Klinsmann
Franski landsliðamaðurinn Basil Boli, varnarmaðurinn harði hjá Marseille, á
yfir höfði sér leikbann. Hann verður kallaður fyrir aganefnd franska knatt-
spymusambandsins nú í vikunni, en þá verður teklið fyrir fólskulegt brot hans á
Jiirgen Klinsmann f leik Mareielle og Mónakó 3. október. Myndbandsupptaka sýn-
ir Boli gefa Klinsmann olnbogaskot - sló upp undir háls Klinsmann, sem féll við
og gleypti tunguna. Snör viðbrögð félaga Klinsmanns kom honum til hjálpar.
Boli sagði að Kiinsmann hafí togað í peysu sína, þannig að hann hafí verið að losa
sig frá honum.
Boli hefur lengi verið þekktur fyrir hörku sína á leikvelli og í Evrópukeppni
landsliða í Svíþjóð sl. sumar gaf hann Stuart Pearce, varnarleikmann Nottinghám
Forest, olnbogaskot í andlitið í leik Frakka og Englendinga.
Reiknað er með að Boli fái leikbann og jafnvel Qársekt fyrir brot sitt á Klins-
mann, sem var gróft.
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1992
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1992
Leikmenn
AC Milan
eruenn
óstöðvandi
AC Milan er óstöðvandi í ít-
ölsku deildinni. Ásunnudaginn
vann liðið Lazio með fimm
mörkum gegn þremur ífjörug-
um leik og hef ur ekki tapað síð-
ustu 40 deildarleikjum sínum í
röð og er það metjöfnun á ítal-
íu. Fiorentina setti metið
keppnistímabilið 1955 -1956.
Milanóliðið þarf aðeins jafntefli
gegn Parma í næstu umferð til
að slá metið.
AC Milan hefur unnið alla fimm
leiki sína í deildinni á þessu
tímabili og skorað í þeim 20 mörk.
Liðið hefur tveggja stig forskot á
næstu lið og einn leik til góða. Síð-
ast tapaði liðið fyrir Bari 2:1 í maí
í fyrra. Marco van Basten gerði tvö
mörk og lagði upp fyrsta markið
og er markahæstur í deildinni með
8 mörk ásamt Giuseppe Signori,
leikmanni Lazio.
í leiknum gegn Lazio á sunnudag
komst AC Milan í 2:0 með mörkum
Ruud Gullit og Jean-Pierre Papin,
sem kom inní liðið fyrir Frank Rijka-
ard, sem var meiddur. Hollendingur-
inn Aron Winter minnkaði muninn
í 2:1 á 22. mínútu en Marco van
Basten jók muninn er hann skoraði
úr vítaspymu og þannig var staðan
í hálfleik. í upphafi síðari hálfleiks
kom Diego Fuser liði Lazio aftur
inní leikinn, 3:2. Van Basten skor-
aði aftur úr víti sjö mínútum síðar.
Giuseppe Signori minnkaði enn
muninn fyrir Lazio, 4:3, en Marco
Simone, sem kom inná sem vara-
maður, gerði út um leikinn er hann
gerði fímmta mark AC Milan 10
mín. fyrir leikslok.
Paul Gascoigne, sem átti mjög
góðan leik með Englendingnum
gegn Norðmönnum í síðustu viku,
náði sér ekki á strik í þessum leik
og sýndi engin tilþrif.
Nýttu ekki fimm dauðafæri
Juventus fékk minnst fímm
dauðafæri til að skora gegn Brescia
en allt kom fyrir ekki og varð liðið
að sætta sig við markalaust jafn-
tefli. Roberto Baggio tók vítaspymu
fyrir Juve í síðari hálfleik en náði
ekki að nýta hana.
Tórínó er enn taplaust eftir 0:0
jafntefli við Atalanta, en þau em
bæði nú í öðru sæti deildarinnar,
einu stigi á undan Juventus og
Sampdoria, sem vann Cagliari 2:0
og gerði Corrini bæði mörkin þar.
Stórsigur Róma
Mathias Sammer náði að jafna
fyrir Inter 1:1 fyrir leikhlé eftir Sil-
vano Benedetti hafði náð forystunni
fyrir Róma. En í síðari hálfleik stóð
ekki steinn yfir steini hjá Inter og
Róma gerði þijú mörk gegn engu
og vann 4:1.
Napólí mátti sætta sig við óvænt
tap gegn nýliðunum í Udinese, 2:0.
Massimo Crippa, leikmaður Napólí,
var rekinn útaf á 43. mínútu leiks-
ins.
Eins og marga rekur minni til
sigraði íslenska liðið Dani 4:1
í fyrri leiknum sem fram fór á
Selfossi fyrir um mánuði síðan. Það
■■■■■ lið sem sigrar
Frosti samanlagt tryggir
Eiðsson sér réttinn til að
leika í lokakeppni
EM sem fram fer í Tyrklandi næsta
vor. Danir þurfa að minnsta kosti
að sigra með þriggja marka mun,
Úrslitin 3:0 mundi fleyta þeim
áfram í lokakeppnina en mörk á
útivöllum vega þungt á sama hátt ]
og tíðkast í EM félagsliða. Staða
íslenska liðsins er því sterk en ekki
má gleyma því að Danir eru Norð-
urlandameistarar og þó að stór sig-
ur íslands í fyrri leiknum hafi ver-
ið kærkominn var hann hvorki eðli-
legur né að öllu leyti sanngjarn
miðað við gang leiksins.
Hóflega bjartsýnn
„Ég er hóflega bjartsýnn," sagði
Þórður Lárusson, annar þjálfari
Iiðsins um möguleikana. „Undir-
búningurinn hefur verið eins og
best getur orðið. Við höfum fengið
mikinn stuðning frá KSÍ og von-
andi getum við skilað því með rétta
svarinu á miðvikudag, drengirnir
eru í mjög góðri leikæfingu og við
getum ekki kennt því um ef að illa
fer í Danmörku," sagði Þórður og
bætti við að eitt aðalsmerki liðsins
væri að liðið gæfist aldrei upp.
„Strákarnir eru jarðbundnir og
byggja ekki neina loftkastala og
það hefur sýnt sig að þeir gefast
ekki upp þó á móti blási. Liðið
varð þrívegis undir gegn Finnum í
leik um þriðja sætið á Norðurlanda-
mótinu en komst alltaf aftur inn í
leikinn. Sama gerðist í þessum
leik,“ sagði Þórður eftir sigur á 2.
flokki KR í leik liðanna á Haust-
mótinu á sunnudag en í þeim leik
náði Vesturbæjarliðið þrívegis for-
ystunni en varð að játa sig sigrað.
Mörk drengjaliðsins gerðu þeir
Nökkvi Gunnarsson, Eiður Smári
Guðjohnsen og Andri Sigþórsson
en sá síðastnefndi skoraði tvö síð-
ustu mörk leiksins.
Leikurinn var lokahnykkurinn í
löngum undirbúningi, en alls eru
leikirnir orðnir 26 að tölu, þar af
21 æfingaleikur auk fjögurra leikja
á Norðurlandamótinu í júní og
Danaleiksins fyrir mánuði síðan.
Þátttaka í haustmótinu hefur hald-
ið landsliðsmönnunum við efnið síð-
asta mánuðinn auk þess sem liðið
fór í stutta keppnis- og æfíngaferð
til Skotlands fyrir stuttu.
Erum í frábæru formi
„Þetta hefur verið óvenjulegur
tími og við erum ekki vanir að Ieika
á þessum tíma árs. Leikirnir hafa
hins vegar gert það að verkum að
við erum allir í frábæru formi og
samheldnin er mjög góð eftir alla
samveruna," sagði Arnar Ægisson,
fyrirliði liðsins. „Það er erfitt að
spá í leikinn gegn Dönum, Ef við
verðum fyrri til að skora í leiknum
er ég viss um að það myndast mik-
il stemming í liðinu og þá hef ég
ekki trú á því að við fáum mörg
mörk á okkur. Möguleikar Dana
felast kannski helst í því að verða
fyrri til að skora en við munum
reyna að leika af varkárni, byggja
á þéttri vörn og reyna skyndisókn-
íslenska drengjalandsliölð, sem lagði Dani að velli, 4:1. Morgunbiaðið/Ámi Sæberg
Strákamir
Morgunblaðip/Frosti
Arnar Ægisson, fyrirliði drengjalandsliðsins, Nökkvi. Gunnarsson og Þórður Lárusson,
þjálfari.
gefast aldrei upp
- segir Þórður Lárusson, þjálfari drengjalandsliðsins, sem er í Danmörku
Gunnar Magnússon, Fram
Helgi Áss Grétarsson, Fram
Aðrir leikmenn:
Lárus ívarsson, Fram
Þorbjörn Sveinsson, Fram
Vilhjálmur Viðhjálmsson, KR
Nökkvi Gunnarsson, KR
Andri Sigþórsson, KR
Kjartan Antonsson, Breiðablik
Grétar Sveinsson, Breiðablik
Þórhallur Hinriksson, KA
Óskar Bragason, KA
Eiður Guðjohnsen, ÍR
Valur Gíslason, Austra
Halldór Hilmisson, Val
Arnar Ægisson, FH
Björgvin Magnússon, W. Bremen
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu, skipað leikmönnum yngri
en sextán ára á í fyrsta skipti í sögunni möguleika á að komast
í lokakeppni EM. Liðið leikur síðari leik sinn við Dani á morgun
og segja má að aldrei hafi íslenskt landslið hafi verið jafn vel
undirbúið og nú. Drengjaliðið hefur leikið 26 leiki frá því í byrj-
un júlí eða rétt tæpa tvo leiki á viku að meðaltali.
ir þegar færi gefst,“ sagði Arnar
en liðið mun stilla upp leikaðferð-
inni 4-5-1 í leiknum.
KNATTSPYRNA
Hughes bjargaði
United undir lokin
MARK Hughes gerði tvö mörk
fyrir Manchester United á síð-
ustu 11 mínútunum gegn
Liverpool á sunnudaginn og
náði að jaf na 2:2. Norwich náði
að snúa blaðinu við eftir
stórtapið gegn Balckburn Ro-
vers í síðustu umferð með því
að vinnaQPR2:1. Ensku meist-
ararnir frá Leeds sýndu góðan
leik er þeir unnu Sheffield Un-
ited á heimavelli, 3.1.
Sigur Norwich var mjög mikil-
vægur svo leikmenn gætu
gleymt 7:1 tapinu gegn Blackburn
Rovers 3. október. Mark Bowen
braut ísinn gegn QPR er hann skor-
aði úr vítaspyrnu á 53. mín. og var
þetta fyrsta mark hans á tímabil-
inu. Chris Sutton bætti öðru marki
við skömmu síðar. Varamaðurinn
Badley Allen minnkaði muninn fyr-
ir QPR.
Mark Hughes var hetja Manc-
hester United er hann náði að
tryggja liði sínu jafntefli, 2:2, gegn
Liverpool með tveimur mörkum á
síðustu 11 mínútum leiksins. Don
Hutchison gerði fyrsta mark leiks-
ins fyrir Liverpool á 23. mínútu og
Ian Rush það síðara eftir góðan
undirbúning Ronny Rossnhtal.
Þetta var fyrsta mark Rush á Old
Trafford. „Við erum ekki ánægðir
því við vorum með þrjú stig í lúk-
unni, en misstum tvö þeirra. Við
áttum góðan leik, sérstaklega yngri
leikmennirnir," sagði Graeme Sou-
ness.
Smith náöi loks aö skora
Þorvaldur Örlygsson og samhetj-
ar hans í Nottingham Forest urðu
að sætta sig við enn eitt tapið og
nú gegn Arsenal, 1:0. Alan Smith
gerði sigurmarkið og var þetta
fyrsta mark hans í vetur. Þetta var
þriðji sigur Arsenal í röð og er liði
nú komið í toppbaráttuna. Forest
hefur aðeins hlotið 6 stig í 11 leikj-
um og er fjórum stigum á eftir
næst neðsta liðinu. Þorvaldur lék
allan leikinn.
Durie í sviðsljósinu
Middlesbrough komst í 2:0 gegn
Tottenham Hotspur eftir aðeins
hálftíma leik. En Sheringham og
Nick Bandby náðu að jafna með
mínútu millibili í síðari hálfleik.
Gordon Durie lék með Tottenham
og átti góðan leik, átti stangarskot
og lagði upp síðara mark liðsins.
Hann var í síðustu viku dæmdur í
þriggja leikja bann af aganefnd
enska knattspyrnusambandins fýrir
gera sér upp meiðsli eftir brot í
Ieik gegn Coventry í ágúst og á að
taka út bannið frá 2. nóvember.
Tottenham hefur ákveðið að áfrýja
til æðri dómstóla.
Wilkinson ánægður
Howard Wilkinson, fram-
kvæmdastjóri Leeds, var ánægður
með sína menn gegn Sheffield Un-
ited. „Þetta hafa verið góðir átta
dagar fyrir Leeds. Fyrst slógum við
Stuttgart útúr Evrópukeppninni og
fylgdum því eftir með góðum sigri
gegn Sheffield Utd., 3:1, á Elland
Road,“ Wilkinson.
Newcastle með fullt hús
’Newcastle er á mikilli siglingu í
1. deildinni og hefur unnið fyrstu
11 leikina og jafnaði þar með met
Tottenham frá því 1960. Á sunnu-
daginn sigraði Newcastle lið Sund-
erland 2:1.
Mark Hughes skoraði tvö mörk fyrir Man. Utd. rétt fyrir leikslok.