Morgunblaðið - 25.10.1992, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT
Náttúruspjöllin í
Jökulsárgljúfri
Málið verður
athugað
næsta sumar
ÞÓRODDUR Þóroddsson fram-
kvæmdastjóri Náttúruvemdar-
ráðs segir að ekki séu tök á að
gera nokkuð vegna náttúm-
spjallanna i Jökuísárgljúfrum
fyrr en næsta sumar. Hann
reiknar með að þá verði land-
verðir beðnir um að athuga
þetta mál og hvernig best sé
að afmá krotið á vegg gljú-
franna.
„Það er forkastanlegt að nokkur
skuli gera hluti sem þessa enda
er slíkt bannað samkvæmt nátt-
úruvemdarlögunum,“ segir Þór-
oddur. „Við höfum vitað af þessu
kroti en málið sem slíkt hefur
ekki komið til umræðu á okkar
vettvangi enda ekki litið á það sem
forgangsmál. Og það er víst að
við höfum ékki fjármuni til að
bregðast við. þessu Stráx.“
Þóroddur telur að sjálfs'agt verði
erfítt verk að ná krotinu af vegg
gljúfranna enda virðist það hafa
staðist veðrun nokkuð vel. Talið
er öruggt að spjöll þessf sem greint
var frá í Morgunblaðinu í gærdag
hafí verið unnin af Hollendingum
fyrirjim 8 árum.
Frumvarp um samfélagsþjónustu endurskoðað
Markús Öm Antonsson, borgarstjóri, heilsar uppá böm á gæsluvellinum við Brekkuhús.
llur í Grafarvogi
NÝLEGA vár ópnaður nýr
gæsluvöllur við Brekkuhús í
Grafarvogi, Gæsluvöllurinn er
vel búinn leiktækjum og leik-
föngum með góðri aðstöðu fyr-
ir börn og starfsfólk. Gæslu-
völlurinn við Brekkuhús er sá
28. sem starfræktur er í bænum
á vegum Reykjavíkurborgar og
nýtir fjöldi foreldra þessa að-
stöðu fýrir böra sín.
Á sl. sumri var opnað nýtt
skóladagheimili í Foldahverfí sem
heitir Foldakot. Auk 33 skóla-
barna dvelja einnig um 20 4-5
ára böm eftir hádegi í Foldakoti.
í desember nk. er áætlað að ljúka
byggingu leikskóla við Fífurima
þar sem pláss verður fyrir 110
börn auk þess sem undirbúningur
er að hefjast fyrir byggingu leik-
skóla bæði í Engjahverfí og Folda-
hverfi.
Spurning hvernig ákveða
eigi vinnu í stað fangelsis
ÞORSTEINN Pálsson dómsmála-
ráðherra segist vilja leggja end-
urskoðað fmmvarp um sam-
félagsþjónustu eða nauðungar-
vinnu fyrir Alþingi í vetur. Hann
skipaði á föstudag nefnd til að
fara yfír framvarpið í ljósi at-
hugasemda sem fram komu I
fyrra. Sérfræðingar af öðram
Norðurlöndum segja þetta form
refsinga hafa gefíst vel þar.
Samfélagsþjónusta er til umfíöll-
unar á norrænni sakfræðiráðstefnu
sem nú stendur yfír í Reykjavík,
en öll Norðurlöndin nema Island
hafa tekið upp þessar refsingar.
Sólveig Pétursdóttir alþingismaður
og formaður allsherjamefndar sótti
ráðstefnuna. Hún segist sammála
dómsmálaráðherra um að skoða eigi
fmmvarpið betur og leggja það fyr-
ir á ný.
Dómsmálaráðherra lagði í fyrra
fram. fmmvarp um samfélagsþjón-
ustu til viðauka við almenn hegn-
ingarlög, en það hlaut ekki af-
greiðslu þá. Þingmenn tóku fmm-
varpinu að vísu vel, en fram kom
gagnrýni á ýmis atriði þess.
Samfélagsþjónustu er ætlað að
koma í staðinn fyrir fangelsisvist
og segir Jónatan Þórmundsson
lagaprófessor áð refsingin eigi helst
við fyrir auðgunarbrot. I grannlönd-
um er henni líka talsvert beitt fyrir
brot á umferðarlögum. Jónatan seg-
ist telja hugsanlegt að menn af-
pláni einnig samfélagsþjónustu í
stað sumra skilorðsbundinna dóma.
Ragnheiður Bragadóttir lektor
bendir á að fyrir séu í hegningarlög-
um ákvæði sem lítið hafí verið beitt
hingað til áf dómstólum. Niðurstaða
hennar er sú að hérlendis eigi þetta
refsiform ekki við og er fámenni
meðal röksemda Ragnheiðar.
Samfélagsþjónusta er ólaunuð
vinna utan almenns vinnutíma um
þriggja mánaða tíma hið minnsta.
Hún getur verið af ýmsu tagi en
er ætlað að gera gagn. Jónatan
segir ekki rétt að nota orðið nauð-
ungarvinna þar sem viðkomandi
geti samþykkt eða hafnað þessum
refsimöguleika áður en dómur er
kveðinn upp.
Meðal þess sem gagnrýnt var í
frumvarpinu er ákvæði um nefnd
sem ætlað er að ákveða, óski dóm-
þoli þess, hvort refsivist allt að tíu
mánuðum skuli breytt í samfélags-
þjónustu í 40 til 200 klukkustundir.
Rætt hefur verið um að þama yrði
fíktað við ákvörðun dómstóla þann-
ig að fari gegn aðskilnaði dóms-
og framkvæmdavalds.
Nýskipuð nefnd dómsmálaráð-
herra mun meðal annars fjalla um
þetta og athuga hvort skilgreina
ætti betur skilyrði fyrir breytingu
fangelsisvistar í samfélagsþjónustu.
Nefndina skipa Ari Edwald aðstoð-
armaður ráðherra, Haraldur Jo-
hannessen forstöðumaður Fangels-
ismálastofnunar og Margrét Frí-
mannsdóttir alþingismaður. /
Skautasvell-
ið í Laugar-
dal opnað
Skautasvellið í Laugardal var
opnað í gær, fyrsta vetrardag.
í vetur verður skautasvellið opið
frá klukkan 12 til 17 eða 18 virka
daga og klukkan 13—18 um helg-
ar. Þá verður einnig opið á miðviku-
dagskvöldum frá klukkan 20 til 23.
Að auki verður séropnun fyrir böm
á morgnana og er hægt að panta
tíma fyrir hópa, til dæmis bama-
heimili eða skóla.
-----♦ ♦ ♦----
*
Iþróttamynd-
ir í Ráðhúsinu
í TENGSLUM við 61. íþróttaþing
sem haldið er um helgina og átta-
tíu ára afmæli íþróttasambands
íslands á þessu ári, hafa í salar-
kynnum Ráðhúss Reykjavíkur
verið settar upp ljósmyndir sem
tengjast sögu iþróttanna. Mynd-
irnar eru úr Ljósmyndasafni
Reykjavíkur og myndasafni
Morgunblaðsins. Sýningin verð-
ur opin almenningi að afloknu
iþróttaþingi.
Ljósmyndimar eru bæði gamlar
og nýjar og sýna á sinn hátt sögu
íþróttagreinanna. Þær eldri em
flestar úr Ljósmyndasafni Reykja-
víkur en þær yngri teknar af Ijós-
myndumm Morgunblaðsins. í kynn-
ingu segir Ellert B. Schram forseti
ÍSI að hugur forystumanna sam-
bandsins standi til þess að þetta
myndbrot verði vísir að íþróttaljós-
myndasafni og veglegri sögusýn-
ingu í náinni framtíð.
Myndirnar em stækkaðar í
40 x 5Ó sentimetra stærð og settar
upp á fleka sem mynda umgjörð
íþróttaþingsins í ráðhúsinu.
---\-» » «----
Prestvígsla í
Dómkirkjunní
BISKUP íslands herra Ólafur
Skúlason vígir Þóri Jökul Þor-
steinsson guðfræðikandidat til
þjónustu í Grergaðarstaðar-
prestakalli í Þingeyjaprófast-
dæmi. Athöfnin fer fram í Dóm-
kirkjunni og hefst messan kl.
10.30 í dag.
Vígluvottar verða séra Öm Frið-
riksson prófastur á Skútustöðum,
séra Sigurður Jónsson í Odda, séra
Kristján Valur Ingólfsson rektor í
Skálholti og séra Hjalti Guðmunds-
son dómkirkjuprestur sem þjónar
fyrir altari.
r
Áætlun Borg-
arkringlu-
vágnsins
STRÆTISVAGNINN sem hér
er vegna Bretlandsveislu mun
aka um götur Reykjavíkur sam-
kvæmt ákveðinni áætlun milli
miðbæjar og Mjóddar og tekur
hver ferð um hálfa klukku-
stund.
Mánudag til föstudags hefjast
ferðir klukkan 12.15 frá Arnar-
hóli ög síðan verða ferðir þaðan á
klukkutíma fresti 15 mínútur yfir
heila tímann. Frá Mjódd verður
farið 15 mínútur fyrir heila tímann
og lýkur ferðunum klukkan 18. Á
laugardögum hefjast ferðir frá
Amarhóli klukkan 10.15 og lýkur
í Borgarkringlunni kl. 15.30.
Ókeypis er í vagninn fyrir alla.
í dag verður brugðið útaf dag-
skránni og boðið upp á ókeypis 3
skoðunarferðir um borgiga undir
leiðsögn.
Neskirkja.
Kaffisala
og basar
Árleg kaffísala og basar
Kvenfélags Neskirkju verður í
dag, sunnudaginn 25. október,
í safnaðarheimili Neskirkju að
guðsþjónustu lokinni kl. 15.
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra
Hertar aðgerðir gegn
einstæðum í sambúð
SIGHVATUR Björgvinsson heilbrigðisráðherra hefur boðað hertar
aðgerðir gegn þeim sem reyna að leika á félagskerfið með því að
skrá hjúskaparstöðu sína aðra en hún ér og fá þannig hæiri bætur.
Hér er einkum átt við barnafólk sem er í sambúð en skráir sig sem
einstætt foreldri. Sighvatur segir að málið snúist ekki um að taka
réttindi af einstæðum foreldrum heldur að koma í veg fyrir misnotk-
un þessara réttinda.
Heilbrigðisráðherra kynnti tillög-
ur sínar á ríkisstjómarfundi á föstu-
dag Þær felast í að mælst verður
til við Tryggingastofnun ríkisins að
hún beiti ákvæðum almannatrygg-
ingarlaga þess efnis að ef upp
kemst um misnotkun sé ekki ein-
ungis um að ræða að viðkomandi
sé gert að endurgreiða það sem
hefur verið ofborgað heldur einnig
tvöföld sú upphæð í sekt. „Við
munum óská þess við Trygginga-
stofnun að hún sendi öllum einstæð-
um foreldmm bréf þar sem þeim
er gerð grein fyrir málinu og jafn-
framt að þeim sem era í sambúð
sé gert kleift að skrá sig þannig
fram að áramótum án þess að
greiða sektina," segir Sighvatur
Sighvatur segir að Trygginga-
stofnun sé einnig bent á að gera
þessu fólki grein fyrir þvi að það
missir af ýmsum réttindum með því
að skrá hjúskaparstöðu sína aðra
en hún er og má þar nefna erfða-
rétt, rétt til makabóta, lífeyris-
greiðslur og fleira.
í tillögum Sighvats er einnig að
fínna ábendingar til sýslumanna um
að þeir noti þann rétt að við ákvörð-
un meðlagsgreiðslna eigi að taka
tillit til efnahagsstöðu þess er með-
lagið greiðir og að það megi hækka
í samræmi við þá stöðu um allt að
tvöfaldri núverandi upphæð sem er
um'7.200 krónur á mánuði. „í þessu
sambandi má nefna að Innheimtu-
stofnun sveitarfélaga sem tryggir
mæðrum eða feðram meðlags-
greiðslur er heimiit að tryggja þeim
þær greiðslur sem sýslumaður hefur
ákveðið þó þær séu hærri en lág-
marksupphæðin,“ segir Sighvatur.