Morgunblaðið - 05.11.1992, Blaðsíða 2
SAanlilMfc
Lék í bandarískum
framhaldsþáttum
í ÞÁTTUNUM Skálkum á skólabekk sem Sjónvarpið
sýnir á þriðjudögum kl. 19.00 var íslenskri stúlku, Jó-
hönnu Jónas boðið að leika gestahlutverk. Hún kemur
að vísu ekki við sögu fyrr en nokkuð er Iiðið á þáttaröð-
ina og leikur þá Eileen Larson, sem er kærasta Kub-
iacs, eins aðalleikarans. Jóhanna hefur verið búsett í
Bandaríkjunum undanfarin 7 ár við nám og störf ásamt
eiginmanni sínum, en fluttist til íslands nú í haust.
„Stundum vildi
maður stökkva
inn I stúdíóið
og vera með í
kvikmyndinni"
Jóhanna segir að margt hafí orðið til þess
að henni þótti tímabært að flytja heim. „Ég
var komin með heimþrá eftir öll þessi ár, at-
vinnuleyfíð var að renna út, auk þess sem
jarðskjálftamir og óeirðimar í Los Angeles
ýttu undir það, þótt við hefðum ekki orðið
fyrir tjóni sjálf. Ég kom því miður of seint
til landsins til að fá tækifæri við leikhúsin, því
í lok ágúst var búíð að ráða í öll hlutverkin
fyrir veturinn. Ég var heppin að fá að lesa inn
á teiknimyndir og fékk vinnu við eitt útvarps-
leikrit.. Svo er ég að þýða einleik eftir Dairo
Fo og Franco Rame, sem var eitt af verkefn-
um mínum í skólanum í Boston. Ég er að
velta fyrir mér að setja hann upp á næsta
ári. Ég vil leika sem mest, því það veitir mér
ómælda ánægju og get ekki hugsað mér að
gera neitt annað."
Ekkí mikil listsköpun
í sápuóperum
Jóhanna lauk leiklistamámi frá Boston
Universitý School for the Arts vorið 1990
eftir fjögurra ára nám og fékk strax vinnu.
„Mér var boðið að leika í sápuóperunni Loving
og gat talist heppin, því ég var eina úr út-
skriftarhópnum, sem fékk strax vinnu,“ segir
hún og bætir við að þess háttar sjónvarpsverk-
efni sé ekki draumavinnan. „Það er of lítil
listsköpun í svona hlutverkum.“
Síðan fluttist Jóhanna til Los Angeles, þar
sem hún lék í leikhúsum, í stuttmynd og var
boðið gestahlutverkið í Skálkum á skólabekk.
„Það var skemmtilegra að leika í þeim þáttum
en sápuóperunni. Til dæmis var mikið unnið
með leikhljóð og brellur og manngerðimar
vora ýktar, þannig að maður fékk meira að
reyna á leikhæfíleikana."
Jóhanna lék í tveimur tímabilum í Skálkum,
þ.e.a.s. hún var fyrst í einni þáttaröð og síðar
í annarri, sem tekin var í beinu framhaldi af
þeirri fyrri. „Ég var ljóshærð á þeim tíma til
að ýkja norræna útlitið," segir hún. „En þeg-
ar ég mætti í upptökur í seinni þáttaröðina
hafði ég grennst nokkuð og stjómendurnir
vora ekkert ánægðir með það. Þetta er öragg-
lega 'eitt af fáum skiptum, sem það er talið
neikvætt að grennast. Það var leyst þannig,
að ég var í fötum sem gerðu mig umfangs-
meiri.“
Þættimir voru teknir ugp í stóru stúdíói í
einu kvikmyndaveranna. í næstu byggingu
var Francis Ford Coppola að taka upp mynd
sína Dracula með Anthony Hopkins og fleir-
Morgunblaðið/Sverrir
Leiklist - Jóhanna Jónas er gestaleikari
í Skálkum á skólabekk.,
um. „Stundum fékk'maður þá tilfínningu að
vilja stökkva inn í stúdíóið hjá þeim og vera
með í kvikmyndinni,“ segir Jóhanna. „Þetta
var dálítið tregablandin tilfínning; að vera í
raun kominn svona nálægt, en fínna svo að
þröskuldurinn var of hár. Ég vona að ég nái
að stíga yfír hann einhvern tíma.
Hvað
viltu
vita?
NÝR þáttur, Hvað vlltu vita?
hefur göngu sína í Sjónvarp-
inu eftir áramót. Verður leitað
til áhorfenda og þeim gefinn
kostur á að varpa fram spurn-
ingum, sem síðan verður leit-
að svara við. Undirbúningur
er þegar hafinn og næstkom-
andi þriðjudagskvöld verða
starfsmenn Sjónvarpsins við
símann milli kl. 20.30 og 22.00
til að taka niður spumingar.
Að sögn Kristínar Á. Ólafsdóttur
umsjónarmanns þáttarins er fólk
hvatt til þess að spyija um hvað sem
því liggur á hjarta, en reynt verður
að fínna svör við þeim spumingum,
sem ætla megi að höfði til margra.
„Áhugasvið áhorfenda á eftir að
koma í ljós, en ég tel líklegt, að fólk
vilji m.a. spyija um ýmis félagsleg
réttindi, mál sem tengjast heilbrigði
eða uppeldi, svo dæmi séu nefnd.
Auðvitað .mótar framlag spyijenda
dagskrárgerðina að mestu leyti,“
sagði Kristín. „Viðeigandi aðilar
munu síðan koma í sjónvarpssal og
reyna að veita fullnægjandi svör við
spurningunum. Einnig er ætlunin
að fá einhveija þá sem hringja inn
spumingar til þess að koma í sjón-
varpssal og hitta „sérfræðingana“.“
IMýir tónlistarþættir á
dagskrá Sjónvarpsins
Sýnt verðurfrá
tónleikum IMinu
Simone á
Listahátíð
ÞÓ NOKKUÐ tónlistarefni verður á dag-
skrá Sjónvarpsins í vetur, bæði í sjálfstæð-
um þáttum og sem liður í samsettum dag-
skrárliðum. Meðal annars má nefna nýja
þáttaröð sem ekki hefur verið gerð skil
áður, líkt og var með Flóru íslands síðast-
liðið sumar. Þættirnir nefnast Tóntegund-
irnar og eru í umsjón Sigurðar Rúnars
Jónssonar. Þar kynnir hann meðal annars
undirstöðuatriði tónfræðinnar og fjallar
að auki um hin margvíslegustu hljóðfæri,
þar á meðal gömul íslensk hljóðfæri.
Þá verða tveir norrænir þættir
sýndir, sem nefnast Norræn tóna-
hátíð, en þar koma fram þekktir
norrænir einsöngvarar og einleikar-
ar með sænskri hljómsveit í Norr-
köping. Fyrir íslands hönd kemur
fram bassasöngvarinn Viðar Gunn-
arsson. Nokkrir liðir frá Listahátíð
1992 verða sýndir, m.a. Grace
Bumbry, sem syngur með Sinfóníu-
hljómsveit íslands, Nina Simone sem
hélt tónleika, rússnesku undrabörnin
sýna snilli sína í sérstökum þætti,
sem gerður var um dvöl þeirra hér
á landi og loks djassþáttur með
Abel Gadir Salem.
Af stökum tónlistarþáttum má
nefna að í undirbúningi er þáttur
þar sem Gunnar Kvaran segir frá
einleikssvítum Bachs og leikur eina
þeirra. Auk þess koma Guðný Guð-
mundsdóttir og nemandi hennar,
Sigrún Eðvaldsdóttir, fram í tveimur
stuttum þáttum og leika saman á
fíðlu.
Um jólaleytið verða tvennir hljóm-
leikar með kórum sem flytja jólalög.
Það er Mótettukór Hallgrímskirkju
undir stjórn Harðar Áskelssonar og
kórinn Fílharmonía undir stjórn Úl-
riks Ólasonar, en þar verður Sigrún
Hjálmtýsdóttir einsöngvari.
Bæði fyrir dömur og herra
Ekkert venjulegir gönguskör
Ótrúlega þægilegir, léttir,
liprir og vatnsheldir.
Dömuskór:
Verð kr. I 2*970,•
Herraskór
Verð kr. I 3.780,
WUTILIF?
OLÆSIBÆ . SlMI B12922
52 stærstu fjölmiðlarnir
Nafn Land Nafn Land
Capital Cities/ABC Bandaríkin Matsushita Japan
NHK Japan Canadian Broad.Corp. Kanada
Time Wamer Bandaríkin Rede Globo Brasilía
General Electric (NBC) Bandaríkin QVC Network Bandaríkin
CBS Bandaríkin CLT Lúxemborg
Tele-Communications, Inc Bandaríkin FR3 Frakkland
RAI Ítalía Thames Television Bretland
Fuji TV Japan Westinghouse Bandaríkin
Nippon TV Japan The Walt Disney Co. Bandaríkin
BBC Bretland Comcast Cable Bandaríkin
RTVE Spánn Central Television Bandaríkin
ARD Þýskaland Televisa SA Mexíkó
Tokyo Broadcasting Syst. Japan Cablevision Systems Bandaríkin
Viacom Bandaríkin Tribune Bandaríkin
Fininvest Group Ítalía Antenne 2 Frakkland
Asahi National Broadcast. Japan Granada Bretland
Sony Corporation Japan Munhwa Broad.Corp. S. Kórea
News Corporation Ltd. Japan SATl Þýskaland
ZDF Þýskaiand London Weekend TV Bretland
TV Tokyo Japan ORF , Austurríki
Turner Broadcasting Bandaríkin TVS Bretland
TFl Frakkland Times Mirror Bandaríkin
Paramount Comms. Inc. Bandaríkin King World Bandaríkin
Canal Plus Frakkland KirchGroup Þýskaland
Home Shopping Network Bandaríkin EW Scripps Bandaríkin
Continental Cablevision Bandaríkin Channel 4 Bretland
H ver eru stærstu
fjölmiðlafyrirtækin?
RÖÐUN fjölmiðlafyrirtækja eftir
stærð er flókið verkefni. I reynd
eru niðurstöðurnar jafnmargar
og fjöldi þeirra sem reyna við
verkefnið. James Capel fjárfest-
ingafyrirtækið birti nýlega nið-
urstöður sínar.
Fjárfestingafélagið bar saman
veltu félaganna, hagnað bæði fyrir
og eftir skatta, hagnað á starfs-
mann og hagnaðarhlutfall og raðaði
félögunum upp eftir því. Niðurstöð-
urnar era athyglisverðar.
Ef listinn yfír 50 efstu félögin
er brotinn niður kemur í ljós að þar
eru 20 útgáfufélög, 16 sjónvarps-
og útvarpsstöðvar, og 14 marg-
miðlafélög. Nokkra athygli vekur
að af 16 sjónvarps- og útvarps-
stöðvum eru 10 þeirra stöðvar í
eigu opinberra aðila. Þess ber þó
að gæta að mjög erfítt er að bera
slíkar stöðvar saman við einka-
stöðvar þar sem opinbera stöðvun-
um hættir til að vera ofmannaðar
og óskilvirkar.
Helsta vandamálið við uppröðun
sem þessa er að meta hvaða tekjur
tilheyri fjölmiðlageiranum. James
Capel telur með allar tekjur af bóka-
útgáfu, kvikmyndum, ýmis konar
upplýsingaþjónustu og auglýsinga-
tengdum miðlum. Aðrir aðilar skoða
hugsanlega ekki allt þetta, og hugs-
anlega eitthvað fleira. Niðurstöð-
umar geta því orðið á ýmsa vegu
og ekkert eitt þarf endilega að vera
réttara en annað.