Morgunblaðið - 05.11.1992, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 05.11.1992, Qupperneq 4
4 B s3íaisi£$S'# SJONVARPIÐ 14.20 ►Kastljós Endursýndur fréttaskýr- ingaþáttur. 14.55 fhDflTTIP ►^nsl<a knattspyrn- IrHlfi IIH an - bein útsending frá leik Aston Villa og Manchester United á Villa Park í Birmingham í úrvalsdeild ensku knattspyrnunnar. Lýsing: Bjarni Felixson. 16.45 ►íþróttaþátturinn Meðal efnis í þættinum verða svipmyndir úr seinni leikjunum í annarri umferð Evrópu- mótanna í knattspymu og úrslit dagsins verða síðan birt um klukkan 17.55. Umsjón: Arnar Björnsson. 18.00 ►Ævintýri úr konungsgarði (King- dom Adventure) Bandarískur teikni- myndaflokkur. Þýðandi: Ásthildur Sveinsdóttir. Sögumenn: Eggert Kaaber, Harpa Arnardóttir og Eriing Jóhannesson. (19:22) 18.25 ►Bangsi besta skinn (The Advent- ures of Teddy Ruxpin) Breskur teiknimyndaflokkur um Bangsa og vini hans. Þýðandi: Þrándur Thorodd- sen. Leikraddir: Örn Árnason. (16:26) 18.55 ►Táknmálsfréttir 19.00 ►Strandverðir (Baywatch) Banda- rískur myndaflokkur um ævintýri strandvarða í Kaiifomíu. Aðalhlut- verk: David Hasselhof. Þýðandi: Ólafur Bjami Guðnason. (10:22) 20.00 ►Fréttir og veður 20.35 ►Lottó 20.40 ►Leiðin til Avonlea (Road to Avonlea) Kanadískur myndaflokkur um ævintýri Söm í Avonlea. Aðal- hlutverk: Sarah PoIIey. Þýðandi: Ýrr Bertelsdóttir. (13:13) 21.30 ►Manstu gamla daga? Ljóðin við íögin - textahöf undar og skáld Það vildi brenna við að ljóðskáld fyrri ára sættu gagnrýni ef þau lögðu tónlist- armönnum til brúklega texta við lög- in. Menn þóttu taka niður fyrir sig við gerð danslagatexta en þessi kveð- skapur lifir þó góðu lífi með þjóð- inni. í þættinum er rætt við Kristján frá Djúpalæk, Núma Þorbergsson, Jónas Friðrik Guðnason og Þorstein Eggertsson um textagerð og þýðingu textanna í menningarlegu samhengi. Einnig verða leikin nokkur lög með textum eftir þessi skáld. Söngvarar í þættinum em m.a. Eva Ásrún AI- bertsdóttir, Erna Þórarinsdóttir, Ólafur Þórarinsson, Páll Óskar Hjálmtýsson og Guðlaug Ólafsdóttir. Umsjón: Helgi Pétursson. Dagskrár- gerð: Tage Ammendrup. 22.20 ififiiruviiniD ►PerfyMason nvinminuin 0g indð í vatn- inu (Perry Mason and the Case of the Lady in the Lake) Bandarísk sakamálamynd frá 1988. Ung kona hverfur og eiginmaður hennar er sakaður um að hafa komið henni fyrir kattamef. Perry Mason er beð- inn um að verja hann og kemst snemma á snoðir um dularfullt sam- særi. Leikstjóri: Ron Satlof. Aðal- hlutverk: Raymond Burr, Barbara Hale, William Katt og David Ogden Stiers. Þýðandi: Reynir Harðarson. Maltin gefur meðaleinkunn. 23.55 ►Afmælisferðin (Kaj’s födselsdag) Dönsk bíómynd frá 1990. Á fertugs- afmæli Kajs bjóða vinir hans honum í ævintýraferð til Póliands, þar sem nóg á að vera af víni og villtum meyjum. Fyrir tilviljun lenda þeir með hópi manna sem er í svipuðum erindagjörðum en i ljós kemur að pólsku konumar hafa sumar annað og meira í huga en einnar nætur gaman. Leikstjóri: Lone Scherfig. Aðalhlutverk: Steen Svarre, Dorota Pomykala, Bertel Albilgárd, ivan Horn og PeterBay. Þýðandi: Þrándur Thoroddsen. 1.25 ►Útvarpsfréttir og dagskrárlok ------- -- MORGUNBLABIÐ-FIMMTUDAGUR 5: NÓVEMBER 1992 LAUGARPAGUR 7/11 STOÐ TVO 9.00 ►Með Afa Afi karlinn leikur við hvern sinn fingur í dag og sýnir margar teiknimyndir með íslensku tali. Handrit: Örn Árnason. Umsjón: Agnes Johansen. Stjórn upptöku: María Maríusdóttir. 10.30 ►Lisa í Undralandi Þekkt ævintýri eftir Lewis Carroll í nýjum búningi. 10.50 ►Súper Maríó bræður Teikni- myndaflokkur. 11.15 ►Sögur úr Andabæ Teiknimynda- flokkur um Jóakim frænda og félaga. 11.35 ►Ráðagóðir krakkar (Radio Detect- ives) Leikinn spennumyndaflokkur um útvarpskrakkana sem leysa saka-, mál. 12.00 ►Landkönnun National Geo- graphic Fræðsluþáttur þar sem und- ur náttúrunnar um víða veröld em skoðuð. 12.55 ►Visasport Endurtekinn þáttur frá síðastliðnu þriðjudagskvöldi. 13.25 líllllíllVftin ►Vinstri fóturinn n v inm i nu (My Left F00t) Ungur maður, Christy Brown, hefur verið bæklaður frá fæðingu. Miklar gáfur hans uppgötvast ekki fyrr en seint og um síðir og þá í raun fyrir tilviljun en Christy átti einnig mjög erfitt með að tala. Daniel Day-Lewis hlaut Óskarsverðlaun fyrir túlkun sína á Christy Brown og vora gagn- rýnendur á einu máli um að þessi mynd væri einstæð hvað varðaði alla framsetningu á bæklun hans og bar- áttunni við að tjá sig. Aðalhlutverk: Daniel Day-Lewis, Brenda Fricker, Ray McAnalIy, Hugh O'Conor, Fiona Shaw, Cyril Cusack ogRuth McCabe. Leikstjóri: Jim Sheridan. Maltin gef- ur ★ ★ ★ Ví Myndbandahandbókin gefur ★★★'/2 15.00 ►Þrjúbíó - Denni dæmalausi (Denis the Menace) Gamansöm teiknimynd fyrir alla fjölskylduna um prakkarann Denna dæmalausa. Stöð 2 hefur áður sýnt teiknimyndir um Denna en þetta er kvikmynd byggð á þeim teiknimyndum. 16.35 ►Gerð myndarinnar „A League of Her Own“ Fylgst með að tjaida- baki, spjallað við leikstjóra og aðal- leikendur. 17.00 ►Hótel Marlin Bay (Marlin Bay) Myndaflokkur um hóteleigendurna sem beijast í bökkum. (8:9) 18.00 ►Keith Richards, Pearl Jam og Harry Dean Stanton Fylgst verður með tónleikaferðalagi þeirra. 18.55 ►Laugardagssyrpan Teiknimynda- syrpa fyrir alla aldurshópa. 19.19 ►19:19 Fréttir og veður. 20.00 ►Falin myndavél (Beadle's About) „Maður er manns gaman“, það sann- ast í þessum breska myndaflokki. (8:10) 20.30 ►Imbakassinn íslenskur grínþátt- ur. Umsjón: „Gysbræður". Framleið- andi: Nýja Bíó hf. 20.50 ►Morðgáta (Murder, She Wrote) Jessica Fletcher leysir málin eins og henni einni er lagið. (10:21) 21-40 DVIDUVUniD ►Fram ' rauð- II TIHIu I nUIII an dauðann (I Love You To Death) Kevin Ktíne leik- ur ítalann Joey Boca í þessari gaman- sömu ástarsögu. Joey Boca elskar konuna sína Rosalie, sem leikin er af Tracy Ulman, en vandamálið er að hann elskar líka allar aðrar kon- ur. Rosalie reynir að loka augunum fyrir framhjáhaldi eiginmannsins en jafnvel þótt hún væri blind og heyrn- arlaus kæmist hún ekki hjá því að taka eftir ástarævintýrum hans. Ör- uggasta leiðin til að stöðva hinn ótrúa eiginmann er að drepa hann svo að Rosalie fær móður sína og tvo leigu- ' morðingja til að hjálpa sér við að kála kallinum. Leigumorðingjarnir eru aigerir byijendur í faginu og vinna af meiri áhuga en getu. Aðal- hlutverk: Kevin Kline, Tracy Ulman, WiIIiam Hurt, River Phoenix, Joan Plowright og Keanu Reeves. Leik- stjóri: Lawrence Kasdan. Maltin gef- ur ★★'/2 1990. 23.15 ►Rocky V í upphafí þessarar nýj- ustu Rocky-myndar er boxarinn loks- ins tilbúinn til að setjast í helgan stein og njóta lífsins í faðmi fjölskyld- unnar. Hann er nýbúinn að sigra rússneska risann Drago og lífíð virð- ist brosa við honum. Hann hefur unnið alla þá titla sem hann vildi, er við góða heilsu og á nóg af pening- um. En þegar Rocky kemur heim frá Moskvu kemur í ljós að hann hefur orðið fyrir alvarlegum heilaskemmd- um og að endurskoðandi hans hefur tapað megninu af auðæfunum í fjár- málabraski. Rocky verður að yfírgefa einbýlishúsið og flytja aftur til æsku- stöðvanna í Philadelphiu. Aðalhlut- verk: Sylvester Stallone, Talia Shire, Burt Young og Sage Stallone. Leik- stjóri: John G. Avildsen. Maltin gefur ★ ★ 1990. Stranglega bönnuð börnum. 0.55 ►Kvöldganga (Night Walk) Kona verður óvænt vitni að morði sem þjálfaðir leigumorðingjar standa að. Þeir verða hennar varir en hún kemst naumlega undan. Nú er það for- gangsverkefni hjá morðingjunum að gera út af við þetta eina vitni. Hún leitar hælis hjá manni sem reynir að hjálpa henni eins og hann getur. Aðalhlutverk: Robert Urich og Lesl- ey-Ann Down. Leikstjóri: Jerrold Freeman. 1989. Maltin gefur meðal- einkunn. Bönnuð börnum. 2.25 ►Dagskrárlok Veisla - Kaj býður vinum sínum til afmælisveislu. Afmælisferð Kaj pylsusala SJÓNVARPIÐ KL. 23.50 Danska bíómyndin Afmælisferðin (Kaj’s födselsdag) var tilnefnd til Felix- verðlauna árið 1991. Pylsusalinn Kaj hefur boðið fjórum góðvinum í fer- tugsafmæli sitt. Vinirnir koma hon- um á óvart og bjóða honum með sér til Póllands með feiju en þar telja þeir að fá megi vín og villtar meyjar á viðráðanlegum kjörum. Þeir félag- arnir rekast á fleiri Dani, sem eru að fara að heimsækja pólskar penna- vinkonur sínar. I veislu lendir Kaj til borðs með konu, sem vegna mis- skilnings og tungumálörðugleika heldur að þar sé kominn verðandi kærasti hennar, auðugur bílasali. Atburðarásin tekur óvænta stefnu og reynir bæði á vinskap og kjark félaganna en eitt er víst að afmæli Kajs í Póllandi á seint eftir að líða þeim úr minni. Stórgrýti eftir Roy Jakobsen RÁS 1 KL. 18.00 Laugardagssmá- sagan að þessu sinni er eftir ungan norskan rithöfund, Roy Jakobsen. Sagan heitir Stórgrýti og fjallar um roskinn bónda, Bringer, sem býr í afskekktum dal undir brattri, stór- grýttri hlíð og samskiptum hans við heiminn. Höfundurinn er einn vin- sælasti rithöfundur Norðmanna af yngri kynslóðinni, en þess má geta að í Leslampanum klukkan 14.00 í dag verður hann kynntur nánar. Roy Jakobsen fæddist árið 1954 og hefur fram til þessa sent frá sér tvö smá- sagnasöfn og fjórar skáldsögur, nú síðast skáldsöguna Sigurvegarna sem var tilnefnd til Bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs. Þýðandinn, Kristján Jóhann Jónsson, les. Höfundur- inn verður kynntur I Leslampan- um í dag kl. 14.00 Afmæli Kajs í Póllandi gleymist félögunum seint Fram í rauðan dauðann Joey elskar konuna sína, en því miður elskar hann líka fullt af öðrum konum STÖÐ 2 KL. 21.40 Gamanmyndin Fram í rauðan dauðann fjallar um Joey og konurnar í lífi hans, ásamt leigumorðingjunum, sem er ætlað að koma Joey fyrir kattamef. Kevin Kline leikur ítalska Banda- ríkjamanninn Joey Boca. Hann er svo fullur af lífí að það dregur hann nær því til dauða. Joey elsk- ar konuna sína, en því miður elsk- ar hann líka fullt af öðrum konum. Tracy Ulman leikur konuna hans, Rosalie. Hún reynir að líta fram hjá lausaleik mannsins síns, en hún gæti allt eins reynt að virða að vettugi fíl sem stæði á tánni á henni. Hún leitar því til móður sinnar. Joan Plowright er í hlutverki Nödju, móður Rosalie. Mæðgurnar eru sammála um að besta leiðin til að stoppa framhjáhald Joeys sé að koma honum fyrir kattarnef. William Hurt leikur Harlan James, reynslulausan en áhugasaman launmorðingja sem er fenginn til að kála hinum ótrúa eiginmanni. Harlan er ekki mjög kaldrifjaður maður og hann fær frænda sinn til að aðstoða sig við verkið. Keanu Reeves leikur Marlon, frænda Harlans. Hann hefur ekki meiri reynslu af því að drepa fólk en frændi sinn. ...með þetta lið á hælunum er líklegra að Joey verði fyrir loft- steini en að hann verði myrtur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.