Morgunblaðið - 05.11.1992, Page 7

Morgunblaðið - 05.11.1992, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1992 dogskró B 7 Ted Turner með nýja kapalstöð BANDARÍKIN - Fjölmiðlajöfur- inn Ted Turner hefur hleypt af stokkunum nýrri kapalstöð, Carto- on Network. Stöðin sendir út teikni- myndir allan sólarhringinn. Áskrif- endur eru um tvær milljónir, sem þykir heldur lítið, enda er orðið þröngt á markaðnum. Til saman- burðar voru stofnáskrifendur TNT, fyrstu kapalstöðvar Turners, 17 milljónir. Turner spáir því að áskrif- endur Cartoon Network nái fjórum milljónum í byrjun næsta árs. Margir vilja sjónvarpa í Frakklandi FRAKKLAND — Franska sjón- varpseftirlitinu, CSA, hafa borist 12 umsóknir um útsendingarrétt á tíðni hinnar gjaldþrota sjónvarps- stöðvar La Cinq. Reyndar er aðeins urrí að ræða 18 klukkustundir á sólarhring. Fransk-þýska menning- arstöðin Arte sendir út á sömu tíðni frá klukkan sjö að kvöldi til eitt að nóttu. Fimm umsækjendanna hyggjast bjóða upp á fræðsluefni. Athygli vekur að Sony Music France vill setja á stofn tónlistar- stöð. Svíar senda út á nýrri rás SVÍÞJÓÐ — Sænska stöðin Film- net hefur skrifað undir samkomulag við bandaríska fyrirtækið Carolco Pictures. í byrjun næsta árs er stefnt að því að senda út á nýrri rás, sem kölluð verður Filmnet Plus, þar sem eingöngu verður boðið upp á bíómyndir. FÓLK Samvinna - Angela Lansbury og Omar Sharif. UANGELA Lansbury sem íslend- ingar þekkja vel sem Jessicu Fletc- er leikur aðalhlutverkið í nýrri sjón- varpsþáttaröð sem nefnist Mrs. Arris Goes to Paris. Mótleikari hennar er hjartaknúsarinn gamli og bridsspilarinn Omar Sharif. Framleiðandi þáttanna er banda- ríska fyrirtækið Hearst Entertain- ment Distribution, sem gerir það í því skyni að selja framleiðsluna til Evrópu. Þættirnir eru teknir upp í Englandi, París og Búdapest. Þýska sjónvarpið ZDF og ítalska sjónvarpið RAI eru samstarfsaðilar Hearst að þáttunum. ■ FRAM í rauðan dauðann sem Stöð 2 sýnir laugardaginn 7. nóv- ember er þriðja kvikmyndin, sem Kevin Kline og leikstjórinn Lawrenee Kasdan gera saman. Áður unnu þeir saman að myndun- um The Big Chill og Silverado. WPHOEBE Cates, raunveruleg eiginkona Kevins Kline leikur eina af ástkonum hans í myndinni Fram í rauðan dauðann. Það má því segja að hún haldi fram hjá eigin- manni sínum með eiginmanni sín- um. Ungtog frægt JASON Priestley, sem hefur aflað sér ómældra vinsælda með leik sínum í þáttaröðinni Beverly Hills 90210, kemur hér til Emmy-verðlaunaaf- hendingar ásamt unnustu sinni Christine Elise. Hún leik- ur einnig í þáttaröðinni, en það var einmitt í lqölfar þeirra þátta, þau fóru að vera saman. Á myndinni til hægri kemur Jennie Garth, sem leik- ur Kellý í Beverly Hills- þáttunum, til verðlaunaaf- hendingarinnar ásamt kær- asta sínum. SUNWUPAGUR 8/11 Hinrik sjötti MORGUNBLAÐIð leitaði til Helga Hálfdanar- sonar vegna sýningar á leikriti Hinriks sjötta, sem sýnt verður í Sjónvarpinu sunnudaginn 15. nóvember. „Sú er venjan að skipa leikritum Shakespeares í þrjá meginflokka: harmleiki, gleðileiki og söguleiki. Af söguleikjunum gerast átta í samfelldri tímaröð Hertoga- dóttir - Julia Foster leikur Margréti dótt- ur hertogans af Ansjú. og fjalla um niðja Játvarðar Englandskonungs þriðja og baráttu þeirra um völdin. Leikrit þessi eru kennd við konungana Ríkarð annan, Hinrik fjórða (tvö leik- rit), Hinrik fimmta, Hinrik sjötta (þijú leikrit) og Ríkarð þriðja. Baráttan var háð af miskunnarlausri grimmd og náði hámarki sínu í borgarastyrjöldinni miklu, sem kölluð hefur verið rósastríð og geisaði mestallan síðari helming fimmtándu aldar. Þar átt- ust við tvær voldugar aðalsættir, Jórvíkurættin, sem bar hvíta rós í skjaldarmerki sínu, og Lankastursætt- in, sem hafði að tákni rauða rós. í öllum aðalatriðum fylgir höfundur sögulegum heimildum, en hagræðir þó ýmsu, bæði persónum og atvikum, eftir þörfum skáldverks. Af verkum þessum hafa vinsælust orðið leikritin um Hinrik fjórða og Ríkarð þriðja. Fyrsta leikritið um Hinrik sjötta, sem er hið fimmta í þessari röð, verður sýnt í Ríkissjónvarpinu í dag, sunnudag. Það hefst skömmu eftir dauða Hinriks konungs fimmta árið 1422. Sonur hans, Hinrik sjötti, er þá enn á barnsaldri, og fer hertog- inn af Glostri, föðurbróðir hans, með ríkisstjóm í hans nafni. Englendingar réðu þá yfir drjúgum hluta Frakklands; en nú kemur Jóhanna af Ork („mærin frá Orlíens“) til sögunnar og stappar stálinu í franska herinn, svo að mestur hluti þess landsvæðis, sem Englendingar höfðu hemumið, gekk þeim úr greip- um. En áfram er barizt og veitir ýmsum betur. Englendingar ná Jóhönnu á sitt vald og taka hana af lífi. Hinrik konungur er krýndur á Frakklandi, og leiknum lýkur á því, að hann trúlofast dóttur hertogans af Ansjú. Af söguleikjunum hefur aðeins Ríkarður þriðji verið sýndur hér á landi, og þar mega Reykvíkingar lengi muna íslenzkan afburðaleik." ÚTVARP RÁS 1 FM 92,4/93,5 8.00 Fréttir. 8.07 Morgunandakt. Séra Jón Einarsson prófastur í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd flytur ritningarorð og bæn. 8.15 Kirkjutónlist. Ragnar Björnsson leikur sálmaforleiki um íslensk sálma- lög og kór Menntaskólans við Hamra- hlíð flytur andleg lög frá ýmsum tímum; Þorgerður Ingólfsdóttir stjórnar. 9.00 Fréttir. 9.03 Tónlist á sunnudagsmorgni. „ Fiðlusónata í B-dúr K454 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Guðný Guðmunds- dóttir leikur á fiðlu og Gísli Magnússon á píanó. „ Tríó í Es-dúr ópus 70 fyrir píanó, fiðlu og selló eftir Ludwig van Beethoven. Wilhelm Kempff, Henryk Szetyng og Pierre Fournier leika. 10.00 Fréttir. 10.03 Uglan hennar Mínervu. Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason. 10.45 Veðurfregnir. 11.00 Messa í Dómkirkjunni á kristni- boðsdaginn. Guðlaugur Gunnarsson kristniboði prédikar. Séra Hjalti Guð- mundsson þjónar fyrir altari. 12.10 Dagskrá sunnudagsins. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.Tónlíst. 13.00 Heimsókn. Umsjón: Ævar Kjartans- son. 14.00 Menntavorið á Isafirði 1931. Heim- ildaþáttur um uppbyggingu Gagn- fræðaskólans á (safirði og byltingar- kennl skólastarf Lúðvígs Guðmunds- sonar, skólastjóra, og samstarfsfólks hans. Þátturinn er styrktur af Menning- arsjóði útvarpsstöðva. Umsjón: Finn- bogi Hermannsson. 15.00 Spænsk tónlist í 1300 ár. Lokaþátt- ur, spænsk tónlist í Suður-Ameriku i dag. Umsjón: Ásmundur Jónsson og Ámi Matthíasson. (Áður útvarpað 8. október.) 16.00 Fréttir. 16.05 Kjarni máisins. Heimildarþáttur um þjóðfélagsmál. Umsjón: Árni Magnús- son. (Einnig útvarpað þriðjudag kl. 14.30.) 16.30 Veðurfregnir. 16.35 I þá gðmlu góðu. 17.00 Sunnudagsleikritið. Leikritaval hlustenda. Eitt þriggja verka rithöfund- arins og þýðandans Halldórs Stefáns- sonar sem hlustendur völdu sl. fimmtu- dag flutt. Brot úr símtölum hlustenda úr leikritavali leikin. 18.00 Úr tónlistarlífinu. Umsjón: Tómas Tómasson. 18.48 Dánarfregnir. Auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Veðurfregnir. 19.35 Frost og funi. Helgarþáttur þarna. Umsjón: Elísabet Brekkan. (Endurtek- inn frá laugardagsmorgni.) 20.25 Hljómplöturabb. Þorsteins Hann- essonar. 21.05 Leslampinn. Umsjón: Friðrik Rafns- son. (Endurtekinn þáttur frá laugar- degi.) 22.00 Fréttir. 22.07 Tónlist. 22.27 Orð kvöldsins. 22.30 Veðurfregnir. 22.35 Sónata fyrir fiðlu og píanó nr. 8 í G-dúr ópus 30 nr. 3 eftir Ludwig van Beethoven. Yehudi Menuhin leikur á fiðlu og Jeremy Menuhin á píanó. 23.00 Frjálsar hendur llluga Jökulssonar. 24.00 Fréttir. 0.10 Stundarkorn í dúr og moll Umsjón: Knútur R. Magnússon. (Endurtekinn þáttur frá mánudegi.) 1.00 Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. RÁS 2 FM 90,1/94,9 8.07 Morguntónar. 9.03 Sunnudagsmorg- unn með Svavari Gests. 11.00 Helgarót- gáfan. Lísa Pálsdóttir og Magnús R. Ein- arsson. 16.05 Örn Petersen. Veðurspá kl. 16.30. 17.00 Kristján Sigurjónsson leikur heimstónlist. (Frá Akureyri.) 19.32 Úrýms- um áttum. Andrea Jónsdóttir. 22.10 Bandarísk sveitatónlist. Baldur Bragason. 23.00 Á tónleikum. 0.10 Kvöldtónar. 1.00 Næturútvarp til morguns. Örn Petersen Fréttir kl. 8.00,9.00.10.00,12.20,16.00, 19.00, 22.00 og 24.00. NÆTURÚTVARPIÐ 1.00 Næturtónar. 1.30 Veðurfregnir. Næt- urtónar hljóma áfram. 2.00 Fréttir. Nætur- tónar hljóma áfram. 4.30 Veðurfregnir. 4.40 Næturtónar. 5.00 Fréttir. 5.05 Nætur- tónar hljóma áfram. 6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 6.01 Morgun- tónar. AÐALSTÖÐIN FM 90,9/ 103,2 10.00 Magnús Orri Schram. 13.00 Sigmar Guðmundsson og Sigurður Sveinsson. 15.00 Gylfi Þór Þorsteinsson. 18.00 Blönd- Artúr Björgvin Bollason uð tónlist. 21.00 Páll Óskar Hjálmtýsson. 1.00 Útvarp Lúxemborg. BYLGJAN FM98.9 7.00 Morguntónar. 9.00 Ingibjörg Gréta Gisladóttir. 12.15 Fréttavikan með Hall- grími Thorsteins. 13.00 Sigurður Hlöðvers- son. 16.00 Hafþór Freyr Sigmundsson. 19.00 Kristófer Helgason. 20.00 Kristófer Helgason. 22.00 Pálmi Guðmundsson. 1.00 Pétur Valgeirsson. 3.00 Næturvaktin. Fréttir á heila tímanum frá kl. 7 til kl. 18 og ki. 19.30, fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, íþróttafréttir kl. 13.00. BROSIÐ FM 96,7 9.00 Klassísk tónlist. Sigurður Sævarsson. 12.00 Gestagangur hjá Gylla Guðmunds- syni. 15.00 Jóhannes Ágúst Stefánsson. 18.00 Sigurþór Þórarinsson. 20.00 Páll Sævar Guðjónsson. 23.00 Lára Yngvadótt- ir. 1.00 Næturtónlist. FM 957 FM 95,7 9.00 Steinar Viktorsson. 13.00 Halldór Hackman. 16.00 Vinsældalisti íslands. Endurtekinn. 19.00 Hallgrímur Kristinsson. 22.00 Sigvaldi Kaldalóns. 1.00 Haraldur Jóhannsson. 5.00 Ókynnt tónlist. ÍSAFJÖRÐUR FM 97,9 9.00 Bjöggi og Gunni. Endurflutt frá gær- kvöldi. 11.00 Danshornið. Sveinn O.P. 12.00 Bjami Dagur Jónssþn. 15.00 Helg- arrokk. Þórður Þórðarson og Davið Steins- son. 17.00 Fréttavikan. Hallgrimur Thor- steins. 18.00 Tónlist. 19.30 Fréttir. 20.00 Kristján Geir Þorláksson. 22.30 Rabbað að kvöldi dags. 1.00 Næturdagskrá. SÓLIN FM 100,6 10.00 Steinar Viktorsson. 14.00 Jörundur i hjarta borgarinnar. Skemmtiþáttur í beinni útsendingu frá Ráðhúsi Reykjavíkur. 16.00 Vinsældalisti (slands. 19.00 Hallgrimur Kristinsson. 22.00 Sigvaldi Kaldalóns. 1.00 Haraldur Jóhannsson. 6.00 Ókynnt tónlist. STJARNAN FM 102,2 9.00 Sigga Lund. 11.05 Samkoma. Vegur- inn, kristið samfélag. 14.00 Samkoma. Orð lifsins. kristilegt starf. 16.00 Sam- koma. Krossinn. 18.00 Lofgjörðartónlist. 24.00 Dagskráriok. Bænastund kl. 9.30, 13.30. Fréttir kl. 12, 17, 19.30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.