Morgunblaðið - 05.11.1992, Síða 12
12 B dagskrá
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1992
iv(> * .i '■'■i ittí’jvn1-’i1! (í;oa ;íaf;:-;í ~h
FÓLK
MSTÖÐ 2 áformar að taka nýtt
símkerfí í notkun 1. desember
næstkomandi um leið og þjónustu-
deild verður sett á laggimar. Henni
er ætlað að veita áskrifendum betri
þjónustu, því tvær deildir verða
samræmdar, annars vegar sá stað-
ur í húsinu sem upplýsingar eru
veittar og hins vegar áskriftadeild-
in. Að sögn Hrannar Pétursdótt-
ur, rekstrarstjóra Stöðvar 2, er
ekki gert ráð fýrir fjölgun á stöðu-
gildum heldur betri nýtingu á
starfsfólki.
MNÝJA símkerfí Stöðvar 2 býður
upp á beint innval og styttir þannig
biðtímann við að ná sambandi við
starfsfólk. „í dag lenda viðskipta-
vinir á símsvara og það tekur 15-17
sekúndur að fá samband við síma-
stúlkumar,“ sagði Hrönn Péturs-
dóttir. „Með nýja kerfínu dettur
símsvarinn út og með möguleikum
á beinu innvali léttir álaginu af
skiptiborði."
■ SKILAFJtESTUR í Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva
hefur verið framlengdur til 10. nóv-
ember vegna fjölda óska, að sögn
Sveins Einarssonar, dagskrár-
stjóra innlendrar dagskrárgerðar
Sjónvarpsins. Hann sagði enn-
fremur að fjöldi laga hefði borist
og væri enn að berast. Engin hefð
er fyrir því hversu mörg lög lenda
" f undanúrslitum, en í fyrra voru þau
tíu.
Sjónvarpsgláp
fullt starf fyrir
eftirlaunaþega
í NÝRRI rannsókn í Bretlandi kemur í ljós
að eftirlaunaþegar og þeir sem hættir eru
störfum eyða að meðaltali 40 klukkustund-
um í sjónvarpsgláp í viku hverri. Þar með
eru eftirlaunaþegar orðinn sá hópur sem
mest horfir á sjónvarp í Bretlandi, enda
eyða þeir tvöfalt meiri tíma í að horfa á
sjónvarpi í viku hverri en börn.
Þrátt fyrir þetta kemur fullorðið fólk sjaldan
fyrir í dagskránni. Fyrir hvern fullorðin einstakl-
ing sem birtist á skjánum, birtast þrír úr öðrum
aldurshópum. Þetta telja forsvarsmenn rann-
sóknarinnar allsendis ófullnægjandi.
Rannsóknin sem um ræðir er hluti af svo-
nefndri Camegie-rannsókn á þriðja æviskeiðinu,
en hún nær til flestra þátta ævikvöldsins. For-
svarsmenn aldraðra í Bretlandi taka undir þær
niðurstöður rannsóknarinnar að nauðsynlegt sé
að finna fleiri hlutverk fyrir fullorðna í sjón-
varpsdagskránni. Þeir benda ennfremur á að
ímynd aldraðra í sjónvarpi sé yfirleitt frekar
neikvæð, oftast sé um að ræða níska fýlupúka
sem fetti fíngur út í allt og alla.
í skýrslunni er meðal annars sagt að jákvæð-
ara viðhorf sé æskilegt. Þar er til dæmis bent
á bandarísku þáttaröðina Klassapíur (The Gold-
en Girls) sem dæmi um jákvætt viðhorf til eftir-
launaþega og fullorðinna, en sá þáttur er ein-
mitt til sýningar á Stöð 2 um þessar mundir.
Þátturinn
Klassapíur er
tekinn sem
dæmi um
jákvætt
viðhorf til
aldraðra
Óskabörnin - Edda Andrésdóttir með sonum sínum Sindra
Þór nýfæddum og Stefáni Andra 4 ára.
Óskabam í stað
Óskastundar
ÓSKASTUNDIN verður ekki
á dagskrá Stöðvar 2 í vetur,
enda er umsjónarmaður henn-
ar frá því fyrra, Edda Andrés-
dóttir, í bameignafríi.
Að sögn Þóru Gunnarsdóttur
hjá innkaupa- og markaðsdeild
Stöðvar 2 er ekki fyrirsjáanlegt
að svipaður þáttur verði á dag-
skrá í vetur. „Það má segja, að
Imbakassinn með þeim Gys-
bræðrum hafí komið að nokkru
í staðinn sem innlend dagskrár-
gerð,“ sagði Þóra í samtali við
Morgunblaðið.
Edda Andrésdóttir eignaðist
þriðja son sinn, Sindra Þór, þann
7. október síðastliðinn. „Það er
alveg óráðið hvað verður þegar
ég hef lokið barneignafríinu, ég
er ekki farin að hugsa svo langt
ennþá,“ sagði Edda. „Það kemur
hvort tveggja til greina í mínum
huga, að fara í dagskrárgerð eða
fréttir. Fréttirnar hafa alltaf
ákveðið aðdráttarafl."
Island þátttakandí
í norrænu samstarfi
NORRÆNU ríkissjónvarps-
stöðvarnar, þar með talið Ríkis-
útvarpið-Sjónvarp (RÚV),
standa að gerð nýrrar sænskrar
óperu, sem kallast Bakkynjurn-
ar. Óperan verður sýnd í Sjón-
varpinu um jólin.
Bakkynjurnar er eftir Daniel
Börtz, en byggir á texta Evripí-
des. Leikstjóri er Ingmar Berg-
man, sem hefur einu sinni áður
stýrt óperu fyrir sjónvarp. Það var
Töfraflautan og er sú upptaka
orðin klassísk. Binda forráðamenn
sjónvarpsstöðvanna því miklar
vonir við þessa nýju óperu.
Framlag RÚV er eingöngu í
formi fjárframlags og þrátt fyrir
að kostnaður sé hár, að sögn for-
svarsmanna Sjónvarpsins, er hlut-
ur íslands ekki mikill í heildinni.
BÍÓIIM í BORGINNI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Systragervi ★★★
Vitnið Goldberg erí felum um sinn í
. nunnuklaustri þar sem það tekur við
• kórstjórninni. Áreynslulaust grín og
gaman.
Hinir vægðarlausu ★ ★ ★ ★
Óborganlegur vestri frá Clint East-
wood um gamlan byssubófa og harðj-
axl sem tekur sér aftur byssu í hönd
eftir langt hlé. Eastwood er stórkost-
legur. Hann er síðasti harðjaxlinn.
Veggfóður - erótísk
ástarsaga ★ ★ 'h
Ekki gallalaus mynd, sagan barnaleg
og slitrótt og tónlistarmyndbanda-
menningin til ama en myndin er drifm
áfram af frumkrafti, svörtum húmor
og hispursleysi sem virkar endumýj-
andi fyrir íslenska kvikmyndagerð.
Steinn Ármann Magnússon er senu-
þjófurinn.
Systragervi (sjá Bíóborgina). Kali-
forníu-maðurinn ★ 'h
Krómagnonmaður fínnst í garði
bekkjaraulanna og eykur á virðingu
þeirra. Lapþunn vitleysa.
Alien3 ★★★
Vel gerður en grimmur lokakafli Alien
myndbálksins. Heiðarlegur og sam-
kvæmur sjálfum sér í hrottalegu of-
beldi og miskunnarleysi.
Seinheppni kylfingurinn ★ ★ 'h
Þó að Aberg fari ekki holu í höggi
nær hann sæmilegu skori í lág-
stemmdri háðsádeilu á almennan fíg-
úruhátt.
Mjallhvít og dvergarnir sjö ★★
★ ★
Fyrsta Disney-teiknimyndin í fullri
lengd er unaðsleg skemmtun og hefur
engu glatað á 55 árum. Klassísk perla.
Hvítir geta ekki troðið ★★★
Wesley Snipes og Woody Harrelson
fara á kostum í hlutverkum tveggja
ólíkindalegra vina sem spila körfubolta
á götum Los Angeles fyrir peninga.
Góður húmor og skemmtilegar per-
sónugerðir og hörkuskemmtilegur
körfubolti í ofánálag.
Tveir á toppnum 3 ★★★
Sprengidúettinn og fylgihnötturinn
fyndni komnir aftur og nú er öll áhersl-
an lögð á hasarinn á kostnað inni-
haldsins. Góða skemmtun.
HÁSKÓLABÍÓ
- Frambjóðandinn ★★★
Leikarinn Tim Robbins skrifar og leik-
stýrir skemmtilegri háðsádeilu á
bandaríska íhaldsemi og sýnir ótví-
ræða hæfileika þegar hann fetar í
fótspor Orsons Welles í heimildar-
myndastílnum.
Tvídrangar ★★
Ef þú þekkir þættina þá veistu allt
um málið og ef þú sást þá ekki er
bíómyndin líklega óskiljanleg.
Háskaleikir ★★★
Fyrrum leyniþjónustumaður lendir í
útistöðum við hryðjuverkamenn. Æsi-
spennandi og afar vel gerð, einkum
tæknilega. Fordarinn í essinu sínu.
Sódóma Reykjavík
(sjá Regnbogann).
Svo á jörðu sem á himni ★ ★ ★
Metnaðarfull mynd byggð á snilldar-
hugmynd um manninn og máttarvöld-
in og hið yfimáttúrulega á tvennum
tímum og heimum. Hin tíu ára gamla
Álfrún Örnólfsdóttir skilar veigamiklu
hlutverki af ótrúlegum þroska.
LAUGARÁSBÍÓ
Eitraða Ivy ★★
Drungalegur og dimmur tryllir sem
aldrei verður neitt spennandi en Barry-
more er ljós í myrkri.
Lygakvendið ★ ★ 'h
Steve Martin og Goldie Hawn ljúga
andskotann ráðalausan í heldur
ómerkilegri gamanmynd. Aukaleikar-
amir standa vel fyrir sínu.
Ferðin til Vesturheims ★ ★ 'h
Löng og mikil stórmynd Ron Howards
stendur vel fyrir sínu með leikarahjón-
unum Tom Cruise og Nicole Kidman
í aðalhlutverkum íra sem halda til
fyrirheitna landsins, Ameríku.
REGNBOGINN
Leikmaðurinn ★★★
Robert Altman tekur Hollywood-kerf-
ið á beinið í baneitraðri og kaldhæðnis-
legri úttekt á iífi þeirra sem sjá okkur
fyrir bíómyndunum. Frábærlega gerð
og á köflum unaðslega fyndin svört
kómedía.
Sódóma Reykjavík ★★★
Þrælskemmtileg gamanmynd eftir
hugmyndaríkan húmorista um álappa-
legar glæpaklíkur sem takast á í
Reykjavík. Leikhópurinn er góður og
frásögnin hröð. Ekta grín- og
gysmynd.
Prinsessan og durtarnir ★ ★ 'h
íslenska talsetningin er mjög vel
heppnuð og eykur sannarlega
skemmtigildi þessarar ungversk/
bresku teiknimyndar, sem gerð er fyr-
ir yngri börnin í fjölskyldunni.
Ógnareðli ★★★
Ógnarþriller, hraður, sexí og skemmti-
legur um leit lögreglunnar að fjölda-
morðingja. Óvenju djörf, enda um-
deild. Sagan reyndar glompótt og end-
irinn ófullnægjandi. Stone er hrikaleg
bomba.
SAGABÍÓ
Blóðsugubaninn Buffy 'h
Afspymulélegur blóðsugubanabrandari.
Lygakvendið ★ ★ 'h
Steve Martin og Goldie Hawn ljúga
andskotann ráðalausan og halda uppi
heldur ómerkilegri gamanmynd.
Aukaleikaramir standa vel fyrir sínu.
STJÖRNUBÍÓ
Bitur máni ★ ★ ★
Polanski á skuggavegum holdsins.
Langur en því magnaðri erótískur
sálfræðitryllir.
Ofursveitin ★ ★
Harðhausarnir Van Damme og Lund-
gren takast á eins og steraguðir í
heilmikilli hasarmynd, sem lítið vit er
í en því meira af slagsmálum.
Börn náttúrunnar ★★★’/2
Frábær bíómynd Friðriks Þórs Frið-
rikssonar um gamalt fólk sem strýkur
af elliheimili til æskustöðvanna. Gísli
Halldórsson og Sigriður Hagalín eru
stórgóð í aðalhiutverkunum.