Morgunblaðið - 09.12.1992, Qupperneq 1
0
seei naaMaaaa .e HUOAauaivaiM aiaAua/iUOHOM
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
D
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992
BLAD
Féiagsmái
Aflabrögð
Markaðsmál
Greinar
3 Samþykktir frá
formannaráð-
stefnu FFSÍ
4 Aflayfirlit og
staðsetning fiski-
skipanna
0 Aflaverðmæti 7
vannýttra teg-
unda 3,5 milljarð-
ar króna
7 Þórður Friðgeirs-
son hjá Ríkismati
sjávarafurða
KARFIIMN ÍSHÚÐAÐUR
Morgunblaðið/Halldór Jónasson
SVEINÞÓR, skipverji á nýja frystiskipinu Vigra RE íshúðar, eða „glass-
erar“, hér karfa fyrir Japansmarkað. Karfimi var veiddur i Skeijadýpi
en þar hefur verið góð karfaveiði í flottroll.
Þórshamar með yfir 4.000
tonn af sfld í Neskaupstað
Síldin fer nánast öll
til ýmiskonar vinnslu
SÍLDARBÁTURINN Þórshamar
GK 75 hefur reynzt Norðfirðing-
um dtjúgur í haust. Hann hefur
Iandað rúmlega 4.000 tonnum af
síld á vertíðinni og fer hún öll í
vinnslu hjá Sfldarvinnslunni. Þórshamar kemur reglulega með hæfilegan
skammt til sólarhringsvinnslu, svo reglulega að „Nobbararnir" kalla hann
dagróðrabátinn og reyndar má kalla Þórshamar „Vetrarhjálpina" með
nokkrum sanni, því mikil vinna er í frystihúsi Síldarvinnslunnar fyrir vik-
ið. Þar er byijað í síldinni klukkan fjögur á morgnana og unnið til mið-
nættis á tveimur vöktum. Síðan er gefin fjögurra tíma hvíld yfir blá nótt-
ina áður en tekið er til við að vinna næsta skammt af „dagróðrabátnum“.
Ádís Pálsdóttir, yfirverkstjóri í
frystihúsi Sfldarvinnslunnar, sagði í
samtali við Verið, að viðskiptin við
Þórshamar væru ákaflega góð. Miklu
máli skipti að fá reglulega hæfilegan
skammt til vinnslu og það eina, sem
skyggði á, væru þrálátar brælur. Þær
hefðu rofið samhengið nokkuð. Sfldin
er heilfryst og flökuð á markað í Jap-
an, flökuð fyrir söltun, rúnnsöltuð,
hausskorin og slógdregin og er mikil
vinna við síldina. „Við höfum nóg að
gera og kvörtum því að minnsta kosti
ekki yfir aðgerðarleysi," segir Ásdís.
„í síldinni vinnum við frá fjögur á
morgnana til miðnættis og það er líka
ágæt vinna í bolfiskinum, þó þorsk-
fiskirí sé tregt. Trillumar hafa líka
bjargað miklu, meðal annars meðan
Bjartur fór í slipp, en þær hafa fiskað
vel, þegar gefur. Það er mikið spurt
um vinnu hjá okkur og nú er allt orðið
fullt, við getum ekki tekið við fleira
fólki, en allar líkur eru á að vinna falli
ekki niður nema yfir helgustu dagana
um jól og áramót. Mikið er um að fólk
sé að flytja í bæinn, bæði hafa brott-
fluttir Norðfirðingar snúið heim á ný
og nýtt fólk er einnig að koma. Því
hafa margar fjölskyldur bætzt í hóp
Norðfirðinga á undanförnum misser-
um,“ segir Ásdís.
Gísli Gíslason, hafnarstjóri, segir að
í haust hafi borizt 28.000 tonn af loðnu
til bræðslu, miklu meira en í fyrra.
Þess má í leiðinni geta, að Norðfirðing-
ar hafa keypt helminginn í Hilmi SU
171, sem landar allri sinni loðnu í
Neskaupstað og hefur gert svo í tvö
ár. Þá hefur um 10.500 tonnum af
síld verið landað í Neskaupstað og var
hlutur Þórshamars af því um helgina
4.242 tonn í 26 veiðiferðum. Nánast
allur afli hans hefur farið til vinnslu,
en hitt allt í bræðslu að undanskildri
einni löndun hjá Amey KE.
Fréttir Markaðir
Fiskiflotinn
minnkar ekki
■ ÍSLENSKI fiskisklpaflot-
inn hefur ekki minnkað, þar
sem flestir þeirra báta, sem
kvóti hefur verið færður af,
eru enn að veiðum. T.d. er
mjög algengt að slíkir bátar
séu leigðir í nóvember til
febrúar, þegar helmingur
aflans er utan kvóta, því
þeir eru enn með veiðiheim-
ildir, enda þótt allur kvóti
hafi verið seldur af þeim.
Þessir bátar eru einnig
leigðir og keyptur á þá ársk-
vóti, einkum þegar króka-
Ieyfisbátar mega ekki
veiða,“ segir Brynjar ívars-
son hjá skipasölunni Bátum
og búnaði./2
-----------
Þróa nýja
fiskafurð
■ í SLEN SKT-FR ANSKT
eldhús og Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins hafa unnið
að því verkefni að þróa úr
vannýttu hráefni paté-vörur
fyrir Hollandsmarkað,
þannig að afurðirnar henti
til framleiðslu í lítilli verk-
smiðju og framleiðslan geti
skilað hagnaði. Niðurstöður
verkefnisins, sem Rann-
sóknaráð hefur styrkt,
benda til að unnt verði að
framleiða þessar afurðir á
hagkvæman máta./8
Enn er minna
seltaf þorski
Sala þorsks á fiskmörkuð-
um í Bretlandi ’91 og ’92
■ SALA ísvarins þorsks á
fiskmörkuðunum í Hull og
Grimsby var um síðustu
mánaðamót um 40% minni
en á sama tíma í fyrra.
Verð hefur lækkað í krón-
um talið, en staðið í stað í
pundum. Alls hafa 7.401
tonn verið seld umrætt
tímabil í ár fyrir 152 krónur
að meðaltali. í lok nóvem-
ber í fyrra höfðu verið seld
12.250 tonn á 156 krónur
hvert kíló að meðaltali. Sala
þorsks á innlendum fisk-
mörkuðum hefur aukizt um
10% miðað við sama tímabil
og verð lækkað um 4,5%.
Salan innanlands nú nam
35.104 tonnum en 32.001 í
fyrra og var meðalverð nú
88 krónur./6
Guðmundur Ibsen,
deildarstjóri
veiðarfæradeildar
íslenskra
sjóvarafurða hf.
■g tel að íslensk veiðarfæri séu best til
ess fallin að standast okkar erfiðu að-
ræður. Þau eru einfaldlega hönnuð
I þess. Þess vegna mæli
íeð veiðarfærum frá
ampiðjunni við mína
iðskiptavini.“
HAMPIÐJAN