Morgunblaðið - 09.12.1992, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.12.1992, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FBjfcl JiR MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992 FFSÍ vill staðfestingu á samningnum um EES Eigínkonan notuðí hákarlabeitu ■ JAPANSKAlögreglan handtók á dðgunum japansk- an fískimann fyrir að nota kerlu sína í hákarlabeitu. Hinn 40 ára gamli Japani frá Ehime Prefecture í sunnan verðu landinu, kom 22 ára gamalli eiginkonu sinni fyrir í neti og dró hana á eftir sér á bátnum sinum í um hálfa klukkustund eftir að þau hjónakornin hðfði rifizt heiftarlega. Japönsk yfir- vðld töldu meðferðina á kon- unni ganga á skjön við lög og handtóku þvi manninn. Frá þessu er greint í Físhing News Interaatioaal, en þar er hvorki getið um afdrif konunnar, hvort hákarlarair fengu bita, né hver refsing var dæmd eiginmanni henn- ar. Þess er heldur ekki getið um hvað hjónin deUdu. Mikilvægt að tryggja eignarhald og nytjarétt náttúruauðlinda FORMANNARÁÐ- STEFNA FFSÍ, sem haldin var í Nes- kaupstað, samþykkti ályktun þar sem mælt var með að Al- þingi staðfesti aðild íslands að samningi um Evrópskt efnahagssvæði. „FFSÍ gerir sér grein fyrir því að samningurinn um EES hefur í för með sér víðtæk- ar breytingar á fjölmörgum sviðum, sem hafa að geyma bæði kosti og galla. Augljós ávinningur er m.a. greiðari aðgangur fyrir íslensk- ar vörur inn á Evrópumarkað, sérstaklega á þetta við um sjávarafurð- ir, sem bæði munu skila heim hærra skilaverði og leggja grunn að nýjum sóknarfærum í íslenskum sjávarútvegi," segir í ályktuninni. „FFSÍ telur þó að innan ramma EES-samningsins sé mikilvægt að tryggja eignarhald og nytjarétt nátt- úruauðlinda undir forræði íslend- inga. Þetta á sérstaklega við um eignarhald útgerðar og fiskvinnslu og stjórn fiskveiða. FFSÍ telur einnig að við frágang á tvíhliða samningi milli íslands og Evrópubandalagsins um gagnkvæm- ar veiðiheimildir, þurfí að gæta þess að hagsmunir íslendinga séu tryggð- ir á sem bestan hátt, þ.e. að skipti á veiðiheimildum milli samningsaðila séu sanngjörn og tryggt sé strangt eftirlit með veiðum útlendinga innan íslensku fiskveiðilögsögunnar. FFSÍ álítur að með opnun íslenska vinnumarkaðarins ínnan ramma EES-samningsins geti skapast ójafnvægisástand, þar sem kjörum og vinnuskilyrðum launafólks væri ógnað. Til að koma í veg fyrir slíkt ástand telur FFSÍ nauðsynlegt að eftirfarandi atriði séu tryggð á hin- um íslenska vinnumarkaði. 1. Á íslandi gildi íslenskir kjara- samningar. Undirboð kaupgjalds meðal útlendinga á íslenskum vinnu- markaði verði óheimil með setningu á viðeigandi löggjöf frá Alþingi. 2. Forgangsréttarákvæði kjara- samninga stéttarfélaga séu virt, óháð ríkisfangi launþega í viðkom- andi stéttarfélagi,“ segir í ályktun ráðstefnunnar. FLAKAÐ I SOÐIÐ Morgunblaðiö/Þorgeir Baldursson ÞAÐ fylgir sjómennskunni að „gramsa“ eins og sumir kalla það, eða að fá sér í soðið. Það er hann Arnoddur Guðmannsson á Árbaki einmitt að gera, en hann er að flaka ýsu að áliðnum túr. Mótmæla hugmyndum um fjölgun skattþrepa í álagningu tekjuskatts TILBOÐSVERÐIÐ STENDUR - ÞRÁTT FYRIR GENGISFELLINGU ...á meöan bírgöir endast! FORMANNARAÐSTEFNA Farmanna- og fiskimannasambands Islands haldin í Nes- kaupstað 11. og 12. nóvember 1992, fagnar framkomnu frumvarpi til laga á Alþingi um kaup á fullkominni björgunarþyrlu. Jafnframt er skorað á Alþingi að frumvarpið fái afgreiðslu sem fyrst. Farmanna- og fiskimannasamband íslands leggur áherslu á að unnið verði hratt að þessu máli og fjár- veitingavaldið sjái Landhelgisgæslunni fyrir fjármunum til rekstrar þyrlunni. Ályktanir samþykktar á formannaráðstefnu FFSÍ Hér fara á eftir nokkrar af helztu samþykkt- um ráðstefnunnar, aðrar en samþykktin um Evrópska efnahagssvæðið: Ráðstefnan skorar á dómsmálaráðherra að hafist verið handa við að útbúa og gefa út handbók vegna leitar- og björgunarþjónustu fyrir sjófarendur við ísland. Jafnframt skorar Farmanna- og fiskimannasamband íslands á íslensk stjórnvöld að ísland gerist aðili að al- þjóðasamþykktinni um leit og björgun. NeyðartfAnl á rás 16 Þá er lagt til að samgönguráðherra beiti sér fyrir því að tilkynningarskylda og önnur við- skipti verði færð af neyðartíðninni rás 16. Þessi breyting taki gildi frá og með 1. janúar 1993. Atvinnumál farmanna Formannaráðstefna FFSÍ lýsir áhyggjum sínum yfír sífellt fækkandi störfum íslenskra farmanna á undanfömum árum. Til að snúa þessari óheillaþróun við krefst fundurinn þess að stjómvöld geri hveijar þær ráðstafanir sem til þarf svo útgerðir islenskra farskipa manni skip sín íslenskum farmönnum svo ekki verði hætta á að íslensk farmannastétt heyri sög- unni til að nokkram áram liðnum. Þá mótmælir fundurinn því harðlega að er- lend skip með erlendum áhöfnum, skuli áram saman stunda áætlunarsiglingar til og frá ís- landi á vegum íslenskra skipafélaga. Þá er mótmælt öllum hugmyndum um að fjölga skattþrepum vegna álagningar tekju- skatts einstaklinga. Að áliti Farmanna- og fískimannasambands íslands er verið að auka óhagræði við skattlagningu með fjölgun skatt- þrepa, bæði fyrir hið opinbera og einstaklinga, vegna þess að endanleg uppgjör aukaskatt- þrepa kæmu eftirá og er þá verið að draga veralega úr hagræði og gildi staðgreiðslukerfís skatta. Frjálst flskverð Ráðstefnan fagnar þeim áfanga sem verður um næstkomandi áramót að fískverð verði al- mennt frjálst samkvæmt lögum. Jafnframt er því beint til sjávarútvegsráðherra að innan skamms tíma verði allt sjávarfang, sem selt er innanlands, boðið til sölu á löggiltum fisk- mörkuðum. Með slíkum ákvæðum um sölu sjáv- arfangs í gegnum fískmarkaði, sem hér um ræðir, opnast víðtækari möguleikar til fy'öl- breyttari fískvinnslu innanlands samfara opn- ara markaðssvæði innan ramma EES. Hvalvelðar Skorað er á stjómvöld að leyfa hvalveiðar þegar á næsta ári. Ákvörðun um veiðikvóta verði gefín út fyrir lok vetrarvertíðar 1993, um þær tegundir hvala, sem talið er að nýta megi innan skynsamlegra marka. Leitað verði samþykkis hjá NAMMCO eða hjá einstökum þjóðum við Norður-Atlantshafíð vegna veið- anna. Línuvelðar útlendinga Þá skoraði ráðstefnan á Þorstein Pálsson, sjávarútvegsráðherra að beita sér fyrir því að einungis íslendingar hafi heimild til að stunda línuveiðar innan íslensku fískveiðilögsögunnar. Þeim eindregnu tilmælum var einnig beint til sjávarútvegsráðherra að reglugerðir um vemd- un og/eða veiðisvæði verði framvegis birt með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara. Rekstrargrundvöllur sjávarútvegslns FFSÍ skorar á stjómvöld að hefja þegar aðgerðir til að skapa fyrirtækjum sjávarútvegs- ins viðunandi rekstrargrandvöll. Farmanna- og fiskimannasamband íslands telur að rekstrargrandvöllur fjölmargra fyrir- tækja í sjávarútvegi sé brostinn. Framundan blasir við gjaldþrot fyölda fyrirtækja í greininni með alvarlegum afleiðingum fyrir sjávarbyggð- ir víðsvegar um landið. Almennar aðgerðir verða að koma til skjalanna fyrir atvinnulífíð til að viðhalda stöðugleika í afkomu fyrirtækja og Heimila landsins. Lögskráning sjðmanna Ráðstefnan skorar á samgönguráðherra að beita sér fyrir því að lög um lögskráningu sjó- manna verði endurskoðuð. Einnig að lögskrán- ing sjómanna verrði tölvuvædd hið fyrsta. Þá skoraði ráðstefnan á ríkisstjómina að um- svif Vitastofnunar íslands verði færð undir Landhelgisgæzlu íslands og þeir tekjustofnar sem viðfangsefninu fylgja. Formannaráðstefna FFSÍ er haldin annað- hvert ár á móti þingi sambandsins hin árin á milli. FL©T¥liiy= CaALLAR (SNJÓSLEÐAGALLAR) Frábær hlifðarfatnaöur gegn kulda, bleytu og vindi — léttur, þægilegur. Hægt að losa fóðriö úr þegar hlýnar í veðri. Leitið nánari upplýsinga. Framlag þitt skilar árangri \' ' ■ HJALPARSTOFNUN KIRKJUNNAR - með þinni hjálp Gíróseðlar liggja frammi í bönkum og sparisjóóum V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.