Morgunblaðið - 24.12.1992, Qupperneq 1
EINKAVÆÐING: Hugmyndir um róttækar breytingar á húsbréfakerfinu /4
VERÐBRÉF: Heimildum til erlendra fjárfestinga frestaö /6-7
VIDSKIFTIAIVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1992
BLAÐ
Iðnaður
Henson setur á fót
Spá: 233 mrð.
Áætlað: 225 mrð.
/ gegnum I
200 milljarða 1
-l'iok september1992
voru löng erlend lán
að upphæð kr. 200,9
milljarðar. Eftirtaldir
eru helstu lántakendur
verksmiðju í Ukrainu
Stefnt að markaðssetningu íþróttafatnaðar erlendis
HALLDÓR Einarsson, íþróttavöruframleiðandi og eigandi
Henson sportfatnaðar hf., hefur sett á fót fataverksmiðju í
borginni Odessa við Svartahaf í Úkraínu. Verksmiðjan er byggð
í félagi við þarlent fyrirtæki, Odessa Portplant, sem hingað
til hefur sérhæft sig í framleiðslu á áburði. Hjá Odessa Port-
plant hafa menn nú fært út kvíarnar og hyggjast reyna fyrir
sér í fataframleiðslu líkt og þeirri sem Halldór hefur sérhæft
sig í síðustu tvo áratugi. Henson sportfatnaður hf. mun að
sögn Halldórs halda áfram óbreyttri starfsemi hér á landi.
Verksmiðjan í Úkraínu hefur
verið í byggingu frá síðastliðnu
vori. Lokið hefur verið við aðal-
verksmiðjuálmuna, en vinna er enn
eftir við skrifstofuálmuna. Halldór
sagði í samtali við Morgunblaðið
að um töluverða seinkun hafi verið
að ræða vegna seinagangs í bygg-
ingarframkvæmdum úti, en nú
væri framleiðslan komin í gang.
Sérstak hlutafélag, Ukris, var
stofnað vegna framleiðslunnar og
á Odessa Portplant meirihluta í
félaginu. „Þetta er stærsta fyrir-
tækið í Odessa og þegar fyrirhug-
aðri stækkun áburðarverksmiðj-
unnar var hafnað vegna mótmæla
umhverfisverndarsinna tóku þeir
þá ákvörðun að auka við reksturinn
á öðrum sviðum, enda hvílir á þeim
ákveðin kvöð sem umfangsmiklum
og mikilvægum atvinnurekanda
þarna úti. Þó ekki sé hægt að segja
með vissu hver heildarfjöldi starfs-
manna verður má reikna með að
í lok apríl nk. verði þarna um átta-
tíu manns í vinnu,“ sagði Halldór.
„Þetta var mjög góður samningur
fyrir mig, en erlenda fyrirtækið
var fyrst og fremst að sækjast
eftir þekkingu minni og reynslu í
þessari grein.“
„Þeir sem framleiða íþróttafatn-
að í dag hafa fyrst og fremst áhuga
á því hvar hægt er að framleiða
með minnstum tilkostnaði," sagði
Halldór. „Heimurinn er orðinn svo
lítill að það skiptir ekki höfuðmáli
þó leita þurfi á fjarlægar slóðir
með framleiðsluna. Með minni
framleiðslukostnaði eru menn fyrst
og fremst að tala um ódýrara
vinnuafl. Stóru fyrirtækin í íþrótta-
vöruframleiðslu hafa leitað allra
leiða til að lækka framleiðslukostn-
að, enda voru þau einna fyrst til
þegar fataframleiðsla fór í ríkum
mæli að færast til Asíu.“
Halldór sagði verðlag í Úkraínu
vera ótrúlega lágt og því væri
hægt að bjóða íþróttafatnað á verði
sem menn hefðu ekki séð áður hér
á landi. Hér væri því um að ræða
frábært tækifæri fyrir marga að-
ila, ekki síst íþróttafélögin og þá
sem hvort eð er væru að flytja
hræódýra erlenda framleiðslu til
landsins."
Henson sportfatnaður mun
starfa áfram hér á landi á sömu
nótum og áður. Halldór sagði að
starfsemin hér heima fælist í ýms-
um sérverkefnum, bæði í fram-
leiðslu og merkingu á fatnaði.
„Við erum nú komnir í mjög góða
aðstöðu við að þjohusta þennan
markað hér heima jafnframt því
sem við stefnum að því að taka
upp þráðinn þar sem frá var horf-
ið þegar Henson var að verða nokk-
uð athyglisvert merki úti í heimi.
Nú eru að skapast almennilegar
aðstæður til þess og ef það gengur
upp mun það geta haft góð áhrif
hér á landi í atvinnusköpun t.d.
varðandi ýmsa þjónustu sem ég
kaupi hér heima,“ sagði Halldór
Einarsson.
múrínn-------------------►
191,0mrð.
Löng erlend lán H
1985 til 1993 mrð. I
í lok hvers árs * ■
og á verðlagi mré I
hvers árs. IT Bi Hf
76,0
mrð.
Einkaaðilan 11,0%
f samgöngum
15,2 milljarðar
ILánastofnanir:
30,9%
Atvinnuvegasjóðir
17,1 milljarðar
Opinberir tánasjóðir
21,0 milljarðar
|
Viðskiptabankar
■ j 24,0 milljarðar
Fjárfestingariánasjóðir
38,1 milljaröar
Opinberir aðilar:
58,1%
66,1
mrð.
’851 ’861 ’871 ’881 ’891 '901 '91
Ríkisfyrirtæki
34,3 milljarðar
Ríkissjóður
og stotnanir
76,1 milljarðar
LANDSBRÉF HF.
Landsbankinn stendur meö okkur
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, simi 91-679200, fax 91-678598
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.