Morgunblaðið - 24.12.1992, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/flTVINNCLÍF FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1992
3 C
Mjög stór hluti veltu okkar í þessu árl sem er
að líða er sala tll fyrirtækja sem leggja áhaíip^
í|l|||egt og snoturt umhverfi. Við. tfiljuin'm|
ykkur þessi viðskipti og vonum að okkar góð||i
fallegu hðsgögr hafj geff^^rjirtékjum ykkarfl-
Hiftuinst
BIU)SHÖFÐA20
Fyrirtæki
Tölvusamskiptí hf.
semja við dreifingar-
aðila á Norðurlöndum
Samþykkt að auka hlutafé um allt að 25 milljónir að nafnvirði
TÖLVUSAMSKIPTI hf. hafa náð samningum við stærstu dreifingar-
aðila á hugbúnaði á öllum Norðurlöndunum um að annast dreifingu
á svonefndu Skjáfaxi. Er þetta eina kerfi sinnar tegundar sem hin-
ir norrænu dreifingaraðilar hafa á boðstólum. Eins og komið hefur
fram hér í blaðinu hafa Tölvusamskipti náð nokkrum árangri í sölu
á Skjáfaxi í Bretlandi og víðar í Evrópu jafnframt því sem fyrirtæk-
ið hefur í undirbúningi markaðssókn í Bandaríkjunum.
Með Skjáfaxi er unnt að senda
telefax beint af tölvuskjá í stað
þess að skjalið sé prentað út og
síðan sent gegnum telefaxtæki.
Tölvusamskipti kynntu nýju útgáfu
af Skjáfaxi í Evrópu sl. haust und-
ir heitinu „Object-Fax“ og hefur
hugbúnaðurinn þegar hlotið já-
kvæðar viðtökur.
Nýja útgáfan þykir hafa ýmsa
kosti umfram fyrstu útgáfuna sem
verið hafði á markaðnum um nokk-
urra ára skeið. Þar er m.a. um að
ræða nýjungar sem einfalda notkun
kerfisins og gera það öruggara.
Á annað hundrað kerfi hafa
selst frá því í haust
Þegar hefur tekist að selja 40
kerfi hér innanlands á tveimur
mánuðum og hafa svo til öll fyrir-
tækin sem notuðu gamla kerfið
endurnýjað það. Á þessum tíma
hafa jafnframt selst um 120 kerfi
í Noregi og Bretlandi. Skjáfax hef-
ur hlotið jákvæða umsögn í tímarit-
inu PC-user í Bretlandi og sænskt
tímarit komst að þeirri niðurstöðu
að kerfið væri meðal sex bestu
kerfa af þessu tagi í heiminum.
Tölvusamskipti starfrækja í
samvinnu við breska aðila fyrirtæki
í Bretlandi, Traffic Software UK,
sem annast sölu á hugbúnaðinum
í Evrópu. Er hlutur Tölvusamskipta
40%. Þannig hefur náðst að selja
kerfið til útibúa Pepsi í Bretlandi
og Noregi og að sögn Frosta Sigur-
jónssonar, framkvæmdastjóra
markaðssviðs, var kerfið nýlega
sett upp í útibúi Pepsi í Tyrklandi.
Þá hefur norska fyrirtækið Helly
Hansen keypt tvö kerfi sem hvort
um sig getur annað 100 notendum.
Útibú frá alþjóðafyrirtækjunum
Shell og Kodak í Noregi hafa ný-
lega ákveðið kaup á kerfum svo
og tölvufyrirtækið Dell í Bretlandi
en það nýtur nú mikillar velgengni.
Hefur Dell í hyggju að hefja
sölu á Skjáfaxi til sinna viðskipta-
vina. Vegna aukinna umsvifa hefur
verið ákveðið að fjölga starfsmönn-
um bæði á þróunar- og markaðs-
sviði fyrirtækisins.
„Við lítum á Norðurlöndin sem
okkar heimamarkað og ætlum þess
vegna að ná forýstu. þar og þýða
kerfíð yfir á öll norrænu tungumál-
in,“ segir Frosti. „Þannig náum við
samkeppnisforskoti á okkar banda-
rísku keppinauta. Það er mjög auð-
velt að þýða okkar kerfí á önnur
tungumál jafnframt því sem það
er mjög einfalt í notkun. Kerfín frá
keppinautunum eru mun flóknari.“
Unnið að því að kynna Skjáfax
í Bandaríkjunum
Hluthafafundur Tölvusamskipta
samþykkti í sl. viku heimild til
stjómar um að auka hlutafé um
allt að 25 milljónir að nafnvirði og
í framhaldi. af því var ákveðið að
he§a þegar útboð á 3 milljónum.
Hlutháfar höfðu forkaupsrétt til
21. desember og keyptu tæplega
ijórðung bréfanna. Gert er ráð fyr-
ir að afgangurinn verði í boði á
almennum markaði milli jóla og
nýárs en bréfín gefa einstaklingum
möguleika á skattfríðindum. Bréfin
verða seld á genginu 3,5 til hlut-
hafa en 4,0 á almennum markaði.
Með hinu nýja hlutafé er ætlunin
að auka styrk fyrirtækisins bæði
vegna þróunar hugbúnaðarins og
markaðssetningar.
Að sögn Frosta er í undirbúningi
að kynna hugbúnaðinn í Bandaríkj-
unum. „Hugbúnaðurinn verður til
sýnis á tölvusýningu í Boston í jan-
úar sem er sú stærsta fyrir net-
kerfi. Við höfum leitað eftir því við
stóra söluaðila um að annast dreif-
ingu á hugbúnaðinum en það kom
í ljós að þeir em ekki reiðubúnir
að taka að sér erlendan búnað sem
ekki hefur sannað sig á markaðn-
um. í mörgum tilvikum hafa erlend
fyrirtæki horfíð af markaðnum og
skilið eftir viðskiptavinina með öll
sín vandamál. Við reiknum því með
að opna söluskrifstofu í New York
til að koma keif.nu á beint á fram-
færi við söluaðila og höfum þegar
stofnað fyrirtæki í Bandaríkjunum
í því skyni. Hugsanlega gætu þó
opnast aðrir möguleikar á sýning-
SKJAFAX — Á myndinni eru starfsmenn Tölvusamskipta, f.v.
Anna R. Ingvarsdóttir, skrifstofustjóri, Ásgrímur Skarphéðinsson,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs, Magnús Bergsson, markaðsfulltrúi,
John Toohey, þróunarstjóri, Frosti Siguijónsson, framkvæmdastjóri
markaðssviðs, Daníel Teague, upplýsingafulltrúi og Bima Jónsdóttir,
þjónustufulltrúi.
unni í Boston ef einhveijir stórir
dreifiaðilar vilja taka þetta að sér.
Fyrirtæki sem sérhæfa sig í að
spá fyrir um vöxt á markaði fyrir
tölvufax telja að salan á svona
kerfum í Bandaríkjunum á þessu
ári verði um 100 milljónir dollara
og 200 milljónir árið 1995. Síðan
má reikna með jafnmikilli sölu í
Evrópu. Það er enginn sterkur að-
ili búinn að sölsa undir sig þennan
markað þannig að við teljum okkur
eiga góða möguleika á að ná hluta
hans. Við vonum að íslenskir fjár-
festar átti sig á þessu tækifæri en
við höfum hitt erlendan aðila sem
hefur sýnt fyrirtækinu áhuga. Það
væri blóðugt ef fyrirtækið væri
selt úr landi nú þegar erfíðasti
tíminn er að baki.“
Tölvusamskiptum var boðið á
ráðstefnu áhættufjármagnsfyrir-
tækja sl. haust í Stokkhólmi og
fengu þar tækifæri til að kynna
fyrirtækið og hugbúnaðinn. „Við
vorum stolt af því að vera þar, í
hópi 25 fyrirtækja sem taiin eru
vænlegustu íjárfestingarkostimir á
Norðurlöndum. Viðtökurnar vom
góðar en áhættufjármagnsfyrir-
tækin sýndu hins vegar mestan
áhuga á að fjárfesta í fyrirtækjum
í sínu heimalandi," sagði Frosti
Siguijónsson.
Stærstur hluthafar Tölvusam-
skipta era Þróunarfélagið með um
22% hlut, Silfurþing hf. 15,5%,
Ásgrímur Skarphéðinsson 6,4%,
Dröfn Hreiðarsdóttir 6,4%, Isteí
6,16%, og Gísli V. Einarsson 5,1%.
Raforka
Vattenfall viðrar þátttöku
ífjármögnun sæstrengs
SÆNSKA fyrirtækið Vattenfall, sem er ráðgefandi fyrir Lands-
virlqun í sæstrengsmálum, er nú að fara yfir hagkvæmniathugun
sem ítalsk/breska fyrirtækið Pirelli vann fyrir Landsvirkjun.
Áformað er að drög að niðurstöðum Vattenfalls liggi fyrjr á næstu
dögum, að sögn Rolf Ruritz, sem er verkefnisstjóri Vattenfalls
vegna athugunarinnar. Fyrirtækið, sem er alfarið í eigu sænska
ríkisins, hefur áhuga á að taka frekari þátt í verkefninu og hefur
m.a. viðrað þá hugmynd við forsvarsmenn Landsvirkjunar að taka
þátt í fjármögnun sæstrengsverkefnisins.
Rolf Ruritz sagði í samtali við
Morgunblaðið að greina þyrfti á
milli ólíkra þátta sæstrengsverk-
efnisins. „Tæknilega séð er ljóst
að verkefnið er hagkvæmt en við
erum nú að kanna efnahagslega
þætti þess og þær niðurstöður
liggja ekki fyrir, en þetta er m.a.
í athugun hjá Landsvirkjun og
Markaðsskrifstofu Iðnaðarráðu-
neytis og Landsvirkjunar."
Aðspurður um hvort Vattenfall
hefði hugsað sér að taka frekari
þátt í verkefninu sagði Ruritz að
fyrirtækið hefði mikinn áhuga á
því. „Það myndi gleðja okkur ef
Landsvirkjun hefði áhuga á Vatt-
enfall sem frekari samstarfsaðila.
Vattenfall hefur sýnt forsvars-
mönnum Landsvirkjunar áhuga
um að ræða möguleikanna á að
Vattenfall verði eignaraðili að sæ-
strengnum.
Þar sem markaðsrannsóknum
er ekki lokið er hins vegar of
snemmt að Landsvirkjun ræði
þetta formlega við Vattenfall eða
aðra hugsanlega fjármögnunarað-
ila. Við þurfum frekari upplýsingar
t.d. um heildarkostnað verkefnisins
og áhættumat sem þarf af gera
eftir að markaðsrannsókn er lok-
ið.“
Mikill áhugi hefur verið að und-
anförnu í Noregi á útflutningi raf-
orku í gegn um sæstreng og að-
spurður'um hvort íslendingar væra
samkeppnishæfír við Norðmenn
sagði Ruritz að hann teldi að svo
ætti að vera. „Hugsanlega getur
verið hagkvæmt að flytja bæði
orku frá íslandi og frá Noregi þar
sem eftirspumin eftir umhverfís-
vænni orku er mikil í Evrópu."
LATUM GÆÐIN GERA GAGN
Hagstæð fyrirgreiðsla til iðnfyrirtækja
sem vilja koma á vottuðum gæðakerfum
IÐN LANASJOÐUR
VÖRUÞRÓUNAR- OG MARKAÐSDEILD