Morgunblaðið - 24.12.1992, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 24.12.1992, Qupperneq 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1992 Einkavæðing Sparisjóðimir leiðandi eignar- aðili Búnaðarbanka ? Formaður einkavæðingamefndar viðrar hér nýjustu hugmyndir hennar, þ. á m. um einkavæð- ingu húsbréfakerfis og um þátttöku erlendra fjárfesta í hlutafjárkaupum í Búnaðarbanka SAMNINGUR hefur verið undirritaður um kaup fjögurra trygginga- félaga á hluta ríkisins í íslenskri endurtryggingu, með þeim fyrir- vara að frumvarp sem liggur fyrir Alþingi verði samþykkt. Trygg- ingafélögin fjögur eru Tryggingamiðstöðin, Trygging, Sjóvá- Almennar og Vátryggingafélag Islands. Fleiri mál hafa verið í sigti einkavæðingarnefndar að undanförnu og má t.d. nefnda hugmynd- ir um að sparisjóðirnir verði leiðandi aðili í Búnaðarbankanum en annars verði leitað til erlendra fjárfesta. Að sögn Hreins Loftsson- ar, formanns framkvæmdanefndar um einkavæðingu, er nefndin með í vinnslu hugmyndur um róttækar breytingar á húsbréfakerf- inu, þ. á m. þær að starfsemin verði flutt til banka og sparisjóða og að ríkisábyrgð verði afnumin. EINKAVÆÐING — í framkvæmdanefnd um einkavæðingu sitja Steingrímur Ari Arason, Hreinn Loftsson, formaður, og Björn Friðfínnsson. Starfsmenn nefndarinnar eru tveir, Jón Ragnar Blöndal, sem er yst til vinstri á myndinni við hlið Steingríms Ara, og Skarphéð- inn Berg Steinarsson, sem er yst til hægri á myndinni við hlið Björns Friðfinnssonar. Segja má að á árinu 1992 hafí markast upphaf að nokkuð um- fangsmikilli sölu ríkisfyrirtækja hér á landi, þrátt fyrir að markmiðum fjárlaga um tekjur af sölunni hafi ekki fyllilega veriðnáð. Prentsmiðj- an Gutenberg hefur verið seld fyrir 86 milljónir króna, framleiðsludeild ÁTVR fyrir 15 milljónir, þriðjungur í Ferðaskrifstofu Islands fyrir 19 milljónir, Þróunarfélag íslands fyrir 130 milljónir og stefnt er að því að selja 22% hlut í Jarðborunum fyrir áramót fyrir 100 milljónir. Á fjárlögum yfirstandandi árs var gert ráð fyrir 1.075 milljón króna tekjum af sölu ríkiseigna. Auk sölu framangreindra fyrirtækja upp á um 350 milljónir króna eru undir þeim fjárlagalið tekjur af fast- eignasölu sem nú eru orðnar um 260 milljónir króna á árinu. Þannig að samtals er eignasala ársins und- ir þessum fjárlagalið orðin um 610 milljónir króna. Auk þessa hafa eignir Skipaútgerðar ríkisins verið seldar fyrir um 220 milljónir og 57 milljónir fengust fyrir eignir Menningarsjóðs. Þeim tekjum hef- ur verið ráðstafað upp í skuldir viðkomandi fyrirtækja. Samtals hafa því verið seldar eignir ríkis- sjóðs fyrir um 890 milljónir króna á árinu 1992. Tekjur af sölu ís- lenskrar endurtryggingar færast inn á næsta ári en þær eru 162 milljónir króna. _ Tryggingafélög kaupa íslenska endurtryggingu í framhaldi af umfangsmikilli einkavæðingu ársins var í gær undirritað samkomulag annars vegar á milli heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og Tryggingastofnunar ríkisins og hins vegar fjögurra tryggingafé- laga um að þau kaupi hlut ríkisins og Tryggingastofnunar í væntan- Iegu hlutafélagi sem stofnað verður um íslenska endurtryggingu. Hin fjögur tryggingafélög eru Trygg- ingamiðstöðin hf., Sjóvá-Almennar hf„ Trygging hf. og Vátrygginga- félag Islands hf. En samtals er um að ræða 39,23% hlut í íslenskri endurtryggingu. Tryggingafélögin áttu fyrir stóran hlut í íslenskri endurtryggingu. Að sögn Hreins Loftssonar er samningurinn með fyrirvara um að frumvarp sem nú er í meðförum Alþingis um stofnun hlutafélagsins verði samþykkt þegar þing kemur saman eftir áramótin. „Kaupin verða staðgreidd um leið og frum- varpið hefur verið samþykkt, en kaupverðið er 162,2 milljónir króna. Verðbréfamarkaður ís- landsbanka gerði úttekt á fyrirtæk- inu, t.d. um hvemig bæri að standa að sölunni, og hvert verðmæti eign- arhluta ríkisins væri. Einkavæðing- amefnd telur þetta mjög góða nið- urstöðu. Tryggafélögin eru einu við- skiptavinir íslenskrar endurtrygg- ingar, þar sem fyrirtækið sér um að endurtryggja fyrir þau erlendis. Það stendur því tiyggingafélögun- um næst að kaupa hlutafélagið. Upphaflega er fyrirtækið sprottið upp úr stríðstryggingum fyrir skip- afélögin og þvi á Eimskip m.a. hlut í fyrirtækinu. Með þessu samkomu- lagi er áætluð sala ársins vegna einkavæðingar liðlega 500 milljónir króna og því erum við ekki fjarri markmiðum fjárlaga og sumir hafa talið, en að vísu verður sala ís- lenskrar endurtryggingar ekki tekjufærð fyrr en á næsta ári.“ Sparisjóðir verði leiðandi í Búnaðarbanka Þau mál sem ber á borð einka- væðingamefndar eru misumfangs- mikil en segja má að einkavæðing ríkisbankanna sé það stærsta hing- að til. Þegar hefur komið fram í Morgunblaðinu að nefnd sem við- skiptaráðherra skipaði hefur gert tillögur um að Landsbanki íslands hf. og Búnaðarbanki íslands hf. taki til starfa og yfirtaki starfsemi ríkisbankanna 1. júlí nk. Sérstök kynningamefnd hefur verið skipuð sem mun sjá um undirbúning og kynningu málsins gagnvart við- skiptamönnum, starfsmönnum og almenningi. „Þrátt fyrir breytingu bankanna í hlutafélög þarf sérstakt frumvarp til að hægt sé að hefja sölu á hluta- bréfum í bönkunum. Það hefur komið fram, m.a. frá Friðrik Soph- ussyni fjármálaráherra, að það sé forsenda fyrir þeim tekjum, sem ráð er fyrir gert í fjárlögum ársins, að sala á Búnaðarbanka hefjist á því ári. Hins vegar hefur orðið vart við áhyggjur starfsmanna og ann- arra aðila um að fjársterkir aðilar séu einir færir um að kaupa bank- ann og hann lendi í einhverri sam- þjöppun fjármálavalds. Einkavæð- ingamefnd leggur hins vegar áherslu á að virkja almenning til kaupa á hlutabréfum og gera bank- ana að virkum almenningshlutafé- lögum, en um leið beri að skoða mjög gaumgæfilega þann kost að sparisjóðimir, einir sér eða í sam- einingu, komi inn í myndina og kaupi 15-20% hlut í Búnaðarbank- anum þegar á næsta ári, lauslega áætlað eru það um 500-600 millj- ónir króna. Það væri til þess fallið að efla bankann og myndi leiða til aukinnar hagræðingar í banka- starfsemi. Með þessu yrði það jafn- framt tryggt að það væm ekki örfáir fjársterkir einstaklingar og fyrirtæki í Reykjavík sem kæmu inn í þessa mynd. Ef þetta er ekki talinn fýsilegur kostur væri jafnvel ástæða til að leita til erlendra aðila um kaup á 15-20% hlutafjár í Búnaðarbank- anum. Þetta væri upphafið á sölu bankans og síðan yrði farið út í almennt hlutafjárútboð. Þó að eðlilegt og skynsamlegt sé að stefna að dreifingu á eignar- haldi á þessum stóm ríkisfyrirtækj- um þá hefur það verið andstætt hagsmunum fyrirtækja ef ekki er í hluthafahópi öflugur aðili með framkvæði og ábyrgð. Við verðum að búa þannig um hnútana að fyrir- tæki sem em einkavædd verði öflugri eftir en áður en jafnframt að markmiðum samkeppni og auk- innar skilvirkni í hagkerfmu verði náð.“ Afnám ríkisábyrgðar á húsbréfum Einkavæðingarefndin hefur ver- ið í samstarfi við félagsmálaráðu- neytið vegna ákveðinna þátta sem tengjast Húsnæðisstofnun og hús- næðismálum. Hreinn segir að þar hafi tekist gott samstarf sem halda muni áfram á næsta ári, en ekki sé hægt gefa frekari upplýsingar um það. Aðspurður um framtíðaráform nefndarinnar á kjörtímabili ríkis- stjómarinnar ber Húsnæðisstofnun aftur á góma. „Ég tel að halda eigi áfram að einkavæða þau fyrir- tæki sem þegar hefur verið talað um og fmmvörp liggja fyrir á Al- þingi. Þar er af nógu af taka. Nefndin telur einnig að það eigi t.d. að skoða húsbréfakerfið og færa það í auknum mæli út á hinn almenna markað. í vissum áföng- um fari húskaupendur í viðskipta- banka sinn eða sparisjóð og fái þar húsnæðislán afgreidd eins og önnur lán. Húsbréfadeild Húsnæðisstofn- unar sjái um að fjármagna lánin og starfi sem nokkurs konar heild- söluaðili, haldi t.d. regluleg útboð á húsbréfum sem lífeyrissjóðir og aðrir fjárfestingaraðilar gerðu til- boð í. Þetta væri svipað fyrirkomulag og nú gildir um ríkisverðbréf en svona fyrirkomulag gæti leitt til aukinnar festu á húsbréfamarkaðn- um. Fjármunir sem fengjust á þennan máta yrðu notaðir til að „kaupa“ lán hjá bönkum og spari- sjóðum. Hver banki og sparisjóður myndi halda utan um þau lán sem hann veitir, innheimta vexti og af- borganir og skila þeim til húsbréfa- deildar. Smám saman yrði ríkis- ábyrgð afnumin. Þetta er ekki ólíkt fyrirkomulag og í Bandaríkjunum, þar sem svipuð áhersla á séreignar- stefnu gildir og hér á landi. Þessi hugmynd kallar væntan- lega á þá gagnrýni að hún leiði til hækkunar á vöxtum en á móti má halda því fram að alveg eins sé Iík- legt að vextir á spariskírteinum og fleiri ríkisverðbréfum lækki og þar með almenna vaxtastigið í land- inu,“ segir Hreinn. Þetta em án efa umdeilanlegar hugmyndir líkt og þær sem einka- væðingamefnd setti frá sér fyrri hluta þessa árs. Þá kom m.a. fram að ein af hugmyndum nefndarinnar væri að breyta fyrirkomulagi Fisk- veiðasjóðs, hlutur sjóðsins í Islands- banka yrði seldur og andvirðið lát- ið renna í ríkissjóð. Um hvort þetta væri enn á dagskrá sagði Hreinn að í ljós hefði komið að Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra væri á öndverðum meiði við nefndina í þessu tilliti. „Þetta vom einungis hugmyndir nefndarinnar sem urðu undir í umræðunni, a.m.k. í bili. Það er ekki þar með sagt að engar breytingar verði á næstu ámm á rekstrarformi Fiskveiðasjóðs. Málefni fjárfestingalánasjóð- anna hljóta almennt að vera til endurskoðunar þegar reynt er að koma ríkinu út úr almennri fy'ár- málastarfsemi." Eiga sveitarfélögin Brunabótafélagið? Á næstunni er ýmislegt á döf- inni. í Morgunblaðinu hefur t.d. verið greint frá hugmyndum nefnd- arinnar um einkavæðingu fríhafn- arinnar og verslana þar, Lyfjaversl- ununar og Þvottahúss Ríkisspítal- anna. Einnig em hugmyndir um aukna þátttöku einkaaðila í bif- reiðaprófunum og faggildingu og vottun. Þá liggur fyrir Alþingi fmmvarp um að selja Síldarverksmiðju ríkis- ins og telur Hreinn að það eigi að skoða sérstaklega af sérfræðingum hvemig standa eigi að þeirri sölu. Hvort t.d. eigi að selja fyrirtækið í hlutum þannig að hver verk- smiðja geti verið seld til sinna heimaaðila þannig að forræðið fær- ist út á land. Hreinn segir einkavæðingar- nefnd vera með til athugunar sam- mna Bmnabótafélags Islands og Samvinnutrygginga árið 1989 í Vátryggingafélag íslands, en hvort félag á helming í VÍS. Hann kveð- ur stöðu Brunabótafélags íslands og eignaraðild vera í athugun hjá lögfræðingi vegna samrunans. „Við teljum að Bmnabótafélagið sé hugsanlega eign sveitarfélaganna og að þá eign sé hægt að selja og láta andvirðið t.d. renna í Jöfnunar- sjóð sveitarfélaganna. En það er eingöngu Alþingi sem getur tekið á því máli." Hagnaður Vátrygg- ingafélagsins var liðlega 40 milljón- ir króna á sl. ári og eigið fé var um sl. áramót yfír 700 milljónir króna. Sérkennileg vinnubrögð BSRB og stjórnarandstöðu í byijun árs 1993 mun nefndin fara af stað með kynningarátak á einkavæðingu. „Með aukinni kynn- ingu áttar fólk sig á því að einka- væðing er af hinu góða ekki ein- göngu fyrir neytendum heldur einnig fyrir starfsfólk fyrirtækj- anna. í því sambandi má t.d. nefna Gutenberg sem dæmi en einkavæð- ing þess fyrirtækis tókst afar vel.“ Hreinn segir einkavæðingar- nefnd og verðbréfafyrirtæki vera sannfærð um að hægt hefði verið að selja fleiri ríkisfyrirtæki eða hlutabréf í þeim á árinu ef nauðsyn- legar heimildir hefðu verið til stað- ar og Alþingi afgreitt þau fmm- vörp sem fela í sér breytingu á rík- isfyrirtækjum í hlutafélög. „Nefnd- in hefur veralegar áhyggjur af sei- nagangi þingsins og telur að ósam- ræmi felist í því að samþykkt séu fjárlög sem gera ráð fyrir sölu ríkis- fyrirtækjanna en svo em ekki sam- þykkt fmmvörp um framkvæmd- ina, sem em forsenda þess að salan geti hafíst. Seinagangur þingsins og skortur á lagaheimildum virðist starfa af áhyggjum þingmanna af þáttum sem tengjast starfsmannamálum, svo sem biðlaunum. í því sambandi er athyglisvert að ríkisstjórn Stein- gríms Hermannssonar samþykkti að breyta Gutenberg í hlutafélag með því ákvæði að þeir sem tækju störf hjá hlutafélaginu afsöluðu sér biðlaunarétti. Þetta er rökréttur og eðlilegur skilningur, enda á ríkið ekki að sjá fólki fyrir tvöföldum launum í einhvern tíma en nú hefur stjórnarandstaðan breytt um skoð- un. Það er einnig athyglisvert að ekkert liggur fyrir um að BSRB hafi mótmælt ákvæðinu á þessum tíma, en félagið lætur ekki á sér standa nú. Raunar er andstaða for- ystu BSRB við einkavæðingu skilj- anleg vegna þess að hún vill ólm halda sem flestum félagsmönnum í félaginu en það era ekki hagsmun- ir félagsmanna sjálfra vegna þess að kjör starfsmanna verða ekki endilega verri þótt fyrirtæki sé einkavætt eins og reynslan t.d. af Ferðaskrifstofu Islands og Guten- berg hefur leitt í ljós.“ Einkavæðing í stað skattahækkana Aðspurður hvort búast mætti við svipuðum vinnubrögðum þingsins á næsta ári sagðist Hreinn vona að svo yrði ekki. „Ég reikna fastlega með því að menn geri sér grein fyrir mikilvægi einkavæðingarinn- ar. Það hefur sýnt sig að hægt er að ná góðum árangri með sölu ríkisfyrirtækja þrátt fyrir bölsýni og erfiðleika í efnahagslífinu. Lækkun persónuafsláttar þýðir tekjur upp á 500 milljónir en eigið fé fjárfestingalánasjóðanna, bank- anna og fleiri ríkisfyrirtækja nemur mörgum milljörðum. Menn þurfa að átta sig á þessum möguleika til að ná endum saman hjá ríkissjóði og koma í veg fyrir skattahækkan- ir á þessum tímum. Sala ríkisfyrirtækja á þessu ári hefur gengið mjög vel. Einkavæð- ingarnefnd hefur notað þjónustu verðbréfafyrirtækjanna, sjálfstætt starfandi endurskoðenda, rekstrar- ráðgjafa og lögfræðinga og segja má að við höfum „einkavætt" einkavæðinguna. Með þessu er komin mjög dýr- mæt reynsla sem nýtist í margs konar tilgangi. Hún nýtist hluta- bréfamarkaðnum sjálfum og verð- bréfafyrirtækjununum við verðmat og undirbúning á sölu fyrirtækja. Við höfum einnig undirbúið okkur fyrir stærri verkefni sem enn eru í meðfömm þingins. Þetta hefur leitt til þess að vinnubrögð við und- irbúning og framkvæmd sölu hafa orðið faglegri en ella hefði orðið. Jafnframt höfum við forðast að búa til nýtt bákn í stjómkerfinu til að meðhöndla einkavæðingu,“ sagði Hreinn Loftsson, formaður fram- kvæmdanefndar um einkavæðingu. ÁHB

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.