Morgunblaðið - 05.01.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.01.1993, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA JHtogmtþlAþiþ blaeIC 1993 ÞRIÐJUDAGUR 5. JANUAR adidas ÍR leikur í Adidas FRJALSIÞROTTIR Jón Arnar til Tindastóls „Ákveðinn að taka tugþrautina föstum tökum í ár,“ segir Jón Arnar Magnússon JÓN ARNAR Magnússon, fjöl- hæfasti frjálsíþróttamaður landsins, hefur ákveðið að ganga til liðs við Tindastól á Sauðárkróki, en Jón Arnar hef- ur keppt undir merki HSK. Jón Arnar, sem er tugþrautarmað- ur, jafnaði íslandsmetið í 50 m grindahlaupi innanhúss á dög- unum - 6,7 sek. „Það lofar góðu með framhaldið á árinu," sagði Jón Arnar í gærkvöldi. Miklár vonir hafa verið bundnar við Jón Amar síðan hann var Norðurlandameistari unglinga í tugþraut 1988 (6975 stig), en hann náði sér ekki verulega á strik næstu árin á eftir og settu meiðsli strik í reikninginn. 22 stigum frá íslandsmetinu Jón Arnar náði sér verulega á strik sl. sumar og var ekki langt frá að bæta íslandsmet Þráins Haf- steinssonar, HSK, sem er 7592 stig frá 1983. A sænska meistaramótinu var Jón Amar aðeins 22 stigum frá metinu - þalut 7570 stig. „Ástæðan fyrir því að ég fer norður í vor að loknu námi, er að ég hef fengið vinnu á Sauðárkróki og þá er þar félagsskapur sem ég sækist eftir - bræðurnir Gísli og Gunnar Sigurðssynir. Ég á eftir að styrkjast undir þeirra leiðsögn. Þá er aðstaðan mjög góð á Sauðár- króki,“ sagði Jón Arnar. Gísli Sig- urðsson, sem verður þjálfari Jóns Amars, er gamalkunnur tugþraut- armaður. „Ég er ákveðinn að taka tug- þrautina föstum tökum í ár og að sjálfsögðu vonast ég eftir framför- um,“ sagði Jón Arnar Magnússon. Morgunblaðið/Valur Jónatansson Jón Arnar Magnússon, tugþrautarkappi frá Gnúpveijahreppi. KNATTSPYRNA Eyjólfur á meðal bestu miðjumanna Eyjólfur Sverrlsson. EYJÓLFUR Sverrisson er í hópi bestu miðjumanna í þýsku úr- valsdejldinni í knattspyrnu samkvæmt úttekt íþróttablaðs- ins Kicker. Hollendingurinn Jan Wouters hjá Bayern Múnchen er besti varnarmiðjumaðurinn að mati blaðsins, er í landsliðsklassa eins og Wolfgang Rolff hjá Karlsruhe. Michael Zorc hjá Dortmund er í þriðja sæti, Lothar Mattháus hjá Bayern í 5. sæti og Eyjólfur í 7. til 13. sæti. Andreas Herzog hjá Werder Bremen er besti sóknarmiðjumað- urinn, Uwe Bein hjá Frankfurt er í öðm sæti og Hans Dorfner hjá Númberg í því þriðja. Enginn kantmaður er sagður í heims- eða landsliðsklassa, en Knut Reinhardt hjá Dortmund er talinn bestur, Christian Ziege hjá Bayern er í öðm sæti og síðan kemur Lud- wig Kögl hjá Stuttgart. Evrópukeppni landsliða í Svíþjóð: Hagnaður235 millj. Hagnaður af úrslitakeppni Evrópumóts landsliða í Svíþjóð á síðasta ári nam 3.7 milljónum dollara eða um 235 milijónum ÍSK, að söng talsmanns UEF_A í gær. Heildarinnkoman nam 36.7 milljónum dollara (2 milljarðar ÍSK), sem er tvisvar sinnum meira en innkoman var á EM í Þýskaiandi 1988. Stærsti hluti tekna EM í Svíþjóð var fyrir sjónvarpsréttindi sem gaf 27.5 milljónir dollara eða rúmlega 1.7 milljarð ÍSK. Danmörk og Þýskaland, sem lékú til úrslita í keppninni, fengu 4.4 milljónir dollara, eða 278 milljónir ÍSK, hvor þjóð í verðlaunafé. HANDBOLTI Valdimar skoraði tvomork Evrópuúrvalið tapaði Austurríska landsliðið í hand- knattleik sigraði Evrópu- úrvalið, 27:25, í afmælisleik austurríska handknattleikssam- bandsins sem fram fór fýrir framan 1.000 áhorfendur í Vín- arborg á sunnudaginn. Staðan í hálfleik var 14:10 fyrir Austur- rfki. Valsmennimir, Valdimar Grímsson og Guðmundur Hrafn- kelsson, léku með Evrópuúrval- inu. Valdimar gerði tvö mörk í leiknum og Guðmundur stóð í markinu í seinni hálfleik og varði sjö skot. „Það var gaman að fá að taka þátt í þessum leik, en það var greinilegt að samæf- ingu vantaði i okkar lið. Við tókum aðeins eina æfingu fýrir leikinn," sagði Guðmundur. íþróttamaður ársins útnefndur íkvöld SAMTÖK íþróttafréttamanna útnefna íþróttmann ársins í hófi í Rúgbrauðsgerðinni í Reykjavík i kvöld og verður sýnt frá kjörinu í beinni útsendingu í Ríkissjón- varpinu kl. 20.30. Tíu stigahæstu í kjörinu verða allir verðlaunaðir með bókagjöf frá Máli og menningu. Þrír efstu fá sérstaka eignargripi og SAS-flugfé- lagið gefur íþróttamanni ársins flugmiða, en áðumefnd fyrirtæki ásamt Menntamálaráðuneytinu eru helstu styrktaraðilar Samtaka íþrótt- afréttmanna vegna kjörsins að þessu sinni. íþróttamaður ársins fær að auki glæsilega styttu, sem fylgir nafnbótinni, til varðveislu í eitt ár. KIMATTSPYRIMA: ARIMÓR GUDJOHIMSEIM TIL LIÐS VIÐ HÁCKEIM í SVÍÞJÓD / B4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.