Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 12
12 C dagskrá MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993 Upplýsingar fengnar með fjarstýringunni Textavarpi má líkja við bók með efnis- yfirliti og blaðsíðutali á fremstu síðu TEXTAVARP er nokkuð sem marg- ir vita sáralítið um og gefa skjámynd þess ekki meiri gaum en stillimynd- inni. Fyrirbærið var reyndar óþekkt hér þar til fyrir rúmu ári síðan. Að sögn Geirs Magnússonar, forstöðu- manns textavarps, er markmiðið að gera sjónvarpsnotendum kleift að afla sér upplýsinga um eitt og annað á einfaldan hátt. Textavarpinu má líkja við bók með efnisyfirliti og blaðsíðutali á fremstu síðu. Margir hafa þó ekki hugmynd um hvemig á að fletta. Ef sjónvarpið er með þar til gerð- an útbúnað og fjarstýringu þarf ekki mikla tæknikunnáttu til. Flest dýr tæki eru þannig útbúin og einnig mörg ódýr sjónvarps- tæki. Nú er áætlað að 19-20 þúsund heimili hafi yfir slíkum tækjum að ráða. Þótt efnisyfirlit textavarpsins sé ekki á skjánum má kalla það fram með því að ýta á einn takka á fjarstýringunni. Takkinn er jafnan auðkenndur með ferningi og þremur línum, eða á honum stendur „TEXT“ í bókstöfum. í efnisyfírliti er tilgreint á hvaða blaðsíðum ýmiskonar upplýsingar eru. Þeir sem vilja t.d. fá upplýs- ingar um handboltaúrslitin sjá á efnisyfirliti að íþróttir eru á síðu 250. Þá er ýtt á tölurnar 2, 5 og 0 á fjarstýringunni og efnisyfírlit fyrir íþróttir birtist á skjánum. Gefið er upp að handboltaúrslitin séu á síðu 262, þá er ýtt á takka 2, 6 og 2 á fjarstýringunni og úrslitin birtast. Á þennan hátt er hægt að fá yfirlit um helstu atriði innlendra og erlendra frétta, veður, fjár- mál, neyðamúmer, söfn, flug, strætisvagnaferðir og sitthvað fleira. Þá geta auglýsendur komið boðskap sínum á framfæri á sér- stökum síðum í textavarpi. Hrafnhildur Sigurðardóttir, markaðsstjóri textavarps, segir að slíkt sé einkar handhægt fyrir þá sem þurfa að koma frá sér löngum texta. Ef til vill fmnst mörgum sem nota textavarp að jafnaði útskýr- ingar af þessu tagi óþarfar. Geir segir að þrátt fyrir að þeim fjölgi stöðugt sem notfæri sér þjón- ustuna sé fjöldi fólks sem ekki viti hvernig á að notfæra sér textavarpið eða hvort sjónvarpið á heimilinu sé útbúið fyrir slíkt. Ríkisútvarpið hafi undanfarið efnt til víðtæks kynningarátaks til að kynna textavarpið og mögUA leika þess. í þeim tilgangi var efnt til ferðagetraunar í septem- ber. Þátttaka var góð og segir Geir að fleiri getraunir séu fyrir- hugaðar og ekki sé vanþörf á að halda kynningarstarfinu áfram. « > y -V - inni. fréttir 'C2 Ei-i. fréttir Veður Dagskrá . . iþrottir Dagbok Fél.heyrnarl. 42” Lukkusíður. . . Fasteignir. . . F jármál Versiun Tilkynningar. Veitingahús.. Um textavarp. Textavarp — Efnisyfirlit textavarpsins. FÓLK UHELMUT Kohl, kanslari Þýska- lands, hefur tamið sér ákveðna reglu þegar hann rís úr rekkju á morgnana: Hann forðast eins og heitan eldinn að horfa á morgunfrétt- irnar í sjónvarp- inu.„Ég missi kaffilystina við það eitt að horfa á fréttamenn og stjórnmálamenn, sem bera fýllyndið utan á sér vegna þess að þeir þurfa að fara svo snemma á fætur,“ sagði kanslarinn á blaðamannafundi í Bonn. Snemma á síðasta ári hófu ríkisreknusjónvarpsstöðvarnar tvær þar í landi útsendingar á morgnana eftir að fijálsu stöðvarnar höfðu rið- ið á vaðið. Kohl er ekki ýkja hrifinn af þessari þróun, sem hann segir einungis til þess fallna að gera lífið og tilveruna grárri og leiðinlegri en ella. MFYRIRTÆKIÐ LA Gear, sem framleiðir samnefndar íþróttavörur, ætlar að lögsækja poppstjörnuna Michael Jackson fyrir brot á samn- ingum. Jackson átti að kynna LA Gear-íþróttaskó, fatnað, úr og sitt- hvað fleira. Að sögn talsmanna fyr- irtækisins hafði hann fengið greidd- ar fjórar og hálfa milljón dollara í reiðufé og 3 milljónir dollara í hlutabréfum. Fyrirtækið sakar Jackson um van- efndir. Honum hafi, samkvæmt samningum, bor- ið að vera við- staddur á blaða- mannakynning- um, vera ljós- myndaður og kvikmyndaður í bak og fyrir klæddur umræddum íþrótta- fatnaði. Pilturinn ku ekki hafa sinnt þessum skyldum sínum fullnægjandi og LA Gear krefst þess að hann greiði tíu milljónir dollara í skaða- bætur. Helmut Kohl Nýstárleg þjálfun starfsmanna BBC Lego-kubbar eru notaðir á námskeið- um fyrir starfsfólk sjónvarpsins BRESKA sjónvarpið, BBC, virðist hafa tröllatrú á dönsku Lego-kubbunum ef marka má frétt sem nýverið birtist í Daily Telegraph. Þar segir að starfsmenn BBC séu á námskeiðum þar sem þeir byggi turna úr Lego-kubbum, leysi ýmsar þraut- ir og fari í fjársjóðsleit. Þessi nýstárlega starfsþjálfun á að auka afköst, efla hóps- amvinnu og stjórnunarhæfileika einstakl- ingsins og gera hann jafnframt samkeppnishæfari. Á námskeiðum þessum er farið í ýmsa aðra leiki. Þátttakendur taka einskonar persónuleikapróf, þeir þurfa að finna út hvernig hægt er að láta egg síga niður úr glugga á efstu hæð, án þess að það brotni, og leysa verkefni, sem er í því fólgið að ávarpa ann- að starfsfólk á réttan hátt. Fyrirtækið sem skipulagði nám- skeiðin sérstaklega fyrir BBC hef- ur haft veg og vanda af svipuðum námskeiðum fyrir umsvifamikil fyrirtæki á borð við Kóka-Kóla o.fl. Hjá BBC er öllum deildarstjór- um skylt að sækja námskeiðin og gildir einu hvort um er að ræða yfirmann förðunardeildar, hönn- unardeildar eða þann sem hefur yfirumsjón með tæknibrellum. Talsmenn BBC eru sannfærðir um að námskeiðin skipti miklu máli við þjálfun starfsfólks vegna breytinga á rekstri, þar sem dag- skrárgerðarmenn fá fijálsar hend- ur með að kaupa þjónustu utan að frá. Yfirmaður hönnunardeildar BBC, Alan Jones, er ánægður með námskeiðin og segir þau einkar gagnleg. Ekki eru allir sammála honum og sumir hafa látið hafa eftir sér að námskeiðin séu bæði tíma- og peningasóun. Einn ónafn- greindur var lítið hrifinn og sagði: „Þetta er fáránlegt. Ég hef 20 ára starfsreynslu og veit í hveiju ég er góður og í hveiju ekki. Nám- skeiðið kom mér að engu gagni því það hafði ekkert með þá hæfi- leika að gera sem nýtast mér í starfi. Eini ljósi punkturinn var að þarna fékk maður viku til að kynnast starfsfélögum sínum bet- ur.“ Áður en starfsmenn sækja nám- skeiðið þurfa þeir að gera heilmik- ið „persónuleikamat“ á sjálfum sér til þess að finna út hvaða starf henti þeim best. „Allt var þetta ósköp amerískt - enginn átti að finna til vanmáttar. Hins vegar var hveijum og einum bent á þann þátt skapgerðarinnar sem betur mátti fara til þess að viðkomandi gæti betur unnið í hópvinnu," sagði einn þátttakandi. Að loknu námskeiði var engum þátttakanda ljóst hvaða þýðingu fjársjóðsleitin hafði né hvaða til- gangi þjónaði að láta egg síga niður af efstu hæð. BÍÓIIM í BORGIIMIMI Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson BÍÓBORGIIM Lffvörðurinn ★ ★'A Skemmtiiðnaður og sápuópera í bland. Eitthvað fyrir alla. Aleinn heima 2 — Týndur í New York ★ ★ ★ Úthugsaður iðnaðarvamingur úr Hughes-verksmiðjunni sem nær fylli- lega tilgangi sínum; kemur gestum í gott skap. Skúrkarnir firnagóðir. Myndin er betri en forverinn. Jólasaga Prúðuleikaranna ★ ★ ★ Ljúf og vel gerð jólamynd þar sem afbragðsleikur Michaels Caines sem Skröggur skyggir næstum á frábæra Prúðuleikarana. Friðhelgin rofin ★★★ Vel gerður og spennandi tryllir um vinsamlega löggu sem gerist kolóð og ofsækir hjón nokkur. Ray Liotta er sérstaklega góður. Systragervi ★ ★ ★ Vitnið Goldberg er falin um sinn í nunnuklaustri þar sem hún tekur við kórstjórninni. Áreynslulaust grín. Fríða og dýrið ★ ★ ★ ★ (sjá Sagabíó). BÍÓHÖLLIIM Eilffðardrykkurinn ★ ★ ‘A Kaldhæðnisleg svört kómedía um af- leiðingarnar sem leitin að eilífri fegurð getur haft í för með sér. Ekki mikið innihald þegar til kemur en útlitið og brellumar em fyrsta flokks. Kúlnahríð ★★ Miðlungsgóð sparkmynd með syni Bmce Lee. Ofbeldið er krassandi en líka mjög leikrænt. Systragervi ★ ★ ★ (sjá Bíóborgina). Jólasaga Prúðuleikaranna ★ ★ ★ (sjá Bíóborgina). - Blade Runner ★ ★ ★ Útgáfa leikstjórans er lítið frábmgðin fmmmyndinni en breytingamar gera þó góða mynd betríT HÁSKÓLABÍÓ Karlakórinn Hekla ★★ Bestu stundir Karlakórsins Heklu em söngatriðin þegar kórinn syngur sig inní hjörtu áhorfenda. Gamanþáttur- inn brokkgengur. Howards End ★★★ Frábærlega vel leikin og gerð bíóút- gáfa af sögu E. M. Forsters sem ger- ist um aldamótin síðustu. Bókmennta- leg, bresk og býsna skondin. Hákon Hákonsen ★ ★ 'A Ævintýramynd um léttadrenginn Há- kon sem kemst í hann krappann í Suðurhöfum, kynnist sjóræningjum, finnur fjársjóð og strandar á eyðieyju. Ágæt saga fyrir yngri kvikmynda- húsagesti. Dýragrafreiturinn 2 ★ Blóðugar senur, afturgöngur og þungarokk. Má ekki á milli sjá hvað af þessu er ómerkilegast. Ottó — Ástarmyndin ★'/« Ottó á sín augnablik í sinni fjórðu ærslamynd, sem geymir nokkra góða brandara. Boomerang ★ ★ Gamanglansmynd, ámóta merkileg og eftirminnileg og sápuópera í sjónvarpi. Háskaleikir ★ ★ ★ Fyrmm leyniþjónustumaður lendir í útistöðum við hryðjuverkamenn. Æsi- spennandi og afar vel gerð, einkum tæknilega. Fordarinn í essinu sínu. Svo á jörðu sem á himni ★ ★ ★ Metnaðarfull mynd byggð á snilldar- hugmynd um manninn og máttarvöld- in og hið yfimáttúrulega á tvennum tímum og heimum. Hin tíu ára gamla Álfrún Ömólfsdóttir skilar veigamiklu hlutverki af ótrúlegum þroska. LAUGARÁSBÍÓ Eilífðardrykkurinn ★ ★'/« Kaldhæðnisleg svört kómedía um af- leiðingamar sem leitin að eilífri fegurð getur haft í för með sér. Ekki mikið innihald en útlitið og brellurnar eru fyrsta flokks. Babe Ruth ★ ★ ★ Skemmtileg og vel gerð og fyrst og fremst heiðarleg mynd um ævi Babe Ruth. John Goodman fer á kostum í titilhlutverkinu. Tálbeitan ★ ★ 'A Hefur tilhneiingu til að taka sig alvar- lega, þess utan vel frambærileg hasar- mynd um vandamál sem em ofarlega á baugi. REGNBOGINIM Síðasti Móhikaninn ★ ★ ★ ★ Frábærlega gerð ævintýramynd, spennandi, rómantísk og skemmtileg. Day Lewis er kostulegur í titilhlut- verkinu og Michael Mann fær prik fyrir góða leikstjórn. Tommi og Jenni máia bæinn rauðan ★ ★ Lítið fer fyrir gamla góða ástar/hat- urssambandi félaganna í mynd sem einkum ætti að hugnast yngsta fólk- inu. Miðjarðarhafið ★ ★ ★ Dátar finna draumalandið í Eyjahaf- inu á tímum seinni heimsstyijaldarinn- ar. Afar vel leikin, hlý og mannleg Óskarsverðlaunamynd. Sannkallaður sólargeisli í skammdeginu. Á réttri bylgjulengd ★★ Forfallinn sjónvarpsfíkill lendir á rangri bylgjulengd. Góð hugmynd fær miðlungsúrvinnslu. Leikmaðurinn ★★★ Robert Altman tekur Hollywood-kerf- ið á beinið í baneitraðri og kaldhæðnis- legri ádeilu. Mjög skemmtileg mynd með hafsjó af stjörnum. Sódóma Reykjavík ★ ★ ★ Þrælskemmtileg gamanmynd eftir hugmyndaríkan húmorista um álappa- legar glæpaklíkur sem takast á í Reykjavík. Leikhópurinn er góður og frásögnin hröð. Ekta grín- og gys- mynd. SAGABÍÓ Lífvörðurinn ★ ★ '/« (sjá Bíoborgina). Aleinn heima 2 ★★★ (sjá Bíóhorg- ina). Fríða og dýrið ★ ★ ★ ★ Gullmoli frá Disney um sigur innri fegurðar yfir ljótleikanum. Bráðfjörug og fyndin og skemmtileg teiknimynd fyrir alla þá sem trúa á töfra ævintýr- anna. STJÖRNUBÍÓ Meðleigjandi óskast ★★★'/« Sérstaklega spennandi og vel gerður sálfræðitryllir sem dregur þig fram á sætisbrúnina. Frábær leikur og leik- stjórn Barbets Schroeders er mögnuð. í sérflokki ★ ★ ★ Velheppnuð gamanmynd um kvenna- lið í hafnabolta á stríðsárunum. Góður leikur, þægilegur húmor og ekki síst góður hafnabolti fleytir henni áfram. Bitur máni ★ ★ ★ Polanski á skuggavegum holdsins. Langur en því magnaðri erótískur sálfræðitryllir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.