Morgunblaðið - 19.01.1993, Page 5

Morgunblaðið - 19.01.1993, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÖJUDAGUR 19. JANÚAR 1993 nB 5 HANDKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA Borin von hjá FH-ingum FH-INGAR geta borið höfuðið hátt eftir seinni leikinn gegn Evrópumeisturum bikarhafa og Þýskalandsmeisturum Wallau Massenheim íátta liða úrslitum Evrópukeppni meist- araliða í handknattleik. Það er íraun sigur að ná 19:19 jafn- tefli gegn þessu sterka liði, en það var borin von hjá FH að láta sig jafnvel dreyma um að komast áfram í undanúrslit. Parkviss og yfirvegaður leikur *■■■ hefði hugsanlega fært heimamönnum sigur, en allt tal um að vinna upp sex marka mun úr fyrri Guðbjartsson leiknum var byggt á skrilar óskhyggju frekar en raunsæi. Meiðsl lyk- ilmanna, Kristjáns og Trúfans, gera það að verkum að ógnunin í sókninni er einhæf, breiddin er ekki fyrir hendi og erfiðleikarnir í deildinni sýna að ekki var hægt að búast við meiru í Evrópukeppninni en á varð raunin. FH-ingar komust í 3:0 á fyrstu þremur mínútunum, en samverk- andi þættir eins og frábær mark- varsla Peters Hofmanns, óná- kvæmar sendingar FH-inga og óða- got í sókninni ásamt slakri mark- vörslu Bergsveins Bergsveinsson- ar, sem reyndar lék veikur — var með 39 stiga hita — , gerðu það að verkum að leikurinn snerist fljótt Massenheim í vil og tveggja marka munur í hálfleik, 13:11, bætti gráu ofan á svart. Seinni hálfleikurinn var nánast formsatriði fyrir þýska liðið. Leik- menn þess fóru sér að engu óðslega í sókninni og hugsuðu fyrst og fremst um að halda fengnum hlut. Um miðjan hálfleikinn skoruðu þeir ekki í átta sóknum í röð á jafn- mörgum mínútum, en FH-ingar læddu inn fjórum og komust yfir 19:17, þegar níu mínútur og 40 sekúndur voru til leiksloka. Hof- mann varði víti og hélt hreinu til loka, en félagar hans jöfnuðu, þeg- ar tvær mínútur og 37 sekúndur voru eftir og þar við sat. FH-ing- ar, sem skoruðu ekki úr níu síðustu sóknunum voru með 29,6% sóknar- nýtingu eftir hlé, en Wallau Mass- enheim gerði aðeins sex mörk í seinni hálfleik og var með 22,2% nýtingu. FH-ingar geta sagt sem svo að ef þeir hefðu nýtt betur færin einn á móti einum, skorað úr öllum vít- unum og leikið yfirvegaðan sóknar- leik, hefðu þeir getað sigrað, en ef-ið er stórt og það er annað að segja hlutina en framkvæma þá, þegar vinna þarf upp sex marka mun gegn reynslumiklu atvinnu- mannaliði. Morgunblaðið/RAX Guðjón skorar Guðjón Ámason, fyrirliði FH, var helsta ógnun heimamanna gegn Massenheim á sunnudags- kvöld. Hér að ofan gerir hann eitt sjö marka sinna án þess að Stephan Schene komi nokkrum vömum við. Til hliðar er Peter Hofmann í óvenjulegri stöðu — verður að horfa á eftir boltanum í netið, en annars var hann frábær í marki þýska liðsins. Hofmann erfiður sem fyrr Peter Hofmann reyndist ís- lenska landsliðinu oft erf- iður, þegar hann lék í marki austur-þýska landsliðsins, og hann sýndi gegn FH að þó hann verði 38 ára í haust, er hann sami erfiði þröskuldurinn. Ekki sigurvissir „Við bárum virðingu fyrir móthetjunum og mættum ekki sigurvissir til leiks,“ sagði hann afslappaður við Morgunblaðið skömmu eftir að flautað var til leiksloka. „Við vissum að með vel útfærðum hraðaupphlaupum er alltaf sá möguleiki fyrir hendi að vinna upp sex marka forskot á 10 mínútum og byijun FH- inga, þijú mörk á þremur mínút- um, sýndi að við gátum ekki tekið lífinu með ró. Um miðjan seinni hálfleik, þegar við vorum tveimur mörkum yfír og munur- inn þá samtals átta mörk, var ég farinn að gæla við sætið í undanúrslitum, en var ekki sannfærður fyrr en ég leit á klukkuna og sá að þijár mínútur voru til leiksloka og við marki undir.“ Hofmann sagðist ekki vita hvaða lið væru í hattinum í und- anúrslitum, „en mér er sama hvaða liði við mætum nema hvað ég vil losna við Spánverjana." BIKARKEPPNI KVENNA Morgunblaðið/Sverrir Slgrún Mðsdóttir úr Stjömunni og Ólafía Kvaran, Fram, beijast um boltann í bikarleiknum á laugardaginn. Stjaman í úrslit STJARNAN sigraði Fram í fyrri undanúrslitaleik bikarkeppni kvenna í Garðabænum á laug- ardag, 16:11. Fyrri hálfleikur var jafn, en Stjarnan tók völdin eftir hlé. Magnús Teitsson, þjálfari Stjörnunnar var ánægður með stelpumar sínar í leikslok. „Þetta var sætur sig- Stefán ur- Stelpurnar voru Stefánsson taugaveiklaðar í skrifar fyrri hálfleik, en góðar í þeim seinni því þá ætluðu þær að vinna, voru grimmari og beittari og þegar þær náðu nokkurra marka forskoti kom sjálfstraustið," sagði Magnús um lið- ið sitt í viðtali við Morgunblaðið eft- ir öruggan sigur. „Allt liðið hefur samt ekki æft saman nema fímm sinnum síðan um miðjan desember, því þrír leikmenn eru úr Vestmanna- eyjum og §órir í landsliðinu." Vamir voru svo góðar að sóknar- leikurinn varð frekar endaslepptur og harkan mikil enda kom nærri helmingur marka í fyrri hálfleik úr vítaskotum, þó voru tvö vítaskot varin og tvö fóru í stöng. Ekki bætti úr skák að dómaramir flautuðu grimmt til að halda leiknum niðri en þeim er líklega vorkunn því þetta var ekta bikarleikur með tilheyrandi spennu í húsinu. Jafnræði var með liðum fyrir hlé en Fram náði að komast einu marki yfir með marki úr vítaskoti á síðustu sekúndu fyrir hlé. Eftir hlé hrundi Fram-liðið og Stjarnan fann fjölina sína, gerði níu mörk á fyrstu tuttugu mínútunum en gestimir eitt og þar með voru úrslitin ráðin. „Fyrri hálfleikur var góður en eftir hlé gerðu þær ekki eins og þeim var sagt og á að gera,“ sagði Guðríður Guðjónsdóttir þjálfari Fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.