Morgunblaðið - 19.01.1993, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.01.1993, Blaðsíða 12
I f í KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ INNANHUSS Morgunblaðið/Sverrir íslandsmeistarar Þórs í karlaflokki Morgunblaðið/Sverrir Ánægður fyrirliði Aftari röð frá vinstri: Ragnar B. Ragnarsson, stjómarmaður, Rúnar Antonsson, formaður knattspymudeildar, Oddur Óskars- son, liðsstjóri með Davíð son sinn, Lárus Orri Sigurðsson, Þórir Áskelsson, Öm Viðar Amarson, Páll Gíslason, Hlynur Birgis- son, Lárus Sigurðsson, Sigurður Lámsson þjálfari, Rúnar Steingrímsson stjómarmaður. Fremri röð frá vinstri: Júlíus Tryggva- son, Gísli Gunnarsson, Birgir Þór Karlsson, Sveinn Pálsson, Kristján Öm sonur Sigurðar þjálfara og Sveinbjöm Hákonarson. Fyrir framan, við bikarinn, er Stefán sonur Sveinbjamar fyrirliða. Sveinbjöm Hákonarson, fyrirliði Þórsara frá Akureyri, hampar íslands- meistarabikamum eftir sigur á Akumesingum í úrslitaleik innanhúss- mótsins á sunnudag. Sveinbjörn brosti ekki er honum var vikið af velli í úrslitaleiknum gegn sfnum gömlu félögum, en sparaði ekki brosið þegar úrslit lágu fyrir. Þór meistari í fyrsta sinn ÞÓR frá Akureyri varð á sunnudaginn íslandsmeistari í knattspyrnu innanhúss, og var þetta jafnframt fyrsti íslandsmeistaratitill félags- ins í meistaraflokki í knattspyrnu. Þórsarar léku til úrslita við Skaga- menn, sem hömpuðu titlinum fyrir ári, og sigruðu með einu marki, 4:3, eftir jafnan og spennandi leik. Lárus Sigurðsson markvörður Þórs átti stórleik í úrslitaleiknum, varði eins og berserkur og kórón- aði frammistöðuna með því að skora sigurmarkið. órsarar byrjuðu úrslitaleikinn vel og skoruðu þrjú fyrstu mörkin. Þegar fjórar mínútur voru til leikhlés var Þórsarinn Svein- „ ,, bjöm Hákonarson Einksson rekinn út af fyrir að ■•sknfar verja með hendi á marklínu, dómur sem hann var langt frá því að vera sáttur við. Sigursteinn Gíslason skoraði úr vítaspymu sem fylgdi í kjölfarið og bjuggust flestir við því að róður Þórs- ara yrði erfiður eftir það, en þeir léku einum færri næstu fimm mínút- umar. En Þórsarar gáfu ekkert eftir og pökkuðu í vöm. Láms Orri, Hlyn- ur Birgisson og Júlíus Tryggvason stóðu vaktina fyrir utan og fyrir aft- an þá var Lárus sem klettur í mark- inu. Skagamenn náðu aðeins að skora eitt mark á þessum fímm mín- útum. Þegar tæpar þijár mínútur voru liðnar af síðari hálfleik skoruðu Þórs- arar mark sem reyndist vera sigur- markið. Lárus Sigurðsson markvörð- ur fékk boltann á miðjum eigin vall- arhelmingi, lék örlítið áfram og þrumaði síðan knettinum yfír völlinn og í bláhomið vinstra megin; einkar glæsilegt mark. Skagamenn sóttu stíft það sem eftir var, Þórður Guð- jónsson skoraði þriðja mark þeirra þegar fímm mínútur voru eftir, en Láms Sigurðsson hleypti þeim ekki lengra, varði íjölmörg skot á síðustu mínútunum og tryggði þar með Þórs- umm fyrsta Islandsmeistaratitilinn. „Þetta er góð byrjun á árinu. Ég setti okkur það markmið að vinna Kóka kóla-mótið, Bautamótið [sem bæði fóru fram á Akureyri] og ís- landsmeistaramótið og það gekk allt saman eftir,“ sagði Sigurður Láms- son þjálfari Þórs. Aðspurður sagðist hann ekki hafa verið alltof bjartsýnn þegar Sveinbjöm var rekinn út af. „Ég hélt að við myndum sprengja okkur, þeir börðust það vel, en þetta gekk allt upp.“ „Þetta var rosalega erfítt þegar við lékum einum færri, og ég er mjög ánægður með að við náðum að halda forystunni. Við spiluðum vel, vorum einum færri í fímm mín- útur en unnum samt, og áttum þetta svo sannarlega skilið," sagði Láras Sigurðsson markvörður og hetja Þórs eftir leikinn. Þórsarar léku vel á mótinu og voru vel að sigrinum komnir. Þeir voru ákveðnir, spiluðu vel og sýndu góðan varnarleik auk þess sem mark- varslan var frábær. Skagamenn sýndu líka ágæta takta, en vom full æstir í úrslitaleiknum og fóm illa með góð færi. Gullið í Garðabæ! Auður Skúladóttirtryggði Stjömunni sigur- inn með marki á síðustu sekúndunum STJARNAN úr Garðabæ eign- aðist á sunnudag fyrstu ís- landsmeistara sína í kvenna- knattspyrnu þegar meistara- flokkur félagsins sigraði í inn- anhússmótinu. Það var fyrirlið- inn, Auður Skúladóttir sem var hetja liðsins í úrslitaleik gegn KR, hún skoraði sigurmarkið gegn KR í úrslitaleik liðanna þegar tfu sekúndur voru til leiksloka. Leikar vora jafnir 1:1 á lokamín- útunni þegar Stjaman fékk aukaspymu. Auður var fljót að átta sig og þmmaði knettinum framhjá óskipulögðum vam- arvegg KR og Sig- ríði Fanneyju mark- verði og tryggði þar með Garðabæj- arfélaginu titilinn. „Það var stór glufa í vamar- veggnum, vamarmennimir stóðu fyrir miðju markinu og markvörður- inn líka og það var því ekkert um Frosti Eiösson skrifar annað að ræða en að skjóta á mark- ið,“ sagði Auður. „Þetta er fyrsti alvömúrslitaleikurinn okkar og sig- urinn vísar vonandi á bjarta framtíð hjá liðinu," sagði hún ennfremur. Helena Ólafsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins fyrir KR en Laufey Sigurðardóttir jafnaði metin fyrir leikhlé. Síðustu mínútumar vom æsispennandi og bæði lið nálægt því að skora. Sigurlín Jónsdóttir átti skot í stöng Stjömumarksins og stuttu síðar sluppu KR-ingar með skrekkinn þegar Sigríður varði skot Laufeyjar í stöng. Þjálfarar beggja liða vora eflaust farnir að huga að framlengingu þegar Auður tryggði Garðabæjarliðinu sigurinn. „Þetta var jafn leikur og hálfgert taugastríð. Sigurinn gat lent hvom megin og það var í raun bara spurn- ing hvort liðið mundi skora á und- an. Þetta var frekar klaufalegt hjá okkur í lokin, það var það lítill tími eftir og best hefði verið að leggja höfuðáherslu á að komast fyrir aukaspymuna,“ sagði Arna Stein- Morgunblaðið/Frosti íslandsmeistarar Stjörnunnar í kvennaflokki Aftari röð frá vinstri: Bergþóra Sigmundsdóttir, Freyja Sverrisdóttir, íris Hákonardóttir, Lára Eymundsdóttir, Kristín Þorleifsdóttir, Ragna Lóa Stefánsdóttir, Fjóla Árnadóttir, Brynja Ástráðsdóttir, Ásgerður Hildur Ingibergsdóttir, Helgi Þórðarson þjálfari, Ólína Halldórsdóttir form. kvennaráðs. Fremri röð frá vinstri: Guðný Guðnadóttir, Rósa Dögg Jóns dóttir, Klara Bjartmarz, Auður Skúladóttir, Helga Helgadóttir, Laufey Sigurðardóttir, Heiða Sigurbergsdóttir og Gréta Guðnadóttir. sen þjálfari KR eftir leikinn. Þess má geta að bæði liðin léku í D-riðli. KR hafði betur í riðla- keppninni, sigraði í innbyrðisleik lið- anna 3:1. íslandsmeistararnir frá því í fyrra, UBK féllu út í undanúr- slitunum eftir tap í spennandi leik gegn KR._____________________ ■ Öll úrsllt / B10 Gt l RAUNIRí l Oll Ö; +

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.