Morgunblaðið - 29.01.1993, Blaðsíða 22
22 B
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1993
rf= ÁSBYRGI <f
Su&urlandsbraut 54, 108 Reykjavik,
sími: 682444, fax: 682446.
INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali.
SÖLUMENN: Örn Stefánsson og Þórður Ingvarsson.
Opið laugard. 11-13
2ja—3ja herb.
Borgarholtsbraut — 2ja
65 fm mjög góð íb. á 2. hæð í nýl. steinh.
Þvottaherb. og geymsla innan íb. Áhv.
byggsj. 3,3 millj. Verð 6,4 millj.
Nýbýlavegur m/bílsk.
2ja herb. falleg íb. á 2. hæð í góðu steinh.
Parket. Innb. bílsk. á jarðh. Verð 6,4 millj.
Veghús — 3ja
Fullb. 3ja herb. ca 90 fm íb. á 2. hæð ásamt
26 fm bílsk. Áhv. 3,5 millj. veðd. Verð 9,1
millj.
Úthlíd
Mjög lítið niöurgrafin kjallaraíb. sem skiptist
í góða stofu, stór svefnherb., nýtt eldhús
og nýtt baðherb. íb. fylgir einnig 2-3 íb-
herb. sem eru á sérgangi og hægt er að
leigja út. Ákv. sala.
Austurbrún — 2ja
Snotur 2ja herb. íb. á 7. hæð í lyftuh. ca
56 fm. Parket. Nýtt baðherb. Húsvörður.
Áhv. 2,6 millj. húsbr. Verð 5,3 millj.
Krummahólar — 3ja
Rúmg. 3ja herb. íb. ca 74 fm á 5. hæð í
lyftuh. ásamt stæði í bílskýli. Stórar suð-
ursv. Mikið útsýni. Húsvörður. Húsið nýtek-
ið í gegn að utan. Áhv. 1 millj. Verð 6,4 millj.
Vallarás — laus
2ja herb. góð íb. á 4. hæð í lyftuh. Mikið
útsýni. Áhv. byggsj. 2,4 millj.
Klukkuberg — Hf. 2ja.
2ja herb. skemmtil. íb. á jarðh. íb. selst tilb.
u. trév. eða fullb. til afh. fljótl. Mikið útsýni.
Verð 5,0 millj.
Furugrund — 3ja
3ja herb. 85 fm góð endaíb. á 1.
hæð. Laus fljótt.
Skógarás — 3ja
Góð 93,7 fm íb. á 1. hæð ásamt 25,4 fm
fokh. bílsk. Áhv. 3,0 millj. byggsj. Verð 7,8
millj.
Framnesvegur — 3ja
3ja herb. 60 fm góð risíb. í steinh. Áhv.
húsbr. 2250 þús. Laus fljótl.
Ofanleiti — 3ja
3ja herb. 87 fm falleg íb. á 3. hæð i
fjölbh. Vandaöar innr. Parket.
Þvottah. og búr innaf eldh. Btlskýli.
Laus strax. Verð 9,5 millj.
Blikahólar - 3ja
Góð 89 fm íb á 3. hæð í lyftuh. Mikið útsýni.
Seljavegur — ris
Góð 3ja herb. 69 fm íb. á rishæð.
Laus strax. Verð 5,7 millj.
Ástún — 3ja
Ca 90 fm íb. á 3. hæð. Góðar innr. Útsýni.
Laus 1. mars ’93. Húsið nýviðg. að utan.
Ofanleiti — 3ja
Vönduð 3ja herb. íb. á jarðh. 85,7 fm. Sér-
inng. Húsið nýviðg. og málað. Áhv. 2,5
millj. Verð 8,7 millj.
Asparfell — útsýni
90 fm 3ja herb. íb. á 5. hæð. þvherb. á
hæöinni. Verð 6,2 millj.
Fyrir aldraða - 3ja
Fullbúin 3ja herb. 89 fm íb á 3. hæð
í nýju fjölbýli fyrir eldri borgara við
Snorrabraut. Frábær staðsetn, Glæsil.
útsýni. Tll afh. strax. Verð 9,1 millj.
Álfholt - Hf.
Skemmtil. 61,8 fm íb. á 1. hæð. íb. er fullb.
til ahf. fljótl. Sameign fullfrág.
Víðimelur — kj.
Góð 59,6 fm 2ja herb. samþ. íb. i
þríbhúsí. Laus. Verð 5 millj.
Hverafold — 2ja.
Góð 56 fm íb. á jarðh. Áhv. 3,1 millj. byggsj.
Verð 6,1 millj. Laus fljótl.
4ra—5 herb.
Frostafold — 4ra
119,1 fm íb. á efri hæð í fjórb. Frá-
bært útsýni. Áhv. 5,0 mlllj. byggsj.
Verö 10,8 millj.
Æsufell — 4ra
Gðoö 105 fm íb. á 4. hæð í lyftuh. 3 svefn-
herb. 2 saml. stofur. Húsvörður. Verð 7,6
millj.
Egilsborgir - „penthouse"
Glæsil. 120 fm „penthouse“-íb. á tveimur
hæðum ásamt bílskýli. íb. selst tilb. u. trév.
og máln., sameign fullfrág. Verð 9,0 millj.
Til afh. strax.
Klapparstígur 1
— tvœr íbúðir
111 fm íb. á 1. og 2. hæð í nýju húsi.
Útsýni yfir sundin. Áhv. 5,0 millj.
byggsj. Til afh. strax. Verð 9,0 millj.
Hólar — „penthouse"
Góð 125,7 fm íb. á tveimur hæðum ásamt
stæði í bílskýli. Frábært útsýni. Verð 8,8
millj. Laus fljótl.
Dúfnahólar — 4ra
Falleg 103 fm íb. á 3. hæð. Góðar innr.
Nýtt gler. Húsiö er nýviög. að utan. Útsýni.
Stelkshólar
3ja-4ra herb. 109 fm falleg íb. á jarðh. 2
svefnh., 2 saml. stofur, sérgaröur. V. 7,5 m.
Smáíbúðahverfi — 4ra
Mjög góð mikið endurn. 84,3 fm íb. á 1.
hæð í þríb. á rólegum stað. Áhv. ca 3,0
millj. húsbr. Verð 7,5 millj. Laus.
Þverbrekka — útsýni
Glæsil. 4-5 herb. ib. á 6. hæð í lyftuh.
Þvottaherb. innan íb. Húsvörður.
Mögul. skipti á 3ja herb.
Kársnesbraut — hæð.
Góð efri hæð i tvíb. 98 fm ásamt 36
fm bílskúr. Verð 8,7 millj.
Alviðra — lúxusíbúð
Glæsil. 190 fm íb. á 2 hæðum, í nýju fjölb-
húsi v. Sjávargrund, Garðabæ. íb. afh. tilb.
u. trév. og máln. í júlí nk. og sameign og
lóð fullfrág. fyrir árslok. Glæsil. útsýni yfir
Arnarvog og til Bessastaða. Verð 11 millj.
Dofraberg - Hf. 5-6 herb.
5 herb. ca. 130 fm íb. á 2 hæðum. íb. er í
dag tilb. u. trév. og máln. en sameign ófrág.
Til afh. strax. Verð 7,5 millj.
Eyrarholt — Hf — útsýni
Til sölu ca 120 fm glæsil. turníb. á 8. hæð
í nýju fjölb. íb. selst fullb. Til afh. í júní nk.
Eignask. mögul.
Raðh./einbýli
Dalhús — raðh.
Glæsil. fullb. 188,4 fm raöh. á tveim-
ur hæöum m. Innb. bflsk. Vandaöar
innr. Parket, flísar. Áhv. 3,6 millj.
bygasj-
Daltún — parhús
Fallegt parhús, kj., hæö og ris. Húsið skipt-
ist m.a. í stórt eldh. m. vönduöum innr., 2
saml. stofur, 3 svefnh., 2 baöh. o.fl. Séríb.
í kj. Innb. bílsk. Bein sala eða skipti á minni
eign í Kóp. eða nágr.
Krókabyggð — Mos.
Gott 108 fm endaraöh. á einni hæð. Vandað-
ar innr. Áhv. 4,8 millj. byggsj. Verð 9,5 millj.
Völvufell — raðh.
128 fm gott raðh. á einni hæð. Húsið sk.
m.a. i góða stofu, 4 svefnherb., eldh. og
bað, þvottaherb. og geymslu. Góður bil-
skúr. Fallegur garður.
Kársnesbraut — einb.
Nýl. 159,4 fm einbhús á tveimur hæðum
ásamt 31,3 fm bilsk. Vandaðar innr.
Glæsil. útsýni. Skipti mögul.
Prestbakki — raðh.
Falleg 189,2 fm raðhús m. innb. bílskúr. 4
svefnherb. Parket. JP-innr. Húsið nýklætt
utan. Útsýni. Verð 14 millj.
Seljahverfi — skipti
Gott 200 fm endaraðh. á 2 hæðum.
Innb. 25 fm bílsk. m. héum inn-
keyrsludyrum. Vandaðar JP-innr.
Skipti mögul. á 4ra herb. Ib. I Selja-
hverfi. Verð 13 millj.
Seljahverfi — útsýni
280 fm fallegt einbh. á tveimur hæð-
um. Á efrí hæð eru m.a. stórar stofur
m. arní, 4 svefnh. og stórt sjónvhol.
IVIögul. á góðri 2ja herb. séríb. á neðri
hæð. Tvöf. innb. bilsk. auk geymslna.
Falleg lóð. Mikið úteýni.
Rauðagerði — tvíb.
Glæsil. 2ja íb. hús á tveimur hæðum sam-
tals 400 fm. Verð 28,0 millj. Mögul. skipti
á minni eign.
Lindarbr. — Seltj. — parh.
150 fm fallegt parhús á tveímur hæð-
um auk bllsk. Á neðri hæð eru eld-
hús, snyrting, stofa og garöskáli. Á
efri hæð eru 3 svefnherb., sjðnvhol
og bað. Húsið er fullb. Parket. Beyki-
ínnr. Áhv. 4,0 mlllj. byggsjóður.
Suðurhlíðar — Rvík
Ca 270 fm fallegt endaraðh. á þremur hæð-
um ásamt 25,7 fm bílsk. Góðar innr.
Mögul. á sérib. i kj. Skipti mögul. á minni
eign, helst i Hliðahv.
Gerðhamrar — einb.
139 fm vel skipul. einbhús á einni
hæð. ásamt 39 fm bílsk. Vandaðar
innr. Til afh. strax. Verð 15,0 millj.
Gullengi — 3ja
3ja herb. 104 fm mjög skemmtil. íb. tilb.
u. trév. og máln. Til afh. strax. Sameign
fullfrág. Laus strax.
Lindarsmári — raðh.
180 fm raðhús á tveimur hæðum
ásamt 24 fm bílsk. Húslð afh. tilb.
u. trév, að innan og fullfrág. að utan,
lóð grófjöfnuð. T!l afh. strax.
Stakkhamrar — einb.
162 fm timburhús á einni hæð m. innb. tvöf.
bílsk. Selst fokh. innan, fullfrág. utan.
Berjarimi — parhús
170 fm skemmtil. parhús á tveimur hæðum.
Stór bilsk. Húsin seljast fullfrág. að utan
og fokh. að innan.
Mururimi — parhús
180 fm skemmtil. parhús á tveimur hæðum.
Arinn i stofu. Innb. bilsk. Húsið selst fullfrág.
að utan, fokh. að innan. Afh. í jan. nk.
Vesturbaer — raðhús
Til sölu glæsil. raðhús samt. 207 fm m. innb.
bílsk. Húsið selst tilb. u. trév. og máln. að
innan og fullfrág. að utan þ.m.t. lóð. Til afh.
strax.
Atvinnuhúsnæð
Laugav. — versihúsn.
61,2 fm verslhúsnæði ásamt 71,4 fm
skrifst.- og lagerhúsn. á 2. hæð á
besta stað v. Laugaveg. Auð auki
fylgja ca 40 fm I kj. Steinhús. Verð
12,8 millj.
Laugavegur - skrifst.
160 fm góð skrifstofuhæð í steinh. ofarl.
v. Laugaveg. Laus fljótl.
Bæjarhraun Hf. - verslhæð
135 fm verslunarhúsn. á jarðh. Til afh. strax.
Húsnæðiö er mjög vel staðsett og hentugt
f. hverskonar þjón.
Grensásvegur
500 fm versl- og lagerhúsn. á góðum
stað við Grensásveg. Til afh. strax.
Hringbraut 119
Tvö þjónusturými, 180 og 270 fm. Til afh.
strax. Hagstæð greiöslukjör.
Sigtún
150 fm góð skrifsthæð á 2. hæð og 350 fm
mjög gott lagerhúsn. í kj. með góðum innk-
dyrum. Lofthæð ca 3,2 m.
SAHTENGD
SÖLUSKRÁ
ÁSBYRGI
EIGNASAIAN
INIMAIMSTOKKS OG UTAIM
Rreytíngar sem borga sig
og aórar sem borga sig ekki
—Hver segir að peningar vaxi ekki á trjánum? Grónir og fallegir
garðar auka verðgildi fasteigna langt fram yfir það sem til þeirra
er kostað.
Breytingar sem gerðar eru á
eldra húsnæði eru í flestum til-
fellum til góðs. Eigendurnir
leggja í breytingarnar vegna
þess að þeir vilja gera húsnæðið
fallegra, þægilegra eða hentugra
á einhvern hátt. Sumir af illri
nauðsyn, aðrir af einskærum
áhuga. Flestir ná markmiði sínu.
Mörgum verður hugsað til þess
hvort eignin verði seljanlegri eða
dýrari í verði á eftir,- hvort
breytingarnar borgi sig fjár-
hagslega. Það er alls ekki eins
víst og menn telja stundum.
Margir hafa lagt í breytingar á
húsnæði beinlínis til að auka
möguleika á sölu eða hækka fast-
eignaverðið. Algengustu leiðirnar
til þess hafa verið að bæta í húsin
gufubaðsklefa
(sauna), heitum
potti, ami, garð-
stofu og jafnvel
íþróttaaðstöðu eða
sundlaug!
Þessar fram-
kvæmdir eru auð-
vitað dýrar og það
má stórlega efa að
þær skili sér í beinhörðum pening-
um ef selt er. Hitt er svo annað
mál, að ef vel til tekst verða þessar
breytingar ef til vill til þess að gera
eignina seljanlegri. Það sama gildir
um ýmsar framkvæmdir til að fegra
húsið (íbúðina), þær kosta talsvert,
en þó er hreint ekki víst að væntan-
legir kaupendur kunni að meta þær
og í sumum tilfellum láta þeir verða
sitt fyrsta verk að breyta því aftur.
Ef á að breyta húsnæði til þess að
gera það meira virði verða það að
vera breytingar sem eru jafn mikils
virði í annarra augum og þínum
eigin.
Bót en ekki fjárfesting.
Sem betur fer láta menn þó ekki
annarra þarfír eða skoðanir al-
mennt ráða framkæmdum sínum.
Breytingarnar eru gerðar til þess
að þeim sem þar búa líði betur og
það kemur síðar í ljós hvort arftak-
ar kunna að meta þær eða ekki.
Dæmi um framkvæmdir sem
koma eigendunum til góða en verða
ekki endilega til að glæða áhuga
væntalegra kaupenda eða hækka
verð eru m.a. þessi:
Málun eða veggfóðrun, skipti á
gólfefnum og fleiri útlitsbreytingar
á gólfum, veggjum og lofti.
Þessar breytingar eru allar
byggðar töluvert á smekk manna
en ekki gæðum eða nýtingu og
þess vegna er alltaf hætta á að
aðrir séu ekki sammála um ágæti
þeirra, Það virðist ekki skipta fólk
nokkru mál hvort íbúðir eru tísku-
legar eða ekki þegar það skoðar
þær, enda ætla flestir að móta þær
að eigin smekk. Rándýrt nýtt vegg-
fóður hefur t.d. oft verið kaupanda
þyrnir í augum þegar hann hefur
hugsað sér umhverfí sitt í nýju íbúð-
inni allt öðru vísi. Allar fram-
kvæmdir sýna þó áhuga íbúanna
og benda til góðs viðhalds á eign-
inni og það kunna margir að meta.
Seljanlegra húsnæði
Sumar dýrar fjárfestingar verða
til þess að auka verðgildið og vekja
áhuga annarra á húsnæðinu. Ef
breytingarnar eru mjög dýrar og
viðamiklar er ekki víst að verð-
hækkun á húsnæðinu vegi á móti
því sem lagt hefur verið í það.
Áhugi á húsnæðinu eykst kannski
og sölumöguleikarnir með, en þó
gæti breytingin fælt vissan hóp
fólks frá, því áhugasvið manna er
misjafnt.
Dæmi um svoleiðis breytingar
eru:
Garðstofa, gróðurhús, gufubaðs-
klefí, heitir pottar, sundlaug, arinn,
nýjar innréttingar (t.d. í eldhús eða
baðherbergi).
Það er möguleiki að sumt af þess-
um framkvæmdum skili sér til baka
í auknu fasteignaverði en það fer
talsvert eftir því hvert ástand húss-
ins er fyrir breytinguna. Því verra
sem ástandið er áður en ráðist er
í lagfæringar, því meiri verðaukn-
ingu má búast við eftir að þeim er
lokið. Það er mikils virði að allar
breytingar séu vel undirbúnar og
skynsamlega unnar ef þær eiga að
skila einhverju því augljós “redd-
ing“ hlýtur ekki náð fyrir augum
almennings.
Ef húsið sjálft er í lélegu ástandi
breytir engu þótt við það sé bætt
óþarfa lúxus,- greni er og verður
greni, með eða án sundlaugar!
Hærra verð
Sumar breytingar verða beinlínis
til þess að hækka verð eignarinnar.
Þessar breytingar eiga það flestar
sameiginlegt að vera til þess fallnar
að bæta húsið sjálft eða vera pen-
ingasparandi á einhvern hátt. Dæmi
um þær er:
Viðbygging (hæð ofan á, fleiri
herbergi, bílskúr eða útihús), þaki
lyft, sprunguviðgerðir, nýir
gluggar, einangrun eða hitakerfí
bætt og síðast en ekki síst,- gróður-
setning í garðinn.
Það ræðast af þörfinni hversu
vel þessar breytingar skila sér og
einnig því hveiju er til kostað. Þeir
sem eru svo heppnir að geta unnið
að einhveiju slíku sjálfír í frítíma
sínum fá hæstu launin, en hinir
munu líka njóta uppskeru erfiðis
síns. Það er þó vert að hafa í huga
að allur sýnilegur “fúskarabragur"
er síst til að auka sölumöguleikana
svo menn skyldu ekki spara sér
vinnulaun ef eigin kunnátta er tak-
mörkuð.
eftir Jóhönnu
Horðardóttur