Morgunblaðið - 31.01.1993, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 31.01.1993, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993 EFNI Fóðurfrekt tíðarfar Morgunblaðið/J6n Sigurðsson ÞAÐ SEM af er vetri hefur tíðarfar verið erf- itt og víða jarðbönn. Af þeim sökum hefur þurft að gefa hrossum mun meira en undan- farna vetur. Fyrir þessu finnur hrossmargur bóndinn bæði í fóðri og vinnu. Haukur bóndi Pálsson á Röðli í Torfalækjarhreppi á fleiri hross en margir bændur í Austur-Húnavatns- sýslu og gefur það augaleið að hann hefði kos- ið sér hagfelldara veðurfar en nú hefur ríkt. Það heyrir nánast sögunni til að ekki sé til nægilegt fóður fyrir þann búpening sem á vet- ur er settur en það getur verið æði torsótt og erfitt viðureignar að koma heyfóðri til hross- anna. Þrátt fyrir frostkalt rysjuveður að undan- fömu þá var Haukur bóndi nokkuð lésaralegur þegar hann var að gefa hrossum sínum rúllu- baggahey á dögunum, viss í þeirri trú að bráð- um kæmi betri tíð með blóm í haga. Hmm ára Irfshorfur karla með krabbamein 100 90 80 70 60 50 40 30 20 10 0,-----------------------------------i 1956-60 1981-85 Sjatdkirtiiskrabbamein Þvagblððrukrabbamein Blððruhálskirtils- krabbamein Hvítblæði^ Eitlasarkmeín Hmm ára lífshorfur kvenna með krabbamein Magakrabbamein 1956-60 1981-85 Lífslíkur krabba- meínssjúkra batna LÍFSHORFUR fólks með krabbamein hafa batnað mikið síðustu áratugi. í tímaritinu Heilbrigðismálum kemur fram að fjórir af hverjum tíu sem fá krabbamein geta vænst þess að lifa að minnsta kosti í fimm ár eftir að sjúkdómurinn er greindur. í nýjasta tölublaði Heilbrigðis- mála kemur einnig fram að um 34% karla og 46% kvenna sem greindust á árunum 1981-85 lifðu í fimm ár eða lengur. Er þetta mikil breyting frá því sem var aldarfjórðungi áður, árin 1956-60. Þá lifðu 15% karla og 26% kvenna í fimm ár. Það kemur fram í frétt Heil- brigðismála að krabbameinssjúkl- ingar eru yfirleitt í mestri hættu á fyrsta ári eftir sjúkdómsgrein- ingu en síðan dregur smám saman úr hættunni. Eftir fimm til sex ár eru lífshorfur þeirra síst verri en annarra. Það er þó mjög mis- munandi eftir meinum hvernig sjúklingum reiðir af. Lífshorfur þeirra sem fá ristil- krabbamein, magakrabbamein eða hvítblæði hafa meira en tvö- faldast á undanförnum áratugum. Horfur sjúkinga með heilaæxli, skjaldkirtilskrabbamein og vél- indakrabbamein hafa einnig batn- að mikið. Það kemur fram í frétt Heil- brigðismála að lífshorfur sjúkl- inga með lungnakrabbamein eru lakastar; 10%. Hins vegar eru lífs- horfur karla sem fá krabbamein í eistu 95%. Brutust inn og stálu 250-300 kg af ýsu 250-300 KG af ýsu var stolið í innbroti í fiskverkunarfynrtæki við Eyjaslóð á Grandagarði aðfaranótt Iaugardags. Fiskurinn var í 20 kg pakkningum og hurfu 12-15 slíkar. Einnig var brotist inn í Gúmmí- vinnustofuna við Skipholt og þar komust þjófar yfir 140 þúsund krónur í reiðufé og ávísunum, að Þá var lögreglu tilkynnt um inn- brot í fyrirtæki við Sundaborg en þar hafði tveimur myndbandstækj- um verið stolið og einnig var brot- ist inn í bíl og hljómflutningstæki fjarlægð. Ölvun var lítil í Reykjavík aðfara- nótt laugardagsins, að sögn lög- talið er. reglu. Sjö manns gistu fanga- geymslur, sem ekki þykir tiltöku- mál, fremur en það að einn ökumað- ur hafí verið grunaður um ölvun við akstur. Lögreglan í Kópavogi hefur þijá ökumenn grunaða um akstur undir áhrifum aðfaranótt laugardagsins. Hlutabréfaviðskipti minnka í janúar Vísitala hefur lækkað um 4% frá áramótum Hlutabréf í Sameinuðum verktökum seld fyrir 3 millj. á genginu 6,38 TALSVERÐ viðskipti hafa verið með hlutabréf í Sameinuðum verktökum hf. á Opna tilboðsmarkaðnum að undanförnu og á fimmtudag námu viðskiptin að söluverðmæti tæplega 3 milljónum króna á genginu 6,38. Gengi bréfanna hefur lækk- að úr 7,2 í 6,60 og nú síðast í 6,38. Hlutabréfasala var í fyrsta sinn skráð hjá Sameinuðum verktökum á Opna tilboðsmarkað- inum sl. mánudag en Verðbréfamarkaður Islandsbanka (VÍB) hefur metið verð bréfanna á 7,2-földu gengi. Síðdegis í gær höfðu borist þijú sölutilboð hlutabréfa í Sameinuðum verktök- um hf. á genginu 7,2 til 7,50 og kauptilboð á genginu 5,80. Landsvísitala hlutabréfa sem mælir meðalverð hefur lækkað um 4% frá áramótum en vísitalan hækkaði um nálægt 4% í desember þegar viðskiptin jukust mjög undir áramótin. Viðskiptin á hlutabréfa- markaði hafa verið tiltölulega lítil frá áramótum en þó sveiflast nokk- uð að sögn Ásgeirs Þórðarsonar hjá VÍB. Fyrstu þijár vikumar voru skráð viðskipti á verðbréfaþingi 11,5 milljónir og í lok þessarar viku voru þau komin í nálægt 20 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbréfum námu heildarviðskipti með hlutabréf á föstudag 2,3 millj. kr. Seld voru hlutabréf í Þróunarfé- lagi íslands að verðmæti tæplega 2 millj. kr. á genginu 1,30. Þá urðu viðskiptí með hlutabréf í Hluta- bréfasjóðnum hf. á genginu 1,30 og' auk þess voru í fyrsta skipti seld hlutabréf í Hraðfrystihúsi Eski- fjarðar á genginu 2,50 og var verð- mæti þeirra viðskipta 250 þús. kr. Búist við auknum kaupum lífeyrissjóða Ásgeir sagði að búast mætti við auknu lífi á hlutabréfamarkaði á næstu mánuðum ef lífeyrissjóðimir kæmu inn á markaðinn í auknum mæli eins og þeir hefðu boðað en lífeyrissjóðimir hefðu að undan- fömu verið að afla sér upplýsinga um markaðinn. „Ef þeir standa við það að sinna þessum hluta markað- arins em það fjárhæðir sem skipta strax máli. Framboðið er ekki það mikið að svo stórir kaupendur myndu óneitanlega hafa áhrif á verðið,“ sagði hann. Launadeila veðurfræð- inga leyst SAMNINGAR tókust í launadeilu veðurfræðinga og Veðurstofu ís- lands á föstudagskvöld. Veður- fræðingar fengu framgengt þeirri meginkröfu sinni að fá greitt fyr- ir bakvaktir og auk þess náðist samkomulag um aukna og eflda endurmenntun. Páll Bergþórsson veðurstofustjóri sagði að launabreytingamar væru allar innan fjárhagsramma Veður- stofunnar. Ákveðið var að stofnunin stæði fyrir, í samvinnu við starfsfólk og veðurstofustjóra, ítarlegri athugun á framtíðarþróun Veðurstofunnar, sér- staklega með tilliti til þjónustuhlut- verks hennar. Páll sagði að almennar veðurspár yrðu í líku formi áfram en einkum væri um að ræða sérþjón- ustu ýmiss konar. Til að mynda yrði unnt selja fólki spár í áskrift, sem sendar yrðu til þess í gegnum bréf- síma eða tölvu. Páll sagði að sjö manns hefðu sótt um stöðu veðurstofustjóra sem hann víkur úr um næstu áramót. Flest bendir til þess að nýr veður- stofustjóri verði ráðinn strax í næstu viku til þeirra sérverkefna sem að ofan greinir, að sögn Páls. A ► 1-44 Leikf léttur um Seðla- bankastól ►Segja má að flókin staða sé komin upp, bæði í banka- og stjómmálaheiminum, við þá ákvörðun dr. Jóhannesar Nordals seðlabankastjóra að láta af störf- um á miðju þessu ári./lO Rómantík í pólitík ►innbyrðis giftingar í dönskum stjómmálum vekja athygli./14 Frá Reykjavík til CIA ►Janet Andrews, sendifulltrúi í bandaríska sendiráðinu á íslandi heldur nú til starfa hjá bandarísku leyniþjónustunni, CIA./ 16 Vínalínan, gott kvöld ►Margir telja að einmana fólki fíölgi og ýmsir aðilar hafa bmgð- ist við þessari þróun og bjóða fólki félagsskap í gegnum síma. Þeirra á meðal er Vinalína Rauða kross- ins./18 Elturský og atómagnir á Kólaskaga ►Tvær grímur hafa mnnið á menn þegar gerðir em upp reikn- ingar hemjulauss þunga- og vopnaiðnaðar Sovétríkjanna sál- ugu og óhugnanlegra áhrifa hans á umhverfismál í Rússlandi./37 B ►1-28 Dansað í austri ►Undanfarin fimm ár hefur Jó- hannes Pálsson verið aðaldansari við Alheimsdansflokkinn í Seoul í Kóreu. Hann var staddur hér á landi ásamt kóreanskri unnustu sinni sem er upprennandi stjama hjá sama dansflokki./l Heimspekin er nauð- synleg lífinu ►Sigríður Þorgeirsdóttir, fyrsta íslenska konan sem hlýtur doktors- nafnbót í heimspeki, ræðir um Nietzche og siðfræði Kvennalist- ans./6 Réttur maður á réttum stað ►Svipmynd af Poul Schluter, fyrr- um forsætisráðherra Danmerk- ur./9 Axel á Gjögri ►Axel Thorarensen á Gjögri segir frá ýmsu skemmtilegu á milli þess sem hann tekur hraustlega í nef- ið./lO Þjóðarsálin í loftinu ►Sigurður G. Tómasson, dag- skrárstjóri Rásar 2, stýrir Þjóðar- sálinni, einum umdeildasta þætti Ríkisútvarpsins./14 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Dægurtónlist 13b Leiðari 22 Fólk í fréttum 18b Helgispjall 22 Myndasögur 20b Reykjavíkurbréf 22 Brids 20b Minningar 26 Stjömuspá 20b íþróttir 38 Skák 20b Útvarp/sjónvarp 40 Bíó/dans 21b Gárur 43 Bréftil blaðsins 24b Mannlífsstr. 4b Velvakandi 24b Kvikmyndir 12b Samsafnið 26b INNLENDAR FRETTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.