Morgunblaðið - 31.01.1993, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRIJT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993
ERLENT
INNLENT
Barnsrán í
Reykjavík
íslensk móðir tveggja hálf-
systra kærði rán bamanna af
hóteli í Reykjavík. Bandarískir
feður bamanna stóðu fyrir
bamsráninu ásamt bandarískum
aðilum sem sérhæfa sig í slíkum
aðgerðum. Til að ná til móðurinn-
ar þóttust bamsræningjamir
vera kvikmyndagerðarmenn og
að til stæði að leita að stöðum
hérlendis til að taka upp kvik-
mynd þar sem Sylvester Stallone
færi með eitt af aðalhlutverkun-
um. Faðir yngri stúlkunnar var
handtekinn ásamt aðstoðar-
manni sínum á Keflavíkurflug-
velli áður en þeir komust með
bamið úr landi. Hinn faðirinn og
aðstoðarmaður hans komust úr
landi með eldri stúlkuna, en yfir-
völd í Lúxemborg handtóku þau.
Telpan var send til íslands að
kröfu íslenskra yfírvalda en fólk-
inu var sleppt úr haldi. Héraðs-
dómur Reykjavíkur úrskurðaði
föður yngri stúlkunnar og að-
stoðarmann hans í gæsluvarð-
hald til 10. febrúar og hafa þeir
kært úrskurðinn til Hæstaréttar.
Jóhannes Nordal lætur af eigin
ósk af starfí um mitt ár 1993.
Jóhannes, sem verður nýorðinn
69 ára þegar hann lætur af starfí,
hefur gegnt þessu starfí frá
stofnun Seðlabankans 1961.
Tómas Árnason lætur af störfum
í árslok.
Flugleiðir spara
Flugleiðir hafa sagt upp 44
starfsmönnum heima og eríendis.
Félagið áætlar að spara 500
milljónir kr. á næstu 18 mánuð-
um þrátt fyrir 8% aukningu í
starfsemi þess á næstu misser-
um. Stöðugildum verður fækkað
um 119 með því að ráða ekki í
stöður sem losna.” Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða,
segir að leitað verði til yfírvalda
um tvíhliða samninga við Evr-
ópubandalagið um flugsamninga
verði frekari dráttur á samningn-
um um Evrópska efnahagssvæð-
ið.
Samið um sOdarsölu
Fyrirtækið Sproti hf. hefur
gengið frá samningi um sölu á
250 þúsund tunnum af saltsíld
til Rússlands. Samningsfjárhæð-
in samsvarar um 1,5 milljarði kr.
Jafnframt hefur fyrirtækið unnið
að stofnun dreifíngarfyrirtækis
fyrir saltsíld í Moskvu. Sfldin
verður afhent á næstu fímmtán
mánuðum.
Sæstrengur fýsUegur
Nefnd manna frá alþjóðlega
fyrirtækinu Pirelli afhenti Lands-
virkjun niðurstöður frumat-
hugunar Landsvirlqunar um sæ-
strengslögn frá íslandi til Evr-
ópu. Samkvæmt skýrslu þeirra
er sæstrengslögnin fysilegur
kostur.
Jóhannes Nordal hættir
Tveir af þremur Seðlabanka-
stjórum láta af störfum á árinu.
ERLENT
Króatar
sækja fram
gegn Serbum
Króatar sóttu í vikunni sem leið
fram gegn Serbum við Adríahafs-
strönd Króatíu og náðu hemaðar-
lega mikilvægum svæðum á sitt
vald. Þeir buðu Serbum samninga
um nýja vopnahléslínu sem er 20
km sunnar en sú gamla sem hafði
haldist í eitt ár. Sókn Króata
stefndi viðræðum um frið í fyrr-
verandi lýðveldum Júgóslavíu í
hættu og Sameinuðu þjóðimar
fordæmdu hana. Króatar náðu á
fímmtudag á sitt vald stórri stíflu
í útjarðri vopnahléssvæðis sem
friðargæsluliðar Sameinuðu þjóð-
anna áttu að vemda. Serbar höfðu
þakið stífluna sprengiefni og
hætta var á að þúsundir manna
fæmst ef hún spryngi.
Major stefnir vikuritum
John Maj-
or, forsætis-
ráðherra
Bretlands,
fól lögfræð-
ingum sínum
á fímmtudag
að höfða
meiðyrðamál
á hendur
tveimur
vikuritum, Forsíða New Stat-
New States- esman.
man og Scallywag, sem fjölluðu
um það í máli og myndum að
sterkur orðrómur væri á kreiki um
að hann héldi við konu er séð
hefur um veisluföng í embættisbú-
stað hans í Downing-stræti 10.
Meint ástkona Majors stefndi
vikuritunum einnig. Fá fordæmi
em fyrir því að breskur forsætis-
ráðherra höfði meiðyrðamál; síð-
ast gerðist það árið 1967 er Ha-
rold Wilson stefndi popphljóm-
Ríkið sparar í fargjöldum
Fjármálaráðuneytið hyggst
spara 35-40 milljónir kr. með
því að leita tilboða ferðaskrif-
stofa í flugfarseðla fyrir ríkis-
starfsmenn. Gert var að skilyrði
að flogið yrði með Flugleiðum.
Forstjóri Samvinnuferða-Land-
sýnar hefur gagnrýnt útboðið og
segir að keppinautar fyrirtækis-
ins hafí veitt óheimilan afslátt
af sölulaunum sínum frá Flug-
leiðum.
sveit vegna plötuauglýsingar þar
sem mynd af honum var notuð.
Konur aldrei fleiri í
ráðherrastólum í Danmörku
Þegar Poul Nyrup Rasmuss-
en, forsætisráðherra Danmerkur,
kynnti stjóm sína á mánudag kom
í ljós að þijú ný ráðuneyti höfðu
bæst við. Ráðuneytin em nú 24 {
stað 21 í fyrri stjóm. Jafnframt
hafa aldrei jafn margar konur
sest í ráðherrastóla í Danmörku.
Átta kvenráðherrar em í nýju
stjóminni.
Havel aftur forseti
Vaclav Havel var kjörinn for-
seti Tékkneska lýðveldisins á
þriðjudag með atkvæðum 109
þingmanna af 200. Ekki tókst að
kjósa forseta Slóvakíu á þingi
landsins þar sem enginn frambjóð-
andi fékk tilskilinn atkvæðafl'ölda.
Tsjernomyrdín kemur á
óvart
Viktor Tsjernomyrdín, for-
sætisráðherra Rússlands, sagði í
þingræðu á fimmtudag að barátt-
an við verðbólguna yrði forgangs-
verkefni rússnesku stjómarinnar.
Umbótasinnar fögnuðu þessum
ummælum en harðlínumenn, sem
hingað til hafa talið forsætisráð-
herrann sinn mann, vom að sama
skapi miður sín. Ræða Tsjemo-
myrdíns kom á óvart því þegar
hann tók við embættinu í desem-
ber var búist við að hann myndi
auka ríkisstyrki til fyrirtækja sem
nú eiga í erfíðleikum og stuðla
þannig að aukinni seðlaprentun
og verðbólgu.
SAS stendur höllum fæti
Norræna flugfélagið SAS
stendur mjög höllum fæti og þvl
gengur það nú fjöllum hærra í
Danmörku að það sameinist hugs-
anlega öðmm flugfélögum.
Danskir starfsmenn bera kvíðboga
fyrir því þar sem það þýddi enda-
lok SAS sem sjálfstæðs flugfé-
lags. Kastmp-flugvöllur myndi
missa mikilvægi sitt og fjöldi
manns þar missa vinnuna.
Jörg Haider heilsar aðdáendum sínum í Innsbruck.
Umdeild undirskriftasöfnun í Austurríki
Vilja fakmarka umsvif
og réttindi útlendinga
ANDÚÐ á útlendingum er algeng í Austurríki. Þjóðin á við efna-
hagserfiðleika að etja og er illa í stakk búin til að taka við útlend-
ingum sem hafa streymt til landsins frá því að jámtjaldið rofn-
aði og gamla Júgóslavía leystist upp. Um 60.000 flóttamenn frá
Bosníu hafa fengið hæli í Austurríki síðan átök hófust í Bosníu-
Herzegóvínu en samtals era um 550.000 útlendingar í landinu,
löglega eða ólöglega. Austurríkismenn era tæpar 8 miiyónir.
Fijálslyndi flokkurínn (FPÖ) undir forystu Jörgs Haiders hefur
tekið upp málstað útlendingahatara og safnar nú undirskriftum
við áskorun tíl þjóðþingsins um aðgerðir gegn útlendingum og
rétti þeirra. Undirskriftasöfnuninni lýkur á mánudag. Hún hefur
valdið ólgu í þjóðfélaginu og talsmenn FPÖ segja að söfnunin
hafi leitt í (jós ólýðræðislegar tilhneigingar andstæðinga hennar
- stóra stjórnarflokkanna beggja, græningja og kaþólsku kirkj-
unnar.
Samkvæmt nýlegri skoðana-
könnun hugðust 17% Aust-
urríkismanna skrifa undir áskor-
unina og 19% til viðbótar töldu lík-
legt að þau myndu taka þátt í bar-
áttunni. Ungir, lítið menntaðir
verkamenn voru stór hluti þeirra
sem sögðust styðja baráttu Haid-
ers. Jafnaðarmannaflokkurinn
(SPÖ) hefur hingað til átt stuðning
þeirra. Alois Mock utanríkisráð-
herra býst við að um 600.000
manns skrifí undir en það þarf
100.000 undirskriftir til að knýja
þjóðþingið til að fj'alla um áskor-
unina. Haider segir að undirskrifta-
söfnunin takist vel ef 750.000
skrifa undir. Flokkur hans fékk tæp
780.000 atkvæði í síðustu kosning-
um og andstæðingar hans telja
hann verða að fá að minnsta kosti
svo margar undirskriftir til að geta
talað um góðan árangur.
Tyrlgastríðið til einskis
Áskorunin er í 12 liðum og er
kölluð „Austurríki fyrst" (Öster-
reich Zuerst). í henni er þess kraf-
ist: að þess verði getið í stjórnar-
skránni að Austur- _____________
ríki sé ekki innflytj-
endaland; að fleiri
útlendingar fái ekki
að flytja til landsins
fyrr en lausn hefur
fundist á dvöl ólög-
legra útlendinga f landinu, íbúða-
vandinn leystur og atvinnuleysi
komið niður í 5% (það er 6%); að
útlendingar beri nafnskírteini sem
sýna að þeir hafí atvinnuleyfi og
atvinnuveitandi hafi tryggt þá; að
Iögreglumönnum verði fjölgað og
aðstaða þeirra bætt svo að þeir
geti upprætt glæpastarfsemi út-
lendinga og haft hendur í hári ólög-
legra innflytjenda; að sérstök sveit
landamæravarða verði sett á fót;
að í mesta lagi 30% nemenda í
hveijum bekk tali aðra tungu en
þýsku og sérstakir skólabekkir
verði myndaðir ef útlendingar eru
fleiri; að nemendur læri þýsku áður
en þeir taki þátt í venjulegum
kennslustundum; að útlendingar fái
ekki kosningarétt; að útlendingum
verði ekki veittur ríkisborgararétt-
ur of fljótt; að refsing fyrir ólögleg
viðskipti útlendingasamtaka og
misnotkun á félagskerfínu verði
aukin; að útlendum glæpamönnum
verði tafarlaust vísað úr landi og
þeim meinað að heimsækja landið;
að Austur-Evrópustofnun verði sett
á fót til að vinna á móti fólksflutn-
ingum.
Útlendingalöggjöfín í Austurríki
var nýlega hert. Andstæðingar
undirskriftasöfnunarinnar segja að
flestir liðanna í áskoruninni séu nú
þegar í löggjöfínni eða séu ófram-
kvæmanlegir. Þeir segja Haider
aðeins heyja þessa baráttu til að
slá sér upp. Hann hélt fundi víða
í Austurríki núna í vikunni til að
vekja athygli á áskoruninni og þeir
voru vel sóttir eins og venjulega
þegar hann treður upp. Hann er
unglegur, myndarlegur maður á
fertugsaldri og ófeiminn við að
boða þjóðemisstefnu sína. Hann
er oft kallaður hægri öfgasinni,
ekki síst vegna þess að hann telur
Hitler hafa haft ýmsar góðar hug-
myndir og hikar
ekki við að segja
að það séu of
margir ,;Tyrkir“ í
landinu. Hann full-
yrðir nú að Tyrkja-
stríðin á 17. öld
hafí verið háð til einskis ef Austur-
ríkismenn draga ekki úr fyölda og
rétti útlendinga í landinu.
í samtökum frjálslyndra
flokka
FPÖ var lítill, fijálslyndur miðju:
flokkur sem stóm flokkamir, SPÖ
og Þjóðarflokkurinn (ÖVP), gátu
myndað stjórn með áður en Haider
var kjörinn formaður fyrir fímm
ámm. Hann hefur síðan flust svo
langt til hægri að hvomgur flokk-
anna segist vilja mynda með honum
ríkisstjóm. Flokkurinn er meðlimur
í samtökum fijálslyndra flokka,
alþjóðasamtökum sem Fram-
sóknarflokkurinn íslenski er einnig
aðili að, en einhver hreyfing er inn-
BAKSVIÐ
eftir Önttu Bjamadóttur
an samtakanna til að reka flokk
Haiders úr þeim. Talsmaður FPÖ
í Vín sagði að það væri reginmis-
skilningur að flokkurinn væri
hægri öfgaflokkur. Stefna hans
væri raunsæ og baráttan gegn út-
lendingum nauðsynleg.
Meðal dæma sem hann nefndi
um yfirgang útlendinga í Aust-
urríki var krafa um að kross væri
fjarlægður úr skólastofu þar sem
meirihluti nemenda var múslímar.
Hann nefndi líka ófullnægjandi eft-
irlit með þvf að ólöglegir útlending-
ar eða útlendir afbrotamenn sem
er vísað úr landi færu úr landi og
héldu sér í burtu. „Þeim er nú ekið
á Suðurbrautarstöðina, gefnir pen-
ingar og sagt að fara úr landi. En
þeir fara bara út á næstu stoppu-
stöð og halda áfram sínu ólöglega
athæfí.“
Ljósahaf gegn
útlendingahatri
Andstæðingar undirskriftasöfn-
unarinnar gagmýna hana fyrir að
vera baráttu fólks gegn öðru fólki.
Samtökin „SOS samfélagi" (SOS
Mitmensch) voru stofnuð gegn
henni og stóðu fyrir mótmælavöku
í Vínarborg á laugardaginn fyrir
viku. Um 200.000 manns með
kyndla og kerti tóku þátt í henni.
Þátttakan var meiri en nokkru sinni
frá því eftir heimsstyijöldina síðari
og hjarta höfuðborgarinnar breytt-
ist í eitt ljósahaf gegn útlendinga-
hatri.
FPÖ ásakar andstæðinga und-
irskriftasöfnunarinnar um að
hræða fólk og aftra því frá að skrifa
undir áskorunina til þingsins. Tals-
maður flokksins sagði að það væru
dæmi um að starfsfólki væri hótað
brottrekstri ef það skrifar undir og
þrýstingurinn væri svo mikill að
fólk veigraði sér við að fara inn á
bæjar- og borgarskrifstofur þar
sem undirskriftalistamir liggja
frammi ef ljósmyndarar væm þar
fyrir utan. Hann sagði að auglýs-
ingaspjöld um undirskriftasöfnun-
ina hefðu verið rifín niður og á
einum stað í Vín hefðu andstæðing-
ar hennar sett upp lítinn kofa við
hliðina á borgarskrifstofunni og
sagt að það væri líka hægt að skrifa
undir þar og þar með „stolið"
nokkmm undirskriftum.
Þátttakan í undirskriftasöfnun-
inni verður örugglega nægileg til
að knýja þjóðþingið til að taka
áskomn þjóðarinnar á dagskrá. Því
er í sjálfsvald sett hvort það sam-
þykkir hana sem lög eða heldur
um hana þjóðaratkvæðagreiðslu.
Það er ekki meirihluti á þingi fyrir
því. En Haider getur notað söfnun-
ina í kosningabaráttunni á næsta
ári, að minnsta kosti ef árangurinn
verður góður að hans mati.