Morgunblaðið - 31.01.1993, Síða 22

Morgunblaðið - 31.01.1993, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993 23 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Friður um vaxtamál Vaxtastigið er víðar rætt en á íslandi. í Þýzkalandi er stöðugur þrýstingur úr ýmsum áttum á þýzka seðlabankann að lækka vexti. Fyrir nokkrum dög- um voru vextir lækkaðir enn einu sinni í Bretlandi á nokkrum máriuðum en brezka blaðið Fin- ancial Times sagði í leiðara, að vaxtalækkunin kæmi nokkrum mánuðum of seint. Raunvaxtastig hér á landi er nú með því hæsta sem þekkzt hefur þrátt fyrir mikinn sam- drátt í atvinnulífinu. Mörgum hefur þótt bankamir ganga hart fram í vaxtahækkunum í hvert sinn, sem tilefni hefur gefízt til, en að þeir væru tregari til að lækka vexti að sama skapi. Á síðustu þremur árum hafa bank- ar og sparisjóðir lagt í afskrifta- sjóði til að mæta áætluðum töp- uðum útlánum á tíunda milljarð króna. Þetta eru miklir fjármun- ir og á þessu ári má búast við, að þróunin verði sú sama. Vafa- laust hafa bankamenn sjálfir velt því fyrir sér, hvort bankam- ir væm komnir í vítahring hárra raunvaxta og stöðugt hærri út- lánatapa. í ljósi þessara umræðna er athyglisverð grein, sem birtist hér í blaðinu í fyrradag eftir Val Valsson, bankastjóra íslands- banka, þar sem hann hvetur til „víðtækra viðræðna allra hags- munaaðila að freista þess að ná sæmilegum friði í landinu um vaxtamálin“. Hér kveður við nýjan tón. í stað þess að rökstyðja þörf banka fyrir hið háa raunvaxtastig segir Valur Valsson:„Að mínu mati em mik- ilvægustu verkefnin í vaxtamál- um í bráð og lengd þessi: Að lækka raunvexti, að minnka þörf fyrir verðtryggingu, að skapa eðlilegar forsendur fyrir hömlu- lausum fjármagnsflutningum til og frá landinu, að tryggja verð- bréfamarkað í sessi, bæði á lang- tíma- og skammtímaíjármagni og að skapa Seðlabankanum eðlilegt hlutverk í vaxtamálum landsmanna." Bankastjóri íslandsbanka bendir ennfremur á, að atvinnu- lífíð geti ekki til lengri tíma litið búið við svo hátt raunvaxtastig. Hann segir: „í þröngri efnahags- legri stöðu em engin töfralyf til að lækka raunvexti umtalsvert. En til lengri tíma litið er mikil- vægt að flestum sé ljóst, að 7-8% raunvextir á áhættulausum inn- lánsreikningum eða áhættulitl- um verðbréfum em hærri vextir en atvinnulífíð getur keppt við.“ Eftirtektarverð em þau ummæli Vals Valssonar, að „lægri raun- vextir minnkuðu afskriftir lána í bönkum og sparisjóðum og gæfu því færi á minni vaxtamun inn- og útlána“. Framundan em erfiðir kjara- samningar. Ef marka má um- mæli forystumanna verkalýðsfé- laganna má búast við að krafa um vaxtalækkun verði lykilþátt- ur í kröfugerð verkalýðsfélag- anna. Þegar tillaga kemur frá einum helzta banka landsmanna um víðtækar viðræður í því skyni að ná fram vaxtalækkun og friði um vaxtamál er full ástæða til að hefjast þegar handa um slíkar viðræður. I nóvembermánuði sl. lýsti ríkisstjómin yfír vilja til þess að beita sér fyrir vaxta- lækkunum. Eðlilegt er, að hún eða Seðlabankinn hafí forystu um að koma viðræðum um þessi mál af stað. Ekki er eftir neinu að bíða. ATHAFNA- • skáldin eru innblásin fram- kvæmdaþrá. Þau dreymir um að flytja Jerúsalem hugsjóna sinna niður á jörðina. Þau birtast okkur í ýmsum mynd- um. Og í lok þessa kafla er ekki úr vegi að leiða hugann að því sem segir um auðsældina í samtölum Sókratesar í Ríkinu eftir Platón, en þar er fjallað um grundvallarat- riði þjóðfélagsumræðna, þ.e. hvernig við eigum að lifa lífinu. í Ríkinu segir svo í íslenzkum bún- ingi lærdómsrita Bókmenntafé- lagsins: Segðu mér, Kefalos, sagði ég, hvort fékkstu megnið af auðæfum þínum í arf eða jókst við bróður- partinum sjálfur? Þú spyrð hvort ég hafi ávaxtað auðinn, Sókrates, sagði hann. Sem fjáraflamaður stend ég einhvers staðar mitt á milli afa míns og föður. Afi minn og nafni hlaut í arf hér um bil eins mikinn auð og ég á nú og margfaldaði hann. En Lýsanías, faðir minn, eyddi honum svo að hann var orðinn ennþá minni en hann er núna. Ég er sáttur við að skilja ekki eftir minna, heldur þó örlítið meira, handa bömum mínum en ég fékk sjálfur í arf. Ég spyr þig vegna þess, sagði ég, að mér sýnist þú ekki vera svo ýkja elskur að auðinum, en þannig er það oft um menn sem ekki hafa aflað auðs síns sjálfir. Þeir sem augðast af eigin rammleik hafa helmingi meiri mætur á honum en hinir. Líkt og skáldunum er annt um eigin kveðskap og feðrum um böm sín, láta fjáraflamenn sér annt um auðinn vegna þess að hann er verk þeirra sjálfra, auk þess sem þeir kunna að meta nota- gildi hans eins og aðrir menn. Það er líka þreytandi að hafa samneyti við þá, því að þeir fást ekki til að bera lof á nokkum skapaðan hlut nema auðæfi sín. Satt segirðu, svaraði hann. Já, það er víst áreiðanlegt, sagði ég. En segðu mér eitt enn: hvað telur þú að séu mestu lífsgæði sem auðurinn hefur veitt þér? Það er nokkuð sem margir ættu ef til vill erfitt með að trúa, svaraði hann. Þú mátt vita það, Sókrates, sagði hann, að ótti og kvíði yfír hlutum sem áður fyrr ollu engum áhyggj- um hellast yfir þann sem er farinn að búast við endalokunum. Sögur um Hadesarheim, sem áður virtust hlægilegar, um að menn gjaldi þar fyrir misgjörðir sínar í þessu lífí, vekja nú ugg í sálinni, svo að maður óttast að þær kunni að reyn- ast sannar. Og hvort heldur vegna þess að ellin hefur veikt lundina aða vegna þess að það er eins og maður sé kominn í námunda við lífið hinum megin og sjái það skýr- ar, þá vakna alltént hjá manni grunsemdir og ótti læðist að og maður rifjar upp og athugar hvort maður hefur beitt einhvem rang- indum. Sá sem finnur hjá sér marg- ar misgjörðir vaknar títt upp með andfælum eins og bam og lifir í ótta og við illan grun. Sá sem á hinn bóginn veit ekki af neinni misgjörð hjá sér lifir í ljúfri von sem er ellinni holl næring eins og Pindar raunar segir. Hann orðar þetta snilldarlega, Sókrates, þar sem hann segir um þann sem hef- ur lifað réttlátu og heilbrigðu lífi: Hún sem við hjartað ljúflega gælir og leikur, vonin, sem ellina nærir og hvikulum dauðlegra hug heldur í taumi. Þetta er svo vel sagt að undra- vert má kalla. Einmitt fyrir þess- ara hluta sakir tel ég auðsöfnun svo einstaklega mikilsverða. Ekki þó fyrir hvaða aula sem er, heldur fyrir hæfa menn: að láta ekki blekkjast, segja ekki ósatt — ekki einu sinni óvart — skulda engum, hvorki guði né manni, og fara svo héðan óttalaus. Ríkidæmi auðveld- ar allt þetta mjög. Og það hefur reyndar marga aðra kosti. En ég hygg að þegar allt hefur verið veg- ið og metið, Sókrates, sé gildi auðs- ins fyrir skynsaman mann ekki síst fólgið í þessu. Segir Platón í Ríkinu. Innskot frá K.K. Fékk þetta skemmtilega kvæði frá skáldinu þegar Helgispjall um bókmenntaverðlaun hafði birzt í fyrra en þar var þess getið að þau væru engin vísbending um gæði eða mælikvarði á endingu (sum nóbelsskáld hafa gieymzt einsog aðrir!). List er ekki íþróttir; ekki met eða mörk. Hún er af sama toga og trúin. Oftaren ekki verða hinir síðustu fyrstir, eftir lögmál- um sem okkur er ekki ætlað að skilja. Én með skírskotun í kvæði Kristjáns verður að sættast á að víðar er Guð en í Görðum og bók- menntapáfamir vita þá ekkert fyrst þeir vita allt! Ég bað Kristján leyfis að birta kvæðið hér í spjallinu og varð hann vinsamlegast við ósk minni. Að jafna ólíkum skáldum saman eftir stærð (lengd breidd, dýpt) er fánýtt (segir Matthías réttilega. Mbl. 15.8. ’92). Og m.a.o. (segi ég með fullri vissu): dæmi eru villandi og undan- tekning er undantekning af því hún sannar ekkert; sérhvert skáldverk er undantekning; og yfirleitt, að vita ekki væri að leika Guð. Að leika Guð? Ef Guð veit allt þá veit Hann líka ekkert. Kristján Karlsson M (meira næsta sunnudag) HELGI spjall UPPSAGNIR HJÚKR- unarfræðinga og ljósmæðra á Land- spítala, sem taka eiga gildi nú eftir helgina, hafa beint athygli manna að heilbrigðiskerfínu einu sinni enn og kostnaði við það. Ekki fer á milli mála, að neyðarástand skapast í heilbrigðis- þjónustu, takist samningar ekki um þessa helgi. Að baki uppsögn hjúkrunar- fræðinga og ljósmæðra liggur augljós- lega langvarandi samansöfnuð reiði vegna kjaramála. Hvað sem öðrum starfshópum líður er auðvitað ljóst, að þær stéttir, sem hér um ræðir, vinna oft mjög erfíð störf og undir miklu álagi. Frá því, að kjarasamningar voru gerð- ir í febrúar 1990, sem mörkuðu þátta- skil í efnahagsmálum okkar íslendinga á seinni árum, hefur stefnan verið sú, að ekki væri grundvöllur fyrir, að leið- rétta kjör einstakra starfshópa, hversu sanngjamar sem kröfur þeirra kynnu að vera, vegna þess, að slíkar leiðréttingar mundu óhjákvæmilega leiða til þess að upp kæmu kröfur um slíkar leiðréttingar úr öllum áttum. Þótt sumir starfshópar hafí sterkari rök fyrir kröfum sínum en aðrir hefur jafnan verið talið, að erfítt yrði að halda kröfugerð af þessu tagi í skefjum. Það er svo umhugsunarefni, m.a. í ljósi uppsagna hjúkrunarfræðinga og ljós- mæðra, hvort hægt er að halda við þá afstöðu ár eftir ár, að leiðréttingar á kjörum einstakra starfshópa komi ekki til greina. Það var hægt að rökstyðja þá afstöðu í febrúar 1990 á gildistíma þeirra samninga og hefur raunar tekizt í þrjú ár en hve lengi er það hægt? Hvenær kemur að því, að upp úr sýður hjá fólki, sem telur sig órétti beitt? Það er að gerast nú hjá þeim tveimur starfs- hópum, sem hér hafa verið nefndir. Á hinn bóginn er augljóst, að umtals- verðar launabreytingar hjá hjúkranar- fræðingum og ljósmæðram mundu hafa áhrif á kröfugerð í þeim kjarasamning- um, sem framundan eru á hinum al- menna vinnumarkaði. Þetta er sú sjálf- helda, sem ríkisstjóm og stjómendur Landspítala era í. Þessir aðilar kunna að hafa fullan skilning á kröfum hjúkran- arfræðinga og ljósmæðra en þeir standa frammi fyrir því, að verði samið á grand- velli þeirra, er hugsanlega verið að semja um slíkar launahækkanir í þjóðfélaginu öllu. Fyrir þeim launahækkunum er eng- inn grandvöllur eins og allir vita. Raunar má segja, að ríkissjóður sem rekinn er með stórfelldum halla hafí heldur enga peninga til þess að greiða ákveðnum starfshópum launahækkanir nema hægt sé að mæta þeim með niðurskurði ann- ars staðar. Væntanlega hafa menn ekki áhuga á frekari skattahækkunum! Þetta er því ekki einfalt mál. Kröfur starfshópanna tveggja á Landspítala kunna að vera sanngjamar að einhveiju leyti en stjórnvöld eru í spennitreyju og eiga ekki margra kosta völ. Hins vegar vekur það alltaf jafn mikla undran þeirra, sem standa utan við deilur af þessu tagi, hvað tíminn virðist hafa verið illa notað- ur. Hugmyndir á þessu stigi málsins um frestun á uppsögnum til þess að skapa svigrúm til frekari könnunar á efni máls- ins vekja upp spumingar um það, hvers vegna slík könnun hefur ekki farið fram á þeim tíma, sem liðinn er frá uppsögn- um. Þetta gerist hins vegar aftur og aftur í opinbera kerfínu og kannski víð- ar. Satt bezt að segja getur það varla skapað mikið traust í röðum hjúkranar- fræðinga og ljósmæðra að slíkar hug- myndir komi fram á síðustu stundu. REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 30. janúar á í Morgunblaðinu í gær, föstudag, að við íslendingar eram að beijast við sömu vandamálin í heilbrigðisþjónustunni og margar aðrar þjóðir vegna ört vaxandi útgjalda. Nýjasta dæmið um þetta er sú áherzla, sem Clinton, hinn nýkjömi for- seti Bandaríkjanna, leggur á umbætur í heilbrigðiskerfinu, en hann hefur falið eiginkonu sinni forystu fyrir þeirri bylt- ingu, sem stefnt er að í heilbrigðismálum í Bandaríkjunum. í nálægum löndum fara fram ákaflega svipaðar umræður og hér um heilbrigðiskerfíð og kostnað við það. Við vitum að heilbrigðiskerfí okkar er dýrt en það hefur áreiðanlega komið mörgum á óvart, sem lesa mátti hér í blaðinu sl. fímmtudag, að það væri eitt hið dýrasta í heimi. í Évrópuútgáfu bandaríska dagblaðsins Wall StreetJour- nal birtist sl. mánudag tafla yfír útgjöld til heilbrigðismála á mann í dolluram talið í allmörgum löndum. Með aðstoð Þjóðhagsstofnunar setti Morgunblaðið ísland inn á þessa töflu. Þá kom í ljós, að á árinu 1990 var heilbrigðiskerfí okk- ar hið fjórða dýrasta meðal 15 þjóða. Eins og alltaf, þegar svona samanburður er gerður, má vafalaust fínna einhver rök fyrir því, að þessar tölur séu ekki fullkomlega sambærilegar enda erfítt um nákvæman samanburð á milli þjóða, en tölumar gefa áreiðanlega sterka vís- bendingu um, hver staða okkar er. Þær þjóðir, sem búa við dýrara heil- brigðiskerfí en við, era Bandaríkjamenn, Kanadamenn og Svíar. Alkunna er, að heilbrigðisþjónusta í Bandaríkjunum er í miklum ógöngum og allir vita, að Svíar vora komnir svo langt í tómri vitleysu í uppbyggingu margvíslegrar opinberrar þjónustu, að engin þjóð lítur til þeirra nú orðið sem fyrirmyndar í þeim efnum. En hvað veldur því t.d., að útgjöld til heilbrigðismála á mann í dolluram era um 400 dolluram hærri hér en í Dan- mörku? Hafa menn orðið þess varir, að heilbrigðisþjónusta í Danmörku væri lak- ari en hér á íslandi og að svo miklu munaði? Það er augljóst, að við íslendingar sækjum fyrirmyndir okkar að bæði lög- gjöf og opinberam umsvifum almennt til Norðurlandanna. íslenzkir stjómmála- menn og embættismenn og sérfræðingar á ýmsum sviðum era í stöðugum ferðum til Norðurlanda til að sækja þar fundi og önnur mannamót. Og þá höfum við ekki sízt leitað til Dana. Hver er munur- inn á heilbrigðisþjónustunni í Danmörku og á íslandi? Vegna þess tölulega saman- burðar, sem hér hefur verið vikið að, væri fróðlegt að fá það upplýst hvaða skýring getur verið á þessum mismun. Hinn mikli kostnaður við heilbrigðis- þjónustu okkar í samanburði við aðrar þjóðir er einnig umhugsunarefni vegna þess, að mörgum þykir nóg um þann niðurskurð, sem framkvæmdur hefur verið í rekstri sjúkrastofnana á undan- förnum áram. Álmennum borgara, sem kemst í snertingu við heilbrigðiskerfið, sýnist gjaman, að sá niðurskurður hafí gengið of langt á sumum sviðum a.m.k. Atgangurinn hefur verið mikill en er árangurinn í samræmi við það? í viðamiklu heilbrigðiskerfi, sem veltir tugum milljarða á hveiju ári, togast margvíslegir hagsmunir á. Togstreita á milli sjúkrastofnana hefur lengi verið við lýði. Samkeppni á milli spítala er alkunn og hefur kostað skattborgara umtals- verða fjármuni. Hún er ekkert sérís- lenzkt fyrirbæri. í öðram löndum upplifa menn samkeppni á milli spítala um full- komnustu tækni og tæki, sem kostar Dýrt heil- brigðiskerfi SIGHVATUR Björgvinsson, h< brigðisráðherra, benti réttilega það í grein hé: Morgunblaðið/Kristinn gífurlega fjármuni. Einstakir starfshópar innan heilbrigðiskerfisins eiga mikilla íjárhagslegra hagsmuna að gæta í sam- bandi við breytingar á heilbrigðisþjón- ustunni. Ámi Björnsson læknir vék að því í grein hér í blaðinu í gær, föstudag, að tilvísun til Florence Nightingale og Alberts Sweitzers ætti ekki lengur við þegar rætt væri um störf heilbrigðis- stétta. Heilbrigðisþjónustan er orðin meiri háttar atvinnugrein. Á vettvangi hennar era rekin einhver stærstu fyrirtæki á íslandi og kannski höfum við of lengi lokað augunum fyrir því að á starfs- sviði, þar sem svo mikil umsvif era, má finna alveg sömu hagsmunaátökin og fjárhagslegu hagsmunina eins og í öðram atvinnugreinum í samfélaginu. Átökin um kostnað við heilbrigðiskerfið eiga eftir að standa mörg ár enn og því íhug- unarefni, hvort ekki er tímabært að kafa svolítið dýpra í vandamál og rekstur þessarar þjónustugreinar en gert hefur verið fram að þessu. HÉRTÍ MORGUN- blaðinu hefur áður . verið vikið að um- heilbngðis- fjöllun Alice M. kerfinu Rivlin, eins helzta efn ahagsráðgj afa Clintons, um heilbrigðismál. Hún hefur m.a. vikið að því, að ætla mætti að gjald- taka af sjúklingum mundi leiða til þess, að bæði læknar og sjúklingar mundu hugsa meira um kostnaðinn og að minna yrði um óþarfa notkun heilbrigðisþjón- Gjaldtaka í ustu. í því sambandi bendir Alice M. Rivlin á, að gjaldtaka hafí dregið úr óþarfa notkun heilbrigðisþjónustu en hins vegar kunni hún einnig að hafa leitt til þess að fólk, sem þurfí á læknishjálp að halda, hafí verið án hennar og að gjaldtakan hafí leitt mikla erfíðleika yfír fólk með takmörkuð efni, sem eigi við sjúkdómsvanda að stríða. Nýjustu ákvarðanir um gjaldtöku í heilbrigðiskerfi okkar hafa vakið marga til umhugsunar um það, hvort nú sé of langt gengið. Morgunblaðið hefur á und- anfömum misseram mælt með gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu en það hefur verið grandvallaratriði í málflutningi blaðsins, að sú gjaldtaka yrði tekjutengd, þ.e. að þeir, sem hærri tekjur hafa, borgi en aðrir ekki eða mun minna. Þótt ákveðið hámark sé á gjaldtöku hér og gamalt fólk og öryrkjar greiði minna en aðrir er veruleg hætta á, að gjaldtakan í heil- brigðiskerfínu sé komin yfir strikið. Starfsfólk í heilbrigðiskerfínu verður vart við það, að fólk hringir og spyr hvað ákveðin þjónusta kosti og komi svo ekki. Þá hefur þess einnig orðið vart, að starfsfólk telur sér skylt að upplýsa fólk um kostnað áður en þjónusta er veitt til þess að viðkomandi geti fyrirfram tekið ákvörðun um, hvort hann er reiðu- búinn til að greiða uppsett verð fyrir þjónustuna. Þegar heimsókn til sérfræðings kostar um og yfír 2.000 krónur er ekki ólíklegt að margir staldri við. í sumum tilvikum leiðir það til þess, að ekki verður af óþarfa útgjöldum vegna þess, að sjálf- sagt er töluvert um, að fólk leitar til læknis að ástæðulausu. En í öðram tilvik- um getur þessi kostnaður orðið til þess að fólk fer ekki til læknis, sem þarf á því að halda. í umræðum um þessi málefni bæði hérlendis og erlendis er víða vikið að því, að læknar og hugsanlega annað starfsfólk í heilbrigðiskerfinu hafí bein- línis fjárhagslega hagsmuni af því að beina sjúklingi í hveija rannsóknina á fætur annarri eða hvert viðtalið á eftir öðra og að það geti verið álitamál, hvort slíkt sé nauðsynlegt. Kerfíð sé hins veg- ar þannig úr garði gert, að það geti að hluta til verið eins konar sjálftöku launa- kerfi. Sjálfsagt er eitthvað um þetta. Á hinn bóginn era svo miklar kröfur gerð- ar til lækna, og á seinni árum eiga þeir yfír höfði sér málssókn, ef þeim verða á mistök, að skiljanlegt er, að læknir vilji ganga rækilega úr skugga um, að allt sé með felldu hjá viðkomandi sjúklingi. Allt era þetta álitamál. Það era engar töfralausnir til. Heilbrigðiskerfíð þarf sterkt aðhald. Fólkið í landinu vill hins vegar gott heilbrigðiskerfí og kann því illa að of langt sé gengið í niðurskurði á þjónustu þess. Atgangurinn mætti vera minni en þeim mun meiri vinna lögð í raunveralegar umbætur. Kannski er tímabært að kostnaður við heilbrigðis- kerfíð sé greiddur með sérstökum skatti en ekki af almennri skattheimtu, þannig að hver og einn skattborgari verði þess áþreifanlega var, hvað þessi þjónusta kostar. Það er oft bezta aðhaldið. „ Morgunblaðið hefur á undan- förnum misserum mælt með gjald- töku í heilbrigðis- kerfinu en það hefur verið grundvallaratriði í málflutningi blaðsins, að sú gjaldtaka yrði telgutengd, þ.e. að þeir, sem hærri tekjur hafa, borgi en aðrir ekki eða mun minna. Þótt ákveðið hámark sé á gjaldtöku hér og gamalt fólk og öryrkjar greiði minna en aðrir er veruleg hætta á, að gjaldtakan í heilbrigðiskerf- inu sé komin yfir strikið.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.