Morgunblaðið - 31.01.1993, Side 24

Morgunblaðið - 31.01.1993, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993 KVIKMYNDIR/Nýjasta spennumynd leikstjórans Alans J. Pakula heitir „ Consent- ing Adults“. Kevin Kline fer með hlutverk sakleysingjans, skúrkinn leikur Kevin Spacey. Konurþeirra kumpána leika Mary Elizabeth Mastrantonio og Rebecca Miller. Leikstjórinn Alan J. Pakula (t.v.) leiðbeinir aðalleikurunum Kevin Kline og Mary Elizabeth Mastrantonio á tökustað. Meistari sálar- Hættulegir nágrannar NÝJASTA spennumynd Alans J. Pakulas, „Consenting Adults“, er væntanleg til sýninga í Sambíóunum innan tíðar. Myndin fjallar um farsæl miðstéttarhjón og það sem gerist þegar þriðji aðili hagnýtir sér duldar langanir þeirra í eigin þágu. Hér segir af fólki sem dregið er á tálar og óvæntri niðurstöðu af þeim táldrætti. Richard Parker (Kevin Kline) og kona hans Priscilla (Mary Elizabeth Mastrantonio) kynntust í háskóla og gengu í hjóna- band að námi loknu. Þau búa í fallegu húsi í góðu hverfi, eiga myndarlega dóttur á táningsaldri og reka arðvænlegt auglýs- ingafyrirtæki. Líf þeirra hefur einkennst af þrot- lausri vinnu við uppbygg- ingu auglýsingastofunnar, þau rétt' hafa undan að greiða reikninga og það er aldrei neitt afgangs til að fara í skemmtilegt frí, ekki einu sinni rómantíska helg- arferð. Líf þeirra er við- burðasnautt og vanabundið. Þau gætu vel hugsað sér að njóta einhvers af allri þeirri spennu og rómantík sem nýju nágrannamir, Eddy og Kay Otis (Kevin Spacey og Rebecca Miller) virðast eiga í svo ríkum mæli. í hlaði hjá Otis hjónunum stendur þýskur sportbíll og glæsilegur hraðbátur af fínustu gerð. Þau guma af viðburðaríkum æv- intýraferðum og dag- legt amstur lífsins virðist ekki íþyngja þeim hið minnsta. Það er því ekki að furða að hversdagsleg tilvera Parker-hjónanna blikni í sam- anburði við þessa dýrð. Kynni takast með ná- grönnunum og Parker-hjón- in láta fljótlega glepjast af áhyggjulausri og viðburða- ríkri tilveru Otis-hjónanna. Þau taka upp nýja siði og laga sig að ævintýralífemi því sem viðgengst hjá herra og frú Otis. Þar kemur sögu að Eddy Otis manar Richard Parker til að taka áhættu- sama ákvörðun, Richard er hik- andi í fyrstu lætur hafa sig út í að voga öllu sem hann á til þess eins að láta eftir óstjórn- legri þráhyggju sinni. Það kemur á daginn að Eddy Otis hefur notfært sér sakleysislega einfeldni ná- granna síns og Richard Par- ker er sakaður um glæp sem hann hefur ekki drýgt. Flæktur í lyga- og svikavef verður Richard að horfast í augu við ógnvekjandi sann- indi. Við tekur æðisgengið kapphlaup þar sem Parker verður að leggja allt undir til að bjarga sjálfum sér og fjölskyldu sinni, ella eru þeim búin ill örlög. í þeirri tryllingsför kemst hann að ýmsu miður fallegu um fjöl- skyldu sína, vini og ekki síst sjálfan sig. Kevin Kline hefur sagt að sér hafí þótt gaman að fara með hlutverk sakleys- ingjans Richards Parkers. „Hann er svo stífur per- sónuleiki og þess vegna er gaman að leika hann. Flest- ir tjá sig þannig að þeir afneita sínum innstu tilfinn- ingum og þörfum. Þetta á einmitt við um Richard, hann er alltaf með grímu. Richard fínnst Eddie Otis óttalaus og fylginn sér. Honum þykir það eftirsókn- arverðir eiginleikar, því sjálfur er Richard varkár og til baka. Hann lætur blekkjast af krafti Eddys.“ Virtur leikari, með fjölþætta leikreynslu, í aðalhlutverki spennunnar LEIKSTJÓRI og framleiðandi myndar- innar „Consenting Adults“, er Alan J. Pakula. Hann á fjölda stórmynda að baki, bæði sem framleiðandi, leikstjóri og höf- undur. Pakula hefur tvívegis verið til- nefndur til Óskarsverðlauna og hlotið margar viðurkenningar fyrir verk sín. Nágrannar Með þeim tókst góð vin- átta, en hún endaði með heldur nöturlegum hætti. F.v.: Rebecca Mill- er, Kevin Kline, Mary Elizabeth Mastran- tonio og Kevin Spacey. ÓSKARSVERÐLAUNAHAFINN Kevin Kline fer með aðalhlutverk í „Consenting Adults“. Hann starfaði síðast með leikstjóranum Alan J. Pakula við gerð myndarinnar „Sophie’s Cho- ice“ og var þá tilnefndur bæði til Golden Globe verðlaunanna og til að hljóta viðurkenningu Bresku kvikmyndaakademíunnar. Kline hefur leikið áður á móti Mary Elizabeth Mastran- tonio, sem fer með hlutverk eiginkonu hans í þessari mynd. Það var í kvikmyndinni „The January Man“ og í uppfærslu Delacorte leik- hússins í New York á Hinrik 5.. Kevin Kline nam leiklist við Juilliard Drama Center og gerðist síðan sviðsleikari og ferðaðist með leikhópum vítt og breitt um Bandaríkin. Hann tróð fyrst upp á Broadway árið 1978 í söngleiknum „On the Twentieth Century" og hlaut mikið lof fyrir. í kjöl- farið fylgdu fleiri Broadway uppfærslur og enn fleiri viðurkenningar. Eftir frækilegan leik á móti Meryl Streep í mynd- inni „Sophie’s Choice" fýlgdu kvikmyndir sem vöktu mismikla athygli, þeirra á meðal „The Big Chill“, „Silverado“, „I Love You to Death" og „Grand Canyon". Leikhúsið var aldrei langt undan, þrátt fyrir æ fleiri kvikmynda- hlutverk, og Kevin Kline lék aðalhlutverk í nokkrum Pakula nam sálfræði og leiklist við Yale háskólann. Að námi loknu flutti hann til Hollywood og gerðist aðstoðarmaður for- stjóra Wamer bræðra. Hann framleiddi sína fyrstu kvikmynd „Fear Strikes Out“ árið 1957, leikstjóri hennar var Robert Mulligan. Þetta var upphafið á árang- ursríku samstarfi og gerðu þeir félagamir sex kvikmyndir saman, þeira á meðal „To Kill a Mockingbird", „The Stalking Moon“ og „Up the Down Staircase". urkenningar. Jason Robards hlaut Óskars- verðlaun fyrir leik sinn í þeirri mynd. Frumraun Pakula í kvikmyndaleikstjóm var myndin „The Sterile Cuckoo" með Lizu Min- elli í aðalhlutverki, sem hann gerði 1969. Pa- kula er á heimavelli, ef tillit er tekið til mennt- unar hans og starfsfer- ils, í myndum hans sem kallaðar hafa verið „of- sókaræðis-feman“: „Klute“, „The Parallax View“, „All The Presid- ent’s Men“ og „Pres- umed Innocent". Þar veltir hann fyrir sér sál- fræði mannlegrar þrá- hyggju og spillingu meðal valdamanna. Meðal annarra at- hyglisverðra mynda Pa- kula má nefna „Sophie’s Choice“ og var hann til- nefndur til Óskarsverð- launa fyrir þá mynd. Meryl Streep sópaði að sér verðlaunum, þeirra á meðal Óskamum, fyr- ir leik sinn í myndinni. Aftur var Pakula til- nefndur til Óskarsverð- launa fyrir „All the President’s Men“, auk þess sem hann hlaut verðlaun gagnrýnenda í New York og fleiri við- „Consenting Adults“ - Enn um þráhyggju Það er ekki fjarri lagi að segja að nýjasta stór- mynd Pakulas, „Consent- ing Adults" komi í beinu framhaldi af „ofsókna- ræðis-femunni“ fyrrt- öldu. „.Consenting Ad- ults’ er kvikmynd um þráhyggju - hvemig þrá- hyggja viðkvæms manns rekur hann inn í atburða- rás sem hann verður að lifa af,“ segir Pakula. „Undir þessum kringum- stæðum kynnist hann nýjum þáttum í fari sínu.“ Sálarspenna er eins konar vörumerki Alans J. Pakula enda segir hann sjálfur: „Framar öðrum myndgerðum nálgast spennumyndin það að vera draumkennd, líkist jafnvel martröð. En það er leið út úr martöð- ðm af þessu tagi. Áhugi minn vaknaði um leið og ég las handrit Chapmans að þessari mynd. Ég sá að i þessu efni var næg orka til að endast mér þá eilífð sem það tekur að gera kvikmynd." Leikarinn Kevin Kline fer með hlut- verk Richards Parker í „Consenting Adults“. Hann verður að taka á öllu sem hann á til að bjarga fjöl- skyldu sinni. Shakespeare uppfærslum, þar á meðal í „Hamlet", „Ríkharði 3.“ og „Hinrik 5.“. Kevin Kline hefur tvisv- ar fengið hin eftir Obie- verðlaun fyrir sviðsleik. Árið 1988 hlaut Kevin Kline Óskarsverðlaun fyrir aukahlutverk sem geðveikur leigumorðingi í kvikmynd Johns Cleese „A Fish Called Wanda“. Árið eftir hlaut hann William Shakespeare verðlaunin fyrir sígilda leik- list, var það viðurkenning fyrir framlag hans á leik- sviði. Nýlega leikstýrði Kline og lék aðalhlutverk í uppfærslu á „Hamlet" í New York Public Theatre. Þessi leiksýning hlaut hvorki fleiri né færri en fimm Drama Desk verðlaun, þar af fékk Kline sjálfur tvenn verðlaun, fyrir leikstjórn og aðalhlut- verk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.