Morgunblaðið - 31.01.1993, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993
t
f
o a + Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ANDRES ANDRESSON, Sprtalastig 1A, lést þann 18. janúar í Borgarspítalanum. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Elsa Eiríksdóttir, Andrea Andresdóttir, Gunnar Friðriksson, Elsa Gunnarsdóttir, Þóra Kristfn Gunnarsdóttir, Steinn Gunnarsson,
t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpsonur og bróðir, SIGURGÍSLI JÖRGEN EINARSSON, Larsbergsvágen 48, Lidingö, Svíþjóð, lést á heimili sínu miðvikudaginn 27. janúar. Maj Britt Einarsson, Jannett Einarsson, Sigrún Einarsdóttir, Ragnheiður 1. Einarsdóttir, Ingi Dóri Einarsson, Jónfna Þóra Einarsdóttir, Guðbjört Jóhanna Einarsdóttir.
+ Útför HARALDAR SKÚLASONAR NORÐDAHLS fyrrverandi tollvarðar, Bergstaðastræti 66, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. febrúar kl. 10.30. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Elskulegur bróðir minn, mágur og frændi, EGILL ORMAR KRISTINSSON málari, Sólvallagötu 27, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 2. febrúar kl. 13.30. Guðrún Kristinsdóttir, Sigurður Söebeck. Sofffa Margrét Hrafnkelsdóttir, Þorlákur Jónsson, Egill Þorláksson.
+ Elskulegur faðir okkar, GUÐMUNDUR S. KRISTINSSON, Laufásvegi 60, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 2. febrúar kl. 15.00. GuðbjÖrg Birna Guðmundsdóttir, Unnur Berglind Guðmundsdóttir.
+ Hjartkær móðir, tengdamóðir og amma, GUÐLAUG TÓMASDÓTTIR frá Hrútafelli, vistmaður á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, lést í Borgarspítalanum fimmtudaginn 21. janúar. Jarðarförin fer fram frá Bústaðarkirkju þriðjudaginn 2. feþrúar kl. 15.00. Rútur Eggertsson, Bergljót Einarsdóttir, Jóhannes Eggertsson, Vilborg Þorsteinsdóttir og barnabörn.
+ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞORVALDAR JÓNSSONAR, Hólmgarði 12. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki hjúkrunardeildar Hátúni 10b. Margrét Gísladóttir, Ingibjörg Þorvaldsdóttir, Jens Kristjánsson, Kristfn Þorvaldsdóttir, Sigurður Ólafsson, Gfsli Þorvaldsson, Elfn Gunnarsdóttir, Jón Þorvaldsson, Helga Jónsdóttir, Karen Þorvaldsdóttir, Jakob Steingrfmsson, Ásgeir Þorvaldsson, Halldóra Ásgeirsdóttir, Ragnar Þorvaldsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Sigurður Þorvaldsson, Sigrfður Ingólfsdóttir, Hildur Þorvaldsdóttir, Baldur Hreinsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Sigurður Jón Guð■
mundsson
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Grátnir til grafar
gönpm vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja' í friðarskaut.
(V. Briem.)
Hjartans þökk fyrir allt. Guð
geymi þig.
Þinn einlægur vinur,
Bíbí.
Að morgni hins 22. janúar feng-
um við þær fregnir að afí minn
væri mikið veikur. Seinna um dag-
inn kvaddi hann þennan heim. Afí
var á 98. aldursári.
Afí bjó ásamt ömmu á Urðarstíg
6 í Reykjavík og fluttust þau þaðan
fyrir einu og hálfu ári á Hrafnistu
í Reykjavík og eyddi afi síðustu
ævistundum sínum þar.
Þegar maður heimsótti afa og
ömmu var alltaf tekið á móti manni
með miklum kærleika og fögnuði.
Afí sat inni í stofu, annaðhvort að
raða úrklippum, skrifa sögur eða
las á meðan húsið fylltist af pönnu-
kökulimi úr eldhúsinu, þar sem
amma var að baka. Afí var mikið
snyrtimenni og passaði að hafa röð
og reglu á hlutunum, hvort sem var
inni eða fyrir utan húsið. Naut afi
þá góða veðursins á meðan hann
málaði grindverkið, dyttaði að hús-
inu og lagfærði það sem laga þurfti.
Hann afi hafði gaman af að rölta
niður í bæ í góu veðri. Hitti hann
þá gamla kunningja og var rabbað
um gömlu góðu dagana.
í gamla daga hafði afí gaman
af að dansa og vann hann til nokk-
urra verðlauna. Sagði hann okkur
margar sögur um það ásamt öðrum
sögum, því afí hafði gaman að segja
frá gömlu dögunum. Fannst okkur
gaman að hlusta, því hann sagði
skemmtilega og vel frá.
En í dag kveðjum við elsku afa
okkar og biðjum guð að styrkja
ömmu í hinni miklu sorg. Afí var
orðin veikur og mikið þreyttur, en
nú er hann farinn til guðs og er
hvíldinni feginn.
Mig hefur ljúfur lausnarinn
leitt inn í náðar grasgarð sinn,
vakandi svo ég væri hér.
Vitni skímin mín um það ber.
Vaktu minn Jesú, vaktu í mér.
Vaka láttu mig eins í þér,
Sálin vaki, þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
Ó, Jesú séu orðin þín
andláts síðasta hugpn mín.
—Minning
Sál minni verði þá sælan vís
með sjálfum þér í Paradís.
(Hallgrímur Pétursson)
Eli og Júlíus.
Á morgun, mánudag, er borinn
til grafar Sigurður Jón Guðmunds-
son er lést á Hrafnistu í Reykjavík
22. janúar síðastliðinn. Það er erfítt
að minnast svo margbrotins og
merkilegs manns, eins og Sigurður
var, í fáum orðum, enda hafði Sig-
urður lifað margt um langa ævi.
Ég var svo lánsamur að kynnast
Sigurði og konu hans, Gyðu, fyrir
10 árum er ég heimsótti þau á
Urðarstíginn ásamt eiginkonu
minni. Það var henni kappsmál að
kynna mig sem fyrst fyrir afa sínum
og ömmu, enda dáði hún þau og
voru miklir kærleikar þeirra á-milli.
Það er óhætt að sgja að mér hafí
verið vel tekið og ég varð strax sem
einn af fjölskyldunni. Áttu heim-
sóknirnar eftir að verða margar í
gegnum árin og alltaf varð það jafn
ánægjulegt að koma á Urðarstíg-
inn.
Ég minnist stundanna er við sát-
um tveir karlmennimir inni í stofu
og töluðum saman, meðan konumar
vom frammi í eldhúsi. Sigurður
hafði gaman af að segja sögur af
sér og af sínum yngri ámm, enda
hafði hann upplifað margt á langri
ævi. Hann var einstaklega
skemmtilegur sögumaður og það
var eins og maður upplifði söguna
í gegnum hann er hann sagði frá.
Sigurður kom alltaf fram við
okkur unga fólkið sem jafningja og
ég fann ekki fyrir kynslóðabili, er
við ræddum saman, þó að um 70
ár væm á milli okkar. Svona eigin-
leika hafa bara fáir menn.
Sigurður var duglegur að skrá
niður endurminningar sínar og gaf
hann út tvær bækur með endur-
minningum, Til sjós og lands og
Ferðabrot. Hann átti þó enn mikið
efni sem hann hafði skráð niður.
Sigurður þurfti að hafa fyrir líf-
inu. Hann missti þijár konur um
ævina úr veikindum og þurfti einn-
ig að sjá á eftir bömum, en aldrei
lét hann bugast, og hélt sínu striki.
Sigurður vann mörg störf um
ævina, var m.a. við bústörf og til
sjós, en lengst af var hann verka-
maður hjá borginni. Hann var virtur
og honum var treyst af félögum
sínum. Gegndi hann margoft trún-
aðarstörfum fyrir þá og tók virkan
þátt í verkalýðsbaráttu.
Það er með söknuði sem ég kveð
góðan dreng sem horfínn er á vit
feðra sinna, en minningin lifir alltaf
áfram um allar þær góðu stundir
sem við áttum saman.
Elsku Gyða, ég bið góðan Guð
að styrkja þig og treysta og hug-
hreysta á þessari erfíðu stundu.
Gunnar.
Mig langar að minnast hans afa
míns Sigurðar J. Guðmundssonar,
sem að öllum öðmm ólöstuðum var
besti afi í heimi. Mínar fyrstu minn-
ingar um afa minn em þegar ég
bjó í bakhúsinu á Urðarstíg og hann
var að byija að kenna mér stafína
aðeins fjögurra ára gamalli. Og
þegar ég hafði flust í Mávahlíðina
sendi hann mér í fimm ára afmælið
ijómatertu sem hann pantaði úr
bakaríinu og lét senda mér í afmæl-
ið, öllum að óvörum. Svona var
hann afí minn. Ég man hvað það
var gaman að koma til afa og ömmu
á Urðarstíg, spila við afa eða hlusta
á hann segja sögur og amma inní
eldhúsi að baka pönnukökur.
Alltaf var afí kátur og glaður og
tilbúinn að taka á móti mér og
ræða málin ef eitthvað bjátaði á.
Og alltaf var hann með lausnir á
reiðum höndum. Það var mikill
fengur fyrir litla stúlku og seinna
ungling að eiga slíkan afa að, með
alla sína visku og lífsreynslu að
miðla af.
Afí hafði lifað margt, og var
hann duglegur að skrá niður minn-
ingar sínar. Hafa komið út eftir
hann tvær bækur, Til sjós og lands
og Ferðabrot.
Ég á margar góðar minningar
um hann afa minn og mun ég
geyma þær með mér alla ævi. Elsku
amma þú átt nú um sárt að binda
á þessari erfíðu stundu og ég bið
guð að styrkja þig og varðveita.
Guð blessi minninguna um hann
afa minn.
Nú legg ég augun aftur,
Ó, Guð þinn náðar kraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engill, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjöm Egilsson)
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll bömin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson)
Gyða.
Föstudaginn 22. janúar síðastlið-
inn barst mér sú fregn, að afí væri
+ &\óm, kransar
Innilegar þakkir til allra þeirra sem heiðruðu minningu KRISTRÚNAR ÓLAFSDÓTTUR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. oq skreytingar. Opið til kl. 22.
Guð blessi ykkur öll. BLÓnTriLFímJHH
Sveinbjörg Arnmundsdóttir, systkini og frændfólk. Vesturgötu 4, sími 622707
1
+ Bestu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og jarðarför systur okkar og mágkonu, JÓNU B. BJARNADÓTTUR, Meistaravöllum 35, Reykjavík. Hjúkrunarliði Landspítalans þökkum við frábæra umhyggju. 1 Verð kr. 800,-
Hallargarðurinn
Friðgerður E. Bjarnadóttir, Skarphéðinn S. Bjarnason Sigríður Karlsdóttir, Jón Olafur Bjarnason, Þorgerður M. Gfsladóttir. 1 Húsi verslunar, sími 678555.
t
I