Morgunblaðið - 31.01.1993, Page 37
KVIKMYNDIR/Ellefu daga kvikmyndahátíð Regnbogans í samvinnu við Hvíta
tjaldið, hófsl t í gær/Bandaríska myndin „Reservoir Dogs“, eða Svikráð, var við
opnunina. Margir gagnrýnendur telja hana meðal bestu mynda ársins 1992.
„Reservoir Dogs“ - ofbeldisfull
frumraun hjá ungum leikstjóra
BANDARÍSKA kvikmyndin „Reservoir Dogs“,
var frumsýnd í Regnboganum í gær, en þá
hófst ellefu daga kvikmyndahátíð Regnbogans
í samvinnu við Hvíta tjaldið, sem er nýstofnað-
ur kvikmyndaklúbbur framhaldsskólanema.
„Reservoir Dogs“ er metnaðarfull frumraun
hins 29 ára gamla leikstjóra og höfundar hand-
rits myndarinnar, Quentins Tarantinos, sem
einnig leikur eitt aðalhlutverkanna. Myndin er
raunsæ og ofbeldisfull lýsing á samskiptum
nokkurra atvinnuþjófa, og hefur hún hlotið
mikið lof gagnrýnenda í Bandaríkjunum frá
því hún var frumsýnd fyrir áramótin. I aðal-
hlutverki myndarinnar er Harvey Keitel, sem
nýlega sást á hvíta tjaldinu í „Bugsy“, en með-
al annarra leikenda eru Tim Roth, Chris Penn,
Stéve Buscemi, Lawrence Tierney og Michael
Madsen.
I„Reservoir Dogs“ er mæ-
listikan sett á vináttu-
bönd og trúnaðartraust milli
nokkurra glæpamanna sem
hóað er saman til að fremja
skartgriparán af stærri
gerðinni, en sögusviðið er
Los Angeles nútímans þótt
engin ákveðin tímasetning
sé í raun í myndinni. Eftir
ránið gerir lögreglan hópn-
um gerð og þá rennur það
upp fyrir nokkrum skúrk-
anna að þeir hafí verið leidd-
ir í gildru. Myndin þróast
síðan í það að verða nokk-
urs konar könnun á sálarlífi
karlmanna og greiningu á
hugarfari afbrotamanna,
þegar hópurinn reynir að
komast að því hvað það var
sem olli því að hið þaulskipu-
lagða rán fór út um þúfur.
Það er atvinnuþjófurinn
Joe Cabot (Lawrence Tiem-
ey) sem er heilinn á bakvið
skipulagningu skartgripar-
ánsins. Ásamt syni sínum,
Nice Guy Eddie
(Chris Penn), smal-
ar hann saman hópi
atvinnuglæpa-
manna til að ræna
demantaheildsala, en menn-
irnir sem fyrir valinu verða
þekkjast ekki innbyrðis.
Hver mannanna sex sem
valinn er til verksins fær
sitt dulnefni og til þess að
draga úr líkum á því að rán-
ið mistakist er þeim uppá-
lagt að ræða ekki fortíð sína
eða nokkuð annað sem gæti
gefíð til kynna hveijir þeir
í raun og veru eru. Það sem
Joe hefur verið heitið í þókn-
un fyrir að vinna verkið
nægir til að tryggja fjár-
hagslega framtíð þeirra
allra og meira til.
Skartgriparánið hefur
mjög ofbeldisfullar afleið-
ingar í för með sér fyrir þá
sem að því standa. Allt
gengur að óskum þar til
þeir flýja af vettvangi, en
þá rekur þá í rogastans þeg-
ar þeir komast að
því að lög-
Átök innan hópsins
Fullir tortryggni hver í garð annars reyna þjófamir að
komast að því hvort svikari sé á meðal þeirra.
reglan situr um þá. í vöm- meðan þeir bíða eftir að
skemmu sem þeir höfðu
ákveðið að hittast í eftir
ránið safnast ræningjamir
saman, en þangað komast
þeir þó ekki allir heilir á
húfí. Einn er skilinn eftir
dauður á vettvangi ránsins,
eins er saknað, og sá þriðji
er alvarlega særður. Á
hitta Joe og Nice Guy Eddie
Leikari
Tim Roth í hlutverki sínu
sem einn skartgripaþjóf-
anna í „Reservoir Dogs“
og tilkynna þeim mistökin,
kemur upp ágreiningur á
milli þeirra sem komust af,
og smám saman kemur í ljós
að þeir hafa verið sviknir.
Einn af öðram reyna menn-
imir að fá einhvem botn í
þær kringumstæður sem
þeir era orðnir hluti af, og
í kjölfarið fylgir svo röð
skelfílegra og magnþrang-
inna árekstra milli mann-
anna þegar þeir fyllast æ
meiri tortryggni hver í ann-
ars garð í kjölfar þess að
þeir fara yfír ránið og reyna
að komast að því hvort svik-
ari sé á meðal þeirra.
Leikstjóri myndarinnar
leggur fyrir róða allar hefðir
sem ríkt hafa í ránsmyndum
fram til þessa með því að
sneiða alveg hjá ráninu
sjálfu og beina athyglinni í
staðinn að því sem fylgir í
kjölfar þess. Úr verður sál-
fræðilegt drama þar sem
ofsóknaróðir skúrkamir
greina hver af öðram frá
eigin upplifun atburða í því
skyni að komast að því hver
gæti verið svikarinn sem gaf
Jögreglunni vís-
bendingu um
þá.
Aðalleikarinn
Harvey Keitel í hlutverki sínu
í „Reservoir Dogs“.
Oragur að
veðja á
óþekkta
leikstjóra
HARVEY Keitel, sem
leikur aðalhlutverkið í
„Reservoir Dogs“ og er
einnig meðframleiðandi
myndarinnar, er einn af
þekktari leikurum í
Bandaríkjunum.
|ann hóf feril sinn á sjö-
unda áratugnum þeg-
ar hann svaraði auglýsingu
frá leikstjómamema sem
leitaði eftir leikurum í sína
fyrstu kvikmynd, en sá var
Martin Scorsese og heiti
myndarinnar „Who’s That
Knocking At My Door?“.
Fimm árum seinna lék Harv-
ey Keitel svo í mynd Scors-
ese, „Mean Streets", sem
naut mildllar aðsóknar um
allan heim.
Á næstu áram lék Harvey
Keitel í þremur öðram mynd-
um sem Scorsese leikstýrði,
en það era myndimar „Álice
Doesn’t Live Here Any-
more“, „Taxi Driver", þar
sem hann lék á móti Robert
De Niro, og „The Last
Temptation Of Christ". Keit-
el hefur leikið í fyrstu mynd-
um nokkurra leikstjóra, og á
meðal þeirra eru Ridley Scott
(„The Duellists") og Paul
Schrader („Blue Collar“).
Handritið var skrifað eins og skáldsaga
QUENTIN Tarantino, leikstjóri og handrits-
höfundur „Reservoir Dogs“, er nafn sem skot-
ist hefur upp á stjörnuhimininn I kvikmynda-
heiminum með ógnarhraða frá því að sýning-
ar á myndinni hófust í Bandaríkjunum. Hann
hóf feril sinn sem aukaleikari í sjónvarps-
myndum, en fyrir sex árum síðan sneri hann
við blaðinu og byijaði að skrifa kvikmynda-
handrit, og þótt hann væri ekki menntaður á
sviði kvikmyndagerðar hafði hann hug á að
leikstýra þessum verkum sínum sjálfur.
P arantino vann fyrir sér
um sex ára skeið í
myndbandaverslun í Los
Angeles, og þar skrifaði
hann sitt fyrsta kvikmynda-
handrit. Fleiri handrit
fylgdu síðan í kjölfarið, og
eitt þeirra, „Past Midnight",
komst á hvíta tjaldið, en í
þeirri mynd léku þau Rutger
Hauer og Natasha Richard-
son. Fastákveðinn í þvi að
öðlast frama sem kvik-
myndagerðármaður ekki
síður en handritshöfundur
skrifaði hann síðan handrit-
ið að „Reservoir Dogs“
haustið 1990 með það í
Leikstjórinn og höfundurinn
Quentin Tarantino, höfundur og leikstjóri „Reservoir Dogs“
ieikur einnig eitt aðalhlutverkanna í myndinni.
huga að leikstýra sjálfur.
Ásamt félaga sínum, Lawr-
ence Bender, sem er fram-
leiðandi myndarinnar, hóf
hann tilraunir til að íjár-
magna gerð hennar, og
fljótlega tókust samningar
þar að lútandi. Ungir og
upprennandi leikarar sýndu
mikinn áhuga á því að taka
þátt í gerð myndarinnar, og
fljótlega beindust sjónir
þeirra félaganna að hinum
þrautreynda Harvey Keitel
í aðalhlutverkið. Hann
reyndist svo vera til í tuskíð
og aðstoðaði hann við fjár-
mögnun myndarinnar og val
á leikuram í önnur aðalhlut-
verk, en jafnframt tók hann
að sér að verða meðfram-
leiðandi myndarinnar.
Tarantino segir að hin
sígilda mynd Stanleys
Kubricks frá 1956, „The
Killing", hafí á vissan hátt
verið kveilqan að „Reservoir
Dogs“. Handritið skrifaði
hann á þann hátt að áhorf-
andinn hefur á tilfínning-
unni að hann sé að lesa
skáldsögu með ákveðnum
kaflaheitum þegar farið er
fram og aftur í tíma í atrið-
um myndarinnar.
„Þetta era aðskildar sög-
ur -um það hvernig hver einr.
stök persóna myndarinnar
getur eða getur ekki sloppið
af vettvangi glæpsins. Þar
sem mennimimir þekktust
ekkí áður er engin vísbend-
ing um það hver gæti hafa
leitt þá í gildra. Hver þeirra
hefur sitt dulnefni og þeir
klæðast allir eins, en eftir
því sem kaflamir koma
fram hver af öðram öðlast
áhorfandinn skilning og inn-
sæi í hveija persónu. Þetta
er gróf saga en einnig ansi
fyndin, og í raun og vera
er „Reservoir Dogs“ reyfar-
inn sem mig langaði alltaf
að skrifa," segir Tarantino.