Morgunblaðið - 31.01.1993, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 31, JANÚAR 1993
38
KNATTSPYRNA
Bidin senn
á enda?
MANCHESTER United er líklega vinsælasta félag enskrar
knattspyrnu, og það félag þarlent sem á sér flesta áhang-
endur erlendis. Það hefur lengi ríkt mikill glæsileiki og
reisn yfir félaginu; peningar eru nægir, en United er lýs-
andi dæmi um að þeir eru ekki nóg — meistaratitlar fást
ekki keyptir. Þrátt fyrir að félagið geti, og hafi keypt nán-
ast hvaða leikmann sem er, hvenær sem er, hefur árangur-
inn látið á sér standa undanfarin ár. Liðið hefur reyndar
þrívegis orðið bikarmeistari á sfðustu árum og Evrópu-
meistari bikarhafa fyrir tveimur árum, en United hefur
ekki orðið enskur meistari síðan 1967 — í 26 ár — og það
þykir auðvitað alltof, alltof langur tími þar á bæ. En nú
þykja ýmis teikn á lofti um að breyting sé á að verða;
United leikur mjög vel um þessar mundir, alit gengur félag-
inu í hag og spekingar, í það minnsta þeir sem hafa taug-
ar til liðsins, vilja spá því að það verði enskur meistari í
vor. Og sumir ganga svo langt að spá því að i uppsiglingu
sé hálfgert „AC-Milan tfmabil11 á Englandi, þar sem yfir-
burðir United eigi eftir að verði þeir sömu næstu árin og
Mílanó-liðið hefur nú á Ítalíu.
Fríður flokkur snjallra knatt-
spymumanna hefur verið
keyptur til félagsins síðasta áratug,
en svo virtist á tíma-
Sk i bili að um leið og við-
Hallgrímsson komandi gengu inn
skrífar um aðaldymar á Old
Trafford gufuðu þeir
hreinlega upp. Frammistaðan varð
slök, meiðsli heijuðu á marga. í
stuttu máli: allt virtist vera á móti
félaginu og leikmönnunum. Nema
íjármálin vitaskuld; þau hafa verið í
lagi, en það sem alla dreymir um —
Englandsmeistarabikarinn — hefur
ekki sést á Old Trafford síðan vorið
1967.
Busby-bömin
Hinn gríðarlega stuðning, sem
United nýtur víðs vegar um heim,
má að minnsta kosti að hluta til rekja
til flugslyssins hræðilega í Miinchen
í febrúar 1958. Félagið fékk samúð.
Hópurinn var á heimleið eftir Evr-
ópuleik, er stærstur hluti þess frá-
bæra liðs, sem varð enskur meistari
1956 og 57, lést. „Busby-bömin" var
liðið kallað, í höfuð þjálfarans. Matt
Busby, sem síðar var aðlaður og er
nú „Sir“, var einn þeirra sem lifði
flugslysið af og á aðeins áratug náði
hann að byggja upp stórkostlegt lið
á ný — lið sem hafði á að skipa sum-
um af allra fremstu knattspymu-
mönnum sem komið hafa fram á
Bretiandi, eins og George Best,
Bobby Charlton og Denis Law. Un-
ited varð aftur enskur meistari 1967,
og síðan fyrst enskra liða Evrópu-
meistari vorið eftir, 1968, eftir úr-
slitaleik gegn Eusebio og félögum í
Benfíca frá Portúgal á Wembley-leik-
vanginum í London.
En síðan fór að halla undan fæti.
Busby hætti sem þjálfari og leiðin
lá niður á við. Það var ekki fyrr en
Tommy Docherty tók við í desember
1972 að hjólin fóru að snúast á ný.
Þau snérust reyndar öfugan hring
til að byija með því félagið féll niður
í 2. deild vorið 1974, en Docherty
var að rífa sundur gamla liðið og
byggja til framtíðar, og forráðamenn
félagsins skildu að það tæki tíma.
United vann 2. deildina örugglega
vorið 1975 og var þar með komið í
hóp þeirra bestu á ný. Docherty hafði
komið saman liði sem lék mjög
skemmtilega knattspymu. Áhersla
var lögð á sóknarknattspymu og
Docherty stýrði liði sínu til sigurs í
bikarkeppninni 1977 er Liverpool var
lagt að velli í úrslitaleik á Wembley,
2:1. En Docherty var þó fljótlega
rekinn, þegar upp komst að hann
átti vingott við eiginkonu eins að-
stoðarmanna sinna hjá félaginu
Nú tóku við heldur erfíð ár. Un-
ited var reyndar í toppbaráttu deild-
arkeppninnar, en alltaf vantaði ein-
hvem herslumun. Liverpool-liðið var
mjög sterkt á þessum árum, og það
gramdist áhangendum United einnig
að liðið lék oft af mikilli varkámi.
Áherslan var ekki lögð á sóknarleik-
inn, eins og svo oft áður. Það breytt-
er Schmeichel, hinn stóri og sterki
markvörður. Schmeichel er einn
þeirra sem hafa sjálfstraustið í lagi,
„á teiginn" eins og sagt er og er
góður á milli stanganna. Þá er hann
stórhættulegur sóknarmaður þegar
sá gállinn er á honum! í fyrsta lagi
er hann oft fljótur að hefja sóknir
með því að kasta boltanum hámá-
kvæmt fyrir framan fætur samheija
sinna þó þeir séu staddir vel fyrir
framan miðju, og í öðru lagi spymir
Schmeichel svo fast að nokkrum
sinnum hefur hann verið nálægt því
að skora yfír endilangan völlinn.
Englendingar muna enn vel eftir því
þegar hann var nálægt því að skora
hjá sjálfum Peter Shilton í landsleik
á Wembley fyrir nokkmm áram!
Þetta var áður en hann kom til Manc-
hester United.
Hægri bakvörður er Paul Parker,
mjög öflugur vamarmaður sem
keyptur var frá QPR, miðverðir eru
Steve Brace, sem kom frá Norwich
og Gary Pallister, sem keyptur var
fyrir metupphæð frá Middlesbrough.
Vinstri bakvörður er Dennis Irwin.
Kantmennimir eru geysilega mikil-
vægir í liði United; Lee Sharpe
vinstra megin og Ryan Giggs hægra
megin. Á miðjunni hafa verið þeir
Paul Ince og Brian McClair, sem
báðir hafa leikið mjög vel undanfarið
— og er Ince greinilega búinn að
taka við stjóminni á miðjunni af
Bryan Robson. Til taks eru einnig
Mike Phelan, Robson, unglingurinn
Gillespie eða jafnvel Ferguson yngri,
sonur framkvæmdastjórans, eða
Danny Wallace. Einnig Úkraínumað-
urinn Andrej Kanchelskis.
Mark Hughes og franski landsliðs-
maðurinn Eric Cantona era svo alla
jafna í fremstu víglínu.
Cantona
Cantona var síðasta stykkið í
púsluspili Fergusons. Stjórinn keypti
hann á eina milljón punda frá Leeds,
sem var hlægileg upphæð að margra
mati fyrir svo snjallan leikmann.
Hann á að vísu skrautlegan feril að
baki, lék með mörgum félögum í
Frakklandi og var alls staðar til
vandræða. En um hæfileikana innan
vallar efast enginn, og takist Fergu-
son að hemja skap leikmannsins get-
ur hann einmitt verið sá sem gerir
gæfumuninn. Cantona kann mjög vel
við sig í Englandi. Hann er hæfilega
kærulaus og lætur því utanaðkom-
andi pressu ekki hafa áhrif á sig,
og menn þykjast jafnvel sjá þess
merki að hann hafi haft góð áhrif á
aðra leikmenn liðsins hvað þetta
varðar. En taka verður með í reikn-
inginn að vel hefur gengið undanfar-
ið, og þegar svo er virkar allt auð-
veldara en ella. En Cantona féll þeg-
ar í stað inn i leik liðsins. Hann er
geysilega útsjónarmaður og hefur
frábært auga fyrir samleik.
Liðið er sterkt já, leikur góða
knattspymu og allt gengur þvi í
haginn um þessar mundir, eins og
Þorvaldur Örlygsson segir í viðtali
hér á opnunni. Nú er það spumingin
hvort leikmenn bugast eins og í fyrra,
eða hvort þeir ná að halda sínu striki.
Ferguson er sagður mjög stressaður
og upptrekktur, og sagt er að hann
hafi haft slæm áhrif á leikmenn sína
undir lok tímabilsins í fyrra. Það er
alltaf gaman þegar vel gengur, en
hjá stórliði eins og United skapast
nánast neyðarástaiid ef einn, tveir
leikir tapast í röð — að ekki sé talað
um ef þeir verða fleiri.
Hvort allt smellur saman hjá Un-
ited á þessu keppnistímabili skal
ósagt látið, en það þyrfti ekki að
koma neinum á óvart þó enski meist-
arabikarinn kæmi til borgarinnar í
maí, í fyrsta skipti síðan vorið 1967.
Stuðningsmenn Aston Villa era að
sjálfsögðu ekki á sama máli en nú
virðist lag fyrir United.
I sviðsljósinu
Alex Ferguson hefur verið við
stjóravölinn á Old Trafford í sex
ár. Aðalmarkmiðið hefur enn ekki
náðst; Englandsbikarinn hefur ekki
sést á Old Trafford siðan vorið
1967. Á stóru myndinni er hinn
stórefnilegi Ryan Giggs.
ist er Ron Atkinson, nú stjóri Aston
Villa tók við. Lið hans, eins og Doch-
ertys, leika ætíð skemmtilega knatt-
spymu. Atkinson púslaði saman
mjög góðu liði, en meistaratign náð-
ist þó ekki. Liðið varð hins vegar
tvívegis bikarmeistari, 1983 og 1985.
Og Atkinson hvarf á braut eins og
fleiri, og við stjóminni tók Alex nokk-
ur Ferguson, lítill og snaggaralegur
Skoti, sem stjómað hafði liði Aberde-
en til frækilegra sigra, bæði á heima-
vígstöðum og í Evrópukeppni.
Ferguson hefur veifað tékkheftinu
meira en nokkur annar stjóri í Eng-
landi undanfarin ár. Hann hefur
keypt leikmenn fyrir um 17 milljónir
punda — um 1,7 milljarða íslenskra
króna — og sumar þær fjárfestingar
hafa satt að segja talist heldur vafa-
samar.
Lið Fergusons
En þá er það aðalliðið í dag. Hvers
vegna er það svona sterkt? Skýringin
er auðvitað að hluta til sú að liðið
skipa eingöngu mjög góðir knatt-
spymumenn. United hefur efni á að
kaupa þá leikmenn sem það hefur
áhuga á, og yfírleitt era menn tilbún-
ir að hlaupa langar leiðir til að fá
samning við félagið. Mikilvægur
hlekkur í liðsheildinni er Daninn Pet-