Morgunblaðið - 31.01.1993, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993
39
Einvigi milli Man.
Utd. og Aston Villa
- segir Þorvaldur Örlygsson um baráttuna um enska meist-
aratitilinn, en hann lék gegn United á miðvikudag
„LIÐ United er á fljúgandi siglingu þessa
dagana og sjálfstraust leikmanna alveg
ítoppi. Það gengur allt upp hjá þeim um
þessar mundir, og ef svo verður áfram
get ég ekki séð annað en liðið verði
meistari," sagði Þorvaldur Örlygsson,
leikmaður Nottingham Forest, er Morg-
unbiaðið leitaði álits hans á liði Manc-
hester United. Þorvaldur lék síðustu 15
mfnúturnar gegn United á Old Trafford
á miðvikudagskvöld, er meistaraefnin
unnu 2:1.
Ince
orvaldur og félagar í Forest
mættu United undir lok
keppnistímabilsins í fyrra. Þá
benti reyndar einnig flest til þess
að liðið yrði meistari, en leikmenn
virtust hreinlega fara á taugum á
endasprettinum. „Miðað við leik-
inn í fyrra er allt annað að sjá til
leikmanna United nú. Þá var
sjálfstraustið algjörlega í lág-
marki eftir nokkur slæm úrslit.
Svo unnum við þá 2:1 á Old Traff-
ord og eyðilögðum eiginlega vonir
þeirra um titilinn," sagði Þorvald-
ur, sem var einmitt í byrjunarliði
Forest í þeim leik.
Sterkt sóknarlið
„United er með eitt skemmti-
legasta sóknarliðið í deildinni í
dag, það er engin spurning. Liðið
er skipað mjög góðum leikmönn-
um og þetta er lið sem er erfítt
að vinna, United og Aston Villa
spila skemmtilegasta og besta
Schmeíchel Sharpe
fótboltann í Englandi í dag.“
Þorvaldur sagðist telja miðju-
mennina hjá Aston Villa betri;
hann sagði Kevin Richardson og
Garry Parker (fyrrum leikmann
Forest) byggja betur upp en t.d.
Paul Ince og Brian McClair, sem
voru á miðjunni hjá United gegn
Forest í vikunni, „en sóknar- og
vamarlega er United-liðið pott-
þétt. Við vorum með ágæt völd á
miðjunni á miðvikudaginn — í
fyrri hálfleiknum vom strákarnir
[leikmenn Forest] mikið með bolt-
ann, léku á milii sín úti á velli en
United-menn eltu — en þegar kom
að vörn United strandaði allt. Og
þegar þeir sækja er erfítt að eiga
við þá, Brian McClair stingur sér
oft í fremstu víglínu til [Marks]
Hughes og [Erics] Cantona og svo
eru þeir með [Lee] Sharpe og
[Ryan] Giggs á köntunum, þannig
að segja má að framlínan sé skip-
uð fimm leikmönnum. Þegar
Schmeichel í markinu fær boltanri
hendir hann oft strax út á annan
hvorn vængmanninn, jafnvel fram
yfír miðju, og þeir eru því fljótir
að snúa vörn í sókn, Þá er mjög
erfítt að eiga við þá.“
Einvígi
Þorvaldur telur einvígið um tit-
ilinn verða milli áðurnefndra liða,
United og Villa. En breiddin sé
líklega meiri hjá United — Bryan
Robson og Deon Dublin séu til
dæmis væntanlegir af sjúkralist-
anum — „og það kæmi mér ekki
á óvart þó liðið yrði meistari. Já,
ætli ég spái því ekki bara að
Manchester United verði loksins
meistari. Það er nokkuð ljóst að
það verður rosaleg hátíð þarna
norður frá, ef þeir ná loksins að
vinna. Áhuginn er svo svakaleg-
ur, og þeir hafa ekki náð titlinum
í 26 ár,“ sagði Þorvaldur.
Nú blómstrar unglingastarfið hjá United
Það hljómar ef til vill fárán-
lega, en segja má að það eigi
mikinn þátt í velgengni United f
vetur að stúkan við annan enda
vallarins var rifín niður áður en
keppni hófst f haust og unnið hef-
ur verið að því að byggja aðra og
betri. Hvernig má það vera? Út-
skýringin er þessi: grasflötin á
Old Trafford hefur verið í mjög
slæmu ásigkomulagi undanfarin
ár. í góðu lagi á haustin, en þeg-
ar kólna fór í veðri varð hún allt-
af slæm. Leikvangurinn er mjög
glæsilegur, og byggingin um-
hverfis völlinn er samfelld allan
hringinn. Manchester-borg er
meðal annars fræg fyrir það hve
mikið rignir þar, og grasflötin
hefur því sjaldan náð að þoma
undanfarin ár — vindurinn hefur
ekki komist inn. í vetur hafa vind-
ar hins vegar leikið um flötina í
hvert skipti sem þeir blása. Völlur-
inn er því í mun betra ásigkomu-
lagi en áður, auðveldari yfírferðar
og því hægara um vik að leika
góða knattspymu, láta knöttinn
ganga með jörðinni milli manna.
Leikmenn verða ekki þreyttir á
þvf að vaða drulluna og hættan á
meiðslum verður minni. Þetta at-
riði er því veigameira en margan
grunar.
Þá er völlurinn notaður mun
minna en áður því varalið United
leikur ekki þar í vetur. Ferguson
leigði Gigg Lane, völl nágranna-
liðsins Bury og þar fara allir
heimaleikir varaliðsins fram.
Alex Ferguson hefur lýst því
yfír að strax þegar hann kom
á Old Trafford hafí hann orðið þess
var að nágrannamir í Manchester
City hafí náð í alla efnilegustu leik-
menn borgarinnar. Hans hafí því
þegar í stað beðið verðugt verk-
efni. Og vaðið var í það með látum;
„njósnurum" félagsins var fjölgað
um 20 og Brian Kidd — einn marka-
skoraranna á Wembley 1968 — var
ráðinn aðstoðarmaður Fergusons,
og hefur yfírumsjón með unglinga-
starfinu á sinni könnu. Félagið fór
að gefa ungum leikmönnum tæki-
færi til æfinga í mun meira mæli
en áður, og einn þeirra sem það
nældi þannig í er ein helsta stjarna
liðsins í dag, Ryan Giggs, sem enn
er aðeins 19 ára. Manchester City
hafði lagt rika áherslu á unglinga-
starfíð og Giggs var í knattspyrnu-
skóla City þegar Ferguson kom til
United. „Hann var sem betur fer
aðeins þrettán ára þá og þeir gátu
ekki gert samning við hann fyrr en
hann varð fjórtán. Ég kom því
kannski hingað á hárréttum tíma,“
segir Ferguson.
Unglingastarfíð blómstrar nú hjá
United og hefur félagið lagt gríðar-
legar fjárhæðir í að byggja það
upp. Nú eru sex ár síðan Ferguson
tók við stjórninni á Old Trafford,
og í aðalliðinu í dag eru aðeins tveir
leikmenn eru aldir upp hjá félaginu,
Ryan Giggs og Mark Hughes, sem
reyndar er eldri. Ferguson segist
þó ekki hafa áhyggjur af því, upp-
byggingarstarfíð taki tíma og eðli-
legt sé að fimm til sex ár líði þar
til þeir fyrstu fari að banka á dyrn-
ar, síðan „endurreisnin" hófst. Nú
er sá tími liðinn og þeir fyrstur eru
að koma fram í sviðsljósið.
Unglingalið Manchester United
varð bikarmeistari á síðasta keppn-
istímabili, og hafa sumir gengið svo
langt að halda því fram að þar sé
á ferðinni framtíðar-stórlið United;
lið sem hafí alla burði til að verða
álíka stórveldi í Englandi næstu
árin og AC Milan er nú á Ítalíu.
Um þetta hefur verið rætt í Eng-
landi, og því er hætt við að mikil
pressa sé og verði á hinum ungu
leikmönnum. Það er vitaskuld ekki
nóg að vera efnilegur; margur leik-
maðurinn hefur lofað góðu en síðan
orðið nánast að engu á knatt-
spyrnusviðinu. Miðað við fyrri
reynslu hefur Ferguson því tekið
það til bragðs meðal annars, að
engum strákanna í unglingaliðinu
er leyft að ræða við fréttamenn.
Þeir eru verndaðir; fá ekki að kom-
ast í sviðsljós fjölmiðlanna. Og þó
ótrúlegt megi virðast gildir það
sama við um Ryan Giggs.
Einn strákanna í unglingaliðinu,
Keith Gillespie, hefur fengið að
spreyta sig í aðalliðinu upp á síð-
kastið og þykir strax lofa mjög
góðu.
áSkDagur
harmon ikunar
er haldinn í Tónabæ í Skaftahlíð í dag kl. 15.00. Stórsveit
Harmonikufélags Reykjavíkur, minni hópar og einleikarar
flytja klassísk og léttklassísk lög auk jazz og dægurlaga.
Harmonikufélag Reykjavíkur.
Hællum aó reykja
Námskeið Heilsuverndarstöðvarinnar
gegn reykingum.
Innritun og forviðtöl standa yfir á námskeið
gegn reykingum sem byrjar4. jan. ’93.
Upplýsingar í síma 22400 milli kl. 9 og 16.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur v/Barónsstíg.
s
Rauði kross Islands heldur námskeið
til undirbúnings fyrir
HJÁLPARSTÖRF
ERLENDIS
í Munaðarnesi 21. - 26. mars 1993
Þátttökuskilyrði eru:
—25 ára lágmarksaldur
—góð tungumálakunnátta, a.m.k. enska
—góð starfsmenntun
(ýmis störf koma til greina)
—góð almenn þekking og reynsla
Námskeiðið fer fram á ensku og verða leiðbeinendur
m.a. frá Alþjóða Rauða krossinum í Genf.
Fjöldi þátttakenda er áætlaður um 20 og er
þátttökugjald kr. 15.000 (innifalið er fæði, gisting,
kennslugögn og ferðir Rvk. - Munaðames - Rvk.).
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu RKÍ,
Rauðarárstíg 18, Rvk.
Umsóknum ber að skila á skrifstofu RKÍ fyrir 5.
febrúar nk. Þar veitir Sigríður Guðmundsdóttir
nánari upplýsingar.
Rauði kross Islands
Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími 91-626722