Morgunblaðið - 31.01.1993, Page 44
FORGANGSPOSTUR
UPPLYSIHGASIMI 63 71 90
--------fc_--------------
ffgmiMiifrtfe
W*/ Reghibundimi
M./% sparnaður
M Laridsbanki
Mi fslands
JSm m i BanM aflra tandsmanna
MORGVNBLADIÐ, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK
SÍMl 691100, SÍMBRÉF --------
691181, PÓSTHÓLF ÍSSS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 8S
SUNNUDAGUR 31. JANUAR 1993
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Morgunblaðið/Kristinn
Komið úr róðri
Gulltoppur ÁR 321 var einn þeirra báta sem lágu við I vitað hvort stoppið i gæftaleysinu á þorra yrði lengra eða
bryggju úti á Granda. Áhöfnin hefur að líkindum ekki I skemmra þegar komið var úr róðrinum á fímmtudag.
Lántaka Hús-
næðisstofnunar
Skuld-
breytmg’
að hluta
FULLTRÚAR lífeyrissjóða-
samtakanna og Húsnæðis-
stofnunar ríkins funda nk.
mánudag, en stofnunin hefur
sóst eftir um 9 milljarða kr.
láni til endurfjármögnunar og
byggingar um 500 félagslegra
íbúða á árinu.
„Að hluta verða þeir peningar sem
við fáum að láni hjá lífeyrissjóðunum
í raun notaðir til að standa undir
endurgreiðslum á lánum frá lífeyris-
sjóðunum sjálfum. Á vissan hátt er
þessi lántaka því hugsuð sem skuld-
breyting. Vitaskuld hefur þó stofn-
unin feiknamiklar tekjur af endur-
greiðslum og afborgunum sem eini’. •
ig eru notaðar til þeirra hluta,“ sagði
Sigurður E. Guðmundsson, forstöðu-
maður Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Sigurður sagði að líkast til myndi
Húsnæðisstofnun nota 6,5 - 7 millj-
arða kr. til endurfjármögnunar og
lánveitinga. „Við gerum ráð fyrir
um 500 félagslegum íbúðum en inni
í þeirri tölu eru einnig kaup á notuð-
um íbúðum á almennum markaði.
Þá er inni í þessari tölu einnig end-
urfjármögnun á eldri íbúðum í kerf-
inu, sem skipta um eigendur."
Morgunblaflið/RAX
Rósarækt í skammdeginu
Garðyrkjubændur í Hveragerði hyggjast auka rafmagnskaup um 47% og
ætla að rækta rósir og önnur skrautblóm allan ársins hring.
„Aukaorka notuð
til blómaræktar
LANDSVIRKJUN og almenningsrafveitur hafa nú þegar lok-
ið nokkrum samningum um sölu umframraforku á afsláttar-
verði, sem byrjað var að bjóða um áramót. Margir garðyrkju-
bændur nýta sér til dæmis umframrafmagn til að auka lýs-
ingu í gróðurhúsum og rækta þannig ýmsar tegundir blóma
og grænmetis allan ársins hring.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirlqunar, segir
•f að samið hafí verið við orkusamlag
garðyrkjubænda í Hveragerði, en
þar búast menn við að auka kaup
á rafmagni um 47% strax á fyrsta
ári. ísaga í Reykjavík kaupir viðbót-
arrafmagn til að auka súrefnis- og
köfnunarefnisframleiðslu og Kaup-
félag Skagfírðinga til að framleiða
mjólk og kjöt.
Landsvirkjun veitir einnar
krónu afslátt af verði hverrar
kílówattstundar í umframorku
til nýrrar framleiðslu. Kjartan
Ólafsson, formaður Sambands
garðyrkjubænda, segir að raf-
orkuverðið sé enn tiltölulega
hátt, þrátt fyrir afsláttinn. Þá séu
afarkostir í afhendingarskilmál-
um.
Sjá frétt á bls. 20.
Utganga hjúkrunarfræðinga undirbúin á Landspítala
Innlögiium þegar
fækkað tíl muna
Hjúkrunarfræðingar skila laununum ef ekki gengur saman
ÞEGAR hefur verið dregið mjög úr innlögnum sjúklinga
á Landspítalanum vegna undirbúnings neyðaráætlunar,
sem sett verður af stað ef hjúkrunarfræðingar hætta
störfum aðfaranótt mánudags. Ljóst er að sjúklingar,
sem ella hefðu verið teknir inn á spítalann, skipta tug-
um. Viðræður hjúkrunarfræðinga og Ijósmæðra við
stjómendur spítalans héldu áfram í gær en ekkert sam-
komulag lá fyrir. í samtölum við báða aðila kom fram
að menn hefðu trú á að saman gengi á síðustu stundu.
Þorgerður Ragnarsdóttir hjúkr-
unarfræðingur sagði að á meðan
verið væri að ræðast við, væri hún
bjartsýn á að deilan leystist áður
en hjúkrunarfræðingar gengju út.
Hún vildi ekki tjá sig frekar um
stöðuna í viðræðunum.
Ákveðið hefur verið að greiða
hjúkrunarfræðingum og ljósmæðr-
um út laun fyrir febrúarmánuð á
mánudaginn, enda lítur yfírstjóm
Landspítalans svo á að uppsagnar-
frestur þeirra hafi verið framlengd-
ur. Þorgerður sagði að stjómendur
spítalans hefðu orðið að greiða út
launin, því að ella hefðu þeir viður-
kennt að uppsagnir hjúkrunarfræð-
inga tækju gildi um mánaðamótin.
„En ef þessi deila verður ekki leyst
áður en til þessa kemur, reikna ég
með að fólk muni skila þessum laun-
um,“ sagði Þorgerður.
Byijað að senda sjúklinga
heim í dag
Ef fyrirsjáanlegt verður í dag,
sunnudag, að hjúkrunarfræðingar
og ljósmæður, sem sagt hafa upp
störfum, gangi út, gengur neyðar-
áætlun Landspítalans í gildi. Deildir
verða þá færðar saman, sjúklingar
fluttir til og þeir sendir heim sem
treyst er til þess. Strax í upphafí
síðustu viku var innköllunum fækk-
að og á föstudag vora engar aðgerð-
ir framkvæmdar á spítalanum nema
bráðaaðgerðir.
Verði af útgöngu starfsfólksins
verður sett á stofn neyðamefnd,
sem skipuð verður forstjóra Ríkis-
spítalanna, framkvæmdastjóra
Borgarspítalans, hjúkranarforstjór-
um spítalanna og formönnum
læknaráða. Nefndin mun hittast
einu sinni til tvisvar á dag og sam-
ræma starfsemi sjúkrahúsanna í
Reykjavík á meðan Landspítalinn
hefur ekki fullskipuðu starfsliði yfír
að ráða.
Talsmaður CTU
Islending-
ar vari sig
„ÍSLENSK stjórnvöld ættu að
vara sig. Við munum þrýsta á
bandarísk stjórnvöld að setja
höft á vegabréfsáritanir frá Is-
landi til Bandaríkjanna ef reynt
verður að sækja okkar menn til
saka,“ segir Neil C. Livings-
tone, blaðafulltrúi CTU, fyrir-
tækisins sem skipulagði brott-
nám telpnanna. ,