Morgunblaðið - 27.02.1993, Side 1

Morgunblaðið - 27.02.1993, Side 1
56 SIÐUR B/LESBOK 48. tbl. 81. árg. LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1993 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Vara við Sprenging á Manhattan verður fimm manns að bana Eyrar- sundsbrú Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. ÁÆTLUNIN um byggingu brú- ar yfir Eyrarsund milli Dan- merkur og Svíþjóðar beið hnekki í gær. Sænsk leyfis- nefnd, sem fjallar um áhrif mannvirkja á umhverfið, sagði nei og alþjóðleg sérfræðinga- nefnd á vegum ríkisstjórna beggja landanna kvað upp þann úrskurð, að brúin hindraði flutning súrefnisríks sjávar úr Norðursjó og inn í Eystrasalt. Carl Bildt, forsætisráðherra Sví- þjóðar, lét sér hvergi bregða við þessi tíðindi og sagði, að sænska umhverfisleyfanefndin „hefði ekki síðasta orðið“ í þessu máli. Kvaðst hann vera viss um, að fyrr eða síðar yrði Eyrarsund brúað. Aukin loftmengun í áliti leyfisnefndarinnar, sem er að vísu aðeins ráðgefandi, seg- ir, að brúin muni ekki aðeins valda aukinni loftmengun, heldur hafa einnig mikil áhrif á lífríki sjávarins og hún er sammála sérfræðinga- nefndinni um, að brúin myndi hafa áhrif á sjávarstrauma í sundinu. Alþjóðlega sérfræðinganefndin segir, að þessi mál sé þó auðvelt að leysa eða með því að tengja saman löndin með göngum undir Eyrarsund. Flúið í ofboði Reuter Starfsmeun og lögregluþjónar á hlaupum frá World Trade Center þar sem fjöldi fólks lokaðist inni vegna sprengingarinnar. Lyftur stöðvuðust og sumir voru hálfa aðra klukkustund að ganga niður. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna um stefnu Clintons NATO áfram einn Grunsemdir um tilræði New York. Reuter. GRÍÐARMIKIL sprenging varð í grennd við neðanjarðarstöð járn- brauta undir öðru háhýsi World Trade Center-húsaþyrpingarinnar á Manhattan í New York í gær. Háhýsin eru 110 hæðir, næst- hæstu byggingar í heimi, og eru þar yfir 600 skrifstofur, hótel og fleiri fyrirtæki með um 60.000 starfsmönnum. Talið er að undir- stöður hússins hafi skaddast. Eldur varð þegar laus við sprenging- una sem varð á hádegisverðartíma. Ekki var vitað um orsökina er síðast fréttist en auknar líkur taldar á sprengjutilræði. A.m.k. tveir létu lífið og 200 að auki slösuðust, þar af 15 alvarlega, og margir voru með reykeitrun. Fólk var nokkru síðar flutt úr Emp- ire State-skýjakljúfnum, sem er 102 hæðir, vegna sprengjuhótunar en ekki var vitað hvort þar var um gabb að ræða. Guðmundur Franklín Jónsson vinnur í húsi um hundrað metra frá staðnum. „Þetta var alveg ótrúlega öflug sprenging, alveg ofboðslegt,“sagði- hann.„ Eg var búinn að panta mér hádegismat í veitingastað sem er á 107. hæð í háhýsinu þar sem þetta gerðist. Ég get þakkað konunni minni fyrir að ég skyldi sjálfur sleppa hún hélt mér svo lengi í símanum að ég var ekki farinn af stað. Ég var uppi á 33. hæð. Skyndilega nötr- aði húsið, fólk henti sér á gólfið allt í kringum mig. Einhver hélt að flug- vél hefði hrapað á húsið. Við litum út um gluggana en sáum ekkert. Síðan fóru að koma reykjarbólstrar út um glugga á Hilton Vista-hótelinu sem er á jarðhæðinni, yfir bíla- geymslunni þar sem sprengingin varð. Fyrst voru þetta hnoðrar en seinna kolsvartur mökkur. Bíla- geymslan er neðanjarðar í World Trade Center, sprengingin varð á sjöttu hæð, talið frá jörðu. Sumir halda að spennustöð, sem var á hæðinni, hafi sprungið. Aðrir tala um tilræði, bílsprengju. í bíla- geymslunni er varðveittur bíll sem Clinton forseti notar þegar hann er í borginni og jafnframt var þar fjöldi bíla öryggisvarða hans. Mér skilst að lögreglan hafí ekki enn getað kannað sjálfan staðinn því að gríðar- lega þykk gólfín á þrem næstu hæð- um fyrir ofan splundruðust, brakið er út um allt. Ég fór út og sá alblóðugan mann, sem hafði verið á einni af neðanjarð- arhæðunum. Glerhurðir þar sprungu allar í tætlur. Þarna voru á annað hundrað slökkvibílar, sjúkrabílar biðu í löngum röðum. Húsið er við Hudson-fljótið og þar biðu bátar strandgæslunnar, reiðubúnir að dæla vatni ef þörf krefði. Mér fannst mikil samheldni ríkja, allir voru reiðubúnir að rétta hjálparhönd." Féll fimm hæðir Svarta reykjarbólstra lagði alla leið upp á 96. hæð og yfír næsta nágrenni, fólk á efri hæðunum gat ekki notað lyfturnar, sem alls eru um 250, því að rafstraumur var tek- inn af til að auðvelda slökkvistarf. Reykur barst fljótt upp eftir hæðum um lyftugöngin og brutu sumír rúð- ur til að fá ferskt loft en mörg hund- ruð manns lokuðust inni,. Tveim var bjargað með þyrlum af þaki háhýsis- ins. Víða grófst fólk undir braki, maður nokkur féll niður fimm hæðir en komst þó lífs af. af homsteimmum Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgnnbladsins. Á FUNDI utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins, NATO, í Brussel í gær gerði Warren Christopher, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, starfsbræðrum sínum grein fyrir megináherslum í utan- ríkisstefnu ríkisstjórnar Bills Clintons forseta. „NATO mun áfram gegna grundvallarhlutverki við að treysta öryggi okkar í gerbreytt- um heimi,“ sagði ráðherrann og bætti við að bandarískt herlið yrði áfram í Evrópu. Christopher gerði einnig grein fyrir viðræð- um við ráðamenn í Miðausturlöndum og fyrirhuguðum aðgerðum Bandaríkjanna til að koma neyðaraðstoð til bágstaddra í Bosníu. Christopher sagði Bandaríkja- stjórn leggja áherslu á efnahagslega endurnýjun, að varnarsamstarfið yrði styrkt og grundvallarreglum um mannréttindi yrði í hvívetna fram- fylgt. Hann sagði að ná yrði sam- komulagi í GATT-viðræðunum um alþjóðaviðskipti og tollamál. Banda- ríkjamenn hafa sakað Evrópumenn og Japani um að beita óréttmætum viðskiptaaðferðum og ráðherrann varaði þá við. „Við erum staðráðin í að binda enda á vemdarstefnu og ríkisstyrkta samkeppni vegna þess að þessir starfshættir draga úr hag- vexti,“ sagði Christopher. Jón Bald- vin Hannibalsson utanríkisráðherra tók í sama streng og sagði í ræðu sinni að árangur GATT-viðræðn- Koivisto vill niðurskurð Hclsinki. Frá Lars Lundsten, frétta- ritara Morgunblaðsins. MAUNO Koivisto, forseti Finn- lands, krefst þess að dregið verði úr erlendum lántökum og ríkisútgjöld verði lækkuð enn frekar. Jafnaðarmenn, flokkur Koi- vistos, hafa gagnrýnt stjóm borgaraflokkanna fyrir að skera niður þjónustu. Þeir mæla með auknum ríkisframkvæmdum til að spoma við atvinnuleysi en forsetinn útilokaði þá lausn. anna væri prófsteinn á hæfni for- ystumanna Bandaríkjanna og Evr- ópubandalagsins. Ráðherrann hvatti einnig til þess að gengið yrði eftir því að Rússar drægju heri sína á brott frá Eystrasaltsríkjunum. Aðstoð við Bosníu Umræðurnar á fundinum snerust að mestu um ástandið í fyrrum Júgó- slavíu. Christopher gerði ráðherrun- um grein fyrir þeirri fyrirætlun Bandaríkjamanna að varpa nauð- synjum úr lofti til stríðshtjáðra í Bosníu. Ráðherrarnir lýstu yfír stuðningi við áformin en enginn þeirra bauð fram aðstoð á fundinum. Tyrkir höfðu þegar boðið fram hjálp- argögn og flugvélar. Að sögn tyrk- neska ráðherrans stendur það tilboð enn og Þjóðveijar eru að kanna möguleika á að leggja Bandaríkja- mönnum lið t.d. með auknu hjálpar- flugi til Sarajevo. Lögð er áhersla á að flest aðildarríki NATO hafí þegar lagt umtalsvert af mörkum á landi til að koma hjálpargögnum til bág- staddra. Reuter Loftflutningarnir undirbúnir BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, undirritaði í gær reglugerð sem heimilar flughernum að varpa niður matvælum með fallhlífum til nauðstaddra Bosníumanna. Undirbúningi flutninganna er að ljúka og gert er ráð fyrir að þeir hefjist á morgun, sunnudag, ef veður leyfir. Á myndinni setja hermenn segldúk yfir stafla af matvælum og lyfjum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.