Morgunblaðið - 27.02.1993, Page 38
r
38
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
LAUGARDAGUR 27. FEBRUAR 1993
SKIÐI
Sjötta gull Norðmanna
- á heimsmeistaramótinu í norrænum greinum í Falun
Um helgina
Handknattleikur
Landsleikir
Laugardagnr:
KA-hús: Ísland-Danmörk.......16
Sunnudagur:
Laugard.höll: Ísland-Danmörk 20.30
KÖFfuknattleikur..........
Úrvalsdeild
Laugardagur:
Strandgata: Haukar - UMFT....14
Njarðvík: UMFN-ÍBK........16.15
Sunnudagur:
Borgames: Skallagrímur - UMFG16
Seltjamnrnes:..KR.-..Valur...20
1. deild kvenna
Laugardagur:
Grindavík: UMFG-ÍR...........16
1. deild karla
Laugardagur:
Akranes: IA-UMFBol...........12
Akureyri: UMFA-Reynir........16
Sunnudagur:
Akranes: LA-UMFBol...........12
Fimleikar
Unglingamót FSÍ
Unglingamót FSÍ fer fram í Laugar-
dalshöll í dag og verður keppt í öllum
fjórum þrepum fimleikastigans. Kl.
11 hefst keppni í 4. þrepi, en kl. 15.30
til 19.30 verður keppt í 1. til 3. þrepi.
Meistaramót í fimleikastiganum
Meistaramótið í fimleikastiganum
verður á morgun í Höllinni frá kl. 11
til 13.
Blak
1. deild kvenna
Sunnudagur:
Digranes: HK - Víkingur ....20
Íshokkí
íslandsmótið
Mánudagur:
Laugardalur: SR - SA....20
KNATTSPYRNA
Leikið tií styrktar
krabbameins-
sjúkum bömum
Landslið íslands í knattspymu
mætir á morgun úrvalsliði sem
Guðni Kjartansson, fyrrum landsliðs-
þjálfari, hefur valið, í leik til styrktar
krabbameinssjúkum bömum.
I úrvalsliði Guðna eru fyrrum
landsliðsmenn og ungir strákar, sem
eiga einnig landsleiki að baki. í liðinu
eru m.a. Atli Eðvaldsson, Sævar
Jónsson, Pétur Pétursson, Karl Þórð-
arson, Bjami Sigurðsson, Ómar
Torfason, Njáll Eiðsson, Þorgrímur
Þráinsson, Sigurjón Kristjánsson,
Óskar Hrafn Þorvaldsson og Kristinn
R. Jónsson.
Leikurinn hefst kl. 20 á gervigras-
vellinum í Laugardal og rennur ágóði
af seldum aðgöngumiðum í sjóð fil
styrktar krabbameinssjúkum böm-
um. Leikurinn er liður í því að minna
á söfnun Bylgjunnar og Stöðvar 2
sem fram fer 5. mars næstkomandi
en þá verður dagskrá stöðvanna
helguð þessu málefni.
haiskir leikir
á nýjum seðii
íslenskar getraunir bjóða nú upp
á getraunaseðil með leikjum úr ít-
ölsku knattspymunni. Þetta er gert
til pmfu í samstarfi við sænska get-
raunafyrirtækið AB Tipstjánst, og
verður þessi aukaseðill í gangi í sjö
vikur. Fyrsti seðillinn gildir nú um
helgina.
Allir fjórir vinningsflokkamir
verða sameiginlegir og kostar röðin
10 kr. Sölukössum verður lokað í
kvöld kl. 20.20. Stöð 2 sýnir beint
frá ítölsku knattspymunni á sunnu-
dögum, og býður upp á þá þjónustu
við „tippara" að birta stöðuna í leikj-
um seðilsins um leið og hún breytist
— á sama hátt og RUV gerir í bein-
um útsendingum frá Englandi á
laugardögum. Á morgun sýnir Stöð
2 leik AC Milan og Sampdoria.
Þeir sem giska á ítölsku leikina
verða að merkja í reitinn „aukaseð-
ill“ á getraunaseðlinum því annars
telst hann hefðbundinn laugardags-
seðill með enskum leikjum.
NORSKA gönguliðið brást ekki
40.000 stuðningsmönnum sín-
um í Falun f Svíþjóð í gær og
sigraði í 4x10 km boðgöngu
karla. Þar með voru sjöttu gull-
verðlaun Norðmanna fkeppn-
inni í höfn, en Björn Dæhlie, sem
gekk síðastur og kom fyrstur í
mark, varaði við bjartsýni varð-
andi sjöunda gullið og fjórða
sitt í 50 km göngu á morgun.
„Þetta hefur verið erfitt og ég
er uppgefinn, en reyni mitt
besta.“
Dæhlie leit við, þegar 200 metrar
voru í mark og þurfti ekki að
hafa áhyggjur enda voru Norðmenn
með örugga forystu allan tímann.
Reyndar veitti Rússinn Andrej Kirr-
ilov Sture Sivertsen harða keppni í
fyrsta leggnum en Sture stóð undir
nafni og kom í mark 0,8 sek. á und-
an. Vegard Ulvang tók við og jók
muninn í 58,6 sekúndur og eftirleik-
urinn var auðveldur hjá Teije Langli
og Dæhlie.
Rússamir voru í öðru sæti fyrir
þriðja legg, en Giorgio Vanzetta vann
upp meira en 14 sek. mun og tryggði
ítölum silfrið, því Silvio Fauner, sem
varð þriðji í 15 km göngu, hélt fengn-
um hlut. Svíar urðu enn að sjá á
eftir verðlaunasæti og urðu að sætta
sig við sjötta sætið.
„Ég vár þreyttur eftir allt sem á
undan hefur gengið og var ekki viss
um neitt fyrr en ég kom inná völl-
inn,“ sagði Dæhlie, sem veifaði til
stuðningsmanna norska liðsins áður
en hann renndi sér yfir marklínuna.
„Áhorfendumir hafa verið frábærir
og mér fannst við hæfi að þakka
þeim stuðninginn."
BJörn Dæhlie gekk síðasta hlutann
fyrir Norðmenn.
Seizing-
er tryggði
stöðuna
Þýska stúlkan Katja Seizinger
tryggði stöðu sína á toppnum
í brunkeppni heimsbikarsins á skíð-
um með sigri í bruni í Sviss í gær
og er með örugga forystu þegar
fjögur mót era eftir á tímabilinu.
Með sigri í dag getur Seizinger
ógnað Anitu Wachter frá Austurríki
i samanlögðu. Wachter tapaði tíma
í neðri hluta brautarinnar, en náði
samt níunda sæti og stefnir á sigur
í risasviginu á morgun.
Carole Merle frá Frakklandi var
mjög yfirveguð og náði sjötta sæti,
en Seizinger var hissa á sigrinum.
„Ég var svo mistæk og hefði aldrei
trúað að ég gæti sigrað miðað við
frammistöðuna.
KORFUKNATTLEIKUR
Æsispennandi barátta
- í B-riðli úrvalsdeildarinnar, þar sem
Valur, Grindavík og Skallagrímur berjast
um sæti í úrslitakeppninni
RIÐLAKEPPNI í úrvalsdeildinni
í körfuknattleik fer nú að Ijúka,
aðeins á eftir að leika fimm
umferðir innan hvors riðils og
fyrstu leikirnir eru í dag.
Keppninni lýkur síðan sunnu-
daginn 14. mars og þá verður
Ijóst hvaða fjögur lið komast f
úrslitakeppnina. í A-riðli hafa
ÍBK og Haukar þegar tryggt sér
sæti í úrslitum en keppnin f
B-riðli er æsispennandi og þar
eiga fjögur lið möguleika.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Snæfellingar hafa besta stöðu,
eru með 28 stig, en Valur,
Grindavík og Skallagrímur era öll
með 22 stig. í pott-
inum era 8 stig og
leikimir á næstu
vikum því gríðar-
lega mikilvægir. Ef
tvö lið verða jöfn ráða innbyrðis
viðureignir félganna og ef þau era
enn jöfn er stigaskorið úr innbyrðis
leikjunum skoðað. Ef liðin þijú sem
eru með 22 stig eru skoðuð kemur
í ljós að Valsmenn standa best að
vígi. Þeir era 3:0 yfir gegn Skalla-
grími, hafa unnið alla þijá leikina,
og 2:1 yfir gegn Grindavík. Grind-
víkingar era næstir, era 2:1 yfír
gegn Skallagrími.
Ef árangur Snæfellinga er skoð-
aður gegn þessum þremur liðum
sést að Skallagrímur hefur 2:1 yfir
gegn þeim, Hólmarar era hins veg-
ar 2:1 yfir gegn Val og 3:0 gegn
Grindavík. Til gamans má geta
þess að Snæfell vann tvo leiki með
eins stigs mun gegn Grindavík.
Einnig er nokkuð skondið að Snæ-
fell skuli vera í efsta sæti riðilsins
með 42 stig í mínus.
Valsmenn standa vel aö vígi
Enn sagan er ekki öll sögð. Ef
þijú eða fleiri lið verða jöfn að stig-
um er byijað á því að skoða hversu
mörg stig liðin fá úr öllum leikjum
félaganna sín í milli. Skoðum það
hjá Val, Grindavík og Skallagrími.
Valsmenn standa með pálmann í
höndunum því þeir era með 10 stig,
Grindavík með 6 stig og Skalla-
grímur 2. Þessar tölur era miðaðar
við stöðuna eins og hún er núna
en það getur breyst.
Segjum að liðin fjögur verði öll
jöfn að stigum. Snæfell og Valur
era þá með 12 stig en Grindavík
og Skallagrímur sex stig hvort fé-
lag. Þá er næst að skoða skor lið-
anna í þessum innbyrðis leikjum.
Þá kemur í ljós að Valsmenn hafa
gert 40 stigum meira en þeir hafa
fengið á sig. Snæfellingar era með
5 stig í mínus, Grindavík -14 og
Skallagrímur -21. Valsmenn myndu
sem sagt sigra og Snæfell verða í
öðra sæti, en eins og sjá má þá er
hvert stig dýrmætt.
Skoðum aðeins hvaða leiki liðin
eiga eftir og hvemig fyrri leikurinn
endaði. Snæfell á eftir að leika við
Val úti (Snæfell vann fyrri leikinn
72:74), Skallagrím heima (92:86),
Grindavík heima (99:98) og KR úti
(101:77). Valur á eftir KR úti
(84:87), Snæfell heima (72:74),
Grindavík úti (79:83) og Skallagrím
heima (83:74). Grindavik á eftir
Skallagrím úti (86:93), KR heima
(77:75), Val heima (79:83) og Snæ-
fell úti (99:98). Skallagrímur á
eftir Grindavík heima (86:93), Snæ-
fell úti (92:86), KR heima (90:84)
og Val úti (83:74).
Botnbaráttan er hörð
En það er barist á fleiri stöðum
en á toppnum því baráttan á botni
deildarinnar er ekki síður spenn-
andi. Breiðablik er fallið en það lið
sem verður í næst neðsta sæti þarf
að leika við það lið sem verður í
öðra sæti í 1. deild. Baráttan stend-
ur á milli Tindastóls, sem er með
16 stig, og KR sem hefur 14 stig.
Tindastóll á eftir að leika við Hauka
pg UBK á útivelli en Njarðvík og
ÍBK á heimavelli.
Innbyrðis leikir UMFT og KR
enduðu þannig að KR vann 100:90
á sínum heimavelli en Tindastóll
sigraði fyrir norðan 88:87. KR er
því með betri stöðu, stigalega séð
og það nægir þeim því að fá jafn
mörg stig í lokastigatöflunni.
A-RIÐILL
Fj. leikja U T Stig Stig
ÍBK 22 19 3 2237: 1938 38
HAUKAR 22 16 6 1973: 1796 32
UMFN 22 11 11 2040: 2020 22
TINDAST. 22 8 14 1834: 2029 16
BREIÐABL. 22 2 20 1942: 2194 4
B-RIÐILL
Fj. lelkja U T Stlg Stig
SNÆFELL 22 14 8 1926: 1968 28
VALUR 22 11 11 1834: 1811 22
GRINDAV. 22 11 11 1865: 1780 22
SKALLAGR. 22 11 11 1836: 1848 22
KR 22 7 15 1815: 1918 14
Rúnar Guðjónsson og félagar í Snæfelli standa best að vígi í harðri keppni
í B-riðlinum, en óljóst er hveijir komast í úrlitakeppnina.
NBA-DEILDIN
Jordan frábær
MICHAEL Jordan fór á kostum
í Orlando í fyrrinótt og skoraði
36 stig í 108:106 sigri Chicago.
Gestirnir náðu mest 24 stiga
forystu, íþriðja leikhluta, en
heimamenn réttu úr kútnum
og komust yfir. Það nægði ekki,
Jordan skoraði úr tveimur víta-
skotum, jafnaði 104:104, þegar
45,8 sek. voru til leiksioka og
Chicago átti síðasta orðið.
Jordan meiddist á ökla í leiknum
gegn Milwaukee á þriðjudags-
kvöld og var talið að hann gæti ekki
beitt sér gegn Shaquille O’Neal og
félögum, en annað kom á daginn.
Scottie Pippen skoraði 23 stig fyrir
Bulls, en O’Neal var stigahæstur hjá
Orlando með 31 stig.
Larry Johnson skoraði 28 stig og
tók 15 fráköst fyrir Charlotte, sem
vann San Antonio 111:104. David
Robinson skoraði 16 stig fyrir Spurs,
en meiddist á fingri í þriðja leikhluta
og lék ekki meira.
Hakeem Olajuwon skoraði 32 stig,
þegar Houston vann Phoenix
131:104. Heimamenn náðu 20 stiga
forystu í fyrsta leikhluta, sem nægði
til sigurs, fimmti sigurleikurinn í röð
og 18. í síðustu 23 leikjum. Phoenix
hafði sigrað í 14 af síðustu 16 leikj-
um og haft betur í fimm leikjum í
röð gegn Houston, en nú var blaðinu
snúið við.
i
i
í
i
i
i
i
i
í
i
í
i
«