Morgunblaðið - 27.03.1993, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 27.03.1993, Qupperneq 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARZ 1993 ARSTIÐIRNAR Söngsveitin Fílharmónía stendur fyrir flutningi Arstíðanna eftir Jos- eph Haydn í dag og ó morgun (27. og 28. mars) í Langholtskirkju kl. 16.00 bóða dagana. I tilefni af því eru hér sögð deili ó tón- skóldinu og verkum hans og hvað til bar að hann samdi þetta ein- stæða verk. Austurríska tónskáldið Joseph Haydn fæddist árið 1732 í Rohrau í Austur- ríki, litlu þorpi skammt frá landamær- um Ungveijalands. Foreldrar hans, Mathias Haydn og María Koller, áttu fjölda bama og var Joseph elstur sona þeirra. For- eldramir innrættu bömum sínum guðsótta og iðjusemi þegar þau höfðu þroska til. Skólastjóri, sem var frændi Haydns, veitti tónlistargáfum drengsins athygli og tók hann til sín. Þar lærði hann að leika á fiðlu og fleiri hljóðfæri. Georg Reutter, tónlistarstjóri Stefánskirkjunnar í Vínarborg, heyrði dreng- inn syngja og svo fóm leikar að Haydn fór með með honum til Vínar og gerðist kór- drengur — Sángerknabe — átta ára að aldri. Þegar hann fór í mútur var söngferli hans í drengjakómum lokið. Hann var þá um það bil 15 ára og stóð einn og umkomulaus uppi í heimsborginni. Næstu árin dró hann fram lífíð í sárustu fátækt, en komst fyrir tilvilj- un í kynni við ítalska tónskáldið Nicola Porpora sem lagði stund á söngkennslu en vantaði undirleikara. Haydn gerðist húsþjónn hans og hlaut jafnframt góða tónlistarmenntun hjá honum. Porpora umgekkst mikið leik- og tónlistarfólk sem Haydn komst í kynni við og vegna kynna við þetta listafólk urðu fyrstu tónsmíðar hans til. Haydn hafði mikið dálæti á són- ötum C.P.E. Bachs og þreyttist aldr- ei á að leika þær. Fyrstu tónsmíðar hans bám samt fremur svip þeirrar tónlistar sem hljómaði á strætum Vín- arborgar þar sem Haydn hafði ofan af fyrir sér á unga aldri með hljóðfæra- leik. Þegar Haydn varð 27 ára urðu tímamót í lífí ' hans. Það ár var hann ráðinn hljómsveitarstjóri — Kapellmeister — hjá bæheimskum greifa, Franz Morzin að nafni. Sem þjónustumaður hans samdi hann fyrstu strengjakvartettana og sinfón- íur. Að sumrinu dvaldist hann á sveitasetri greifans, en að vetrinum í Vín. Þar hafði hann litla hljómsveit til umráða, skipaða lið- lega tíu mönnum. Einnig stundaði hann kennslu og á þeim vettvangi gripu forlögin í taumana. Meðal nemenda vom dætur hár- kollumeistara að nafni Keller. Haydn felldi hug til hinnar yngri, en hún valdi að ganga í klaustur. Faðir systranna vildi bæta Haydn skaðann með því að gefa honum þá eldri og Haydn sló til. Hún var bæði leið og ljót og eldri en Haydn og bar ekkert skyn á snilli- gáfu hans. Hjónabandið varð bamlaust, en stóð í fjóra áratugi og gerði honum lífið leitt, en náði ekki að buga sköpunargleði hans. Haydn var skamma hríð í þjónustu Morz- ins. Tæplega þrítugur gekk hann í þjónustu Páls Antons Esterházy fursta og starfaði í höll- hans í Eisenstadt. Þar fékk hann af- bragðs hljómsveit til umráða, skipaða yfír tuttugu hljóðfæraleikumm og nú samdi hann hveija sinfóníuna á fætur annani, t.a.m. þær sem kenndar em við kvöld, morgun og miðj- an dag. Páll Esterházy lést árið 1762, en við tók bróðir hann Nikulás að nafni. Með tilkomu hans óx íburður og fjölbreytni hirðlífsins. Auk hljómleikahalds lét furstinn efna til óperasýninga og það varð hlutskipti Haydns að semja slík verk og starfa að uppfærslu þeirra. Samhliða öðmm tónverkum streymdu nýjar sinfóníur og strengjakvartettar úr penna hans að ógleymdri skemmtitónlist sem grípa þurfti til við ýmis tækifæri. Engu að síður þróaðist listköpun hans í að verða metnaðarfyllri og fjölbreyttari. T.a.m. skrif- aði hann allmörg verk fyrir „baryton", strok- hljóðfæri áþekkt sellói, sem var uppáhalds- hljóðfæri furstans. Árið 1766 fluttist Haydn um set í nýja höll sem furstinn hafði látið reisa við Neusi- edler-vatn. Þangað lagði ungverski aðallinn leið sína og keisarahirðin og sjálf María Theresía kom þangað. Haydn heiðraði hana með sinfóníu sem síðan er við hana kennd. Fjölbreytnin í viðfangsefnum Haydns hélt áfram að vaxa. Hann samdi messur pg kant- ötur og frægð hans barst út um ríkið. Blað í Vínarborg nefndi hann „Der Liebling unser- er Nation", sem merkir eitthvað líkt og ást- mögur þjóðarinnar. Afkastageta hans var ótrúleg. Þegar hann var hálffertugur hafði hann samið álíka margar sinfóníur og æviár- in vom mörg. Það gerði honum starfíð ánægjulegra að alúðarvinátta tókst með hon- um og furstanum sem mat list hans mikils. Hann tók mark á því þegar Haydn gaf hon- um í skyn að hljómsveitina munaði í að kom- ast í sumarleyfí og var það sett á svið með sinfóníu líkt og þegar Sighvatur Þórðarson orti Bersöglisvísur, enda fékk hljómsveitin brottfararleyfí eftir flutninginn. Hins vegar yngri en hann. Milli Haydns og hennar skap- aðist tilfinningasamband sem varði í tvo ára- tugi. Bæði vom álíka óhamingjusöm í einka- lífí og röktu raunir sínar hvort fyrir öðm. Þrátt fyrir fáa sólskinsdaga í einkalífi Haydns streymdu fram ný og ný verk full af sköpunargleði. Með strokkvartettum sín- um op. 33 er talið að hinn sígildi strengja- kvartett hafi fengið sitt fasta mót. Þegar Haydn heimsótti vini sína í Vínarborg styttu þeir sér stundir við að leika kvartetta eftir hann. Hin klassíska sinfónía fékk einnig fast form í höndum hans. Hins vegar urðu ópemr hans aldrei vinsælar. Tónlist hans barst vítt um álfuna. T.a.m. þótti Páli, síðar Rússakeis- ara, mikið til kvartetta hans koma. Þá samdi hann samkvæmt pöntun frá París sex sinfón- íur sem kenndar hafa verið við þá víðfrægu borg. Meðal þeirra þijár sem fengu viður- nefnin Hænan, Bjöminn og Drottningin. Sú VETUR Árstíðirnar efftir Joseph Haydn voru frumfluttar í einkasamkvæmi í Schwarzenberg-höll og nokkru síðar við hirðina þar sem engin önnur en IHIaría Theresía söng hlutverk Hönnu vom tónlistarmenn í Vínarborg honum andsnúnir. Það kom t.a.m. fram í því að leyfa honum ekki að gerast félagi í nýstofnuðu tónlistarfélagi í borginni á þeirri forsendu að hann ætti ekki heima þar. Þegar Haydn var fenginn til að semja gamanópem til flutn- ings i Vín bmgðu tónlistarmenn þar í borg fæti fyrir áformið svo að Haydn tók handrit- ið aftur og ekkert varð úr flutningnum. Einn var sá maður sem átti engan þátt í þessum leik og annarri andstöðu við Haydn. Hann hét Wolfgang Amadeus Mozart. Fund- um þeirra bar fyrst saman þegar Mozart var 24 ára og með þeim tókst einlæg vinátta sem entist meðan báðir lifðu. Heimilislífið var alltaf jafn ömurlegt. Ha- ydn bætti sér það að nokkra upp með kynn- um af öðmm konum. í Esterház störfuðu ítölsk hjón, Antonio og Luigia Polzelli. Hann var fíðluleikari, en hún söngkona og miklu síðastnefnda sakir þess að María Antoinette hafði sérstakt dálæti á henni. Árið 1790 andaðist Nikulás Esterházy og þar með urðu þáttaskil í lífí Haydns. Hann var ekki lengur bundinn við starf sitt við Esterházhirðina með sama hætti og áður. Hann fór á eftirlaun og varð fijáls ferða sinna. Honum höfðu borist boð frá Englandi að koma þangað til semja ný verk og stjórna þeim. Sá hét Salomon sem hafði forgöngu um að kalla Haydn til starfa á enskri gmnd. Eftir nokkurt hik ákvað hann að taka boðinu og fara. Mozart fylgdi honum að póstvagnin- um sem Haydn ætlaði með og gat þess á skilnaðarstund að fundum þeirra myndi ekki bera oftar saman. Haydn var tekið með kostum og kynjum í Lundúnum. Hann hófst þegar handa við að semja nýjar sinfóníur sem fengu hinar bestu viðtökur. Á fyrstu tónleikunum voru t.a.m. flutt bæði sinfónía og strengjakvartett eftir Haydn. Og enn tók hann að semja óperu sem ekkert varð úr. Að öðru leyti var Lund- únadvöl hans samfelld sigurganga. Fregnin um fráfall Mozarts féll eins og dimmur skuggi yfír hann á þessum gleðidögum. Heimurinn eignast engan honum líkan næstu hundrað árin stendur í bréfí frá Haydn um þetta leyti. Ekki er fullljóst hvort fundum Beethovens og Haydns bar fyrst saman árið 1790 eða 1792 þegar Haydn var á leið frá Englandi til Vínarborgar. Víst er að hann kom við í Bonn á heimleið og þá bar fundum þeirra þar saman. Nú tók Haydn sér bólfestu í Vínarborg og átti þar heima til æviloka, en fór aðra för til Lundúna árið 1794 þar sem honum var enn mjög fagnað og jafnvel reynt að telja hann á að setjast að í Eng- landi, en hann hafnaði því. Líkt og áður samdi hann nýjar sinfóníur sem nefndar hafa verið eftir Salomon sem hafði haft for- göngu um að fá hann á ný til tónleikahalds og tónsmíða. Frægð hans var meiri en nokkra sinni og efnahagur með blóma. Þegar hann kom aftur til Vínar var hann hylltur sem frægasta tónskáld ofar moldu og kallaður Papa Haydn. I Englandi kynntist Haydn Paradísarmissi Miltons í umritun eða útdrætti sem Gottfried van Swieten hafði lagfært og gert úr óratór- íutexta sem Haydn notaði við samningu Sköpunarinnar. Hún átti eftir að verða hans frægasta verk. Sköpunin var frumflutt í Schwarzenberg-höll á einkahljómleikum árið 1798, en opinberlega var hún flutt 19. mars ári síðar við frábærar viðtökur. Þær urðu til þess að Haydn hófst handa að semja nýtt verk fyrir einsöngvara, hljómsveit og kór. Aftur var það Gottfried van Swieten sem lagði til textann. I þetta sinn unninn úr kvæð- um eftir James Thomson um árstíðimar. Haydn var engan veginn ánægður með þann efnivið sem kvæðin höfðu að geyma og hóf verkið með lítilli hrifningu á viðfangsefninu. Sögusviðið em lágsveitir Austurríkis þar sem greint er frá hinni daglegu önn sveita- fólksins við sáningu og uppskeru, komu vetrar og bið eftir nýju vori. Árstíðimar hafa sérstöðu í tónbókmenntunum vegna efnis. E.t.v. má segja að þær séu einskonar Búnaðarbálkur að breytanda breyttu. Einsöngvararnir em stórbóndi að nafni Símon, Hanna dóttir hans og Lúkas, ungur bóndi. Kórinn fer með hlutverk sveitafólksins. Árstíðimar voru einnig frumfluttar í einkasamkvæmi í Schwarzenberg- höll og nokkm síðar við hirðina þar sem engin önnur en María Theresía söng hlutverk Hönnu við mikinn fögnuð þeirra sem á hlýddu. Fyrstu opinberu hljómleik- arnir vom haldnir 29. maí 1801 við frá- bærar undirtektir. Árið 1800 andaðist kona Haydns. Luigia Polzelli var þá orðin ekkja. Haydn vildi ekki kvænast á ný, en ánafnaði henni lífeyri þess í stað. Hún giftist öðram áður en hann dó og lést löngu síðar í sárri fátækt. Þegar Haydn stóð á sjötugu tók heilsa hans að þverra. Samt samdi hann hina svo- kölluðu Harmóníumessu á eftir Árstíðunum og var langt kominn með nýjan strengja- kvartett þegar þrek hans þraut. Hann kom síðast fram opinberlega 27. mars 1808 á hljómleikum þar sem Sköpunin var flutt. Gamli maðurinn var leiddur til sætis og hlúð að honum. Þegar upphafið hafði verið leikið og einsöngvari og kór sungu Og það varð ljós kváðu mikil fagnaðarlæti við í salnum. Gamli maðurinn brast í grát og hóf hendur sínar til himins. Síðan var hann leiddur á braut. Hann andaðist ári síðar 31. maí 1809. Þá höfðu herir Napóleons tekið Vínarborg svo að útförin fór fram án viðhafnar. Árstíðimar vom fyrst fluttar á íslandi fyrir hálfri öld nokkuð styttar. Flytjendur vom Hljómsveit Reykjavíkur og Söngfélagið Harpa. Einsöngvarar vom Guðrún Agústs- dóttir (Hanna), Daníel Þorkelsson (Lúkas, ungur bóndi) og Guðmundur Jónsson (Símon stórbóndi). Anna Pjeturs og dr. Edelstein aðstoðuðu. Stjómandi var Róbert Abraham. Ekki hefir tekist að finna umsagnir um flutn- ing Árstíðanna í dagblöðum, en af fréttum og auglýsingum sést að skorað var á flytjend- ur að endurtaka samsönginn oftar en einu sinni. Þetta var í fyrsta skiptið sem Guðmundur Jónsson kom fram í viðamiklu einsöngshlut- verki svo að hann á hálfrar aldar afmæli um þessar mundir sem slíkur og fer því vel á færa honum hamingjuóskir og þakkir. Söng- sveitin Fílharmónía minnist þess einnig að þetta var fyrsta stóra verkið sem stjórnandi hennar, dr. Róbert A. Ottósson, færði upp hér á landi. Því sæmir vel að flytja nú sama verk og hann stjórnaði hér fyrir hálfri öld. Aðalgeir Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.