Morgunblaðið - 14.04.1993, Qupperneq 2
2 D
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993
Sigurður Sveinsson markakóngur 1. deildar
ÞannigskoraöiSiguröur íleikjumSellyssinga- \li. Ifi
Vikingur
IBlil
Víkingur
1
0
umf. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22
■ OLE Nielsen, Daninn sem leik-
ið hefur með handboltaliði Þórs á
Akureyri síðustu árin, er á heim-
leið og leikur ekki hér á landi næsta
vetur.
■ JAN Larsen, hinn danski þjálf-
ari Þórs, hættir einnig en hann
hefur þjálfað meistaraflokk félags-
ins í þijú ár. Larsen verður hins
vegar áfram í bænum; hann er gift-
ur íslenskri konu og starfar sem
kennari á Akureyri.
■ VALUR F. Gíslason, knatt-
spyrnumaðurinn efnilegi úr Austra
á Eskifirði, sem er í landsliði 16
ára og yngri, og enn í 3. flokki, er
genginn til liðs við Fram.
■ RÚNAR Guðjónsson, sem leik-
ið hefur með körfuknattleiksliði
Snæfells síðustu ár, verður mjög
líklega með Haukum aftur næsta
vetur.
■ SIGMAR Þröstur Óskarsson,
markvörður ÍBV í handboltanum,
bfómR
FOLK
varði 20 skot gegn KA sl. fimmtu-
dag og þar af 6 vítaköst. Enginn
hefur varið eins mörg vítaköst í
deildinni í einum leik í vetur.
■ HÉÐINN Gilsson gerði 4 mörk
fyrir Diisseldorf er liðið vann
Magdeburg, 22:17, í þýsku úrvals-
deildinni í handknattleik um helg-
ina. Dusseldorf er í fjórða neðsta
sæti með 23 stig, en Massenheim
er efst með 40 stig.
■ ANDREAS Brehme, þýski
knattspyrnumaðurinn kunni, er
hættur hjá Zaragoza á Spáni.
Þjálfarinn vildi setja Brehme í aðra
stöðu en hann leikur venjulega, til
að búa til pláss fyrir Santiago
Aragon á miðjunni, en hann var
keyptur nýlega til liðsins. Þetta
sætti Brehme sig ekki við og seg-
ist vera hættur, þó hann eigi eitt
ár eftir af samningi við félagið.
I JEFF Rouse frá Bandaríkjun-
um bætti heimsmetið í 100 m bak-
sundi á alþjóðlegu móti í 25 m laug
í Sheffield á Englandi á mánudag-
inn. Synti á 51,43 sek. Mark
Tewksbury frá Kanada átti gamla
metið, 52,50.
■ TVEIR verðlaunahafar á nýaf-
stöðnu heimsmeistaramóti í frjáls-
íþróttum innanhúss, báðir Búlgar-
ar, eiga á hættu að missa verðlaun-
in, því fyrri rannsókn á þvagsýni
bendir til að þeir hafi neytt ólög-
legra lyfja. Báðir hlutu bronsverð-
laun. Þetta eru Nikolai Raev, þrí-
stökkvari og langstökkvarinn Dani-
el Ivanov.
■ KRÓATÍA fékk fyrstu stigin í
undankeppni fyrstu Evrópukeppni
landsliða í handknattleik; sigraði
Finnland 31:26 í Helsinki. Þjóðirn-
ar eru með íslandi í riðli.
■ VÍKINGUR tapaði 1:3 í vin-
áttuleik gegn þýsku bikarmeistur-
unum í knattspyrnu, 2. deildarliði
Hannover 96, ytra um helgina.
Tími og tímasetning skipa
veigamikinn sess í keppnis-
íþróttum. Áætlanir eru gerðar um
æfingatíma og keppnistíma og
reglur gilda um leiktíma. Algengt
er að gefnar séu út mótaskrár,
þar sem upplýsingar
um leikstað og leik-
eins og til hefur verið sáð.
Tímavarsla er mál, sem verður
að breyta. Hagsmunamenn mega
í engu tilfelli sjá um svo mikil-
vægan þátt. Best væri að eftirlits-
dómari eða annar á vegum HSÍ
tíma er að finna á
viðkomandi keppnis-
tímabili. Fari skipu-
lagning félaga úr
skorðum er það
þeirra mál rétt eins
og annað sem heyrir
undir þau, en tímabreyting á leik
í efstu deild á ekki að viðgang-
ast, nema að vel rökstuddu máli.
Eins er tímaskekkja að hags-
munamenn hafí með tímavörslu
að gera í leikjum eigin félaga.
Fyrirkomulag íslandsmótsins,
1. deildar karla í handknattleik,
er með þeim hætti að mestu skipt-
ir að vera „á toppnum“ undir lok
deildarkeppninnar og i úrslita-
keppninni, en einnig er æskilegt
að ná öðrum „toppi" fyrr á tíma-
bilinu með framhaldið í huga.
Fram hóf flugið of seint og féll
fyrir vikið, KA brotlenti og missti
af úrslitakeppninni, en tímasetn-
ing ÍBV var enn einu sinni rétt
skipulögð og minnti í mörgu á
ævintýranlegan endasprett Eyja-
manna i knattspymunni á sfðustu
vertíð. Valsmenn hafa verið
„uppi“ á réttum tíma og FH og
Stjarnan hafa haldið haus, þrátt
fyrir meiðsl lykilmanna. Þá hafa
Haukar og Víkingur eflst við
hveija raun, en meiri sveiflur
hafa verið hjá öðrum liðum.
Þrátt fyrir mikiivæga „toppa“
skiptir hver leikur og hvert stig
máli. Metnaðarfullir leikmenn og
þjálfarar leggja allt á sig til að
ná árangri og því er gremja þeirra
vel skiljanleg, þegar utanaðkom-
andi gera ársverkið að engu á
einu augabragði. í flestum tilfell-
um geta menn sjálfum sér um
kennt, þegar uppskeran er ekki
Allt viðkomandi tíma
þarf að vera í föstum
skorðum í íþróttum
stjómaði rafmagnsklukku sam-
kvæmt tilmælum dómara og
hljóðmerki gæfi leikslok til
kynna.
Engum dylst að vilji er fyrir
hendi hjá forystu HSÍ til að efla
starfið, en einhverra hluta vegna
hefur margt farið öðru vísi en
ætlað var. Þegar FH og Valur
óskuðu eftir frestun á deildar-
leikjum vegna Evrópuleikja sagði
formaður mótanefndar að það
kæmi ekki til greina. Leikjaniður-
röðunin hefði verið ákveðin í sam-
ráði og með fullu samþykki félag-
anna og óvarlegt væri að fara
út af sporinu, breyting í einu til-
viki kallaði á breytingu í öðru.
Hins vegar ákvað sami formaður
að flýta úrslitaleik deildarkeppn-
innar vegna óska sjónvarpsstöðv-
ar þar um með samþykki for-
manna handknattleiksdeilda Vals
og Stjörnunnar. Hann sendi við-
komandi liðum skeyti um breyt-
inguna, en fyrir þessu „framtaki"
var ekki lögleg heimild og svo fór
að breytingin var afturkölluð.
En verknaðurinn sýnir að jafn-
vel þeir, sem stilla klukkuna,
gleyma hlutverki sínu, að efla
íþróttina. Eða eins og haft var
eftir ágætum manni: Handboltinn
á ekki að hlaupa á eftir sjónvarp-
inu heldur á sjónvarpið að hlaupa
á eftir handboltanum.
Steinþór
Guðbjartsson
Hvernig fer ÞORBJÖRM JEMSSOIM, þjálfari Vals, að þvíað búa til meistaralið?
Hefð, heppni
og hæfileikar
ÞORBJORN Jensson styrir fyrstu deildar karlaliði Vals í hand-
knattleik fjórða árið í röð og þarf varla að kvarta yfir árangrin-
um. Þrátt fyrir miklar mannabreytingar á hverju ári hefur
Þorbirni, sem er rafvirki að atvinnu, ávallt tekist að smíða
meistarastykki; tengt plúsana og sniðið af mínusana með
þeim árangri að Valsmenn hafa einu sinni fagnað íslands-
meistaratitlinum undir hans stjórn, tvisvar bikarmeistaratitlin-
um og einu sinni deildarmeistaratitlinum auk þess sem liðið
hefur einu sinni leikið til úrslita i bikarnum án þess að sigra
og tvisvar komist í átta liða úrslit í Evrópukeppni.
Með ofangreindar staðreyndir
í huga liggur beinast við
að spyija: Hvernig fer Þorbjörn
Jensson^að því að
búa til meistaralið?
. „Ég veit ekki
Guðbjartsson hvePu & að svafa-“
segir hann hlæj-
andi. „Forsendan fyrir því að búa
til meistaralið byggist á því að
hafa nóg af góðum mannskap, taka
hlutina alvarlega og æfa vel. Það
er alveg pottþétt að uppskeran
verður eins og til er sáð. I þessi (
íjögur ár hef ég aldrei verið með
sama hópinn og gífurlegar breyt-
ingar hafa verið á liðinu, en allir
leikmennirnir eiga það sammerkt
að þeir hafa verið áhugasamir og
samstíga í því sem þeir hafa verið
að gera. Ég hef alltaf sagt að þijú
atriði verði að vera í lagi til að
verða meistari, h-in þijú eins og
ég hef nefnt það: Menn verða að
hafa hæfileika, heppni og hefð og
allt þetta hefur verið til staðar hjá
Val.“
Hvað með fjórða h-ið, hjátrúna?
„Hún er alltaf til staðar. Ég get
nefnt sem dæmi að við höfðum
alltaf sama klefa í Valsheimilinu
og Valdi [Valdimar Grímsson], sem
leikur ávallt í peysu númer fimm,
átti fimmta snaga frá homi. Einu
sinni höfðu félagarnir skrúfað
snagann af og þegar Valdi mætti
var enginn snagi. Það varð auðvit-
að mikið uppistand og reyndar var
ég ekki hrifinn af þessu. Mér fannst
þetta ekki eiga við, enda hef ég
lagt áherslu á fulla einbeitingu
fyrir leiki, en allt fór vel að lokum
og við sigruðum í leiknum."
Ertu eins strangur og harður
þjálfari og af er látið?
„Það er erfítt fyrir mig að dæma
Morgunblaðið/Sverrir
Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals, er laginn við að tengja.
þar um, en ég er kröfuharður gagn-
vart sjálfum mér og þar af leiðandi
geri ég miklar kröfur til allra ann-
arra. Ég er frekar gagnrýninn og
þeir, sem þekkja mig best, segja að
ég sé óþolandi smámunasamur. En
ég er í meyjarmerkinu og sagt er að
því fylgi rosaleg smámunasemi og
mikil gagnrýni. Ég er harður á því
að menn temji sér ákveðnar reglur —
ég set reglur viðkomandi liðinu og
ætlast til að viðkomandi fari eftir
þeim, sem menn gera undantekning-
arlaust."
Kallar gott gengi ekki á meira?
„Jú og eins og Valsliðið er sam-
sett er ég sannfærður um að hægt
er að gera meira, en markmiðið hjá
mér er að skilja eitthvað eftir mig
frekar en að ná skjótum árangri,
fara og skilja ekkert eftir. Ég geri
mér grein fyrir að Valur heldur áfram
eftir að ég er farinn og því legg ég
áherslu á að þyggja upp með framtíð-
ina í huga. Ég fylgist með yngri lið-
unum og verðlauna efnilega stráka
með því að taka þá inn Því er ég
mjög mótfallinn því að „kaupa“ leik-
menn, sem er aðeins að tjalda til einn-
ar nætur.“
Hefur þig dreymt um að taka við
landsliðinu?
„Það eru aðrir menn með það og
meðan svo er hugsa ég ekki útí það,
en tæki á því ef til kæmi. Auðvitað
vilja menn gera sem mest og ná sem
lengst og ég tel mig geta gert góða
hluti þar eins og með Val.“ Sagði
Þorbjörn Jensson, sem stjórnaði æf-
ingu í myrkri í Valsheimilinu á annan
í páskum — húsvörðurinn hafði ekki
gert ráð fyrir æfingu á frídeginum
og herbergið, þar sem kveikt er á
ljósum í salnum, var læst.