Morgunblaðið - 14.04.1993, Page 3
D 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Alttí
iámum
BARÁTTAN um Englandsmeist-
aratitilinn er í algleymingi og nú,
þegartvö efstu liðin eiga fjóra
leiki eftir, skilur aðeins eitt stig
á milli. Manchester United fékk
sex stig úr tveimur leikjum um
páskana, en Aston Villa varð að
sætta sig við sigur og jafntefli.
United slapp með skrekkinn gegn
Sheffield Wednesday á laugar-
dag og vann 2:1 gegn gangi leiksins,
en sigurmarkið kom 50 mínúturh eft-
it að flautað var til seinni hálfleiks.
Fyrirliðinn Steve Bruce, sem gerði
bæði mörk heimamanna eftir að John
Sheridan hafði skorað fyrir gestina,
sagði að áhorfendur hefðu gert gæfu-
muninn. „Við vorum búnir, en undir
lokin fóru hárin að rísa.“ United
fyígdi sigrinum síðan eftir í Coventry
á annan í páskum, en aftur var mjótt
á mununum. Denis Irwin skoraði fyr-
ir gestina skömmu fyrir hlé, en átta
mínútum fyrir leikslok skaut Roy
Wegerley í stöng og boltinn rúllaði
eftir marklínu United.
Aston Villa gerði óvænt marka-
laust jafntefli heima við Coventry á
íaugardag, en Tony Daley tryggði
síðan 1:0 sigur gegn Arsenal á High-
bury, þegar hann skoraði með skalla
um miðjan seinni hálfleik. Leikmenn
Villa léku samt ekki eins og þeir
hafa gert með góðum árangri í vetur
og virðast eiga erfiðari leiki eftir en
ITALIA
Leikimir sem eftir em
ASTON VILLA
17. apríl: ....Man. City (H)
20.apn'l: ....Blackburn (Ú)
Oldham (H)
8. maí: QPR (Új
MAN. UTD
Chclsea (H)
C. Palace (Ú)
l.maí:
8. maí: ...Wimbledon (Ú)
United.
Þorvaldur Örlygsson og samherjar
í Nottingham Forest halda í vonina
eftir 2:1 sigur gegn Tottenham, en
til að dæmið gangi upp verða þeir
að halda uppteknum hætti og auk
þess að treysta á að Sheffield United
eða Crystal Palace tapi stigum.
Les Ferdinand, miðheiji enska
landsliðsins, gerði á laugardag fyrstu
þrennu sína á ferlinum, þegar QPR
vann Forest 4:3, og endurtók leikinn
tveimur dögum síðar í 5:1 sigri gegn
Everton.
Ian Rush var hetja Liverpool um
helgina, gerði sigurmarkið í 1:0 sigri
gegn Oldham og sjöunda mark hans
í síðustu átta leikjum kom í 1:1 jafn-
tefli gegn Manchester City.
■ Úrslit / D6
Gullit barg AC Milan
Hollendingurinn Ruud Gullit
bjargaði AC Milan fyrir horn
er hann jafnaði gegn Inter í ná-
grannaslagnum á
Birgir San Siro-leikvangin-
Breiðdal um í Mílanó á laugar-
skrifarfrá daginn. Fimm jafn-
Itahu tefli litu dagsins ljós
í umferðinni og ekkert lið náði að
vinna á útivelli.
Gullit gerði vonir Inter um meist-
aratitilinn nánast að engu með því
að jafna sex mínútum fyrir leikslok
eftir að Nicola Berti hafði náð foryst-
unni fyrir Inter á 44. mínútu. Þetta
var sjöunda mark hans í aðeins 12
leikjum. AC Milan hefur 7 stiga for-
skot á Inter þegar aðeins sjö umferð-
ir eru eftir. Brasilíski landsliðsmaður-
inn fyrrverandi, Zico, var á meðal
áhorfenda og sagði hann að úrslitin
hafi verið sanngjörn, en hann lék
með Udinese fyrir tíu árum. „Mílanó-
liðin vöktu upp ljúfar minningar frá
veru minni hér á Italíu," sagði Zico.
„Leyndarmálið að velgengninni er
að skemmta áhorfendum," sagði
Scala, þjálfari Parma, eftir að lið
hans hafði unnið fjórða leikinn í röð
og þriðja sætið í deildinni. „Cagliari
átti aldrei möguleika gegn frábæru
liði Parma. Ekkert lið hefði unnið
okkur í dag,“ sagði þjálfarinn.
Reuter
Dean Saunders, Aston Villa, og Nigel Winterbum, Arsenal, í baráttu um
knöttinn á Highbury á mánudaginn.
Bayem aftur
á sigurbraut
^ayern Múnchen hefur tveggja
Frá Jórti
Halldóri
Garðarssyni
ÍÞýskalandi
stiga forskot í þýsku úrvals-
deildinni eftir leiki helgarinnar.
Bayern vann Bor-
ussia Dortmund á
heimavelli 2:0 en á
sama tíma tapaði
Werder Bremen fyr-
ir Frankfurt. Bayem, sem hafði
tapað tveimur leikjum í röð fyrir
sigurinn gegn Dortmund, mátti
þakka fyrir tvö stig úr leiknum sem
var frekar slakur. Hollendingurinn
Jan Wouters gerði fyrra markið á
51. mínútu með þrumuskoti af 25
metra færi og Olaf Thon, besti leik-
maður Bayern í vetur, kom liðinu
í 2:0 með marki úr vítaspyrnu sem
Lothar Mattháus fiskaði undir lok
leiksins.
Eintracht Frankfurt vann Werd-
er Bremen sannfærandi í besta leik
umferðarinnar. Edgar Schmidt kom
Frankfurt yfir á lokamínútu fyrri
hálfleiks þvert á gang leiksins.
Ghanamaðurinn Anthony Yeboah
Olav Tohn lék vel með Bayern.
bætti öðru marki við og var það
11. mark hans i vetur og Rudi
Bommer það þriðja á lokamínútu
leiksins.
SVIÞJOÐ
Gunnar og Amór áminntir
Heimavöllurinn reyndist happa-
dijúgur er fyrsta umferð
sænsku 1. deildarinnar í knatt-
spyrnu, Allsvenskan, hófst á mánu-
dag. í sex leikjum af
Sveinn sjö bar heimaliðið
Agnarsson sigur úr býtum, og
skrifar aðeins einu liði á úti-
frá Svíþjóð vei]j tókst að skora
mark. Fyrirfram er talið líklegast að
baráttan um meistaratitilinn í ár
standi á milli IFK Gautaborgar, IFK
Norrköping og Öster. Önnur lið eins
og Malmö, Halmstad og Örebro
gætu þó hæglega einnig blandað sér
í þann slag. Keppnisfyrirkomulagi
Allsvenskan hefur verið breytt frá
því í fyrra og er nú leikin tvöföld
umferð og efsta liðið þar á eftir telst
meistari. I fyrra var hins vegar leik-
in úrslitakeppni og lið gátu því kom-
ist upp með að leika frekar slaklega
fram eftir sumri, en taka sig á með
haustinu. Þessi breyting er einnig
talin minnka möguleika Gautaborgar
á sigri.
Fjórir íslendingar leika með liðum
i Allsvenskan í ár. Gunnar Gíslason
og Arnór Guðjohnsen leika með
Hácken, sem er eitt fjögurra liða frá
Gautaborg í deildinni. Þeir voru báð-
ir með er Hácken sótti Vestra Frö-
lunda heim í suðurhluta Gautaborgar
og tapaði 0:1.
Gunnar lék í stöðu vinstri
bakvarðar í fyrri hálfleik en skipti
yfir í hægri bakvörðinn eftir hlé.
Arnór var í fremstu víglínu Hácken,
en í síðari hálfleik færði hann sig
aftar á völlinn til að ná í boltann,
enda fékk hann úr litlu að moða.
Báðir stóðu sig þokkalega, en Háck-
en lék ekki vel og sigur Frölunda
var fyllilega sanngjarn. Markið kom
eftir varnarmistök strax á 13. mín-
útu og Frölunda fékk mun fleiri tæki-
færi til að bæta við marki en Hácken
að jafna. „Þeir voru á undan okkur
í alla bolta,“ sagði Gunnar Gíslason
eftir leikinn, „en við getum leikið
mun betur en þetta.“ Gunnar hefur
verið meiddur í baki að undanförnu,
en þau meiðsli háðu honum ekki í
leiknum. „Ég vona að ég spili meira
á miðjunni í næsta leik,“ sagði Arnór
og var ekki ánægður með sinn hiut.
„Það tekur tíma fyrir mig að laga
mig að leikskipuiagi Hácken og auk
þess þekki ég ekki inn á hina leik-
mennina.“ Bæði Arnór og Gunnar
fengu áminningu í leiknum, Gunnar
fyrir brot, en Arnór fyrir að sparka
knettinum í net Frölunda eftir að
dæmd hafði verið á hann rangstaða.
Einar Páll Tómasson var meiddur
á læri og sat á bekknum er lið hans,
Degerfors, tapaði 0:5 í Öster. Deger-
fors hefur gengið vel í æfingaleikjum
í vor og þetta stórtap kom því veru-
lega á óvart. Markakóngur Alls-
venskan í fyrra, Hans Eklund, gerði
þrennu fyrir heimaliðið. „Aftasta
vörnin bakkaði of mikið í leiknum
og fyrir vikið myndaðist stór eyða á
vellinum fyrir framan hana og þar
fengu leikmenn Öster allt of mikinn
tíma til að athafna sig,“ sagði Einar
Páll. Með Örebro, sem er í 50 km
fjarlægð frá Degerfors, leikur Hlynur
Stefánsson. Örebro sigraði Trelle-
borg 1:0 á heimavelli um helgina og
lék Hlynur allán leikinn. Hlynur var
einn besti maður Örebro sl. haust
og hefur einnig komið vel út úr vor-
leikjunum.
Stærsta sigur 1. umferðar vann
Malmö á Brage, 7:0. Gautaborg tap-
aði óvænt stigi í 1:1 jafntefli gegn
meisturum AIK frá Stokkhólmi.
Ahorfendur sviku ekki Helsingborg
er liðið lék sinn fyrsta leik í Allsvensk-
an eftir aldarfjórðungs fjarveru. Tæp-
lega 13.000 áhorfendur sáu leik liðs-
ins gegn Halmstad, en næstflestir
áhorfendur sáu leik Gautaborgar og
AIK, rúmlega níu þúsund.
iÞRÚmR
FOLK
■ ARNAR Gunnlaugsson kom
inná undir lokin hjá Feyenoord,
sem vann Kambuur 3:1 og er með
iriggja stiga forystu á toppi hol-
lensku deildarinnar.
H ROY Hodgson verður lands-
liðsþjálfari Sviss fram yfir úrslita-
keppni Evrópumóts landsliða í Eng-
landi 1996.
■ HODGSON var með samning
fram yfir HM 1994, en hann er á
góðri leið með að fara með Sviss í
úrslitin í fyrsta sinn síðan 1966 og
greint var frá nýjum samningi í
gær.
■ VINNIE Jones, leikmaður
Wimbledon, var dæmdur í fjögurra
leikja bann og gert að greiða um
98.000 kr. í sekt vegna óprúðmann-
legrar framkomu á tímabilinu. Þar
með hefur hann alls verið dæmdur
í 12 leikja bann á yfirstandandi
tímabili.
■ ERIK Thorstvedt, norski
markvörðurinn hjá Tottenham,
fíngurbrotnaði í leiknum gegn
Nottingham Forest í fyrradag og
leikur ekki meira á tímabilinu.
■ BERND Kraus, sem tók við
þjálfun þýska knattspyrnuliðsins
Borussia Mönchengladbach fyirir
áramót, skrifaði um helgina undir
nýjan samning við félagið sem gild-
ir til 1995.
H ARRICO Sacchi, landsliðs-
þjálfari ítala, hefur gert tvær
breytingar á landsliðshópnum sem
mSfetir Eistlendingum í undan-
Frá Birgi
Breiðdai
á Ítalíu
keppni HM í kvöld.
Roberto Baggio
verður með á ný eft-
ir meiðsli og Mor-
eno Mannini, leik-
maður Sampdoria, hefur verið val-
inn í hópinn í stað Mauro Tassottis.
■ MAURO Tassotti, varnarmað-
urinn sterki hjá AC Milan, verður
frá keppni í íjórar vikur eftir sam-
stuð við Ruben Sosa hjá Inter um
síðustu helgi.
■ AC Milan hefur ekki unnið leik
í deildarkeppninni síðan 7. mars,
en þá vann liðið Fiorentina 2:0.
H JEAN Pierre Papin og Stef-
ano Eranio, leikmenn AC Milan,
verða í leikbanni á sunnudaginn er
liðið mætir Juventus. Framheijinn
knái, Simone, mun líklega taka
stöðu Papins en hann skoraði ein-
mitt sigurmarkið gegn Juve í fyrri
umferðinni.
H ANDREAS Möller, Þjóðveijinn
hjá Juventus, kom inná í leik liðs-
ins um síðustu helgi eftir að hafa
átt í meiðslum um tíma. Hann er
mjög ánægður með frammistöðu
sína í vetur. „Ég hef bætt mig sem
knattspyrnumaður. Það er ekki allt
búið enn. Mig dreymir um að mæta
mínum gömlu félögum í Dortmund
í úrslitum Evrópukeppninnar."
BELGIA
Anderiecht
meistari
í 22. sinn
Anderlecht tryggði sér belg-
íska meistaratitilinn í
knattspymu í 22. sinn á laugar-
daginn, en liðið varð siðast
meistari fyrir tveimur árum.
Liðið vann Lierse 3:0 um helgina
og þó svo að fimm umferðir séu
enn eftir er liðið orðið meistari.
Varnarmaðurinn Bertrand Cas-
son gerði fyrsta mark And-
erlecht á laugardaginn, Hollend-
ingurinn Johnny Bosman bætti
öðru við skömmu fyrir hálfleik
og Luc Nilis gerði það þriðja í
síðari hálfleik.