Morgunblaðið - 02.06.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.06.1993, Blaðsíða 1
VIÐTAL VIKUNNAR Veiðir MYNDASÖGUM Moggans ber- ast mörg bréf frá krökkum víða um land. Stundum eru þeir að senda svör við þrautum, stund- um senda þeir okkur myndir og stundum sögur, Jjóð, brand- ara eða óskir um pennavini. Bryndís Vigfúsdóttir, sem er sjö ára gömul og á heima í Mosfellsbæ, er ein þeirra sem sent hafa okkur myndir og fleira. Baldvin bróðir Bryndís- ar hefur einnig sent okkur bréf. Við hittum Bryndísi að máli um daginn. Þegar við hittum Bryndísi var hún að lesa upphátt úr bókinni um herra Sæl. Hún les skýrt og greinilega. Þegar hún er spurð hvar hún hafi lært að lesa svona vel segist hún auðvitað hafa lært það í skólanum hún sé búin að vera þar. Hún lætur ekki trufla sig við lengur við lesturinn og heldur áfram og þegar þessi bók er búin tekur næsta við. Svo er hún farin út. Þegar hún kemur inn aftur er hún að leita að einhveijum sem vill hjálpa henni með stiga, hún ætlar að komast niður í eitthvað og þarf stiga. Mamma hennar vill ekki að hún fái stigann svo hún leita að einhveijum öðrum til að hjálpa sér. Nei, það á enginn stiga fyrir hana. Jæja, hún fer þá og gerir eitthvað annað. Aftur hittum við hana þar sem hún rólar sér í kaðli og veltir fyr- ir sér hversu mikið hún megi beygja fætuma án þess að reka þá niður í gólfíð, og hvað getur hún teygt tærnar langt fram og staðið upp úr kaðlinum. Hvað hún hafí gert í skólanum í vetur? Jú, hún reiknaði alla bók- ina. Það var það skemmtilegasta randaflugur sem hún gerði. Henni finnst skól- inn auðsjánlega skemmtilegur. Hún á heima í hverfí sem er langt frá skólanum þannig að hún getur ekki gengið í skólann, en kemur þá skólabíll? Nei, það er enginn skólabfll en hún tekur strætis- vagn, nema þegar veðrið er mjög vont, þá keyrir mamma hana í skólann. Þegar hún tekur strætis- vagninn þá fer hún úr honum og gengur síðan eftir göngum sem eru undir götuna því þetta er stór og hættuleg gata. Hún á vinkonu sem er sex ára. Hvað gerir hún skemmtilegt? Hún veiðir flugur! í það minnsta reynir hún það. Það eru randa- flugur sem hún er að veiða. Þær eru gular og svartar á bakinu. Svo eru aðrar flugur sem eru gular, svartar og rauðar á bakinu. Hún hefur líka séð býflugu, það var drottning, hún var mjög stór. Það er líka gaman að veiða ána- maðka. Við löbbum saman út til að taka mynd. Hún grípur hjólbör- umar og veit alveg hvernig á að keyra þær og sýnir það og brosir út að eyrum. Hún er óspör á bros- in þessi unga stúlka. Við kveðjum hana og vonum að henni gangi vel í flugnaveiðunum eða öðru skemmtilegu sem hún tekur sér fyrir hendur. Fylltar appel- sínur Þetta þarf: '4 stórar appelsínur 8 matskeiðar vanilluís 2 matskeiðar hakkaðir hnetu- kjarnar Skolið appelsínurnar í heitu vatni og skerið lok af efri hlutan- um. Ef það er nauðsynlegt til að appelsínan standi vel á borð- iriu má skera örlítið af neðri endanum. Takið varlega innan úr appels- ínunni og skerið í bita. Setið bit- ana aftur í appelsínuna ásamt ísnum. Hneturnar setur þú síðan efst. Pennavinir Gísli Kristján Ólafsson, Guttormshaga, 851 Hella Gísli vill eignast pennavini. Áhugamál: Körfubolti, körfubolta- myndir og kvikmyndir. Guðrún Lilja Tryggvadóttir, Seyavegi 21, 101 Reykjavík Guðrún er 10 ára og vill eign- ast pennavinkonur á aldrinum 9-10 ára. Brandarar Kristjana Erlingsdóttir, Drápu- hlíð 27, sendi okkur þennan brandara. Gesturinn: Þjónn, það er könguló í súpunni minni. Þjónninn: Flugurnar fóru í verkfall. Vor Vorið er komið og gleðjumst við öll og hoppum og skoppum um víðan völl. Og blómin þau spretta svo snöggt og hratt, að kýrin úti á haga bara datt. Svona er vorið og gaman þá er, þá hittumst við aftur sem betur fer. Helga L. samdi þetta þ'óð. Pétur Þorvaldsson Þessa mynd af Tomma og Jenna teiknaði Ásgeir, 7 ára, Aflagranda 3, Reykjavík. Krabbi og fiskur í sjó heitir mynd Hauks sem er 5 ára og á heima á Öldugranda 1. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.