Morgunblaðið - 03.06.1993, Side 7

Morgunblaðið - 03.06.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993 dagskrtai C 7 SUNNUPAGUR 6/6 Cheers - Leikararnir úr Cheers reyna nú fyrir sér í öðrum hlut- verkum. Tekistá við önnur hlutverk Leikararnir úr Cheers í nýjum sjónvarpsþátt- um og kvikmyndum Eins og flestir sjónvarpsáhorfend- ur vita hefur framleiðslu á mynda- flokknum Cheers verið hætt. Leik- ararnir úr þáttunum eru þó ekki horfnir af sjónarsviðinu heldur takast þeir nú á við ný verkefni. Ted Danson tókst að slá í gegn í myndinni Þrír menn og barn (Three Men and a Baby) en hefur ekki leik- ið í vinsælum myndum síðan. Hann vonar þess vegna að nýjasta mynd hans „Made in America" slái vel í gegn. Aðalmótleikari Dansons í myndinni er Whoopi Goldberg. Þó að ekki sé búið að frumsýna myndina hefur mikið umtal skapast í kringum hana. Það er þó ekki myndin sjálf sem fólk hefur mestan áhuga á held- ur sú saga að Ted Danson og Who- opi Goldberg séu ekki aðeins par í 'myndinni heldur einnig í raunveru- leikanum. Woody Harrelson er farinn að reyna fyrir sér í kvikmyndum eins og Ted Danson. Harrelson lék á sein- asta ári í myndinni „White Men Can’t Jump“ í og ár reynir hann að slá í gegn í „Indecent Proposal". í þeirri mynd leikur hann á móti stjömunum Demi Moore og Robert Redford. Kelsey Grammer lék sálfræöingin Frasier sem var einn af fastagest- unum á Cheers. Hann lætur kvik- myndaleik í friði í bili og heldur áfram að leika í sjónvarpi. Grammer verður með eiginn þátt hjá sjónvarps- stöðinni NBC næsta haust og á sá þáttur einfaldlega að heita Frasier. Eins og nafnið gefur til kynna kem- ur Grammer til með að leika sömu persónu og hann hafði þróað í Che- ers. Ein dýrasla sápu- ópera BBC tekin af dagskrá Myndaflokkur- inn Eldorado nádi ekki nægilegum vinsældum Myndaflokkurinn Eldorado átti að vera arftaki Austurbæinga (East- Enders) hjá BBC, en hann náði aldr- ei sömu vinsældum og fyrirrennari sinn. Ekkert var til sparað þegar Eldorado var hleypt af stokkunum en alvarleg skipulagsmistök urðu til þess að myndaflokkurinn náði sér aldrei á strik. Nú á að taka hann af dagskrá. Eldorado - Framleiðandi þáttanna, Verity Lambert (t.h), heimsæk- ir upptökustað sápuóperunnar á Spáni. Tilraun sjónvarpsstöðvarinnar BBC til þess að hafa sáupuóperu þrisvar í viku á besta sýningartíma hefur mistekist. Síðasta sumar hóf BBC sýningar á sápuóperunni Eld- orado. Þessi myndaflokkur er stærsta og dýrasta verkefni sem BBC hefur samið um við sjálfstæð- an framleiðanda og var honum hleypt af stokkunum með mikilli auglýsingaherferð. Áhorfendum var lofað líflegum þáttum á sólar- strönd en útkoman var allt önnur. Tókstekki aö heilla áhorfendur Núna eftir eitt ár og 156 þætti hefur verið ákveðið að hætta að framleiða myndaflokkinn. í sím- bréfi sem stjómendur BBC sendu framleiðendum Eldorado var sú ástæða gefin að þar sem þættirnir hefðu ekki náð að heilla áhorfend- ur væri ekki tilefni til þess að halda áfram. Framleiðendurnir fengu eitt lokaverkefni, að binda enda á þættina á snyrtilegan hátt. Stjómendur BBC ákváðu á sín- um tíma að fara af stað með Eld- orado í þeirri von að myndaflokk- urinn næði sömu vinsældum og Austurbæingar (EastEnders). Eld- orado hafði svipaðan útgangs- punkt og Austurbæingar en sögu- sviðið var annað. Það var lítið bæjarsamfélag á Spáni þar sem margir Bretar dvelja, en talsvert er um að Bretar flytjist búferlum til Spánar eða eigi þar aðgang að bústöðum. Bretar sem búa á Spánni vom ekki hrifnir af Eldorado. Sam- kvæmt þeim náði myndaflokkur- inn ekki að sýna hvernig lífi þeirra er háttað. Sumir benda á að þetta hafi verið stærstu mistök þátt- anna. Þeir segja að þættirnir hafi aldrei náð að skapa rétta andrúms- loftið eins og Austurbæingar hefðu gert. Virtur framleiðandi Dýrkeypt mistök - Nokkrir af leikurunum þijátíu sem komu fram i Eldorado sjást hér hvíla sig á milli atriða. ur. Lambert við- urkennir að mis- tök hafi verið gerð. Að hennar sögn var aðallega tvennt sem hafði áhrif á velgengni Eldorado. í fyrsta lagi var þáttunum flýtt um of í fram- leiðslu. Útsendingar hófust í júní á síðasta ári löngu áður en handritið var fullfrágengið og leikaramir til- búnir. í öðm lagi skapaði sú ákvörðun að hafa myndaflokkinn þrisvar í viku alltof mikið álag á alla þætti framleiðslunar. Skömmu eftir að útsendingar hófust á Eldorado sagði tilvonandi aðalforstjóri BBC, John Birt, í við- tali við The Sunday Times að hann væri mjög óánægður með Eld- orado. Eftir þessa yfirlýsingu sýndu fáir stjórnendur BBC áhuga á myndaflokknum. Ýmislegt var gert til þess að reyna að gera myndaflokkinn betri en ekkert gekk. Sem dæmi má nefna að handritshöfundarnir fengu skipun um að fækka persón- um. Þær vom um 30 í upphafi en fækkaði smám saman. En áhorf- endur kvörtuðu áfram undan óskiljanlegum söguþræði og léleg- um leik. Síðbúnar framfarir í vor tók myndaflokkurinn loks miklum framfömm. Hann seig inn á lista yfir 30 vinsælustu þætti BBC og náði til um átta milljóna sjónvarpsáhorfenda. Það fóru jafnvel að berast aðdáendabréf. En því miður var allt um seinan. Stjómendur BBC voru búnir að þvo hendur sínar af Eldorado og vildu ekki af þættinum vita. Allt sem kemur til með að standa eftir af myndaflokknum er tveggja milljón punda sviðsmynd á Spáni. Hún er í smábænum Coin en þar hafa um 150 bæjarbú- ar haft vinnu við gerð þáttanna. Þeir munu skrá sig aftur á at- vinnuleysisskrá en mikil kreppa ríkir í Coin. Spánveijarnir ætla samt ekki að láta þunglyndi ná tökum á sér. Þeir vona að hægt sé að nota sviðsmyndina fyrir aðra þætti í framtíðinni. Einnig stefna þeir að því að byggja kvikmynda- ver þar sem hægt verður að taka upp vestra. Þegar farið var af stað með Eldorado virtist framtíðin björt. Einn virtasti framleiðandi Breta, Verity Lambert, stjórn- aði gerð þátt- anna. Hún réð bæði framleið- enda og hand- ritshöfund Aust- urbæinga til þess að vinn við hin nýja mynda- flokk. Vinsæld- irnar virtust gull- tryggðar en út- koman varð önn- UTVARP RÁS I FM 92,4/93,5 8.00 Fréttir. 8.00 Fréttir. 8.07 Morgunandakt. Séra Jón Dalbú Hröbjortsson, prófastur flytur ritningarorð og bæn. 8.15 Tónlist ó sunnudagsmorgni. 9.00 Fréttir. 9.03 Órotoría eftir myndum úr Bibl- íunni, fyrir einsöngvaro kór og hljóm- t sveit eftir Fanny Mendelssohn-Henzel. Isabel Lippitz, sópran, ftnnemorie Fisher- Kunz, olt, Hitoshi Hotano, tenór, Thomos Thomasthke, bassi og kór og hljómsveit Kölnor „Kurrende" flytja; Elke Mascho Blonkcnburg stjórnor. 10.00 Fréttir. 10.03 Mælskulist. Lokaþóttur, Umsjón: Árni Sigurjónsson. (Einnig útvorpaó þriójudag kl. 22.35.) 10.45 Veðurfregnit. 11.00 Messa í Dómkirkjunni ó vegum Sjómannadagsróós. 12.10 Dagskró sunnudagsins. 12.20 Hódegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. Auglýsingor.Tónlist. 13.00 Heimsókn. Umsjón: Ævar Kjartons- son 14.00 Fró útihótiðarhöldum sjómanna- dagsins vió Reykjavíkurhöfn. Fulltrúar rikisstjótnarinnar, útgeróarmanno og sjó- monna flytja óvörp. Aldraðir sjómenn heióraóir. 15.00 Sjómannolögin. 16.00 Fréttir. 16.03 Sumorspjall. Umsjón: Rugnhildur Vigfúsdóttir. (Einnig útvorpaó fimmtudag kl. 14.30.) 16.30 Veðurfregnir. 16.35 Úr kvæðohillunni. Jón Þorlóksson. Umsjón: Gunnar Stefónsson. Lesari; Guöný Ragnorsdóttir. 17.00 Úr tónlistorlffinu. Fró tónleikum Kvennakórs Reykjovlkur f Langholtskirkju 9. mof sl. Á efnisskrónni. Lög eftir is- lensk og erlend tónskóld. Einsöngvaror: Björk Jónsdóttir, Erno Guómundsdóttir, Jóhonno V. Þórhallsdóttir, Aóalheiöur Elín Pétursdóttir og Guórún Stefónsdóttir. Svono Vlkingsdóttir leikur ó píonó; Mar- grét J. Pólmadóttir stjórnar. Umsjón: Tómas Tómosson. 18.00 Ódóóahraun. „Liggur við Kreppu litil rúst, leióirnar ekki greióar". 5. þótt- ur af tiu. Umsjón: Jón Guuti Jónsson. Lesari: Þrninn Karlsson. Tónlist: Edward Frederiksen. Hljóófæraleikur: Edward Fredetiksen og Pétur Grétarsson. 18.48 Dónarfregnir. Auglýsingor. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Veðurfreg nir. 19.35 Funi. Helgorþóttur barna. Umsjón: Elísabet Brekkon. (Endurtekinn fró laug- ardagsmorgni.) 20.25 Hljómplöturabb. Þorsteins Hannes- sonor. 21.00 Þjóðarþel. Endurtekinn sögulestur sl. viku. 22.00 Fréttir. 22.07 Á orgelloftinu. islenskir orgelleikor- ar 22.27 Orð kvöldsins. 22.30 Veðurfregnir. 22.35 Söngvor um sjóinn. Sarah Wolker, messósópron og Thomas Allen, boritón, syngja; Roger Vignoles leikur ó pionö. 23.00 Frjólsor hendur. Illugo Jökulssonor. 24.00 Fréttir. 0.10 „Sjómenn islenskir erum við'. Sjómannadagurtnn. Svanhildur Jokobsdóttir kynnir donslög. 1.00 Næturútvarp til morguns. RÁS 2 FM 90,1/94,9 8.07 Morguntónor. 9.03 Sunnudogsmorg- unn með Svovari Gests. Sigild dægurlög, fróðleiksmolor, spurningaleikur og leitoð fango i segulbandosafni Utvarpsins. Veðurspé kl. 10.45. 1 1.00 Helgarútgófon. Umsjón: Lísa Pólsdóttir og Magnús R. Einarsson. Úr- vol dægurmólaútvarps liðinnar viku. 12.20 Hódegisfréttir. 12.45 Helgarútgófan heldur ófram. 13.00 Hringboröió. Fréttir vikunnat, tónlist, menn og mólefni. 14.15 Litla leik- húshornió. Litió inn ó nýjustu leiksýningar- innar og Þorgeir Þorgeirsson, leiklistarrýnif Rósar 2, tæóir viö leikstjéia sýningorinnar. 15.00 Mouraþúfan. íslensk tónlist vitt og breitt, leikin sungin og töluð. 16.05 Stúdió 33. Örn Petersen flytur létto norræna dægur- tónlist úr stúdlói 33 i Kaupmunnohöfn. Veð- urspó kl. 16.30. 17.00 Með grótt í vöng- um. Gestur Einor Jónasson sér um þóttinn. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Úr ýmsum ótt- um Umsjón: Andreo Jónsdóttir. 22.10 Meó hatt ó höfði. Þóttur um bandaríska sveito- tónlist. Umsjón: Baldur Brogoson. Veðurspó kl. 22.30 . 23.00 Á tónleikum. 0.10 Kvöldtónar. 1.00 Næturútvorp ó samtengd- um rósum til morguns. Fréttir kl. 8, 9. 10, 12.20, 16, 19, 22 og 24. N/ETURÚTVARPIÐ 1.00 Næturtónar. 1.30 Veðurfregnir. Næturtónor. 2.00 Fréttir. Næturtónar. 4.30 Veðurfregnir. 4.40 Næturtónar. 5.00 Fréttir. 5.05 Næturtónar. 6.00 Fréttir af veóri, færð og flugsomgöngum. 6.01 Morguntónor. AÐALSTÖDIN FM 90,9 / 103,2 9.00 Þægileg tónlist ó sunnudagsmorgni. Björn Steinbekk ó þægilegu nótunum. 13.00 Sunnudagur til sælu. 17.00 Hvita tjoldiö. Þóttur um kvikmyndir. Fjalloó er um nýjustu myndirnar og þær sem eru væntonlegor. Hverskyns fróðleikur um það sem er að gerost hverju sinni I stjörnum prýddum heimi kvikmyndanna auk þess sem þótturinn er kryddaður því nýjosja sem er að gerast i tónlistinni. Umsjón: Ómar Frið- leifsson. 19.00 Tónlist. 20.00 Gaddovir og góðor stúlkur. Jón Atli Jónasson. 1.00 Ókynnt tónlist til morguns. BYLGJAN FM 98,9 7.00 Morguntónor. 8.00 Ólafur Mór Björnsson. Ljúfit tónor með morgunkoffinu. Fréttir kl. 10 og 11. 11.00 Fréttovikon með Hollgrími Thorsteins. Hallgrimur fær gesti i hljóðstofu til oð ræða atburði liðinn- ar viku. Fréttir kl. 12. 12.15 Darri óla- son. Þægilegur sunnudagur með huggulegri tónlist. Fréttir kl. 14 og 15. 15.05 Is- lenski listinn. Endurflutt verðo 40 vinsæl- ustu lög londsmanno. Jón Axel Ólafsson kynnir. Dagsktérgetð: Ágúst Héðinsson. Framleiðandi: Þorsteinn Ásgeirsson. Fréttir kl. 17. 18.00 Ólöf Mutin Úlfarsdóttir. Þægileg og létt tónlist ó sunnudagskvöldi. 19.30 19.19. Fréttir og veður. 20.00 Coco Cola gefur tóninn ó tónleikum. Tónlist- orþóttur með ýmsum hljómsveitum og tón- listormönnum. Kynnir er Pétur Valgeirsson. 21.00 Pétur Valgeirsson. Ljúfir ténar ó sunnudogskvöldi. 24.00 Næturvaktin. BYLGJAN, ÍSAFIRDI FM 97,9 9.00 Sjó dagskró Bylgjunnor FM 98,9. 19.19 Fréttir 20.00 Sjó dagskró Bylgj- unnat FM 98,9. 1.00 Ágúst Héðinsson. Endurtekinn þóttur. BROSIÐ FM 96,7 10.00 Tónaflóð með Sigurði Sævarssyni. 13.00 Fetðamðl. Ragnar Ötn Pétursson. 14.00 Sunnudagssveitla. Gestagongur og góð tónlist. Gylfi Guðmundsson. 17.00 Sigurþór Þótarinson.19.00 Jenný Johansen. 21.00 Ágúst Mognússon. 1.00 Næturtónl- ist. FM957 FM 95,7 10.00 Haroldur Gisloson. 13.00 Helga Sigrún Harðardóttir. 16.00 Vinsældalisti íslands, endurfluttur fró föstudagskvöldi. 19.00 Hollgrimur Kristinsson. 21.00 Sig- voldi Kaldalóns. 24.00 Ókynnt tónlist. SÓLIN FM 100,6 10.00 Jóhannes og Július. Ljúfur og lif- ondi morgunþóttur. 14.00 Hons Steinor eða Jén G. Geirdal. 17.00 Viðvanings- tíminn. 19.00 Elso og Dagný. 21.00 Meistargtaktar. 22.00 A siðkvöldi. Systa. 1.00 ðkynnt tónlist til morguns. STJARNAN FM 102,2 10.00 Sunnudagsmorgun með Filadelfiu. 13.00 Úr sögu svartor gospeltónlistor. Umsjón: Thollý Rósmundsdóttir. 14.00 Sið- degi ó sunnudegi með Hjólpræðishernum. 18.00 Út um viðo veröld. 20.00 Sunnu- dogskvöld með KFUM, KFUK og SÍK. 24.00 Dagskrórlok. Banostund kl. 10.05 og 13.00. Fréttir kl. 12, 17. ÚTRÁS FM 97,7 12.00 F.Á. 14.00 HAI Umsjón: Amór og Helgi i M.S. 16.00 Iðnskólinn. 18.00 M.R. 20.00 f.B. 22.00-1.00 Herbert. Umsjón: Moria, Birta, Volo og Sigga Nonno i M.H.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.