Morgunblaðið - 03.06.1993, Side 12
12 C dagskrá
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
INIýtt réðuneyti
tekur til starfa
íBretlandi
Arfleiðarráðu-
neytið sér m.a.
um fjölmiðla og
kvikmyndir
Mikið hefur verið hlegið að nýjasta
ráðuneyti Breta. Það hefur verið
kallað grínráðuneytið, deildin þar
sem ekkert gerist, ófreskjan og
margt fleira. Peter Brooke, nýi ráð-
herrann, segir að ráðuneytið sjái um
öll mál sem snerta frítíma almenn-
ings. Þetta nýja fyrirbæri ber hið
virðulega heiti arfleiðarráðuneytið.
Arfleiðarráðuneytið hefur mörg
málefni á sinni könnu. Það sér um
söfn, fjölmiðla, íþróttir, ferðamál,
þjóðminjar, listiðn og listir al-
mennt. Ráðuneytið tók til starfa
í maí síðastliðnum en hugmyndin
um stofnun þess fæddist fyrir
rúmu ári. Það var forsætisráð-
herra Bretlands, John Major, sem
lagði til að stofnað yrði ráðuneyti
sem bæri ábyrgð á öllum hliðum
breskrar menningar.
Stefnubreyting í
menningarmálum
Þessi hugmynd Majors er stór
breyting frá stefnu fyrirvera hans
Thatchers. Hún hafði enga full-
mótaða stefnu í menningarmálum
og voru þeir málaflokkar sem arf-
leiðarráðuneytið sér um dreifir um
breska stjórnkerfið. Major ákvað
hins vegar að færa þá alla undir
einn hatt. Með þessara ákvörðun
telja stjórnmálaspekúlantar að
Major sé að lýsa því yfir að stjórn-
völd beri ábyrgð á fleiru en efna-
hag landsins. Þau þurfi að axla
ábyrgð á öllum hliðum mannlegs
lífs.
Þegar tillagan um stofnun ráðu-
neytisins var lögð fram var ekki
búið að ákveða nafn hins nýja
ráðuneytis. Ihaldsmönnum leist
illa á að kalla það menningarmála-
ráðuneytið. Þeim fannst það
hljóma einum of kommúnískt.
Stéttarskiptinginn sem hefur ríkt
í Bretlandi í gegnum aldirnar veld-
ur því einnig að aðgreining á milli
há- og lágmenningar veldur heit-
um umræðum því var talið að
best væri að forðast þennan titil.
Ráðuneyti lista, íþrótta, og arfleið-
ar þótti of þungt í vöfum og eng-
in leið að skammstafa heitið. Að
endingu var arfleiðarráðuneytið
(Ministry of Heritage) samþykkt
sem heiti. Það þótti vera nógu
virðulagt og höfða til bresku þjóð-
arsálarinnar.
Erfið fæðing
Hið nýja ráðuneyti gekk í gegn-
um erfiða fæðingu. John Major
hafði valið hinn litríka vin sinn
David Mellor til þess að setjast í
nýja ráðherrastólinn. Mellor áleit
að ef menn vildu fá einhverju
framgengt í menningarmálum þá
yrði að skapa sérstakt ráðuneyti
sem hefði fjárhagsleg bolmagn til
að hafa áhrif. Hneyksli varð Mell-
or að falli og gárungur skírðu hið
nýja ráðuneyti grínráðuneytið.
Mellor vék til hliðar og Peter Bro-
oke hreppti ráðherrastólinn. Hin
alvarlega útlítandi Brooke segist
hafa hæfilega íhaldssaman smekk.
Þessi yfirlýsing og hin virðulega
framkoma hans þykir passa ágæt-
lega við hið íhaldssama nafn ráðu-
neytisins. Hann álítur tilgang hins
nýja ráðuneytis ekki eingöngu
vera að varðveita fortíðina heldur
einnig að styðja nútímann.
Langur undirbúningur
Talsvert langan tíma tók að
gera arfleiðarráðuneytið starfs-
hæft og á þeim tíma kölluðu gár-
ungar það deildina þar sem ekkert
VERKSVIB RÁÐUNEYTISINS
Pjóðaraptleitðanpáðuneyti
SÖFN
ÍÞRÚTTIR FJÖLMIDLAR
BLAÐA-
ÚT-
VARPS-
OG
1 SJÓN-
VARPS-
RÁÐ
STYRKIR:
KVIKMYNDA-
HÁTlÐIR
BRESKA
KVIKMYNDA-
STOFNUNIN
(BFI)
STYRKIR:
KVIK-
MYNDA-
SAFN
BRET-
LANDS
I g
ÞJÓD- FERBAMANNA- LIST- LIST
MINJAR IÐNAÐUR IÐN (ALMENNT)
J_______ i ______________I....... ...... I
ÞJÓÐMINJA- SVÆÐIS- UST- USTA-
SJÓÐUR STJÓRNIR IÐNAÐAR- RÁÐ
RÁÐ
STYRKIR:
BRESKI
KVIK-
MYNDA-
SKÓLINN
STYRKIR:
KAUP
OG
VARÐ-
VEISLA
ÞJOÐ-
MINJA
..........
...r ~
STYRKIR:
SAMTÖK
UST-
©NAÐAR-
MANNA
SKOSKA USTARÁÐIÐ
VELSKA LISTARÁÐIÐ
SVÆÐISBUNDIN RÁÐ
STYRKIR: MYNDUST, LEIKUST,
BÓKMENNTIR, ÞJÓÐLEIKHUS
gerist. Ráðuneytisstjórinn, Hayd-
en Phillips, segir að undirbúning-
urinn hafi verið tímafrekur því
erfitt hefði verið að samhæfa ólíka
málflokka. Fjölmiðlar heyrðu und-
ir innanríkisráðuneytið. Þjóðminj-
ar voru undir umsjón umhverfís-
ráðuneytisins. Iðnaðarráðuneytið
sá um kvikmyndir. íþróttir til-
heyrðu menntamálaráðuneytinu
og ferðamál atvinnumálaráðu-
neytinu. John Major taldi að þess-
ir málaflokkar mætu ætíð afgangi
hjá viðkomandi ráðuneyti og þess
vegna væri best að sameina þau
á einn stað. Major álítur að með
þessu móti fái allir málflokkarnir
þá athygli sem þeir þarfnast.
Bylting á svið stjórnmála og
menningar
Að sögn Hayden Philips er arf-
leiðarráðuneytið bylting bæði á
sviði stjórnmála og menningar.
Það hefur mun færri starfmenn
en önnur ráðuneyti þar sem mikið
af verkefnum eru boðin út. Stór
hluti fjármagns ráðuneytisins fer
til ýmissa ráða og stofnanna sem
útdeila styrkjum til menningar-
starfsemi. Fljótt álitið.er talið að
um 45 ráð og stofnanir sæki íjár-
magn til arfleiðarráðuneytisins.
Ráðuneytið hefur sett á stofn
lotterí sem talið er að muni velta
að minnsta kosti 1,5 billjón punda.
Helmingur þeirrar ijárhæðar fer í
vinninga. Síðan fer hluti í skatta
en afgangurinn fer til ráðuneytis-
ins og getur hver málaflokkur
reiknað með 70 milljónum punda
á ári. Þegar hefur verið ákveðið
að nota hluta af fjármagninu fyrir
fyrirhugaða sýningu eða hátíð sem
halda á um aldamótin. Þó er ekki
reiknað með að ráðuneytið fái
peninga úr lottóinu fyrr enn 1995
eða eftir tvö ár. Fjárhagsstaða
ráðuneytisins er því ekki of stönd-
ug í dag. Breska ríkisstjórnin hef-
ur verið að skera niður útgjöld og
nýja ráðuneytið finnur fyrir því.
Það hefur orðið að skera niður
styrki til ýmissa stofnanna og
ráða. Þetta eru mikil vonbrigði
fyrir þá sem trúðu því að ráðuneyt-
ið myndi styrkja fjárhagsstöðu við-
komandi nefnda og ráða.
Ótrygg framtíð
Margir telja ráðuneytið eiga
eftir að sanna ágæti sitt. Hug-
myndir ráðherra um framtíð BBC
þykja t.d. mjög óljósar. Einnig
hafa þingmenn Verkamannflokks-
ins gagnrýnt stefnuleysi ráðuneyt-
isins gagnvart kvikmyndum. Að
áliti Anne Clwyd, eins þingmanns
Verkalýðsflokksins, er ekkert
form enn komið á ráðuneytið og
því erfitt að vita hver framtíð þess
verður. Hið nýja ráðuneyti má
einnig reikna með því að verða
gagnrýnt þegar ákveða þarf hvaða
stofnanir á að styðja fjárhagslega.
Sú hefð hefur skapast í Bretlandi
að ríkisstjórn taki ekki slíkar
ákvarðanir en nú mun Peter Bro-
oke gera það.
Hayden Phillips viðurkennir að
ráðuneytið sé enn í mótun. Hann
telur að það muni taka þijú ár að
Arfleiðarráðuneytið - Peter
Brooke, arfleiðarráðherra.
koma starfseminni í réttan farveg.
En það er óvíst hvort arfleiðar-
ráðuneytið hafi þennan tíma til
umráða. Ríkisstjóm John Majors
á við mörg vandamál að stríða og
óljóst hve lengi hún mun sitja.
Framtíðin ein getur leit í ljós hver
örlög hins nýja ráðuneytis verða.
BÍÓIIM í BORGIIMNI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Sommersby ★ ★ ★
Þó að efnisþráðurinn þoli ekki hárfínar
rannsóknir þá er ástarsagan óvenju
viðfelldin. Jodie Foster er frábær og
útlit myndarinnar, sem gerist að loknu
þrælastríðinu, með eindæmum vel
gert.
Avallt ungur ★ ★
Mel Gibson í dularfullri samsuðu me-
lódrama og vísindaskáldskapar. Út-
koman geðfelld vitleysa fyrir klúta-
fólk.
Leyniskyttan ★
Tom Berenger leikur leyniskyttu í lam-
aðri frumskógarmynd sem vantar rök-
réttan söguþráð.
Ljótur leikur ★★★'/«
Ögrandi, afargott verk um tregafull
mannleg samskipti og ómanneskjuleg
átök og umhverfi. Rómantísk spennu-
mynd.
BÍÓHÖLLIN
Captain Ron ★
Sauðmeinlaus en með eindæmum
aulaleg gamanmynd um landkrabba-
fjölskyldu og skipstjórann þeirra.
Maleolm X ★ ★ ★
Fer hægt af stað en þegar hún kemst
á skrið stoppar hana ekkert. Alltof
löng en á endanum áhrifamikil mynd
frá Spike Lee. Denzel Washington er
frábær sem X-ið.
Banvænt bit ★
Blóðsugumynd John Landis gengur
ekki upp, er bæði ófyndin og óspenn-
andi, en það er kraftur í Robert Logg-
ia í sínu fyrsta vampýruhlutverki.
Skíðafrí í Aspen ★
Vinskapur, rómantík og frægur skíða-
staður. Óspennandi langloka með
nokkrum góðum skíðaatriðum.
Konuilmur ★★★'/?
Afar vönduð mynd um samband ólíkra
einstaklinga. Eftirminnileg fyrir vel-
skrifað handrit og afburðaleik A1 Pac-
inos.
Meistararnir ★ 'A
Klisjum hlaðin gamanmynd um lög-
fræðing sem á að koma röð og reglu
á íshokkíleik vandræðagemlinga.
Bambi ★ ★ ★
Ein af sígildu Disneymyndunum sem
kann ekki að eldast og enn gleður
mannsins hjarta.
HÁSKÓLABÍÓ
Siglt til sigurs ★ ★
Tilkomumikil á meðan vindurinn blæs
í seglin en mannlegi þátturinn er allur
lákúrulegri í þessari misjöfnu mynd
um siglingakeppnina um Ameríkubik-
arinn.
Stúlkan, löggan og bófinn ★ ★
Óvenjuleg mynd um óvenjulegar per-
sónur. Ristir ekki djúpt og er borin
uppi af leik stórstjamanna.
Lifandi ★ ★ ★
Afar vel sviðsett mynd um ótrúlegar
mannraunir sem gerðust hátt uppi {
Andesfjöllum fyrir tveimur áratugum.
Mýs og menn ★ ★ ★
Ljúfsár og vönduð kvikmyndagerð
uppúr frægri sögu Johns Steinbecks
um vináttu og náungakærleik. John
Malkovich er frábær sem Lenny.
Jennifer 8. ★ ★
Brokkgengur eltingarleikur lögregiu
við fjöldamorðingja. Gott upphaf og
endasprettur en langur og lítt spenn-
andi miðkafli dregur myndina niður.
Vinir Péturs ★ ★ ‘A
Endurfundir vinahóps eftir tíu ára
fjarvistir. Bresk útgáfa af „The Big
Chill“ en hvergi nærri eins frísk og
frumleg og fyrri myndir Kenneths
Branaghs. Á engu að síður sína góðu
spretti.
Karlakórinn Hekla ★ ★
Bestu stundir Karlakórsins Heklu eru
söngatriðin þegar kórinn syngur sig
inní hjörtu áhorfenda. Gamanþáttur-
inn brokkgengur.
Howards End ★ ★ ★
Frábærlega vel leikin og gerð bíóút-
gáfa af sögu E. M. Forsters sem ger-
ist um aldamótin síðustu. Bókmennta-
leg, bresk og býsna skondin.
LAUGARÁSBÍÓ
Stjúpbörn ★
Einkar væmin gamanmynd um unga
stúlku sem flýr ruglingslegt Tjöl-
skyldulíf sitt.
Feilspor ★ ★ ★
Góð sakamálamynd um glæpahyski
sem stefnir á smábæ þar sem hug-
rakkur lögreglustjóri bíður þeirra.
Fínn leikur og spennandi saga undir
leikstjórn Carls Franklins.
Hörkutól ★ y«
Lögreglumaður gerist mótorhaus til
að koma upp um glæpsamlega mótor-
hjólaklíku. Klisjukennd og lítt spenn-
andi þótt byggð sé á sönnum atburð-
um.
Nemo litli ★★★
Ungur drengur bjargar draumaland-
inu frá glötun í fallegri og hæfilega
ógnvekjandi teiknimynd fyrir yngri
kynslóðina. Talsetningin ómetanlegt
innlegg.
REGNBOGINN
Goðsögnin ★
Hrollvekja sem fer vel af stað en fell-
ur síðan kylliflöt í rútínu tómatsósu-
hasar.
Ólíkir heimar ★ 'A
Sidney Lumet verður flest á í mess-
unni í gyðinglegri útgáfu af Vitninu.
Melanie Griffith ræður illa við aðal-
hlutverkið.
Loftskeytamaðurinn ★ ★ ★
Vel leikin mynd um stórbrotinn ná-
unga sem setur heldur betur svip sinn
á mannlífið í norskum smábæ. Byggð
á sögu eftir Knud Hamsun.
Siðleysi ★★★'/«
Frábærlega gerð mynd Louis Malle
um ástarsamband sem hefur mjög
slæmar afleiðingar í för með sér. Leik-
hópurinn góður og leikurinn sterkur.
Ferðin til Las Vegas ★ ★ ★
Unaðsleg kómedía frá Andrew Berg-
man um tregan brúðguma sem er við
það að missa ástina sína í hendur
milla eftir slæman póker. Frábærar
persónur og Elvis-eftirlíkingar.
Englasetrið ★ ★ ★
Forpokaðir sænskir sveitavargar reyn-
ast besta fólk þegar nútímaleg borgar-
börn eru búin að skólpa af þeim skin-
helgina. Bráðhress.
Tommi og Jenni mála bæinn rauð-
ann ★ ★
Lítið fer fyrir gamla góða ástar/hat-
urs sambandi félaganna í mynd sem
einkum ætti að hugnast yngsta fólk-
inu.
SAGABÍÓ
Á hættutímum ★ ★
Ungt fólk sýnir uppreisn gegn nasis-
manum með tjútti en er kveðið í kút-
inn. Eins og Bekkjarfélagið bara síðri.
Stuttur Frakki ★ ★ '/«
Skemmtileg mynd um Frakka sem
lendir í villum í Reykjavík. Leikur
ágætur. Eggert Þorleifsson stelur sen-
unni og Frakkinn er mjög góður.
STJÖRNUBÍÓ
Dagurinn langi ★ ★ 'A
Bill Murray tekur að endurmeta líf
sitt þegar hann vaknar alltaf til sama
dagsins í þessari rómantísku gaman-
mynd. Hún er best þegar Murray er
sem illskeyttastur en svo linast hann
Ojg verður mjúki maðurinn.
Oll sund lokuð ★ ★
Van Damme er köttur í bóli bjarnar
f afar illa leikinn nútímaútgáfu af
vestranum Shane. Átakaatriðin góð.
Helja ★ ★ '/«
Hnökrótt, skopleg ádeila um ímyndað-
ar hetjur og fjölmiðlafár. Góður Hoff-
man.