Morgunblaðið - 04.08.1993, Side 8
KARFA
MHMI
,
KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI KSI
KR og ÍA mætast í undanúrslitaleik bikarkeppninnar í kvöld kl. 19.00
Baráttuleikur
í uppsiglingu
FYRRI undanúrslitaleikurinn í bikarkeppni karla verður í kvöld á
KR-vellinum við Frostaskjól. Heimamenn taka þá á móti íslands-
meisturunum af Skaganum, og voru fulltrúar liðanna báðir sam-
mála um að barist yrði tii síðustu stundar. „Það verður barning-
ur á öllum vígstöðum og ekki spurning að það verður barist um
hvern einasta bolta,“ sagði Sigurður Jónsson Skagamaður og
Rúnar Kristinsson KR-ingur bjóst líka við miklum baráttuleik.
Seinni undanúrslitaleikurinn verður á morgun, en þá taka bikar-
meistarar Vals á móti ÍBK á Laugardalsvelli.
Morgunblaðið/Einar Falur
Barátta og aftur barátta
RÚNAR Kristinsson og Sigurður Jónsson verða í eldlínunni á miðjunni þegar
lið þeirra KR og ÍA mætast í undanúrslitaleiknum í kvöld. Það verður væntan-
lega ekki jafn kært á milli þeirra meðan á leiknum stendur og var þegar þeir
hittust á landsliðsæfíngu fyrr í sumar.
Liðin hafa leikið einn leik í sum-
ar á heimavelli Skagamanna,
og sigruðu heimamenn 1:0, en liðin
mætast aftur í deildinni nk. sunnu-
dag, þá á heimavelli KR-inga likt
og í kvöld.
Einn mesti baráttuleikurinn
„Ég get alveg lofað mönnum því
að þetta verður einn mesti baráttu-
leikurinn í sumar. Bæði liðin ætla
að leggja sig öll í þetta,“ sagði Sig-
urður Jónsson í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Við vitum að þeir
verða alveg bijálaðir á morgun.
Gengi þeirra hefur verið upp og
ofan í deildinni, og það er mikið
atriði fyrir þá að komast í úrslitin."
Sigurður sagði að það skipti þá
líka miklu máli að komast í úrslita-
leikinn, þeir væru alls ekki búnir
að vinna deildina þó staðan væri
óneitanlega góð. „Það hafa ekki
margir hjá okkur spilað bikarúr-
slitaleik, en þeir sem það hafa gert
vita að bikarúrslitaleikurinn er einn
skemmtilegasti leikurinn á sumrinu.
Við höfum verið að reyna að troða
því inn í hausinn á þessum strákum
sem ekki hafa spilað bikarúrslita-
leik hvað þetta er mikil stemmning,
og ég ætla rétt að vona þeir nái
því, viti að hveiju þeir eru að keppa
og fari með réttu hugarfari í leikinn
á morgun."
Þeir f á að svitna
Það er líka mikill hugur í KR-ing-
um fyrir leikinn. „Við vorum saman
allir um helgina, í rólegheitum í
Reykholti og höfðum það gott. Það
var bæði undirbúningur fyrir þenn-
an leik og komandi leiki í íslands-
mótinu,“ sagði Rúnar Kristinsson í
gær. „Við ætlum að reyna að láta
þá svitna. Guðjón Þórðarson hafði
á orði að við fengjum að svitna vel
í þessum leikjum, og ég held að ef
þeir ætla að láta okkur svitna þurfi
þeir líka að svitna sjálfir."
KR-ingar geta reyndar ekki stillt
upp sínu sterkasta liði í leiknum.
Varnaijaxlinn Þormóður Egilsson
er í banni, og Óskar Hrafn Þor-
valdsson er enn ekki búinn að ná
sér af meiðslum. Þá má Bjarki Pét-
ursson ekki leika með liðinu í bikar-
keppninni. „Að vissu leyti vildum
við geta stillt upp okkar sterkasta
liði, en við verðum að fylla upp í
það eins vel og við getum og stilla
okkur saman.“
Liðsheild og einstaklingar
„Þegar Óli Gott [Ólafur Gott-
skálksson, markvörður KR] er í
formi þá er enginn sem ver eins
og hann,“ sagði Sigurður þegar
hann var beðinn um að meta í
hveiju styrkleiki KR-liðsins fælist.
„Svo er menn eins og Atli vinur
minn, og Rúnar, sem alltaf er stór-
hættulegur."
Rúnar sagði að liðsheildin hjá
Skagamönnum væri þeirra sterka
hlið. „Þeir virðast vera með mjög
sterka liðsheild, ég hef reyndar
ekkert séð þá spila og aðeins spilað
einu sinni á móti þeim í sumar. Þá
unnu þeir okkur en voru ekkert
betri en við.“
Tap gegn
Rússum
ÍSLENSKA drengjalandsliðið f
körfuknattleik tapaði fyrir
Rússum með 58 stigum gegn
94 í þriðja leik liðsins f úrslita-
keppni Evrópumóts drengja-
landsliða, sem haldið er þessa
dagana í Tyrklandi. Liðið hefur
tapað öllum leikjum sínum á
mótinu til þessa, fyrst gegn
Tyrkjum og sfðan gegn ítölum,
og loks gegn Rússum í gær.
Íslensku strákamir léku frábærlega
í fyrri hálfleik gegn Rússum, og
skildu aðeins sex stig liðin í leikhléi,
35:41. Það var einkum Ólafur Orms-
son sem hélt liðinu á floti, gerði sjö
fyrstu stig liðsins, 16 í hálfleiknum
og nítján alls í leiknum. Láðið hafði
hins vegar lítið í það rússneska að
segja í síðari hálfleik. Helgi Guðfins-
son var næst stigahæstur með 13
stig og Amþór Birgisson gerði 12.
Islenska liðið tapaði fyrir Tyrkjum
í fyrsta leiknum, 61:82, og í öðrum
leiknum mættu liðið ítölum og tap-
aði með 50 stigum gegn 76. Helgi
Guðfinnsson var stigahæstur í báð-
um leikjunum, gerði 23 stig í hvomm
leik. Ólafur Ormsson gerði 15 stig á
móti Tyrkjum og 13 stig á móti
Itölum, og var næst stigahæstur í
báðum leikjunum.
KNATTSPYRNA
Danir sigruðu
Landslið íslands í knattspyrnu
skipað konum 20 ára og yngri
tapaði fyrsta leiknum á Norður-
landamóti U20 ára landsliða, gegn
Dönum.með þremur mörkum gegn
engu. Staðan í hálfleik var 1:0 fyr-
ir Dani. Svíar og Bandaríkjamenn
sem eru í sama riðli og það íslenska
gerðu jafntefli 2:2 í gær, en í dag
leika íslensku stúlkurnar við Banda-
ríkjamenn.
KA Akureyrarmeistari
KA varð í gærkvöldi Akureyrar-
meistari í meistaraflokki karla í
knattspyrnu er liðið gerði marka-
laust jafntefli við Þór í síðari leik
liðanna í Akureyrarmótinu á KA-
velli. KA vann fyrri leikinn 1:0.
SUND/EVROPUMEISTARAMOTIÐ I SHEFFIELD
Guttler tók við af Rozsa
UNGVERJINN Karoly Guttler setti glæsilegt heimsmet í 100 I metra skriðsundi í úrslitum. Hún
metra bringusundi karla og táningurinn Franziska van Almsick var ekki langt frá því að bæta
frá Þýskalandi vann tvenn gullverðlaun og setti eitt Evrópu- heimsmetið — synti á 54.57 sek.
met á fyrsta keppnisdegi Evrópumótsins í sundi í Sheffield í ' og bætti Evrópumet Kristinar Otto
Englandi ígær.
Guttler setti heimsmetið [1:00.95] í 100 metra
bringusundinu í undanrásum í gærmorgun.
Hann synti fyrri 50 metrana á 28,52 sek. ög þá var
ljóst að heimsmetið væri í hættu. Hann bætti þar
með heimsmet landa síns, Norbert Rozsa, frá því á
EM í Aþenu 1991, um 0,34 sekúndur. Rozsa er nú
fluttur til Ástralíu og keppir því ekki á mótinu.
Haím tryggði sér síðan gullverðlaunin í úrslitasund-
inu sem fram fór síðdegis á 1:01.04 mín. og synti
þá fyrri 50 metrana á 28.43 sek. en náði ekki að
fylgja því eftir á seinni 50 þannig að heimsmetið
stóð. „Ég er ánægður að hafa bætt þetta met og
jafnframt undrandi," sagði Guttler sem er 25 ára
og varð m.a. í öðru sæti á eftir Bretanum Adrian
Moorhouse á Ólympíuleikunum í Seoul 1988. Guttl-
er hefur aldrei áður orðið Evrópumeistari en hefur
verið á meðal bestu sundmanna heims síðustu ár.
Hann náði ekki að komast í úrslit á Ólympíuleikun-
um í Barcelona í fyrra.
Þýska undrabarnið
Þýska undrabarnið Franziska van Almsick, sem
er aðeins 15 ára gömul, setti Evrópumet í 100
Þróun heimsmetsins
Hér á eftir fer listi yfir þróun heimsmetsins
í 100 metra bringusundi karla frá því 1972.
1:05.13 Nobutaka Taguchi (Japan)............29.8.72
1:04.94 Taguchi.............................30.8.72
1:04.35 John Hencken (Bandar.)...............4.9.73
1:04.02 Hencken..............................4.9.73
1:03.88 Hencken.............................31.8.74
1:03.62 Hencken.............................19,7.76
1:03.11 Hencken.............................20]7.76
1:02.86 Gerald Morken (V-Þýskalandi).........17.8.77
1:02.62 Steve Lundquist (Bandar.)...............19.7.82
1:02.53 Lundquist...........................21.8.82
1:02.34 Lundquist............................6.8.83
1:02.28 Lundquist......................... 17.8.83
1:02.13 John Moffett (Bandar.)..............25.6.84
1:01.65 Lundquist...........................29.7.84
1:01.49 Adrian Moorhouse (Bretlandi)........15.8.89
1:01.49 Moorhouse...........................25.1.90
1:01.49 Moorhouse...........................26.7.90
1:01.49 NorbertRozsa(Ungveijal.).............7.1.91
1:01.45 ' Rozsa..............................7.1.91
1:01.45 Vasily Ivanov (Rússlandi)...........11.6.91
1:01.29 Rozsa...............................20.8.91
1:00.95 Karoly Guttler (Ungverjal.)..........3.8.93
I frá Þýskalandi um 0,16 sek.
Heimsmetið er 54.48 sek. og er í*
eigu Jenny Thompson frá Banda-
I ríkjunum. Van Almsick var einnig
í sigursveit Þjóðverja í 4x200
metra skriðsundi í gær.
„Músin“ örugg
Ungverska „músin“ Krisztina
Egerszegi, sem vann þrenn gull-
verðlaun á Ólympíuleikunum í
Barcelona og síðasta Evrópumóti,
sigraði með yfirburðum í 400
metra fjórsundi og var rúmlega
fimm sekúndum á undan næsta
keppanda. Hún synti á 4:39.55
mín. og var töluvert frá heimsmet-
inu [4:36.10].
Finni stal senunni
19 ára Finni, Antti Kasvio, stal
senunni í 200 metra skriðsundi
karla og vann m.a. rússneska
ólympíumeistarann Evgeny
Sadovi, sem varð að sætta sig við
annað sætið. Kasvio synti á
1.47.11 mín.
Reuter
Þýska undrabarnið
ÞÝSKA stúlkan Franziska van
Almsick lagfærir hér sundgleraugun
áður en hún stingur sér til sunds í
úrslitum 100 metra skriðsundsins.